Spegillinn

Katrín og Scholz, loftslagskvíði og veiruskita


Listen Later

Forsætisráðherra segir kröfur Tyrkja og vinnubrögð í tengslum við umsókn Finna og Svía um aðild að Nató alls ekki viðeigandi. Katrín og kanslari Þýskalands funduðu í Berlín í dag þar sem innrás Rússa í Úkraínu bar hæst.
Bandaríkjamenn ætla að senda Abrams skriðdreka til Úkraínu. Sífellt fleiri ríki heita vopnasendingum til landsins.
Lægðir eru væntanlegar á færibandi yfir landið á næstu dögum. Þeim fylgir ýmist snjókoma eða rigning.
Parainflúensa er landlæg í kúm á Íslandi, en það kom í ljós eftir að sjúkdómurinn greindist í kúm sem höfðu veikst af veiruskitu. Sérfræðidýralæknir segir sjúkdóminn þó ekki áhyggjuefni.
Dómsmálaráðuneyti Bandaríkjanna sakar Google tölvurisann um að hafa brotið samkeppnislög árum saman.
-----
Dómsmálaráðuneyti Bandaríkjanna hefur höfðað mál á hendur Google tæknirisanum fyrir að hafa komið í veg fyrir eðlilega samkeppni á auglýsingamarkaði á netinu síðastliðin fimmtán ár. Merrick Garland dómsmálaráðherra fór hörðum orðum um skort á siðferði innan fyrirtækisins þegar hann kynnti stefnuna á fundi með fréttamönnum í Washington. Ásgeir Tómasson tók saman.
Erum við á leið til helvítis? Er úti um okkur öll? Er Jörðin að stefna til glötunnar? Þessar spurningar heyrast reglulega í tengslum við loftslagsmál. Óneitanlega vekja loftslagsbreytingar og hörmungar tengdar þeim áhyggjur og kvíða meðal fólks - ekki síst meðal yngri kynslóðarinnar. Loftslagskvíði er fyrirbæri sem hægt er að lifa með og takast á við. Hann er tvíeggja, því hann getur hvatt fólk til góðra verka til að breyta venjum sínum og siðum í þágu betra loftslags. Í dag var haldinn hádegisfundur í Háskóla Íslands þar sem rætt var um loftslagskvíða og hvernig má lifa með honum. Meðal þeirra sem héldu erindi þar var Sverrir Norland, fyrirlesari, rithöfundur, útgefandi og þýðandi sem fjallað hefur um loftslagskvíða í verkum sínum, til að mynda í bókinni Stríð og kliður. Bjarni Rúnarsson fjallar um loftslagskvíða.
Stríðið í Úkraínu veldur Norðmönnum búsifjum. Ekki vegna skorts heldur vegna mikillar eftirspurnar og peningaflóðs inn í landið. Stríðsgróðinn er að færa allt úr skorðum. Ráðherrar í ríkisstjórn keppast við að spara og skera niður til að koma í veg fyrir ofþenslu, verðbólgu og vaxtahækkanir. Þetta er öfugt við það flestar Evrópuþjóðir standa frammi fyrir. Gísli Kristjánsson segir frá.
Umsjón: Bjarni Rúnarsson.
Tæknimaður: Mark Eldred.
Stjórn fréttaútsendingar: Valgerður Þorsteinsdóttir.
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

SpegillinnBy RÚV

  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7

4.7

6 ratings


More shows like Spegillinn

View all
Vikulokin by RÚV

Vikulokin

8 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

470 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

149 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

23 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

24 Listeners

Heimsglugginn by RÚV

Heimsglugginn

12 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

24 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

13 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

70 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

30 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

10 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

7 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

13 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

27 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

5 Listeners