Lestin

Lestin

Download on the App Store

All Lestin episodes

  • Rapparinn Bassi Maraj, Airwaves-yfirferð, Aníta Briem skrifar þætti
    Rapparinn Bassi Maraj gaf á dögunum út fimm laga plötu, Fake Bitch. Við ræðum við Bassa um gerð plötunnar, hvernig hann upplifir það að vera hinsegin rappari og meðferð íslenska ríkisins á hælisleitendum, en í laginu Áslaug Arna af plötunni er skotið fast á fyrrum dómsmálaráðherra.
    Davíð Roach Gunnarsson fór á Airwaves og segir frá því sem hann þar sá, heyrði og upplifði.
    Þann 12. September síðastliðinn heimsótti Lestin tökustað nýrra íslenskra sjónvarpsþátta. Þetta eru þættir skrifaðir af Aníta Briem auk þess fer hún með aðalhlutverk í þáttunum. Þættirnir eru sambandsdrama um langtímasamband og nefnist Svo lengi sem við lifum. Við fengum að labba um settið, skoða leikmyndina og spjalla við Anítu og leikstjórann Katrínu Björgvinsdóttur.
    55 min
  • Særandi bókadómar á Goodreads
    Jólabókaflóðið er farið í gang og rithöfundar og útgefendur keppast við að sannfæra íslendinga um að þeirra bók sé einmitt sú sem þeir eigi að kaupa lesa og gefa í jólagjöf. Þeir setja andlit rithöfunda á strætóskýli, setja auglýsingar í blöðin, vonast til þess að gagnrýnendur Kiljunnar dásami verkið, það hljóti tilnefningu til verðlauna, eða að almennir lesendur hrósi henni á netinu, á samfélagsmiðlum eða sérstökum bókasíðum eins og Goodreads. Þátturinn er helgaður vefsíðunni Goodreads, þar sem notendur geta haldið utan um bókalestur sinn, skrifað ummæli og gefið bókum stjörnur, líkt og bókagagnrýnendur. Við heyrum í notendum Goodreads, bæði lesendum og höfundum, en milli þessara tveggja hópa getur skapast óþægileg spenna þegar dómar eru neikvæðir.
    55 min
  • Óþolandi en vinsæl auglýsingalög, Kvikmyndskólinn 30 ára, fótboltaást
    Á streymisveitunni Spotify er að finna EP-plötuna Reif í dæluna með listamanninum Atlantsolía , sem sagt olíufyrirtækinu og bensínstöðinni. Þessi fjögurra laga plata frá árinu 2021 inniheldur lögin Bið ekki um meira, Bensínhetjuna, Bensínlaus og Dælur víða. Það er Saga Garðarsdóttir, leikkona og grínisti, sem syngur og semur textana og Helgi Sæmundur Guðmundsson úr hljómsveitinni Úlfur Úlfur sem semur tónlistina. Um miðjan október birtist frétt á vef fréttablaðsins með fyrirsögninni 'Olíufélag fær gullplötu fyrir pirrandi heilaorma,' en það var plötuútgáfan Alda Music sem veitti Atlantsolíu gullplötu, í tilefni þess að lögin af plötunni Reif í dæluna eru komin með yfir 60 þúsund spilanir á Spotify. Við skoðum íslenska tónlist sem er samin fyrir auglýsingar, en ná stundum vinsældum.
    Nú eru tæpar tvær vikur í heimsmeistaramótið í knattspyrnu karla hefjist í Katar og margir með hugan við boltann. Meðal annars Viktoría Blöndal, skáld og sviðshöfundur, sem hefur spilað fótbolta frá barnsaldri og verið að skoða þessa vinsælu íþrótt. Hún mun flytja innslög í Lestinni næstu þriðjudaga í nóvember um fótboltann sem er elskaður og hataður en aldrei hunsaður.
    Kvikmyndaskóli Íslands fagnar 30 ára afmæli í mánuðinum. Að því tilefni fengum við að rölta um skólann með Berki Gunnarssyni sem hefur gegnt embætti rektors undanfarna mánuði frá því að Friðrik Þór Friðriksson hætti. Við kíktum niður á Suðurlandsbraut 18 í húsnæði kvikmyndaskólans.
    55 min
  • Twitter-tryllingur, fegurð sem andóf, Tímar tröllanna, Low
    Kaup suðurafríska auðkýfingsins Elon Musk gekk í gegn á dögunum. Hann hefur nú þegar sagt upp um helmingi starfsfólks og boðar miklar breytingar á samfélagsmiðlunum. Við kíkjum á forritið.
    Við ræðum við Ásdísi Thoroddsen kvikmyndagerðarkonu um heimildarmyndina hennar Tímar tröllanna sem er sýnd í Bíó Paradís um þessar mundir.
    Gunnar Jónsson fjallar um fjögur mögnuð augnablik í tónlistarsögunni, fjögur augnablik þegar fegurðin hefur virkað sem andóf.
    Og við minnumst Mimi Parker úr hljómsveitinni Low.
    54 min
  • Í beinni frá Iceland Airwaves
    Í dag fimmtudaginn 3. nóvember hefst tónlistarhátíðin Iceland Airwaves sem snýr nú aftur eftir tveggja ára covid-hlé. Sex tónleikastaðir og eitthvað í kringum 80 hljómsveitir koma fram, auk fjölda hliðarviðburða - það sem er kallað off-venue.
    Við sendum þáttinn út beint frá Airwaves-miðstöðinni í Kolaportinu. Við heyrum meðal annars í tónlistarkonunum Sóleyju Stefánsdóttur og Kolbrúnu Óskarsdóttur, sem kallar sig Kusk. Við ræðum við Eldar Ástráðsson og Þorbjörgu Roach Gunnarsdóttur fastagesti, og tökum púlsinn á Sindra Ástmarssyni, bókunar- og dagskrástjóra hátíðarinnar.
