Spegillinn

Hugvíkkandi efni, grænmetis skömmtun og rammaáætlun 5


Listen Later

Hundruð milljóna tjón varð í bruna fiskeldisfyrirtækis á Tálknafirði í morgun. Slökkvilið er enn að störfum. Tveir slösuðust í brunanum.
Áhyggjur eru um að verkföll Eflingar muni hafa áhrif á um 2000 manns á hjúkrunarheimilum á höfuðborgarsvæðinu, fáist ekki undanþága til að fá afgreitt bensín fyrir starfsfólk.
Dómsmálaráðherra vill skoða hvort hægt sé að nota hugvíkkandi efni til að hjálpa afbrotamönnum sem glíma við geðræn vandamál og lögreglumönnum sem hafa orðið fyrir áfalli í starfi.
Breytt hegðun landsmanna eftir covid 19 faraldurinn gæti útskýrt hversu skæðar umgangspestir eru um þessar mundir. Þetta segir framkvæmdastjóri lækninga á heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. Fimmta bólusetning vegna covid-19 er hafin
Verslanakeðjur í Bretlandi skammta grænmeti og ávexti vegna vöruskorts. Slæm tíð og veðurfar í suður Evrópu og Afríku hefur ollið uppskerutjóni á tómötum, paprikum og fleiri tegundum
-----
Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra telur að rétt að skoða kosti þess að nota hugvíkkandi efni til að hjálpa föngum sem hafa lokið afplánun til aðlagast samfélaginu á ný og einnig til aðstoða þolendur í ofbeldismálum. Rannsóknir á hugvíkkandi efnum á borð við sveppi, LSD og MDMA benda til þess að þau hafi jákvæð áhrif á geðsjúkdóma svo sem þunglyndi, fíkn og þrjáhyggju. Jón hefur viðraði þessar hugmyndir við Kára Stefánsson forstjóra Íslenskrar erfðagreiningar.
Að minnsta kosti fjórar verslanakeðjur í Bretlandi hafa gripið til þess ráðs að skammta ákveðnar tegundir af ávöxtum og grænmeti vegna vöruskorts. Ástæðan er fyrst og fremst rakin til slæmra veðurskilyrða til ræktunar í Norður-Afríku og Suður-Evrópu, einkum suðurhluta Spánar, í haust og vetur. Asda, ein stærsta verslanakeðja landsins, sem rekur á sjöunda hundrað verslanir, reið á vaðið á þriðjudag og tilkynnti að takmarka yrði kaup á tómötum, paprikum, agúrkum, salati í lausu og í pokum, spergilkáli, blómkáli og hindberjum við þrjár einingar á hvern viðskiptavin. Talsmaður Asda harmaði að til þessa þyrfti að koma, en keðjan glímdi við skort á ýmsum tegundum grænmetis og ávaxta eins og aðrir smásalar í landinu. Önnur keðja, Morrisons, tilkynnti síðdegis að hún þyrfti að skammta tómata, agúrkur, salat og paprikur frá næsta degi. Miðað var við að hver viðskiptavinur gæti einungis keypt tvær einingar til þess að sem flestir fengju eitthvað.
Vinna við undirbúning verndar- og orkunýtingaráætlunar stjórnvalda, sem í daglegu tali kallast rammaáætlun, hófst formlega 1999 eftir langan aðdraganda. Rammaáætlun er hugsuð sem lagarammi um orkubúskap Íslendinga og s
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

SpegillinnBy RÚV

  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7

4.7

6 ratings


More shows like Spegillinn

View all
Vikulokin by RÚV

Vikulokin

8 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

470 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

149 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

24 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

28 Listeners

Heimsglugginn by RÚV

Heimsglugginn

11 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

24 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

11 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

70 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

30 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

9 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

7 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

14 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

27 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

7 Listeners