Spegillinn

Launaþjófnaður, ráðning jaðrar við misbeitingu valds og loftslagsaðlög


Listen Later

Umsjón: Hafdís Helga Helgadóttir
Tæknimaður: Mark Eldred
Forstöðumaður kjarasviðs Fagfélaganna, sem tekur fyrir ásakanir um launaþjófnað á tveimur veitingastöðum í Reykjavík, segir skorta viðurlög við slíkum brotum. Fleiri ábendingar hafa komið inn á borð til þeirra eftir umfjöllun síðustu daga.
Heiða Björg Hilmisdóttir er nýr formaður stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga. Í fyrsta skipti í rúm þrjátíu ár fellur formannsembættið ekki Sjálfstæðismönnum í hlut. Sólveig Klara Ragnarsdóttir talaði við Heiður Björg Hilmisdóttur.
Bráðnun Grænlandsjökuls kemur til með að hækka sjávarmál um nærri þrjátíu sentimetra jafnvel ef meðalhiti jarðar stendur í stað. Þetta eru niðurstöður nýrrar rannsóknar sem birtar voru í dag. Þórgnýr Einar Albertsson tók saman.
Stjórnvöld í Úkraínu boða gagnsókn gegn Rússum á hernumdum svæðum í suðurhluta Úkraínu. Stefnt er að því að ná völdum á ný yfir borginni Kherson og er fólki þar ráðlagt að halda sig fjarri þeim skotmörkum sem gætu tengst her Rússa. Dagný Hulda Erlendsdóttir tók saman.
Prófessor við Hugvísindasvið Háskóla Íslands segir túlkun ráðherra á lögum um tilflutning embættismanna, við ráðningu nýs þjóðminjavarðar, hafa jaðrað við misbeitingu á valdi. Hólmfríður Dagný Friðjónsdóttir talaði við Jón Ólafsson.
?Freðhvolf jarðar er eins og lífsnauðsynlegt líffæri fyrir jörðina. Sumt getum við ekki læknað úr þessu, heldur bara meðhöndlað". Þetta segir Anna Hulda Ólafsdóttir, forstöðumaður skrifstofu loftslagsþjónustu og aðlögunar. Rætt var við Önnu Huldu og Árna Snorrason forstjóra Veðurstofu Íslands um stöðuna. Hafdís Helga Helgadóttir tók saman.
Margir Bretar fá hroll þegar þeir hugsa til komandi vetrar vegna síhækkandi verðs á flestum nauðsynjavörum. Verðbólga er komin yfir tíu prósent og jafnvel er gert ráð fyrir að hún fari í átján prósent eftir áramót. Hrollurinn jókst til muna fyrir helgi þegar Ofgem, stofnunin sem fer með orkumál í Bretlandi, tilkynnti um áttatíu prósenta hækkun á orku til húshitunar. Ásgeir Tómasson tók saman.
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

SpegillinnBy RÚV

  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7

4.7

6 ratings


More shows like Spegillinn

View all
Vikulokin by RÚV

Vikulokin

8 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

473 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

147 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

23 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

25 Listeners

Heimsglugginn by RÚV

Heimsglugginn

12 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

25 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

13 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

71 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

30 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

9 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

6 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

14 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

32 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

5 Listeners