Lestin

Lestin

Download on the App Store

All Lestin episodes

  • Ófáanleg Hringadróttinssaga, hefnd SZA, bestu kvikmyndir allra tíma
    Hringadróttinssaga eftir J.R.R. Tolkien hefur ekki verið fáanleg í íslenskri þýðingu um árabil. Í þætti dagsins reynum við að komast að því hvað veldur því að þessar geysivinsælu bækur eru horfnar úr bókabúðum hér á Íslandi.
    Guðrún Elsa Bragadóttir, kvikmyndagagnrýnandi Lestarinnar lá andvaka yfir nýjum lista, frá Sight and Sound yfir bestu myndir allra tíma. Hún veltir fyrir sér tilgangi slíkra lista, fyrir hvern þeir eru gerðir og hvaða hugmyndum, fagurfræði og hópum þeir hampa. Listinn hefur komið út með 10 ára fresti frá því árið 1952, þannig að þetta er alltaf svolítill viðburður. Nýi listinn hefur vakið miklar umræður vegna þess að það eru óvenju miklar breytingar á honum síðan síðast, meiri fjölbreytileiki og mynd eftir konu í fyrsta sæti.
    Bandaríska tónlistarkonan SZA hefur látið aðdáendur sína bíða lengi eftir nýrri plötu en komin eru 5 ár síðan platan CTRL kom út. Platan SOS kom út þann 9. desember síðastliðinn, og SZA syngur einlægt og opinskátt um mótsagnakenndan veruleika ungra sjálfstæðra kvenna.
    55 min
  • Glósur úr Hegel fyrirlestri, heimsókn á nytjamarkað
    Við förum í ferðalag með Önnu Gyðu Sigurgísladóttur sem er um þessar mundir með hugann við mergð sagna og sjónarhorna sem sveima í kringum okkur allan liðlangan daginn. Hún fer á stúfana og spyr gesti og gangandi: Hvað ertu að hugsa einmitt núna? Í dag lítur hún inn á nytjamarkað í Austurveri og ræðir við forstöðumanninn þar, Karl Jónas Gíslason.
    Á dögunum fundust um 4000 blaðsíður af glósum nemanda við Heidelberg háskóla frá árunum 1816-1818. Nemi þessi sat fyrirlestra þýska heimspekingsins G. W. F. Hegel sem eru taldir vera með þeim fyrstu sem hann hélt. Hegel er einn nafntogaðasti heimspekingur evrópskrar hugmyndasögu, sennilega sá áhrifamesti og oft sagður sá torskildasti líka. Við ræðum við Björn Þorsteinsson, prófessor í heimspeki við Háskóla Íslands, um þessar ný-uppgötvuðu glósur og hvað þær gætu þýtt fyrir skilning okkar á Hegel.
    55 min
  • Angelo Badalamenti, Gervigreindarlist
    Í gær bárust fréttir af andláti tónskáldsins Angelo Badalamenti sem átti afar langan og farsælan feril að baki. Við förum yfir feril hans og ræðum við tónlistarmanninn Úlf Eldjárn, sem er með hljómborðið með í för, og útskýrir hvers vegna Twin Peaks tónlistin, þemalag Lauru Palmer, er svona drungalegt.
    Við rifjum upp viðtal sem Kristján Guðjónsson tók í janúar fyrr á þessu ári ræðir við tölvunarfræðinginn Hafstein Einarsson, um gervigreindarlist, en nú hefur nánast önnur hver manneskja á samfélagsmiðlum sótt sér forritið Lensa AI og látið gervigreind teikna af sér andlitsmyndir í fantasíu-stíl.
    55 min
  • Margarethe von Trotta, fiðluteknó, jólalög sem eru ekki jólalög
    Við kynnum okkur þýska kvikmyndaleikstjórann Margarethe von Trotta sem fékk á laugardag heiðursverðlaun evrópsku kvikmyndaakademíunnar á evrópsku kvikmyndahátíðinni sem haldin var í Hörpu. Von Trotta á langan og merkan feril í þýskri kvikmyndagerð og er þekkt fyrir femínískan undirtón í verkum sínum og fyrir að skapa sterkar kvenpersónur í þeim. Guðni Tómasson segir frá.
