Gestur þáttarins er Jón Björnsson, sálfræðingur og rithöfundur.
Jón segir m.a. frá farskólanum sem hann var í sem barn, Menntaskólanum á Akureyri sem hann stundaði nám í, kennslu í Gagnfræðaskóla Akureyrar þar sem var erfiður skóli og námsárunum í Þýskalandi.
En einnig frá útskriftarverkefni sínu úr sálfræðinámi í Þýskalandi, þar sem hann gerði könnun á högum aldraðra (65+) bæði á Dalvík og í Reykjavík, sem þá var nánast óþekkt hér á landi. Hann talar um æviskeiðin þrjú, en þó einkum um þriðja æviskeiðið, þegar fólk „er orðið stórt".
Umsjón: Viðar Eggertsson.