Lestin

Lestin

Download on the App Store

All Lestin episodes

  • Hverjum er ekki sama um Húgó? + raunveruleikaþættirnir LXS
    Salvör Gullbrá Þórarinsdóttir horfði á nýja raunveruleikaþætti úr smiðju Ketchup Creative. Þætti sem stæra sig af því að vera ekki með neinu handriti og sýna frá raunveruleika vinkvennahóps sem var myndaður í kringum #samstarf á samfélagsmiðlum.
    Lestin kynnir sér tónlistarmanninn Húgó, huldumann sem hefur gefið út 3 lög en virðist vera vel úthugsuð markaðsherferð dulbúin sem tónlistarmaður.
    53 min
  • Drungalegur sumarslagari, Beast, fangelsislist og Gorbachev
    Undanfarnar viku fór hópur alþjóðlegra listamanna farið daglega inn á fangelsið á Litla Hrauni og unnið list með vistmönnum. Í gær og fyrradag sýndu listamennirnir, bæði fangar og frjálsir, á Litla Hrauni og svo Eyrarbakka. Verkefnið er á vegum Sögu listavinnuseturs og félagasamtakanna Múrar Brotnir. Við ræðum við þrjá skipuleggjendur verkefnisins.
    Drungalegur sumarslagari sem var saminn og tekinn upp á níunda áratugnum en kom ekki út fyrr en árið 2013 verður undir smásjánni í dag. DJarnir og hljómsveitin Johnny Blaze og Hakki Brakes komu með umrætt lag á USB-lykli og ræddu syntha, ölduhljóð og aðdáun sína á þessu lagi sem þeir spila á dj-settum, áður en gestir mæta, aðallega fyrir sjálfa sig.
    Baltasar Kormákur sendi nýlega frá sér kvikmyndina Beast, skepnuna, um morðótt ljón sem heldur Idris Elba og fjölskyldu í gíslingu. Ásgeir Ingólfsson skoðar samband manna og ljóna í Hollywood og rýnir í Beast.
    55 min
  • *TW* virka ekki, reif í Buxur, snittur á kynningarfundi Borgarleikhúss
    Leikárið er hafið - Lestin þáði boð á kynningarfund í Borgarleikhúsinu í hádeginu, hætti sér út úr húsi í óveðri og gerði tilraun til að rýna í áherslurnar í dagskránni. Við smökkum snittur og fáum meðmæli starfsfólks, hópsins sem er eflaust hvað duglegastur við að sækja leiksýningar, fólksins á gólfinu
    Davíð Roach Gunnarsson fór á reif í útjaðri Reykjavíkur í júlíbyrjun, Danstónlistarviðburðurinn Buxur var haldinn í gömlu iðnaðarhúsnæði í Gufunesi, en þetta er í annað skipti sem reifið er haldið þar. Við heyrum lýsingu Davíðs á partýinu sem er að hans mati einhver merkilegasti tónlistarviðburður ársins hér á landi.
    Váboði, áfallaviðvörun, hætta á hugarvíli, kveikjumerking. Allt þetta hefur verið notað sem íslenskar þýðingar yfir enska hugtakið Trigger Warning. Slíkar viðvaranir eru orðnar útbreiddar í menningarlandslaginu jafnt á streymisveitum sem og í leikhúsum og kennsluskrám háskólakúrsa. En hversu gagnlegar eru slíkar viðvaranir? Við skoðum nýlegar rannsóknir á gagnsemi - eða öllu heldur gagnleysi - slíkra váboða.
    55 min
  • Fyrsta íslenska kvikmyndagerðarkonan, Trailer Todd, John McAfee
    Fyrsta íslenska kvikmyndagerðakonan, Rut Hansson, var frumkvöðull í íþrótta og danskennslu á þriðja áratugi 20. aldarinnar. Rut vildi kynna landsmenn fyrir stefnum og straumum í dansi, ferðaðist um evrópu til að læra nýja dansa og lét svo gera dansmynd sem var sýnd í viku í desember 1927. Þangað til myndin var dregin fram í dagsljósið á ný var Svala Hannesdóttir talin fyrsta íslenska kvikmyndagerðakonan. Gunnar Tómas Kristófersson doktorsnemi segir okkur frá.
