Lestin

Lestin

Download on the App Store

All Lestin episodes

  • Pólitísk nóbelsverðlaun, ofurríkir undirbúa heimsendi, Die Antwoord
    Nýjasti nóbelsverðlaunahafinn sem var kynntur í morgun, er hin 82 ára Annie Ernaux frá Frakklandi. Hún er höfundur sem talar skýrt inn Metoo-tímana sem við lifum, höfundur sem talar inn á alþjóðlegar deilur um þungunarrof og rétt kvenna yfir eigin líkama. Við ræðum feminisma, stéttavitund og sjálfsævisögulegar bækur Annie Ernaux við Arndísi Hrönn Egilsdóttur og Torfa Tuliníus.
    Við ferðumst aftur í tímann með hjálp Gunnars Jónssonar, pistlahöfundar, sem er díónýsk losun hugleikin að þessu sinni. Hann rifjar upp viðburð sem átti sér stað í Laugardalshöllinni árið 2016, tónleika Die Antwoord.
    Hvað gerist þegar heimurinn endar? Hvað ætlar þú að gera? Hvert ferðu? Fæstir hugsa mikið um heimsendi, hvað þá undirbúa sig. Það gera hins vegar margir af ríkustu mönnum heims, og jafnvel væri hægt að ganga svo langt að segja að þeir búist við honum. Við kynnum okkur heimsendaundirbúning hinna ofurríku í Lest dagsins.
    55 min
  • MeToo-byltingin í MH, internet-skáldsagan, karaókí og eldfjallafræði
    Við heimsækjum Menntaskólann við Hamrahlíð og kynnum okkur hræringar sem hafa átt sér stað innan veggja skólans undanfarna daga, lítil metoo-bylting sem nú hefur náð eyrum fjölmiðla.
    Guðrún Elsa Bragadóttir fjallar um tvær heimildarmyndir á Riff, Alþjóðlegri kvikmyndahátíð í Reykjavík. Ein fjallar um ástfangna eldfjallafræðinga en hin um nokkra Finna sem lifa fyrir karaókí: Fire of Love og Karaokeparatiisi.
    Á síðasta ári kviknuðu í hinum enskumælandi bókmenntaheimi umræður um eitthvað sem var kallað internet-skáldsagan ? the internet novel. Kveikjan var nánast samtímis útgáfa tveggja bóka eftir tvo bandaríska kvenrithöfunda. Bækur sem tókust báðar á við sítengda tilveru á skýran hátt. Lauren Oyler gaf út bókina Fake Accounts eða og Patricia Lockwood gaf út No One is talking about this. Við veltum fyrir okkur skáldskap á tímum samfélagsmiðla.
    55 min
  • Fyrsti kvenleikstjóri heims, hlutverk trúbadorsins, Sundlaugasögur
    Við kynnum okkyur fyrsta kvenleikstjóra í heimi, Alice Guy, en nokkrar af myndum hennar verða sýndar á Bíótekinu á sunnudag, en það eru mánaðarlegar kvikmyndasýningar í Bíó Paradís á vegum Kvikmyndasafns Íslands. Við ræddum við Ester Bíbi og Gunnar Tómas Kristófersson.
    Patrekur Björgvinsson heldur áfram að fjalla um ýmis fyrirbæri í alþýðumenningu samtímans. Í síðasta pistli, fyrir tveimur vikum pældi hann í þeirri hefð að gefa húsbílum nöfn. En að þessu sinni veltir hann fyrir sér trúbadorum, hlutverki þeirra og stöðu í samfélaginu.
    Jón karl Helgason kvikmyndagerðarmaður hefur rannsakað sundmenningu Íslendinga í myndum sínum. Fyrst í mynd sem heitir Sundið sem fjallaði um sundkennslu á Íslandi og svo nú í myndinni Sundlaugasögur sem verður frumsýnd í kvöld. Þar kynnir hann sér ýmiskonar félagsstarf og sundmenningu í laugum landsins.
    55 min
  • Umdeildir þættir um Sex Pistols, sorglegt bíó, söngur hnúfubaka
    RIFF hófst á fimmtudaginn, við kíktum í bíó og veltum fyrir okkur þeim sorglegu kvikmyndum sem við sáum þar.
    Fróði Jónsson, dýraatferlisfræðingur, mun næstu mánudaga flytja pistla hér í Lestinni um menningarheim dýra, fyrst fáum við að heyra um hvalasöng.
