Spegillinn

Jörð skelfur norðan við Grindavík og þrýstingur á fjárlaganefnd


Listen Later

25. október 2023
Um 1.400 jarðskjálftar hafa mælst í jarðskjálftahrinu sem hófst norðan við Grindavík í nótt. Ekki er að sjá merki um gosóróa en um margt minnir hrinan á aðdraganda fyrri gosa. Bæjarstjóri í Grindavík segir að bæjarbúar hafi fundið vel fyrir skjálfta upp á 4,5 í morgun en séu öllu vanir.
Bændasamtök Íslands telja neyðarástand ríkja í íslenskum landbúnaði, afkomubrestur sé í flestum greinum og bændur geti ekki greitt sér lágmarkslaun. Stýrivaxtahækkanir ofan í aðrar hækkanir hafi aukið fjármagnskostnað svo mikið að á tveimur árum greiði þeir 8,6 milljarða með framleiðslunni úr eigin vasa.
Formaður Starfsgreinsambandsins segir að ef semja á til langs tíma verði að vinna bug á verðbólgu og vöxtum; það geri verkalýðshreyfingin ekki ein.
Sameinuðu þjóðirnar gætu þurft að gera hlé á mannúðaraðstoð sinni á Gaza-svæðinu í kvöld, vegna skorts á eldsneyti og rafmagnsleysis sem því fylgir. Læknir á Gaza segir spítala sinn verða að fjöldagröf án rafmagns.
Opnað hefur verið fyrir umferð um brú yfir Þorskafjörð.
Repúblikaninn Mike Johnson var síðdegis kosinn forseti fulltrúadeildar bandaríska þingsins.
-------------
Fjárlaganefnd Alþingis þarf að tala afstöðu til krafna um ríflega hundrað milljarða króna útgjaldaaukningu á fjárlögum. Það er erfitt verk því fari útgjaldaaukningin úr böndunum er viðbúið að Seðlabankinn svari með vaxtahækkun.
Eitt ár er frá því að Rishi Sunak tók við embætti forsætisráðherra Bretlands. Helmingur landsmanna telur að hann hafi staðið sig illa í starfi. Einungis ellefu prósent eru ánægð með hann.
Í fyrra fæddust um 4.400 börn á Íslandi og hefur frjósemi í landinu aldrei verið minni. Lengi vel var frjósemi hér meiri en annars staðar á Norðurlöndum en dregið hefur saman segir Ólöf Garðarsdóttir, sagnfræðingur og forseti hugvísindasviðs Háskóla Íslands.
Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir. Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon. Stjórn útsendingar: Margrét Júlía Ingimarsdóttir
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

SpegillinnBy RÚV

  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7

4.7

6 ratings


More shows like Spegillinn

View all
Vikulokin by RÚV

Vikulokin

8 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

468 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

152 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

24 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

28 Listeners

Heimsglugginn by RÚV

Heimsglugginn

12 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

24 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

10 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

69 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

29 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

9 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

7 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

14 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

27 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

7 Listeners