Karfan
Download on the App Store

Karfan episodes

  • Aukasendingin: Hannes Jónsson ,,Við eigum að njóta, hafa gaman og vera stolt af þessum árangri"

    Aukasendingin settist niður með Hannesi Jónssyni framkvæmdarstjóra KKÍ og varaforseta FIBA til þess að ræða EuroBasket 2025, væntingar til liðsins, muninn á mótunum 2015, 2017 og í dag, borgina Katowice og margt fleira.

    Upptakan er tekin á ferðalagi íslenska liðsins frá Litháen til Póllands þar sem það er nú við lokaundirbúning sinn fyrir lokamótið sem hefst með leik gegn Ísrael komandi fimmtudag 28. ágúst í Katowice í Póllandi.

    Aukasendingin er í boði Bónus deildanna, Kristalls, Lykils, Bónus, Lengjunnar og Tactica.

    Samstarfsaðilar Körfunnar eru Bónus, Wodbúð körfubolti, Tactica, Lengjan, Kristall og Lykill.

    Hér heimsækir þú Körfuna



    18 min
  • Aukasendingin: Tryggvi Snær ,,Höfum verið að sanna að við eigum bullandi séns í öll þessi lið"

    Aukasendingin settist niður með Tryggva Snæ Hlinasyni leikmanni Bilbao og íslenska landsliðsins til þess að ræða EuroBasket 2025, ferðalag hans sem leikmanns, hverjir hafi verið erfiðustu andstæðingarnir og margt, margt fleira.

    Upptakan er tekin á hóteli íslenska landsliðsins í Litháen, þar sem liðið var við lokaundirbúning sinn fyrir lokamótið sem hefst með leik gegn Ísrael komandi fimmtudag 28. ágúst í Katowice í Póllandi.

    Aukasendingin er í boði Bónus deildanna, Kristalls, Lykils, Bónus, Lengjunnar og Tactica.

    Samstarfsaðilar Körfunnar eru Bónus, Wodbúð körfubolti, Tactica, Lengjan, Kristall og Lykill.

    Hér heimsækir þú Körfuna



    21 min
  • Sjötti maðurinn: EuroBasket umræða, komnir farnir og hvers vegna er Tómas Valur ekki í hópnum?

    Sjötti maðurinn mættur aftur eftir sumarfrí nánast fullmannaður. Öddi vant við látinn í þetta skiptið en góðurvinur þáttarins, Óðinn (Lóðinn) mætti í stað Ödda og stóð sína plikt vel. 

    Tókum vel ígrundaða umræðu um EuroBasket hóp okkar Íslendinga, hópar andstæðinga okkar í riðlinum og skúbb varðandi Tómas Val.

    Góð vika slæm vika, uppáhalds sjötti og allskonar veisla. 

    Stjórnendur: Mikael Máni Hrafnsson, Eyþór Orri Árnason og Ögmundur Árni Sveinsson.

    Sjötti maðurinn er í boði Bónus, Tactica, Lengjunnar, Kristalls og Lykils

    Samstarfsaðilar Körfunnar eru Bónus, Wodbúð körfubolti, Tactica, Lengjan, Kristall og Lykill.

    Hér heimsækir þú Körfuna



    1 hr 4 min
  • Trúnó með Valla: Martin Hermannsson og Elvar Már Friðriksson

    Í þessari þriðju upptöku af Trúnó fær Valdimar Halldórsson til sín vinina Martin Hermannsson og Elvar Már Friðriksson til þess að ræða allt milli himins og jarðar, en liðið undirbýr sig þessa dagana fyrir lokamót EuroBasket 2025 sem rúllar af stað komandi fimmtudag 28. ágúst.

    Báðir hafa þeir farið áður á stórmót með Íslandi, en Martin var í liðinu sem fór til Berlín 2015 og báðir voru þeir í liðinu sem fór til Helsinki 2017.

    Stjórnandi: Valdimar Halldórsson

    Trúnó er í boði Kristalls, Tactica, Lykils, Bónus og Lengjunnar.

