Hlaðvarp Lestrarklefans

Hlaðvarp Lestrarklefans

By LestrarklefinnSociety & CultureArtsBooks
Download on the App Store

Hlaðvarp Lestrarklefans episodes

  • 19. Úr bók í bíó: Hamnet

    Við kynnum nýjan dagskrárlið: Úr bók í bíó!

    Rebekka Sif segir að þessu sinni Sjöfn Asare af upplifun sinni á sögulegu skáldsögunni Hamnet og kvikmyndaaðlögun hennar. Kafað er ofan í frásagnaraðferðir Maggie O´Farrell og hvernig henni tekst að glæða gamla sögu nýju og hrífandi lífi.

    Umsjónarmenn: Rebekka Sif Stefánsdóttir og Sjöfn Asare

    31 min
  • 18. Leikhúsannáll Lestrarklefans

    Leikhúsgagnrýnendurnir okkar Díana Sjöfn og Sjöfn Asare fara yfir liðið leikár og líta til þess sem er spennandi í leikhúsunum 2026.

    Umsjónarmenn: Díana Sjöfn Jóhannsdóttir og Sjöfn Asare.

    52 min
  • 17. Bókmenntaskandalar ársins 2025

    Í þessum hressilega hátíðarþætti Hlaðvarps Lestrarklefans fara Rebekka, Díana og Sjöfn yfir bókmenntaskandala ársins 2026. Er Laxness úti? Arnaldur líka? Hver á að skrifa ungmennabækur? Hver er Akörn? Mun Bókaklúbbur Íslands fordæma þennan þátt? Gleðilegt nýtt lestrarár kæru lesendur!

    Umsjónarmenn: Rebekka Sif, Díana Sjöfn og Sjöfn Asare

    47 min
  • 16. Krakkakraftur með Emblu Bachmann

    Í þætti dagsins fáum við Emblu Bachmann til okkar að ræða barna- og ungmennabækur og lífið sem ungstirni með milljón bolta á lofti.

    Leiðrétting: Í þættinum er rætt um ungmennabækur og að þær séu allar fantasíur þetta árið, en það er ekki rétt, þær eru nánast allar fantasíur, það leynist ein hversdagssaga þarna!

    Umsjónarmenn: Rebekka Sif, Sjöfn Asare og Díana Sjöfn

    38 min
  • 15. Ævintýralegar bækur með Ævari Þór

    Einn afkastamesti rithöfundur Íslands settist með okkur í Lestrarklefann og spjallaði við okkur um skrif og bókmenntir. Ævar Þór Benediktsson er með fjórar nýjar bækur í jólabókaflóðinu, Skólastjórann, Góðan daginn, Piparkökuborgina og Gleðileg jól. Verkefnin eru óteljandi og því nóg um að ræða.

    Umsjónarmenn: Díana Sjöfn Jóhannsdóttir og Sjöfn Asare.

    41 min
  • 14. Á barmi heimsenda með Þórdísi Helgadóttur

    Í hlaðvarpi dagsins fáum við rithöfundinn Þórdísi Helgadóttur í heimsókn sem gaf nýverið út skáldsöguna Lausaletur. Við ræðum við Þórdísi um bókina, rithöfundalífið og heimsenda.

    Umsjónarmenn: Rebekka Sif Stefánsdóttir, Díana Sjöfn Jóhannsdóttir og Sjöfn Asare.

    44 min
  • 13. Hrollvekjur með Gunnari Theodóri

    Hrekkjavaka og hræðilegar verur hafa tekið yfir bókmenntirnar þessa dagana. Við fengum Gunnar Theodór til okkar sem hefur einmitt skrifað nokkrar hrollvekjur, þar á meðal Vatnið brennur og Álfareiðina, sem er nýútkomin og er ætluð ungmennum. Kannið með okkur hryllilegar slóðir í hlaðvarpi dagsins.

    Það er vel við hæfi að þátturinn sé einmitt númer þrettán!

    Umsjónarmenn: Rebekka Sif og Sjöfn Asare

    38 min
  • 12. Landslag ljóðsins með Maó

    Í þætti dagsins fáum við góðan gest, ljóðskáldið og rithöfundinn Maó Alheimsdóttur, sem gaf nýverið út ljóðabókina Hvalbak. Við ræðum um ljóðið, náttúruna og innblásturinn. Stjórendur hlaðvarpsins eru Rebekka Sif, Díana Sjöfn og Sjöfn Asare.

    40 min
  • 11. Fyrir flóðið

    Haustlestur er okkur efst í huga í þætti dagsins. Fyrsta bylgja flóðsins er hafin og við könnum þær gersemar sem hafa nú þegar skolað á land. Við skoðum einnig leikárið og ræðum um þau leikverk sem við erum spenntastar fyrir.

    Umsjónarmenn: Rebekka Sif Stefánsdóttir, Díana Sjöfn Jóhannsdóttir og Sjöfn Asare

    40 min
  • 10. Ungmennabækur með Kristínu Björgu

    Í fyrsta hlaðvarpsþætti vetrarins fengum við góða heimsókn frá rithöfundinum Kristínu Björgu Sigurvinsdóttur sem skrifar einnig umfjallanir fyrir Lestrarklefann. Við ræðum okkar uppáhalds ungmennabækur og ræðum um bókmenntaformið, fortíð þess og framtíð.

    Umsjónarmenn: Rebekka Sif Stefánsdóttir og Sjöfn Asare

    52 min

About Hlaðvarp Lestrarklefans

From the publisher's feed

Í hlaðvarpi Lestrarklefans ræða þáttastjórnendur við fjölbreytta lesendur um öll málefni tengd bókmenntum, lestri og menningu. Fáðu þér endilega sæti í Lestrarklefann.