Spegillinn

Inniviðaráðherra um samgöngusáttmála og orðstír Giulianis


Listen Later

Spegillinn 28. ágúst 2023.
Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir. Tæknimaður: Mark Eldred. Stjórn útsendingar: Annalísa Hermannsdóttir.
Samgöngusáttmáli höfuðborgarsvæðisins er stórt verkefni og eðlilegt að hann sé endurskoðaður, en hann er hluti af stærra verkefni samgangna í landinu öllu segir Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra, þar þurfi að finna jafnvægi og leiðir til tekjuöflunar. Pétur Magnússon talaði við hann.
Afar lítill munur er á verði á þeim vörum sem eru í verðgátt stjórnvalda og hún virðist ekki hafa ýtt undir samkeppni verslana. Valgerður Gréta Gröndal tók saman og ræddi við Vilhjálm Hilmarsson hagfræðing hjá BHM og Magnús Sigurbjörnsson, forstöðumann Rannsóknarseturs Verslunarinnar
Landsvirkjun hagnaðist um tæpa 16 milljarða króna á fyrstu sex mánuðum ársins. Hörður Arnarson forstjóri að kerfið sé nánast fullnýtt og til að skapa svigrúm sé verið að ýta gagnaverum með rafmyntagröft út. Haukur Holm tók saman.
Hægt er að bæta aðferðir við veiðar á stórhvölum, að mati starfshóps matvælaráðherra, sem skilaði skýrslu um málið. Ari Páll Karlsson sagði frá.
---------------
Væntingar voru miklar og tímalínan brött þegar Samgöngusáttmáli höfuðborgarsvæðisins var undirritaður fyrir fjórum árum, segir Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra en það vissu allir. Á fimmtán ára samningstíma sé eðlilegt að hlutir séu endurskoðaðir en samgöngusáttmáli höfuðborgarsvæðisins sé bara eitt púsl af mörgum í heildarmyndinni. Pétur Magnússon ræddi við Sigurð.
Rudy Giuliani var mikils metinn alríkissaksóknari og barðist ötullega gegn glæpum þegar hann var borgarstjóri í New York. Nú er hann meðal þeirra sem eru sóttir til saka fyrir að hafa reynt að snúa niðurstöðum forsetakosninganna í Bandaríkjunum þegar Donald Trump tapaði fyrir Joe Biden, þykir undarlegur í háttum og orðstír hans til fárra fiska metinn. Ásgeir Tómasson sagði frá.
Innflytjendum á Íslandi hefur fjölgað um tugi þúsunda frá aldamótum. En það eru ekki aðeins erlendir ríkisborgarar sem flytja hingað, heldur flytja þúsundir Íslendinga líka til annarra landa á ári hverju. Ævar Örn Jósepsson ræddi við Ólöfu Garðarsdóttur, prófessor í sagnfræði.
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

SpegillinnBy RÚV

  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7

4.7

6 ratings


More shows like Spegillinn

View all
Vikulokin by RÚV

Vikulokin

8 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

468 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

152 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

24 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

29 Listeners

Heimsglugginn by RÚV

Heimsglugginn

12 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

24 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

11 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

69 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

29 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

9 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

7 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

14 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

26 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

7 Listeners