Spegillinn

Kaldur blettur í hitnandi heimi, Puigdemont snýr aftur til Barcelona


Listen Later

Samkvæmt evrópsku loftslagsþjónustunni Kópernikus var 22. júlí síðastliðinn heitasti dagur á Jörðinni frá upphafi mælinga, og sló þar með fyrra hitamet - sem var frá deginum áður. Hlýnun Jarðar er staðreynd, og það á jafnt við um andrúmsloftið sem hafið - nema á stöku stað. Einn þessara stöku staða er heljarinnar kuldapollur eða blár blettur í hafinu suðvestur af Íslandi, sem hefur mikil áhrif á veðurfar hér, enda voru engin hitamet slegin hér á þessum heitasta degi Jarðar, eins og segir á vef Veðurstofunnar. Til að hér sé þægilega hlýtt þarf varmaflutning til landsins, segir Halldór Björnsson fagstjóri veðurs og loftslags á veðurstofunni, og þessi varmaflutningur fer annars vegar um loftið og hins vegar um hafið, sem loftið ber svo áfram. Linda Blöndal ræðir við Halldór.
Lengi lifi frjáls Katalónía, sagði Carles Puigdemont, fyrrverandi leiðtogi héraðsins - á katalónsku að sjálfsögðu - þegar hann ávarpaði um 3.500 stuðningsmenn í Barcelona í morgun. Puigdemont var á Spáni í fyrsta sinn frá því hann flýði handtökuskipan spænskra stjórnvalda fyrir sjö árum. Hann hraðaði sér svo af sviðinu í fylgd félaga sinna og hugðist mæta á héraðsþingið. Það fór ekki alveg þannig.
Ástæða handtökuskipunarinnar er að Puigdemont boðaði sem leiðtogi Katalóníu til atkvæðagreiðslu árið 2017 um sjálfstæði þrátt fyrir að spænskur dómstóll hefði bannað það. Að kosningu lokinni lýsti Puigdemont yfir sjálfstæði en dró það til baka í sömu ræðu. Hallgrímur Indriðason segir frá.
Umsjón: Ævar Örn Jósepsson
Tæknimaður: Mark Eldred
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

SpegillinnBy RÚV

  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7

4.7

6 ratings


More shows like Spegillinn

View all
Vikulokin by RÚV

Vikulokin

6 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

477 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

146 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

90 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

24 Listeners

Heimsglugginn by RÚV

Heimsglugginn

13 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

26 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

11 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

73 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

26 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

20 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

5 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

10 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

32 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

6 Listeners