Spegillinn

Kennari/bloggari í FG, TikTok sektað, stjórnarskrárbreytingar


Listen Later

Spegillinn 15.09.2023
Umsjón: Ásgeir Tómasson
Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon
Stjórn fréttaútsendingar: Valgerður Þorsteinsdóttir
Skólameistari í fjölbrautaskóla Garðabæjar telur ekki rétt að reka kennara þrátt fyrir að umdeildar bloggfærslur hans geti valdið nemendum vanlíðan. Kennarar við skólann eru margir ósáttir. Ásta Hlín Magnúsdóttir talaði við Kristin Þorsteinsson skólameistara og Petrúnu Björgu Jónsdóttur, kennara og hinseginfulltrúa skólans.
Karl Frímannsson, skólameistari Menntaskólans á Akureyri, hefur dregið sig út úr vinnu við sameiningu MA og VMA vegna ummæla Ásmundar Einars Daðasonar, mennta- og barnamálaráðherra í fjölmiðlum.
Persónuvernd Írlands hefur sektað kínverska samfélagsmiðlinn TikTok um 345 milljónir evra, sem jafngildir um 50 milljörðum íslenskra króna, vegna meðhöndlunar gagna árið 2020. Valgerður Gréta Gröndal sagði frá.
Heimsmarkaðsverð á eldsneyti hefur hækkað umtalsvert á undanförnum mánuðum. Fátt bendir til þess að það lækki á næstunni, að mati Jóns Bjarka Bentssonar, aðalhagfræðings Íslandsbanka. Benedikt Sigurðsson talaði við hann.
Rauði krossinn á Íslandi hefur sett af stað neyðarsöfnun vegna hamfaranna í Marokkó og Líbíu. Arnar Björnsson ræddi söfnunina viðp Odd Frey Þorsteinsson, kynningarstjóra RKÍ.
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segir að tillögur þær að stjórnarskrárbreytingum sem birtar voru í dag séu ekki hennar en þær byggist á mikilli vinnu sem á undan fór og vonar að þær verði grundvöllur samræðu og sáttar um stjórnarskrá. Hún fáist ekki nema allir horfi til framfara og ekki bara nákvæmlega eigin hugmynda. Anna Kristín Jónsdóttir talaði við Katrínu.
Eiginmaður Ernu Solbrerg, fyrrverandi forsætisráðherra Noregs, hefur viðurkennt að hafa blekkt konu sína og stundað umfangsmikil hlutabréfaviðskipti meðan hún stýrði landinu. Gísli Kristjánsson sagði frá.
Bernie Taupin, einn þekktasti dægurtextahöfundur heims, sendi í vikunni frá sér ævisöguna Scattershot: Life, Music, Elton and Me. Þar segir hann frá vinnu sinni fyrir Elton John í meira en 50 ár og rifjar upp ýmislegt fleira. Ásgeir Tómasson tók saman.
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

SpegillinnBy RÚV

  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7

4.7

6 ratings


More shows like Spegillinn

View all
Vikulokin by RÚV

Vikulokin

8 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

473 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

146 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

23 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

25 Listeners

Heimsglugginn by RÚV

Heimsglugginn

12 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

25 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

13 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

70 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

30 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

9 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

6 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

13 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

32 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

5 Listeners