    55 min
  • R.I.P Takeoff, Snorri í vinsælli Netflix-mynd, sigur-Dýrið og Low Roar
    Í þætti dagsins munum fjalla um rapparann Takeoff úr hljómsveitinni Migos, en hann lést í skotárás á dögunum - aðeins 28 ára gamall. Logi Pedro ræðir við Lóu um áhrif Migos á rapptónlist samtímans.
    Við ræðum við Snorra Hallgrímsson sem semur tónlistina í einni vinsælustu myndinni á Netflix þessa dagana, spænsku hrollvekjunni Jaula.
    Svo heyrum við um sigurför Dýrsins til Helsinki og minnumst Ryan Karazija forsprakka hljómsveitarinnar Low Roar sem lést á dögunum.
    55 min
  • Syngur um blómgandi getnaðarlim, venesúelsk menning, listin að kvarta
    Salka Valsdóttir er meðlimur tónlistartvíeykisins Cyber, stofnmeðlimur RVK DTR og tónskáld í leikhúsi. Nýlega fór hún að gefa út tónlist undir listamannsnafninu Neonme. Við hlustum á nýju lögin hennar og heyrum söguna á bak við tónlistina.
    Patrekur Björgvinsson hefur verið með pistla í Lestinni undanfarnar vikur þar sem hann veltir fyrir sér fyrirbærum í alþýðumenningu Íslendinga. Í þætti dagsins veltir hann fyrir sér listinni að kvarta.
    Við lítum suður á bóginn og heyrum hvað er að frétta í dægurmenningunni í Venesúela. Kristján Guðjónsson ræddi við Helen Cova, venesúelskan rithöfund sem búsett er hér á landi. Viðtalið var fyrst flutt í Lestinni þann 17. maí fyrr á þessu ári.
    56 min
  • Drepleiðinleg Bjarkar-plata, verðlaunaútvarp, heimildamyndin Band
    Heimildamyndin Band verður frumsýnd síðar í vikunni. Myndin er meiksaga óþekktrar íslenskrar hljómsveitar. The Post Performance Blues Band sest um borð í Lestina.
    *TW* Við skoðum nokkra útvarpsþætti og seríur sem hlutu verðlaun á Prix Europa, evrópsku ljósvakaverðlaununum sem fóru fram í síðustu viku: belgískt verk um umskurð kvenna, írskt verk um dauðann, sænsk sería um svindlara og þýsk sería um fyrirgefningu. Við vörum við innihaldi þessa innslags þar sem brot úr þáttunum heyrast.
    Davíð Roach Gunnarsson rýnir í nýjustu plötu Bjarkar, Fossora, sem kom út á haustmánuðum. Davíð beið spenntur eftir plötunni en varð fyrir vonbrigðum - vægast sagt.
    57 min
  • Pönkarar pönkast á Fésbókinni, kvikmyndin Bros, uppruni Pítunnar
    Í lok vikunnar verður rómantíska gamanmyndin Bros, sem við gætum kannski þýtt sem ?fellar.? frumsýnd. Myndin þykir nýstárleg vegna þess að hinar ástföngnu aðalpersónur eru ekki karl og kona, gagnkynhneigt par, heldur hommar. Þetta er í fyrsta skipti sem slík mynd er framleidd fyrir meginstrauminn af stóru Hollywood-kvikmyndafyrirtæki. Myndin hefur fengið nokkuð góða dóma en aðsóknin hefur hins vegar frekar dræm í Bandaríkjunum. Felix Bergsson var hins vegar einn af þeim sem mættu á myndina.
    Brauðhleifur beint frá miðjarðarhafi. Þannig var maturinn sem borinn var á borð meðal annars auglýstur þegar veitingastaðurinn Pítan, var opnaður á vetrarmánuðum 1982. Steinunn Sigþrúðar-Jónsdóttir rekur sögu Pítunnar, sem er í seinni tíð kennd við Skipholt. Innslagið var fyrst flutt í Lestinni 16. maí fyrr á árinu.
    Salvör Gullbrá Þórarinsdóttir, pistlahöfundur, veltir fyrir sér hugmyndafræði pönkkynslóðarinnar, sem virðast vera einu eftirlifandi virku notendur samfélagsmiðilsins Facebook.
    55 min
  • Landnámsmenn árið 2022, endalok sápuóperunnar, bíórýni
    LungA skólinn hefur verið starfræktur á Seyðisfirði í tíu ár. Lýðskólanum fylgir líf og fjör og nemar við skólann kærkomin viðbót við bæjarlífið, enda fá ungmenni búsett þar yfir veturinn. Signý Jónsdóttir er í hópi fólks sem hefur unnið að þróun nýrrar námsleiðar við skólann sem verður prófuð í fyrsta sinn í Janúar. Þar munu nemendur fá kennslu í því að kynnast landinu, eins og þeir væru landnámsmenn á Seyðisfirði árið 2022.
    Guðrún Elsa Bragadóttir kvikmyndagagnrýnandi Lestarinnar rýnir í tvær kvikmyndir, Triangle of sadness, þríhyrning sorgar, í leikstjórn Ruben Östlund og nýja íslenska kvikmynd, Sumarljós og svo kemur nóttin, mynd í leikstjórn Elfars Aðalsteinssonar.
    Guðni Tómasson menningarsagnfræðingur skoðar endalok sápuóperunnar, sem sumir segja yfirvofandi.
    Við byrjum þáttinn á því að hringja austur á Egilsstaði og heyra um residensíu pólskra tónlistamanna, Ragnhildur Ásvalsdóttir, Sláturhússtjóri, segir frá.
    55 min