    SJónvarpsþættirnir Pistol, leiknir þættir um sögu pönksveitarinnar Sex Pistols, hafa víða verið til umræðu að undanförnu og sitt sýnist hverjum. Algjört flopp segir The Guardian og 'breitt yfir kjarna byltingar pönksins' er skrifað á Roger Ebert.com. En margir aðrir eru hrifnir af þáttunum. Flosi Þorgeirsson, mikill aðdáandi Sex Pistols, kom og spjallaði við okkur um þættina.
    55 min
  • Í beinni frá RIFF
    Við ræðum við Hrönn Marínósdóttir, stjórnanda og stofnanda RIFF. Guðrún Elsa Bragadóttir rýnir í kvikmyndina Vera, opnunarmynd hátíðarinnar. Aldís Amah Hamilton, leikkona og Sigurjón Sighvatsson, kvikmyndaframleiðandi og leikstjóri spjalla við okkur um hátíðina og kvikmyndabransann.
    54 min
  • Endurkoma tónlistarmannsins Auðar, piparjónkur og Ari Árelíus
    Siðasta föstudag kom út lagið Tárin falla hægt með Bubba Morthens og Auðuni Lútherssyni, sem kemur fram undir listamannsnafninu Auður. Þetta er fyrsta lagið sem Auður sendir frá sér eftir að hann dró sig í hlé um mitt síðasta ár í kjölfar ásakana um kynferðisofbeldi. Fjölda tónleika var aflýst, hann dró sig úr hlutverkum í leikhúsi og sjónvarpsþáttum auk þess sem tónlist, sem hann hafði gefið út, var tekin út af streymisveitum. Talað var um að honum hefði verið slaufað.
    Davíð Roach Gunnarsson tónlistargagnrýnandi fjallar um nýja plötu Ara Árelíusar, Hiatus Terræ.
    Salvör Gullbrá Þórarinsdóttir rýnir í þættina Piparjónkan.
    55 min
  • Mótmæli í Íran, hugtakið velferðarsamfélag, uppeldisaðferðir Juliu Fox
    Við ræðum mótmælin í Íran, slæður og siðgæðislögregluna við íranska konu búsetta á Íslandi. Hún velur að koma fram nafnlaust, enda geti það haft afleiðingar í för með sér fyrir hana og fjölskyldu sína ef hún gagnrýnir írönsk stjórnvöld í fjölmiðlum.
    Leikkonan Julia Fox komst í fréttir fyrr á árinu þegar hún var um stutt skeið kærasta bandaríska rapparans Kanye West. Nú er hún samfélagsmiðla-fræg og orðin að hálfgerðu fyrirbæri. Margt sem hún segir og gerir á netinu vekur upp sterk viðbrögð netverja. Assa Borg Þórðardóttir kafaði ofan í umdeild ummæli hennar um barnavinnu en Fox vill endilega að börn taki þátt í því að halda hjólum atvinnulífsins gangandi.
    Nú í sumar kviknaði rökræða milli talsfólks stéttarfélagsins Eflingar og Viðskiptaráðs Íslands. Í Kjarabréfi Eflingar í lok júní voru skoðuð opinber útgjöld til ýmissa málaflokka bæði hér á landi og annars staðar á Norðurlöndunum - og niðurstaðan var sláandi að 'Ísland nái ekki máli sem norrænt velferðarríki.' Viðskiptaráð svaraði með sinni eigin grein þar sem tölurnar voru skoðaðar aftur og niðurstaðan var allt önnur: velferð á Íslandi stenst vel samanburð við Norðurlönd. Þessi ólíku samtök notuðu því hugtakið velferð og velferðarríki sem eftirsóknarverða mælikvarða á íslenskt samfélag, þó þær væru ósammála um hvort núverandi velferðarkerfi stæði undir nafni. Guðmundur Jónsson, prófessor í sagnfræði, hefur rannsakað þetta hugtak og sögu þess í íslenskri umræðu og flutti um það fyrirlestur í Háskóla Íslands fyrr í dag. Ég fór og hitti Guðmund og fékk hann til að segja mér hvenær þetta hugtak kemur inn í íslensku.
    55 min
  • 3D-prentaðar byssur, menn með bleika þríhyrninga, argentínskur dans
    Þrívíddarprentuð skotvopn hafa verið nokkuð í umræðunni hér landi eftir að lögregla handtók menn sem höfðu smíðað slíkar byssur og eru sagðir hafa ætlað sér að fremja með þeim hryðjuverk. Við kynnum okkur sögu 3D-skotvopna og hugmyndafræðina sem drífur þróunina áfram en tæpur áratugur er frá því að fyrsta þrívíddarprentaða skotvopnið kom fram á sjónarsviðið.
