Spegillinn

Jarðhræringum lokið, upplýsingar um börn, Aqualung plata Jethro Tull


Listen Later

Spegillinn 19.3.2021
Umsjónarmaður: Bergljót Baldursdóttir
Allt bendir til þess að jarðhræringum sem verið hafa á Reykjanesskaga sé að ljúka. Þetta segir jarðeðlisfræðingur á Veðurstofunni. Þá hafi líkur á eldgosi minnkað mikið. Rætt við Benedikt Ófeigsson, jarðeðlisfræðing á Veðurstofunni.
Sóttvarnalæknir hyggst fara eftir niðurstöðu úr rannsóknum Danmerkur, Noregs og Svíþjóðar um framhald bólusetningu með efni AstraZeneca. Líklegt er að ákvörðun um bóluefni Astra Zeneca liggi fyrir í lok næstu viku. Til greina kemur að takmarka enn frekar þann hóp sem fær efnið. Sóttvarnalæknir segir mögulegt að hópsmitið sem kom upp fyrir tveimur vikum sé enn á ferðinni. Rætt við Þórólf Guðnason, sóttvarnalækni
Litakóðunarkerfið sem tekið verður upp á landamærunum 1. maí snýst fyrst og fremst um að taka tillit til stöðu faraldursins í hverju landi, Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra segir að það sé misskilningur að litakóðunarkerfið sem tekið verður upp á landamærunum 1. maí snúist um að opna landið. Núverandi kerfi verði áfram við lýði fyrir alla nema þá sem koma frá grænum löndum. Þeir þurfi eigi að síður að framvísa neikvæðu PCR-prófi og gangast undir skimun.
Lögreglan telur sig vera með skotvopnið sem beitt var í morðinu í Rauðagerði í febrúarmánuði. Armando Bequiri, sem var skotinn til bana fyrir utan heimili sitt í Rauðagerði, Margeir Sveinsson yfirlögregluþjónn segir að talin hafi verið hætta á hefndaraðgerðum en lögregla metur það sem svo að sú hætta sé ekki lengur fyrir hendi
Almannavarnir vara við því að hrunið geti úr hlíðinni ofan Seyðisfjarðar, en hreyfinga hefur orðið vart í skriðusárinu sem myndaðist í desember.
Börnum í Fossvogsskóla verður frá og með þriðjudeginum kennt í húsnæði Korpuskóla í Grafarvogi. Helgi Grímsson, sviðsstjóri skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborgar segir að það hafi verið besti kosturinn í erfiðri stöðu.
Árás á tölvukerfi finnska þingsins er rakin til hakkara sem sagðir eru starfa á vegum stjórnvalda í Kína.
Lengri umfjöllun
Samkeyra á upplýsingar um börn úr ýmsum kerfum hér á landi með samþykki foreldra. Markmiðið er að bæta þjónustu við börnin. Félags- og barnamálaráðherra hefur lagt fram nokkur frumvörp á Alþingi þar sem gert er ráð fyrir viðamiklum breytingum á þjónustu við börn. Ragnhildur Thorlacius ræðir við Steinunni Birnu Magnúsdóttur, lögfræðing hjá Persónuvernd
Kristján Sigurjónsson fjallaði um 50 ára afmæli tímamótaplötunnar Aqualung með Jethro Tull
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

SpegillinnBy RÚV

  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7

4.7

6 ratings


More shows like Spegillinn

View all
Vikulokin by RÚV

Vikulokin

6 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

476 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

146 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

23 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

24 Listeners

Heimsglugginn by RÚV

Heimsglugginn

13 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

26 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

11 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

73 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

26 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

20 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

5 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

10 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

31 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

6 Listeners