    Gígja Jónsdóttir og Pétur Eggertsson skipa fiðluteknó-gjörninga tvíeykið Geigen. Geigen hefur verið starfandi síðan 2018 og staðið fyrir fjölda tónleika og sýninga, en það nýjasta er samstarfsverkefni með Íslenska dansflokknum. Í Borgarleikhúsinu má sjá Litla sviðið umbreytast í dansklúbb í þáttökuverkinu Geigengeist sem var sýnt í haust, og verður sýnt einu sinni enn í lok vikunnar. Við förum til fundar við þau Gígju og Pétur í vinnurými þeirra í Skeljanesi.
    Ásdís Sól Ágústsdóttir setur Parsley, Sage, Rosemary and Thyme, með Simon & Garfunkel á fóninn og veltir fyrir sér jólalögum sem eru ekki jólalög.
    55 min
  • Staupasteinn, rúnturinn, uppruni Kísildalsins
    Efir fráfall leikkonunnar bandarísku Kirstie Alley í byrjun viku voru þættirnir Staupasteinn eflaust ofarlega í huga margra. Kirstie Alley lék framakonunna Rebeccu Howe sem er kynnt til sögunnar í sjöttu seríu Cheers, og margir telja þessa innkomu hennar í þættina hafa gert það að verkum að þeir lifðu svo lengi í viðbót. Við fengum dyggan Cheers aðdáanda, Bjarna Gaut Tómasson, til að segja frá Alley og þáttunum, sem hann kallaði vináttu-hermi. Við áhorf á Staupasteini líði manni eins og maður sé staddur á bar með vinum sínum.
    Við veltum fyrir okkur list og dreifingarleiðum listar og einokunarstöðu fyrirtækja á borð við Amazon. Jóhannes Ólafsson segir frá.
    Patrekur Björgvinsson býður okkur á rúntinn með sér á Akranesi og veltir því fyrir sér menningarfyrirbærinu, og manndómsvígslunni sem rúnturinn er.
    Viðar Freyr Guðmundsson segir söguna af William Shockley, manninum sem fann upp transistorinn og bjó óvart til Kísildalinn.
    55 min
  • Flugeldaræktun, tilviljanatré og slöngutemjari
    Listamennirnir Halldór Eldjárn og Sigga Soffía eru bæði innblásin af plöntum og blómum í sinni sköpun. Halldór á sýningunni Flora Inorganica í gallerý STAK við Hverfisgötu og Sigga Soffía í verkinu Eldblóm - dansverk fyrir flugelda og flóru sem leiðir saman flugelda og blóm. Við ræðum við þau um plöntur, listsköpun og umhverfismál í Lest dagsins.
    Anna Gyða Sigurgísladóttir er með hugann við mergð þeirra sagna og sjónarhorna sem sveima í kringum okkur allan liðlangan daginn. Hún fer á stúfana og spyr gesti og gangandi: Hvað ertu að hugsa einmitt núna? Í dag kemur Anna við á á N1 Stóragerði og ræðir hún við Pétur Guðmundsson slöngutemjara, eins og hann kallar sig sjálfur.
    Og við heyrum upplestur úr bókinni Greni, jóla-örsögur ritlistarnema.
    55 min
  • Orð ársins, tungumál sértrúarhópa, Wednesday
    Erum við öll í sértrúarsöfnuði? Við fjöllum um bókina Cultish: The Language of Fanaticism (Sértrúartal - Tungumál öfga) eftir Amöndu Montell frá 2021. Montell er rithöfundur og menntuð í málvísindum, búsett í LA. Hefur gert það mjög gott á ritvellinum í flokki óskáldaðra bóka. Bækurnar hennar Wordslut og Cultish hafa getið sér gott orð. Þar dregur Montell fram það sem einkennir költ eða sértrúarhóp, allt frá þeim hrikalegustu yfir í líkamsræktarhreyfingar. Grunnurinn að þessu öllu, segir Montell er tungumálið. Orðræða, kóðar og frasar sem heilla fólk í leit að einhversskonar griðarstað, í leit að samfélagi. Ef til vill býr þetta í okkur öllum og költ-myndun er sammannleg reynsla, bæði til góðs og ills.