    Hávært gítardrifið rokk með flóknum töktum og taktskiptingum. Þannig mætti lýsa því sem kallast stærðfræðirokki. Reykvíska hljómsveitin Trailer Todd lofar endurkomu stærðfræðirokksins á plötunni Trukk Ópus sem kom út fyrir helgi. Þrír fjórði hluti Trailer Todd sest um borð í Lestina og ræðir meðal annars samnefndan hjólhýsasölumann í Missouri og aðdáun þeirra á hljómsveitinni Weezer.
    Heimildamyndin Running with the Devil kom út á streymisveitunni Netflix á dögunum, hún fjallar um skrautlegt lífshlaup John McAfee, mannsins sem fann upp McAfee vírusvörnina. Atli Fannar Bjarkason er búinn að horfa
    55 min
  • Nostalgía, núið og framtíð Prins Póló
    Svavar Pétur Eysteinsson, betur þekktur sem Prins Póló, tónlistarmaður, grafískur hönnuður, myndlistarmaður, ferðaþjónustubóndi, bulsugerðarmaður og svo framvegis, er gestur Lestarinnar í dag. Senn klárast sýning hans í Gerðubergi í Breiðholti en þar sýnir hann grafíkverk, ljósmyndir og myndbandsverk. En samhliða sýningunni kom út samnefnd sex laga stuttskífa: Hvernig ertu? þar sem prinsinn veltir meðal annars fyrir sér tímanum og tilgangi lífsins.
    54 min
  • Samfélagsmiðillinn BeReal, A24 og reivdrottning í Los Angeles
    Dreifinga- og framleiðslufyrirtækið A24 hefur á undanförnum áratug stimplað sig inn sem eitthvað það framsæknasta og svalasta í kvikmyndabransanum. Nafn fyrirtækisins er kannski ekki endilega gæðastimpill, frekar loforð um að eitthvað óvenjulegt og óvænt muni eiga sér stað á skjánum. Við kynnum okkur A24 og ræðum tilraunakenndar kvikmyndir þeirra við Gunnar Theodór Eggertsson.
    Samfélagsmiðillinn BeReal nýtur mikilla vinsælda um allan heim, hann krefst ekki mikils af þér, bara að þú sért raunveruleg. Einu sinni á dag, á sama tíma og allir vinir þínir sem nota miðilinn, þarftu að taka mynd af því sem þú ert að gera einmitt þá stundina.
    Barir og skemmtistaðir í Los Angeles loka lögum samkvæmt klukkan tvö að nóttu en þá fyrst byrjar ballið þar vestra. Þórður Ingi jónsson ræðir við partýdrottninguna og plötusnúðinn Mapamota í L.A. sem stýrir fjörinu þegar kvölda tekur.
    54 min
  • Nýtt Game of Thrones, rymjandi svarthol, Hamraborg, norræn bíóverðlaun
    Rúmum tveimur árum eftir að lokaþátturinn af Game of Thrones fór í loftið og 18 milljónir manns söfnuðust saman fyrir framan sjónvarpið er loks kominn nýr þáttur frá sömu höfundum. House of the Dragon á að gerast um það bil 200 árum áður en þættirnir Game of Thrones gerast og eru byggðir á bók George R.R. Martin, Fire and Blood. Þættirnir voru frumsýndir 21. Ágúst, 10 milljónir horfðu í Bandaríkjunum sem gerir það að vinsælustu frumsýningu þáttaraðar HBO. Það sem verra er, er að ekki er hægt með neinum löglegum hætti að sjá þessa þætti á Íslandi.
