Lestin

Lestin

Download on the App Store

All Lestin episodes

  • Guðmóðir pönksins og nostalgía í auglýsingum
    Á dögunum bárust fréttir af fráfalli fatahönnuðarins Vivienne Westwood, sem var undir lok ævi sinnar orðin jafn mikill aktívisti og hún var fatahönnuður, þó að færa megi rök fyrir því að hún hafi kannski alltaf verið það. Westwood, sem stundum var kölluð guðmóðir pönksins, hóf feril sinn sem fatahönnuður á því að hanna föt á pönkhljómsveitina Sex Pistols. Við ræðum við Signýju Þórhallsdóttur, sem starfaði sem hönnuður hjá Vivienne Westwood í nokkur ár.
    Langstærsti hluti landsmanna settist niður fyrir framan sjónvarpið á gamlárskvöld í von um að skemmta sér og fara hlæjandi inn í nýtt ár. Fyrir og eftir eru sýndar auglýsingar í dýru plássi og ef það var eitthvað sem einkenndi þær í ár þá var það nostalgía. Mikið var um auglýsingar sem rifjuðu upp afrek fortíðar eða sviðsettu liðna tíð til að vekja minningar. Fróðar manneskjur segja jafnvel að nostalgía sé hugmynd okkar samtíma, Þorvaldur Sigurbjörn Helgason og Lóa Hjálmtýsdóttir velta fyrir sér nostalgíu í Lestinni í dag.
    55 min
  • Möllet-æði í Ástralíu, nýjárstöfrar, BíóTvíó
    Það er möllet-æði í Ástralíu. Allir og amma þeirra eru með sítt að aftan og ekkert lát á þessari tískubylgju. Þessi klipping, stutt að framan sítt að aftan er mjög einkennandi og í dag stendur hún út því gullöld þessarar greiðslu var fyrir 30-40 árum. En nýlega rakst ég á umfjöllun breska ríkisútvarpsins sem birt var milli jóla og nýárs. Það var stutt umfjöllun um þessi athyglisverðu hártísku í Ástralíu. Tísku sem hefur hreiðrað um sig þar, aftur, en eins og Ailsa Weaver tískusérfræðingur segir í umfjöllun BBC: 'Tísku möllet er klipping, ástralskt möllet er lífsstíll.'
    Hlaðvarpið BíóTvíó hóf göngu sína á Alvarpinu og er nú gefið út af Stundinni. Hlaðvarpinu er stjórnað af Andreu Björk Andrésdóttur og Steindóri Grétar Jónssyni, í þáttunum fara þau yfir eina íslenska kvikmynd í senn. Árið 2016 settu þau sér það metnaðarfulla markmið að horfa á allar íslenskar kvikmyndir í fullri lengd. Nú hafa þau horft á alls 220 myndir.
    Ásdís Sól Ágústsdóttir fjallar um nýjárstöfra og tímaflakk og rifjar í leiðinni upp bókina Sláturhús fimm eftir Kurt Vonnegut.
    54 min
  • Særandi bókadómar Goodreads
    Við endurflytjum þátt frá því í nóvember um samfélagsmiðilinn Goodreads.
    Jólabókaflóðið er farið í gang og rithöfundar og útgefendur keppast við að sannfæra íslendinga um að þeirra bók sé einmitt sú sem þeir eigi að kaupa lesa og gefa í jólagjöf. Þeir setja andlit rithöfunda á strætóskýli, setja auglýsingar í blöðin, vonast til þess að gagnrýnendur Kiljunnar dásami verkið, það hljóti tilnefningu til verðlauna, eða að almennir lesendur hrósi henni á netinu, á samfélagsmiðlum eða sérstökum bókasíðum eins og Goodreads. Þátturinn er helgaður vefsíðunni Goodreads, þar sem notendur geta haldið utan um bókalestur sinn, skrifað ummæli og gefið bókum stjörnur, líkt og bókagagnrýnendur. Við heyrum í notendum Goodreads, bæði lesendum og höfundum, en milli þessara tveggja hópa getur skapast óþægileg spenna þegar dómar eru neikvæðir.
    55 min
  • Hvað einkenndi árið 2022?
    Í sameiginlegum þætti Lestarinnar og Víðsjá í árslok förum við yfir menningarneysluna á árinu með góðum gestum. Þetta er árið sem samkomutakmörkunum var aflétt, styttum var stolið, drottningin dó og mathallir opnuðu. Þau Vigdís Jakobsdóttir, listrænn stjórnandi Listahátíðar í Reykjavík, Unnsteinn Manuel Stefánsson, listamaður, Greipur Gíslason, ráðgjafi og Arndís Þórarinsdóttir, rithöfundur ræða hápunkta ársins og menningarumræðuna, velta fyrir sér spurningum um hvað einkenndi árið sem er að líða.
    55 min
  • Árið í Lestinni
    Við lítum til baka yfir farinn veg í Lestinni í dag og rifjum upp þrjú innslög sem öll eiga það sameiginlegt að vera innlegg í menningarumræðuna. Salvör Gullbrá Þórarinsdóttir rýndi í raunveruleikaþættina LXS og velti fyrir sér hvort að um branded entertainment, svokallað markað skemmtiefni, væri að ræða. Í apríl bárust fréttir af stolinni bronsstyttu, styttunni af Guðríði Þorbjarnardóttur og syni hennar Snorra, sem ber heitið Fyrsta hvíta móðirin í Ameríku. Kristján Guðjónsson hitti listakonurnar Bryndísi Björnsdóttur og Steinunni Gunnlaugsdóttur og ræddi við þær um verk þeirra fyrsta hvíta móðirin í geimnum. Styttuþjófnaðurinn og verkið voru sennilega með umdeildari listgjörningum á árinu sem er að líða. Davíð Roach flutti pistil í október um Fossora, nýjustu plötu Bjarkar Guðmundsdóttur. Davíð var ekki hrifinn af plötunni og í kjölfarið spruttu upp umræður um tónlistargagnrýni og hvort þetta flokkaðist yfirhöfuð sem slík.