    Samstarfsaðilar Körfunnar eru Bónus, Wodbúð körfubolti, Tactica, Lengjan, Kristall og Lykill.

    Hér heimsækir þú Körfuna



    45 min
  • Aukasendingin: Sigtryggur Arnar ,,100% Skagfirðingur"

    Aukasendingin settist niður með Sigtryggi Arnari Björnssyni leikmanni Tindastóls og íslenska landsliðsins til þess að ræða EuroBasket 2025, uppruna, feril hans með landsliðinu og margt, margt fleira.

    Upptakan er tekin á hóteli íslenska landsliðsins í Litháen, þar sem liðið er við lokaundirbúning sinn fyrir lokamótið sem hefst með leik gegn Ísrael komandi fimmtudag 28. ágúst í Katowice í Póllandi.

    Aukasendingin er í boði Bónus deildanna, Kristalls, Lykils, Bónus, Lengjunnar og Tactica.


    Samstarfsaðilar Körfunnar eru Bónus, Wodbúð körfubolti, Tactica, Lengjan, Kristall og Lykill.

    Hér heimsækir þú Körfuna



    21 min
  • Trúnó með Valla: Ægir Þór Steinarsson fyrirliði Íslands

    Í þessari annarri upptöku af Trúnó fær Valdimar Halldórsson fyrirliða Íslands Ægir Þór Steinarsson til sín til þess að ræða allt milli himins og jarðar, en liðið undirbýr sig þessa dagana fyrir lokamót EuroBasket 2025 sem rúllar af stað komandi fimmtudag 28. ágúst.

    Ægir Þór er að fara með liðinu á sitt þriðja lokamót, en hann var hluti af liðinu sem fór bæði 2015 og 2017. Síðan þá hefur hinsvegar margt breyst er varðar hlutverk hans innan liðsins, þar sem hann hefur verið fyrirliði og leiðtogi þeirra síðustu ár.

    Stjórnandi: Valdimar Halldórsson

    Trúnó er í boði Kristalls, Tactica, Lykils, Bónus og Lengjunnar.

    Samstarfsaðilar Körfunnar eru Bónus, Wodbúð körfubolti, Tactica, Lengjan, Kristall og Lykill.

    Hér heimsækir þú Körfuna



    44 min
  • Aukasendingin: Ótímabær spá fyrir Bónus deild kvenna, EuroBasket og brúðkaup í Grindavík

    Aukasendingin fékk Ólöfu Helgu Pálsdóttur í heimsókn til þess að fara yfir málefni líðandi stundar, Ísland á lokamót EuroBasket, brúðkaup Jóa Óla, ótímabæra spá Körfunnar fyrir Bónus deild kvenna og margt fleira.

    Aukasendingin er í boði Bónus deildanna, Kristalls, Lykils, Bónus, Lengjunnar og Tactica.

    Samstarfsaðilar Körfunnar eru Bónus, Wodbúð körfubolti, Tactica, Lengjan, Kristall og Lykill.

    Hér heimsækir þú Körfuna



    42 min
  • Aukasendingin: Ótímabær spá fyrir Bónus deild karla, EuroBasket nálgast og slúður

    Aukasendingin fékk Sigurð Orra Kristjánsson í heimsókn til þess að fara yfir málefni líðandi stundar, undirbúningsleiki Íslands fyrir lokamót EuroBasket, slúður, ótímabæra spá Körfunnar fyrir Bónus deild karla og margt fleira.

    Aukasendingin er í boði Bónus deildanna, Kristalls, Lykils, Bónus, Lengjunnar og Tactica.


    Samstarfsaðilar Körfunnar eru Bónus, Wodbúð körfubolti, Tactica, Lengjan, Kristall og Lykill.

    Hér heimsækir þú Körfuna



    53 min
  • Trúnó með Valla: Styrmir Snær og Hilmar Smári

    Í þessari fyrstu upptöku af Trúnó fær Valdimar Halldórsson landsliðsmennina Styrmi Snæ Þrastarson og Hilmar Smára Henningsson til sín til þess að ræða allt milli himins og jarðar, en liðið undirbýr sig þessa dagana fyrir lokamót EuroBasket 2025 sem rúllar af stað í lok mánaðar.