    Heiða Vigdís Sigfúsdóttir ritlistarnema sendir sinn fjórða og síðasta pistil frá Argentínu. Að þessu sinni reimar hún á sig dansskóna og fjallar um dansa Rómönsku Ameríku.
    Bókin Mennirnir með bleika þríhyrninginn kom fyrst út árið 1972, skrifuð undir dulnefninu Heinz Heger, höfundanafni Hans Neumann. Bókin segir sögu Josef Kohout, sem var fangi í fangabúðum nasista í 6 ár. Hvorugur þeirra vildi koma fram undir nafni, en ástir samkynhneigðra voru taldar glæpsamlegar þangað til árið áður en bókin kom út. Þessi frásögn varpaði ekki bara ljósi á þjáningar samkynhneigðra fanga í búðunum heldur einnig á skortinn á viðurkenningu og skaðabótum fyrir þennan hóp við lok stríðsins. Bókin í íslenskri þýðingu Guðjóns Ragnars Jónassonar kom fyrst út árið 2013 en er nú gefin út aftur af Sögufélaginu, með ítarlegum eftirmála Hafdísar Erlu Hafsteinsdóttur, enda telja þau að bókin eigi enn ríkt erindi. Guðjón og Hafdís setjast um borð í Lestina og segja frá.
    55 min
  • Hver má leika fatlaða?, hljóðheimur neyslumenningar
    Í kjölfar leikhúsgagnrýni Nínu Hjálmarsdóttur um söngleikinn Sem á himni sem birtist í Víðsjá á þriðjudaginn hafa skapast líflegar, á köflum heitar, umræður um innihald hans, en þó aðallega einn ákveðinn punkt sem snýr að fatlaðri persónu í sýningunni. Nína álítur birtingarmynd persónunnar 'ýti undir neikvæðar staðalímyndir um fatlað fólk' - afstaða sem sumir aðrir eru þó ósammála. En það sem hefur vakið meiri athygli er að hún veltir upp réttmæti þess að þessi fatlaða persóna sé leikin af ófötluðum leikara. Í opna umræðuhópnum Menningarátökin á Facebook hafa fjölmargt fólk úr sviðslistageiranum tekið til máls og tekist á um þessa spurningu: ?þarf nauðsynlega fatlaðan leikara til að túlka fatlaða persónu?? Og í kjölfarið hafa kviknað umræður um birtingarmyndir fatlaðra á leiksviðinu, aðgengi fatlaðs listafólks að leiksviðinu og virðingu fyrir starfi leikara hverra fag er að setja sig spor ólíkra persóna.
    Til þess að ræða stöðu og birtingarmyndir fatlaða í leikhúsum á Íslandi komu þær Sólveig Arnarsdóttir, leikkona og Inga Björk Margrétar Bjarnadóttir, listfræðingur og fötlunaraktivisti í Lestina.
    Gunnar Jónsson, tónlistarmaður, flytur sinn fyrsta pistil í Lestinni, en hann mun fjalla um ólíka anga tónlistar og menningarneyslu í haust. Að þessu sinni veltir hann fyrir sér hljóðheimi neyslumenningarinnar og einhverju sem hann kýs að kalla ?hinn póst móderníska draum?.
    54 min
  • Serial-sakborningur laus, nöfn húsbíla, gagnrýni um Abbababb og fleira
    Guðrún Elsa Bragadóttir kvikmyndagagnrýnandni fjallar um þrjár íslenskar myndir sem eru í kvikmyndahúsum þessa dagana: barnamyndina Abbababb, heimildarmyndina Velkominn Árni og hrollvekjuna It Hatched.
    Við heyrum um nýjustu vendingar í morðmálinu sem var viðfangsefni þekktastu hlaðvarpsseríu heims Serial árið 2014. Á mánudag bárust þær fréttir að hinn 41 árs gamli Adnan Sayed hefði verið leystur úr haldi en hann hefur setið í fangelsi í Baltimore í Bandaríkjunum í meira en 20 ár fyrir morð á þáverandi kærustu sinni, Hae Min Lee. Við förum yfir málið og vinsældir Serial.
    Patrekur Björgvinsson flytur okkur nokkra pistla í haust þar sem hann sökkvir sér ofan í ýmsar hefðir og fyrirbæri í alþýðumenningu. Í sínum fyrsta pistli hér í Lestinni veltir hann fyrir sér þeirri hefð meðal húsbílaeigenda að gefa bílum sínum nöfn.
    Við höldum líka áfram umræðum frá því í gær um íslenskuna. Við hringjum til Ísafjarðar og spyrjum hvernig íslenskuvænt samfélag lítur út. Ólafur Guðsteinn Kristjánsson svarar.
    55 min