    55 min
  • Prins Póló minnst
    Við endurflytjum viðtal við tónlistar og myndlistarmanninn Svavar Pétur Eysteinsson, sem féll frá í september eftir baráttu við krabbamein. Svavar Pétur, Prins Póló kom í viðtal í Lestina þann 25.ágúst síðastliðinn, en þá var sýningin Hvernig ertu? í Gerðubergi að klárast og samhliða henni hafði hann gefið út samnefnda 6 laga stuttskífu. Við ræddum fortíð, nútíð og framtíð Prinsins, inn á milli þess sem við heyrðum lög sem hann valdi.
    55 min
  • Kysstu Messi, Jólablót, bækurnar sem eru alltaf til
    Stysti dagur ársins var í gær og, vetrarsólhvörf, hin forna hátíð ljóssins. Alda Vala Ásdísardóttir Hvammsverjagoði lét sig að sjálfsögðu ekki vanta á Jólablót Ásatrúarfélagsins sem fór fram í gær, hún kom í Lestina og við byrjuðum á því að fá hana til að útskýra hvernig þetta virkar með með goðana og goðorðin.
    Á sunnudaginn fögnuðu íbúar Argentínu, og heimsbyggðin með þeim, er þeir tryggðu sér sigur á heimsmeistaramóti karla í knattspyrnu. Heiða Vigdís Sigfúsdóttir, var stödd í Argentínu meðan mótið stóð yfir. Hún lýsir ógleymanlegum stundum frá mótinu og óþrjótandi fótboltaást íbúa Argentínu.
    Anna Gyða Sigurgísladóttir er með hugann við mergð sagna og sjónarhorna sem sveima í kringum okkur allan liðlangan daginn. Hún fer á stúfana og spyr gesti og gangandi: Hvað ertu að hugsa einmitt núna? Viðmælendi hennar að þessu sinni er Áróra Sif Sigurðardóttir.
    55 min
  • Mæðraveldi, gotneskt raunsæi, jólakæró
    Bókin Allt sem við misstum í eldinum, smásagnasafn argentínska rithöfundarins Mariana Enriquez, kom út hjá Angústúru á þessu ári. Í bókinni er að finna lýsingar á argentínsku lífi, sögur sem varpa ljósi fátækt, stéttaskiptingu, neyslu og heimilisleysi. Í bakgrunni eru ofbeldisverk fyrri kynslóða, og það liggur alltaf eitthvað drungalegt í loftinu. Ungt fólk glímir við óhugnanlegan innri og ytri veruleika, sér sýnir og verður vitni að hryllingi, ímynduðum eða raunverulegum, það er aldrei alveg víst hvort það er. Við sláum á þráðinn til þýðanda bókarinnar, rithöfundarins og útvarpsmannsins, Jóns Halls Stefánssonar.
    Hljómsveitin Mæðraveldið leikur grúvaða hip hop tónlist þar sem ýmislegt blandast saman, meðal annars suðræn áhrif og textar sem taka á mikilvægum málefnum. Meðlimir sveitarinnar eru rapparinn og taktasmiðurinn Eyjólfur Eyvindarson, betur þekktur sem Sesar A, Margrét Thoroddsen, söngkona og hljómborðsleikari og Þórdís Claessen sem leikur á bassa.
    Eyrún Lóa Eiríksdóttir rýnir í ítalska jólaþætti Ég hata jólin, Odio il Natale, þar sem viðfangið jólakærasti er í brennidepli.
    55 min
  • Kúltúrbörn: Auður Jónsdóttir og Eiríkur Örn Norðdahl
    Auður Jónsdóttir og Eiríkur Örn Norðdahl rithöfundar ræða kúltúrbörn, menningarauðmagn og bókaútgáfu. Í vikunni hafa líflegar umræður átt sér stað á netinu í kjölfar bloggfærslu Berglindar Óskar, rithöfundar, sem gagnrýndi Bókablað Stundarinnar sem Auður ritstýrir.
    Ásdís Sól Ágústsdóttir segir frá bresk-mexíkósku listakonunni Leonora Carrington og bók hennar The Hearing Trumpet.
    54 min
  • Messi í svartri skikkju, jólaálfur, áhrif gagnabjögunar á mannréttindi
    Lið Argentínu stóð uppi sem sigurvegarar eftir æsispennandi leik á móti Frökkum og í leiðinni var ferill argentínska fótboltamannsins, Lionel Messi fullkomnaður. Við ræðum Messi og svörtu skikkjuna sem hann var klæddur í er hann tók á móti bikarnum við Viðar Halldórsson, prófessor í félagsfræði.
    Assa Borg Þórðardóttir veltir því fyrir sér hvað það kosti að halda jól hátíðleg á Íslandi, nú þegar aðventudagatölum fer ört fjölgandi, 13 jólasveinar gefa í skóinn og glæný fígúra hefur bæst í hópinn, Elf on the shelf. Íslendingar hafa tekið upp bandarískan sið, þar sem lítill jólaálfur gerir prakkarastrik meðan börnin sofa. Og jólaundirbúningurinn verður fyrir vikið, flóknari fyrir foreldra.
    Inga Björk Margrétar Bjarnadóttir flytur sinn þriðja pistil um fötlun og tækni. Að þessu sinni skoðar hún áhrif gagnabjögunar á mannréttindi.
    55 min