Spegillinn

Krafa um rannsóknarnefnd, kosningar og samfélagsmiðlar og gagnaver


Listen Later

Salan á Íslandsbanka var áberandi í umræðum í þingsal í dag. Þingmenn úr stjórnarandstöðu fóru fram á að hlé yrði gert á þingfundi eftir að grein birtist í Kjarnanum þar sem haft er eftir Sigríði Benediktsdóttur, hagfræðingi við Yale-háskóla, að söluferlið hafi verið ólöglegt. Sigríður er fyrrverandi framkvæmdastjóri fjármálastöðugleikasviðs Seðlabanka Íslands og sat í rannsóknarnefnd Alþingis um bankahrunið. Hún segir í viðtali við Kjarnann að þegar yfir 150 kaupendur séu valdir til að kaupa magn bréfa, sem sé svo lítið að það hefði ekki hreyft við markaðsvirði Íslandsbanka ef þeir hefðu keypt á eftirmarkaði, brjóti það í bága við lög um sölumeðferð eignarhluta ríkisins í fjármálafyrirtækjum. Ríkisendurskoðun hefur fallist á beiðni fjármála- og efnahagsráðuneytisins um úttekt á útboðinu og sölunni.
Tilkoma samfélagsmiðla hefur á liðnum árum gjörbreytt kosningabaráttu í vestrænum lýðræðisríkjum. Segja má að straumhvörf hafi orðið þegar upp komst árið 2018 að breska fyrirtækið Cambridge analytica hafði selt forsetaframboði Donalds Trumps persónuupplýsingar um 87 mlljóna Facebook notenda fyrir forsetakosningarnar 2016. Í kjölfarið var persónuverndarlöggjöf víða breytt á vesturlöndum. Sveitarstjórnarkosningar verða hér á landi eftir rúman mánuð. Í gær var haldinn rafrænn fundur á vegum Persónuverndar, Fjarskiptastofu, Fjölmiðlanefndar, Landskjörstjórnar, lögreglu og netöryggissveitarinnar CERT-IS um stafrænar áskoranir frambjóðenda í aðdraganda kosninganna. Almennir frambjóðendur voru hvattir til að sækja fundinn því það er margt að varast í kosningabaráttunni. Helga Þórisdóttir er forstjóri Persónuverndar.
Erlend stórfyrirtæki hafa fengið milljarðastyrki til að byggja gagnaver í Svíþjóð. Í staðinn vonuðust stjórnvöld eftir þúsundum starfa, verðmætri þekking og betri stafrænum innviðum. Styrkirnir sæta vaxandi gagnrýni, sem og lágt raforkuver til gagnaveranna. Og nú hefur ríkisendurskoðun tekið málið til athugunar.
Helstu atriði frétta:
Ríkisendurskoðun stefnir að því að skila úttekt á útboði og sölu ríkisins á Íslandsbanka í júní. Kröfu stjórnarandstöðunnar um að rannsóknarnefnd á vegum Alþingis rannsaki útboðið var hafnað.
Bankasýsla ríkisins vísar á bug gagnrýni hagfræðings, sem sat í rannsóknarnefnd Alþingis um hrunið, að lög hafi verið brotin við söluna á Íslandsbanka.
11 flokkar bjóða fram til borgarstjórnar í vor. Framboðsfrestur rann út í dag. Framboð í Reykjavík var í miklu kapphlaupi við tímann til að skila inn meðmælum í tæka tíð.
Sáralitlu munar á fylgi Emmanuels Macrons Frakklandsforseta og Marine
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

SpegillinnBy RÚV

  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7

4.7

6 ratings


More shows like Spegillinn

View all
Vikulokin by RÚV

Vikulokin

8 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

474 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

146 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

23 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

24 Listeners

Heimsglugginn by RÚV

Heimsglugginn

13 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

25 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

11 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

71 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

20 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

5 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

10 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

32 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

5 Listeners