Lestin

Lestin

Download on the App Store

All Lestin episodes

  • Stéttaskipting í framhaldsskólum, Una Torfa, tónlistarleg sniðganga
    Við hittum tónlistarkonuna Unu Torfa sem gefur út sína fyrstu plötu á miðnætti, stuttskífuna Flækt og ung og einmana. Við ræðum um Ed Sheeran, söngelskan ráðherra og hvaða áhrif lífshættulegt krabbamein hefur á unga listakonu.
    Næstu vikur mun Berglind Rós Magnúsdóttir skoða ýmsar birtingarmyndir stéttaskiptingar í íslensku samfélagi, og að þessu sinni veltur hún fyrir sér hlutverki framhaldsskóla í að viðhalda slíkri aðgreiningu.
    Og við heyrum hvernig tónleikahald í Ísrael heldur áfram að vera deilumál, en bandaríska indísveitin Big Thief hefur hætt við umdeilda tónleika sem áætlaðir voru í Tel Aviv í júlí.
    55 min
  • Ruslfest, tölvuteiknað andlit Múhammeðs, Hu Dat
    RUSL er lista- og hönnunarhátíð í Gufunesi, nýju skapandi hverfi Reykjavíkurborgar. Hátíðin leggur áherslu á hringrásahugsun í samhengi menninga, lista og hönnunar. Tveir af skipuleggjendum hátíðarinnar Elsa Jónsdóttir og Elín Margot koma og segja frá Ruslfest.
    The Lady of Heaven heitir nýtt epísk söguleg drama sem segir upprunasögu íslamstrúar, söguna af Fatímu dóttur spámannsins Múhammeðs. Kvikmyndin hefur fengið slæma dóma en það þykir hins vegar fréttnæmt að andlit spámannsins sést greinilega í myndinni - en eins og flestir vita eru slíkar myndbirtingar almennt litnar hornauga meðal múslima. Við ræðum við Kjartan Orra Þórsson um myndabann Múhammeðs og það hvort að mögulegt sé að komast hjá því með því að tölvuteikna andlit spámannsins.
    Plötusnúðurinn og umboðsmaðurinn Hu Dat, sem heitir réttu nafni Kim Hu, er rísandi stjarna í rappsenunni vestur í Bandaríkjunum. Þórður Ingi Jónsson spjallar við Kim um það hvernig dóttir íhaldsamra innflytjenda frá Tævan fór frá því að læra hótelstjórnun yfir í að þeyta skífum fyrir risastóra rappara.
    55 min
  • Vitjanir, verðlaunamynd Skjaldborgar, merking Depp/Heard-málsins
    Þrátt fyrir að einhverju mest áberandi dómsmáli áratugarins sé nú lokið, meiðyrðamáli leikaranna og fyrrum hjónanna Johnny Depp og Amber Heard, heldur fólk áfram að rífast um þýðingu dómsins og málsins. Hvað segir það okkur um Metoo, um stöðu þolenda heimilisofbeldi, um frjálsa tjáningu á 21. öldinni? Hledís Maren Guðmundsdóttir félagsfræðingur veltir fyrir sér hvort rétt sé að lesa hugmyndafræðilega merkingu í þetta einstaka dómsmál.
    Síðasti þátturinn af Vitjunum var sýndur á RÚV á dögunum. Salvör Bergmann hefur verið að horfa á þættina og segir hvað henni fannst.
    Nú um helgina fór heimildamyndahátíðin Skjaldborg fram á Patreksfirði. Þriggja daga hátíð með fjölda nýrra heimildarmynda, erlendum gestum og plokkfiskveislu svo eitthvað sé nefnt. Við ræðum við leikstjóra myndarinnar Velkominn Árni sem hlaut áhorfendaverðlaun hátíðarinnar.
    55 min
  • Dómsmál í beinni, Indísveitir í útrás, költbandið Graveslime
