Spegillinn

Í sóttkví í vinnunni. Mannúðaraðstoð. Ofsóknir á Indlandi.


Listen Later

Yfirlæknir á smitsjúkdómadeild Landspítalans spáir því að tugir þúsunda eigi eftir að smitast af kórónuveirunni hér á landi á næstu mánuðum.
Nær allir starfsmenn hjúkrunarheimilisins Sundabúðar á Vopnafirði eru komnir í sóttkví eða einangrun og hefur heimilið óskað eftir aðstoð til að sinna íbúum.
Rúmlega þrjátíu snjóruðningstæki hafa vart undan við að ryðja götur og göngustíga á Akureyri. Reyndur mokstursmaður segir að verkinu ljúki ekki fyrr en á næsta ári.
Tollverðir í Rotterdam í Hollandi fundu nýverið tæp tvö tonn af kókaíni í þremur sendingum. Söluandvirðið er talið nema hátt í tuttugu milljörðum króna.
Lengri umfjallanir:
Fyrirsjáanleikinn er enginn og fólk er orðið langþreytt. Þetta segir Aníta Aagestad, hjúkrunarfræðingur og trúnaðarmaður hjá Félagi íslenskra hjúkrunarfræðinga. Hún gengur nú kvöldvaktina á gjörgæslu Landspítalans við Hringbraut, í sóttkví. Það sárvantar fólk á deildina. Arnhildur Hálfdánardóttir ræðir við Anítu Aagestad.
Sviðsstjóri hjá Rauða krossinum segir útlit fyrir að á næsta ári verði þörfin fyrir mannúðaraðstoð meiri en nokkru sinni fyrr. Aðkoma stjórnvalda þurfi að verða markvissari því hjálparsamtök geti ekki ein síns liðs unnið á neyð heimsins. Arnhildur Hálfdánardóttir ræðir við Atla Viðar Thorstensen.
Kristnir söfnuðir á Indlandi sæta vaxandi ofsóknum af hálfu öfgafullra hindúa þar í landi. Um þverbak keyrði um jólin í ár þegar hátíðahöld kristinna voru trufluð á ofbeldisfullan hátt. Erlend fjárframlög til Hjálparstarfs Móður Teresu á Indlandi hafa verið fryst. Kristján Sigurjónsson segir frá.
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

SpegillinnBy RÚV

  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7

4.7

6 ratings


More shows like Spegillinn

View all
Vikulokin by RÚV

Vikulokin

6 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

476 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

146 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

23 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

24 Listeners

Heimsglugginn by RÚV

Heimsglugginn

13 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

26 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

11 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

73 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

26 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

20 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

5 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

10 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

31 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

6 Listeners