Spegillinn

Kosningabaráttan hafin, mikil þingmannavelta fyrr og nú, örbirgð og átök í heiminum


Listen Later

Þingmenn mættu til starfa á Alþingi í morgun í fyrsta skipti frá því að ríkisstjórnin sprakk. Eitt mál var á dagskrá - umræða um þingrofstillögu forsætisráðherra. Eftir ræðuhöldin fóru kjörnir fulltrúar hver til síns heima, flestir til að undirbúa sig fyrir komandi átök og koma sér á framfæri við flokksapparötin í þeirri von að fá ásættanlegt sæti á framboðslista. Ræður þeirra sem tóku til máls báru þess glöggt merki að kosningabaráttan er hafin. Freyr Gígja Gunnarsson segir frá.
Í síðustu kosningum var þingmannaveltan hafi verið töluverð. Þegar kosið var 2021 settust 25 nýir þingmenn á Alþingi og 2017 voru nýju þingmennirnir 19 og 31 árið á undan. Talið er að tíu flokkar bjóði fram í kosningunum 30. nóvember, þeir átta sem eiga sæti á þingi og tveir til viðbótar - Sósíalistaflokkur Íslands og Lýðræðisflokkurinn. Eva Marín Hlynsdóttir, prófessor í opinberri stjórnsýslu við Háskóla Íslands segir breytingar á þingheimi hafa verið töluverðar og verði það líklega líka næst - Anna Kristín Jónsdóttir ræðir við hana.
1,1 milljarður Jarðarbúa býr við sára fátækt, örbirgð svo mikla að viðkomandi er ómögulegt að draga fram lífið án utanaðkomandi aðstoðar. Tæplega hálfur milljarður þessa örbjarga fólks býr á átakasvæðum, þar sem ýmist ríkir hreint stríðsástand eða mannskæðar árásir og vopnuð átök eru daglegt brauð. Og nær sex hundruð milljónir eru á barnsaldri, yngri en átján ára.
Verst er ástandið í Afríku sunnan Sahara og í Suður-Asíu. Þetta eru meginniðurstöður árlegrar úttektar Þróunaráætlunar Sameinuðu þjóðanna og Fátæktar- og þróunarrannsóknastofu Oxfordháskóla á fátækt í heiminum. Ævar Örn Jósespsson segir frá.
Umsjón: Ævar Örn Jósepsson
Tæknimaður: Mark Eldred
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

SpegillinnBy RÚV

  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7

4.7

6 ratings


More shows like Spegillinn

View all
Vikulokin by RÚV

Vikulokin

8 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

468 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

152 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

24 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

29 Listeners

Heimsglugginn by RÚV

Heimsglugginn

12 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

24 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

11 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

69 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

29 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

9 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

7 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

14 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

26 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

7 Listeners