    Báðir voru leikmennirnir með íslenska landsliðinu þegar það vann sér inn sæti á lokamótinu, en Styrmir var einn fárra leikmanna liðsins sem tók þátt í öllum leikjum undankeppninnar.

    Stjórnandi: Valdimar Halldórsson

    Trúnó er í boði Kristalls, Tactica, Lykils, Bónus og Lengjunnar.


    Samstarfsaðilar Körfunnar eru Bónus, Wodbúð körfubolti, Tactica, Lengjan, Kristall og Lykill.

    Hér heimsækir þú Körfuna



    1 hr 2 min
  • Fyrstu fimm: Elvar Már Friðriksson

    Í þessum síðasta þætti af Fyrstu fimm fer leikmaður íslenska landsliðsins og Maroussi í Grikklandi Elvar Már Friðriksson yfir sitt byrjunarlið leikmanna sem hann hefur spilað með á ferlinum.

    Elvar er 30 ára gamall og að upplagi úr Njarðvík. Eftir að hafa leikið upp yngri flokka félagsins hóf hann að leika með meistaraflokki þeirra árið 2011. Þar var hann allar götur til 2014, en þá fór hann til LIU í bandaríska háskólaboltanum. Eftir fyrsta árið þar skipti hann um skóla og lauk feril sínum í háskólaboltanum með Barry árið 2018.

    Síðan þá hefur hann leikið á fjölmörgum stöðum í Evrópu, Svíþjóð, Frakklandi, Litháen, Ítalíu, Belgíu og nú síðast í sterkri efstu deild Grikklands. Þá hefur hann einnig verið í Evrópukeppnum með nokkrum þeirra liða sem hann hefur leikið fyrir.

    Á flestum stöðum lætur Elvar Már duglega að sér kveða, en einstaklingsverðlaun hans eru nokkur og frá ólíkum stöðum. Árið 2020 var hann valinn bakvörður ársins í Svíþjóð, 2021 verðmætasti leikmaðurinn í Litháen og í þrígang hefur hann verið valinn körfuboltamaður ársins á Íslandi, 2021, 2022 og 2023. Þá var hann valinn leikmaður deildar sinnar síðustu tvö árin í bandaríska háskólaboltanum.

    Síst merkileg eru met hans og titla er varða stoðsendingar, en hann virðist nánast alltaf vera meðal stoðsendingahæstu leikmanna sem hann spilar með/gegn hvort sem það er með landsliði eða í deild. Hann á t.a.m. stoðsendingamet grísku deildarinnar, en hann gaf 17 stykki í einum og sama leiknum á nýafstöðnu tímabili.

    Elvar Már hefur einnig gert vel með íslenska landsliðinu, en hann mun nú í haust fara í annað skiptið með liðinu á lokamót EuroBasket.

    Stjórnandi: Pálmi Þórsson

    Fyrstu fimm er í boði Kristalls, Tactica, Lykils, Bónus og Lengjunnar.


    Samstarfsaðilar Körfunnar eru Bónus, Wodbúð körfubolti, Tactica, Lengjan, Kristall og Lykill.

    Hér heimsækir þú Körfuna



    46 min

About Karfan

From the publisher's feed

Á podcast rás Körfunnar er að finna margar ólíkar upptökur sem allar eiga það sameiginlegt að vera tengdar íslenskum körfuknattleik. Rásin hefur verið til síðan árið 2017.

More shows like Karfan

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

469 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

140 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

21 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

129 Listeners

FM957 by FM957

FM957

27 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

91 Listeners

Endalínan by Podcaststöðin

Endalínan

9 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

17 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

35 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

15 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

25 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

12 Listeners

Boltinn Lýgur Ekki by SiggiOrri

Boltinn Lýgur Ekki

1 Listeners