Helle Laks. Hún tók nýlega við viðurkenningu Iðnaðarmannafélagsins í Reykajvík, fyrsta konan sem félagið heiðrar fyrir besta handverk á sveinsprófi í skrúðgarðyrkju. Helle er sænsk en á eistenskan föður og samíska móður, en faðir hennar upplifði ótrúlegar hörmungar í seinni stríði og komst við illan leik til Svíþjóðar. Móðurfólkið hennar bjó við jaðarsetningu vegna upprunans og var móðir hennar sex ára send sumarlangt í sveit til að læra sænsku, Ástæðan fyrirþví að hún kom til Íslands var íslenski hesturinn og í dag býr hún ásmt manni sínum og börnum í hesthúsi og nýtur lífsins.