Spegillinn

Landspítali yfirfullur, Ófærð vítt og breitt og málefni fatlaðs fólks


Listen Later

Landspítalinn ætti erfitt með að takast á við stórslys, ef til þess kæmi, að sögn forstöðumanns bráðaþjónustu. Spítalinn er troðfullur og álag á bráðamóttöku hættulega mikið vegna alvarlegra öndunarfærasýkinga.
56 hafa látist í óveðri sem gengið hefur yfir Bandaríkin seinustu daga. Á næstu dögum er spáð hlýnandi veðri vestanhafs.
Sorphirða er á eftir áætlun víða um land vegna fannfergis og fólk ergir sig á yfirfullum tunnum. Forstjóri Íslenska gámafélagsins biður fólk að sýna biðlund og huga að mokstri. Sorphirðumenn dragi ekki fullar tunnur yfir skafla.
Um 800 björgunarsveitarmenn hafa sinnt verkefnum sem tengjast veðri og færð í desember. Formaður Landsbjargar segir þreytu farið að gæta en blessunarlega hafi þetta dreifst. Þó að hann telji ekki koma til greina að björgunarsveitirnar rukki fólk fyrir aðstoð telur hann til umhugsunar að herða viðurlög við að hunsa lokanir. Björgunarsveitarmenn lendi oft á milli steins og sleggju.
Ákveðið hefur verið hvað kemur í stað umdeildrar styttu í smábæ í Virginíuríki, sem eyðilögð var í mótmælum árið 2020. Fyrirmynd nýrrar styttu hefur verið kölluð móðir nútíma læknavísinda.
Í morgun blasti hvít jörð við mörgum landsmönnum og ef litið var á færðarkort Vegagerðarinnar þá var rauði liturinn sem táknar lokun áberandi. Hann dofnaði þegar leið á daginn og vegir voru opnaðir en enn er víða þungfært og hált og hringvegurinn var lokaður milli Víkur og Kirkjubæjarklausturs en opnaði á sjötta tímanum. Undanfarnar vikur hafa verið björgunarsveitarmönnum annasamar og Landsbjörg ráðleggur ferðamönnum að huga vel að búnaði bíla sinna. Vanbúinn bíll getur orðið fleirum til vandræða en þeim sem í honum er. Það sé gott að vera með skóflu, hlý föt og vera vel klæddur ef moka þarf út bílinn eða aðstoða aðra. Þá er fólk hvatt til að láta vita af ferðum sínum og skilja jafnvel eftir ferðaáætlun á safetravel.is. Þar er líka að finna upplýsingar um veður og færð. Otti Rafn Sigmarsson, formaður Landsbjargar, býr í Grindavík þar sem snjó kyngdi niður í nótt og mikið var fyrir þannig að færðin varð fljótlega mjög þung og mikið að gera. Anna Kristín Jónsdóttir ræddi við Otta.
Störukeppni ríkisins og sveitarfélaganna í málefnum fatlaðs fólks er orðin ansi langvinn. Nú virðast augnlokin aðeins vera farin að nötra. Um miðjan mánuðinn var gert samkomulag á milli þriggja ráðuneyta og Sambands íslenskra sveitarfélaga um breytingu á fjármögnun lögbundinnar þjónustu sveitarfélaga við fatlað fólk. Færa á fimm milljaðar frá ríki til sveitarfélaga í málaflokknum. Gert er ráð fyrir að útsvarsálagning sve
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

SpegillinnBy RÚV

  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7

4.7

6 ratings


More shows like Spegillinn

View all
Vikulokin by RÚV

Vikulokin

8 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

470 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

149 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

23 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

24 Listeners

Heimsglugginn by RÚV

Heimsglugginn

12 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

24 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

13 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

70 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

30 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

10 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

7 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

13 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

27 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

5 Listeners