    Hamraborgin er menningamiðja Kópavogsbæjar en á sama tíma menningarfyrirbæri sem ungir listamenn hafa unnið með á undanförnum árum, hampað hverfinu með hæfilegu glotti. Við kíkjum upp í Kópavog og heyrum um listahátíðina Hamraborg Festival sem haldin er í annað sinn um helgina. Listafólk kemur sér fyrir í Euromarket, Gullsmiðju Óla og Kaffi Catalínu, svo einhverjir sýningarstaðir séu nefndir.
    Við spjöllum um rymjandi svarthol sem vakti athygli á netinu í byrjun vikunnar og förum yfir tilnefningar til kvikmyndaverðlauna Norðurlandaráðs sem voru kynntar í dag.
    55 min
  • Tekjublaðið, Aldous Harding, dansandi stjórnmálamenn,
    Tekjublað Frjálsrar verslunar og Stundarinnar komu út í lok seinustu viku, við ræðum við Aðalstein Kjartansson blaðamann Stundarinnar um það hvað fer fram þessa daga sem gögn eru opinber á skrifstofu ríkisskattstjóra og kynnum okkur inntak metsölubókar frá árinu 1992
    Davíð Roach Gunnarsson hlýddi á nýsjálensku tónlistarkonunnar Aldous Harding í Hljómahöllinni í Keflavík í síðustu viku. Davíð gefur okkur tónleikaskýrslu undir lok Lestarinnar í dag.
    Og við pælum í dansandi stjórnmálamönnum. Frá Boris Yeltsin til Sönnu Marín.
    55 min
  • Endurreisn Beyoncé, 40 ár af The Wire og Kristínarviska
    Platan Renaissance kom út 29. Júlí síðastliðin, og hefur hún fengið góðar viðtökur hjá óvæntum hópi hlustenda, sem voru jafnvel ekki Beyoncé aðdáendur fyrir útkomu þessarar plötu. Beyoncé er lofuð af tónlistargagnrýnendum fyrir frábæra house tónlistog við ætlum að ræða hversu vel henni tókst til við Natalie Gunnarsdóttur, DJ Yamaho.
    Sölvi Halldórsson pistlahöfundur deilir með okkur sögum af samskiptum sínum við nokkrar konur sem eiga það eitt sameiginlegt að heita allar Kristín, samskiptum sem hann dró lærdóm af. Haustið nálgast og Sölvi er farinn að leiða hugann að sultugerð.
    Við segjum ykkur líka frá tónlistartímariti sem er orðið 40 ára, en hefur á því tímabili einbeitt sér að ýmis konar framsækinni og tilraunakenndri tónlist. Það heitir The Wire, Björk hefur tvisvar prýtt forsíðu þess og Sigur Rós einu sinni, en The Wire hóf göngu sína árið 1982 fyrst sem djasstímarit en síðar víkkuðu efnistökin, nema hvað vinsælustu tónlistina á hverjum tíma hefur tímaritið yfirleitt látið vera.
    54 min
  • Æfing Nathan Fielder og endingargóð eldavél
    Í sumar hóf HBO sjónvarpsstöðin sýningu á nýjum þáttum kanadíska grínistans Nathan Fielder. Þættirnir hafa vakið mikla athygli, jákvæða og neikvæða. Við ræðum umdeildar hliðar þátts sem er á mörkum gríns og raunveruleika við grínistana Sölku Gullbrá Þórarinsdóttur og Pálma Frey Hauksson.
    Gamla eldavélin hans Kristjáns er komin á eftirlaun en hún hefur verið í stöðugri notkun frá árinu 1948. Í dag endurflytjum við innslag Krisjáns frá því í desember í fyrra þar sem hann minnist Rafha-eldavélarinnar sinnar, kynnir sér sögu hennar, heyrir um hafnfirska fyrirtækið sem framleiddi vélina og fyrri eiganda sem bakaði margar sortir af smákökum fyrir hver jól í litla ofninum.
    55 min