    Eyrún Lóa Eiríksdóttir rýnir í hina vinsælu Netflix-þætti Wednesday, sem fjalla um Wednesday Addams, persónu í söguheim Addams fjölskyldunnar. Wednesday er í mennntaskóla. Wednesday þáttunum er lýst á Netflix sem gamanhrollvekju og eru skrifaðir inn í ákveðna satíru sem hefur einkennt Addams fjölskylduna frá upphafi. Það kveður við nýjan og nokkuð alvarlegri tón þar sem talað er undir rós um samfélagsástandið í Bandaríkjunum, þ.e. stöðu ungmenna á jaðrinum, fordóma, útskúfun, ofbeldi og einelti gagnvart þeim sem víkja frá því sem telst eðlilegt.
    Við kynnum okkur orð ársins samkvæmt Oxford-orðabókinni, goblin mode sem tilkynnt var um í gær, og ræðum val á orði ársins við málfarsráðunaut Ríkisútvarpsins, Önnu Sigríði Þráinsdóttur.
    55 min
  • Á ferð með mömmu, Randalín og Mundi, vinnumarkaður framtíðarinnar
    Saga Garðarsdóttir, leikkona og Þórdís Gísladóttir, rithöfundur, skrifuðu jóladagatalið, Randalín og Mundi: Dagar í desember, ásamt Ilmi Kristjánsdóttur. Silja Hauksdóttir leikstýrði þessu fyrsta íslenska jóladagatali síðan 2008. Saga og Þórdís komu í heimsókn í Lestina og ræddu muninn á því að skrifa fyrir fullorðna og börn, jólaboðskapinn og prakkarastrik.
    Inga Björk Margrétar Bjarnadóttir mun flytja pistla næstu vikurnar sem fjalla um tækni og fötlun. Að þessu sinni veltir hún fyrir sér gervigreind, Amazon fyrirtækinu, vinnumarkaði framtíðarinnar og stöðu fatlaðs fólks á honum.
    Kvikmyndahátíðin Tallinn Black Nights Film Festival, eða Pöff, í Eistlandi fór fram á dögunum og hlaut íslensk kvikmynd aðalverðlaunin, Á ferð með mömmu í leikstjórn Hilmars Oddssonar. Með kvikmyndinni Á ferð með mömmu snýr Hilmar Oddsson aftur í leikstjórastólinn eftir langt hlé en síðasta kvikmynd sem hann sendi frá sér var Desember sem kom út árið 2009. Á ferð með mömmu er svört kómedía sem fjallar um umskipti í lífi manns eftir að móðir hans fellur frá. Hilmar kíkti í Lestina ásamt aðalleikara myndarinnar, Þresti Leó Gunnarssyni.
    55 min
  • Ástarkraftur, Balenciaga, Ungfrú Ísland
    Við heyrum fyrstu tvær jóla-örsögur ritlistarnema, sem verða fluttar í Lestinni fram að jólum.
    Assa Borg Þórðardóttir kynnti sér samsæriskenningarnar sem hafa sprottið upp í sambandi við tískurisann Balenciaga. Þar sem koma fyrir börn, BDSM og bangsar.
    Þann 2. desember verður doktor Anna Guðrún Jónasdóttir áttræð. Af því tilefni flytur Berglind Rós Magnúsdóttir, prófessor við Háskóla Íslands pistil og les úr doktorsritgerð þessarar merku konu, sem fjallar um ástarkraftinn.
    Davíð Roach hlustaði á Ungfrú Ísland, nýju plötu hljómsveitarinnar Kvikindi.
    54 min
  • Telegram, Hatching, She Said og bjórsalar fyrri alda
    Guðrún Elsa Bragadóttir rýnir í tvær kvikmyndir, hrollvekjuna Hatching og blaðamennskudramað She Said.
    Við kynnum okkur forritið Telegram og rýnum í það með tilliti til auglýsingagerðar og fagurfræði. Rætt er við Sigurð Oddson, grafískan hönnuð og Kristján Hjálmarsson, framkvæmdastjóra H:N markaðssamskipta.
    Steinunn Sigþrúðar Jónsdóttir segir frá bjórsölum fyrri alda.
    55 min