    Í gær komst niðurstaða í dómsmál fyrrum hjónanna Johnny Depp og Amber Heard. Málið var höfðað af leikaranum Johnny Depp gegn Amber Heard fyrir ærumeiðingar, en Heard skrifaði um að hafa orðið fyrir heimilisofbeldi árið 2018. Í gær féll dómur Depp í hag. Réttarhöldunum var streymt á netinu og hlutu þau mikið áhorf, og netverjar hafa verið duglegir að láta í ljós skoðanir sínar á því sem fer þar fram. Melkorka Gunborg Briansdóttir fjallar um dómsmálið, sem hún kallar skrípaleik.
    Hljómsveitir sem tilheyra allar listakollektívinu post dreifing eru á leið til Noregs og munu koma til með að spila bæði í Osló og Bergen. Ástæða ferðalagsins er vinasamband sem hefur myndast á milli tveggja indie-sena, hér í Reykjavík og í Bergen. Snæbjörn Helgi Arnarsson Jack segir okkur frá fyrirhugaðri Noregsreisu.
    Reykvíska rokkhljómsveitin Graveslime starfaði í stuttan tíma í upphafi árþúsundarins. Áður en fyrsta plata hennar, Roughness and Toughness, kom út árið 2003 hafði aðalsöngvarinn misst heyrnina og hljómsveitin splundrast á dramatískan hátt. Platan, sem hefur öðlast költstöðu í íslensku þungarokki, hefur verið illfáanleg undanfarin 19 ár, en er nú komin á streymisveitur í allri sinni dýrð. Við ræðum við Kolbein Huga og Aðalstein Möller úr Graveslime.
    56 min
  • Mæðratips, Crypto-víkingar, Top Gun 2
    Kona, móðir, bumba. Mæðratips, facebook hópur þar sem þú getur spurt íslenskar mæður að hverju sem er. Innleggin eru fjölbreytt og þar skapast líflegar umræður. Í hópnum eru tæplega 25 þúsund meðlimir og þar eru öll hugsanleg vandamál mæðra borin á borð.
    Síðbúna framhaldsmyndin Top Gun Maverick virðist ætla að verða einhver helsti bíósmellur sumarsins. Tom Cruise aftur á orrustuþotu í háloftunum eftir 35 ára hlé. Gunnar Ragnarsson rýnir í Top Gun 2 í þætti dagsins, og dregur saman hinar ýmsu túlkanir á fyrri myndinni, sem hefur ekki bara verið túlkuð sem áróðurstæki bandaríska hersins.
    Við sökkvum okkur svo ofan í heim crypto-víkinga og ræðum við stofnendur Valhalla Vacation Club sem var eitt fyrsta íslenska NFT verkefnið þar sem reynt var að búa til samfélag utan um hálfgerðar stafrænar skiptimyndir.
    54 min
  • Dragsýning á stóra sviðinu, kökumótmæli og ælupest eina prósentsins
    Hópur af milljarðamæringum, olígörkum og ofurfyrirsætum fer saman út á lúxussnekkju. Þau eru yfirborðsleg, ógeðfelld og aumkunarverð og svo æla allir á alla. Þannig væri kannski hægt að lýsa bíómyndinni Triangle of Sadness, sem hlaut aðalverðlaunin á kvikmyndahátíðinni í Cannes um helgina. Við ræðum við Ara Gunnar Þorsteinsson um sænska leikstjórann Ruben Östlund og Þríhyrning sorgar.
    Næstu tvö kvöld mun bandaríska leikhússtjarnan Taylor Mac koma fram ásamt hljómsveit og vel völdum íslenskum listamönnum og framkvæma einhverskonar fórnarathöfn feðraveldisins á stóra sviði Þjóðleikhússins. Verkið er hluti af Listahátíð í Reykjavík sem hefst þann 1. júní. Gréta Kristín Ómarsdóttir, leikstjóri, hefur fylgst með ferlinu og ræddi við okkur um Taylor Mac og listformið drag.
    55 min
  • Stríðsáróður Hollywood, matur á leiðtogafundi, útskriftarsýning LHÍ
    Top Gun 2 er vinsælasta kvikmynd heims um þessar mundir. Mynd sem fjallar um orrustuflugmenn í flottum einkennisbúningum, með sólgleraugu, hvítar tennur og breiða kjálka. Mynd sem varpar jákvæðu ljósi á bandaríkjaher og herþjónustu. Enda kemur herinn að gerð Top Gun eins og svo mörgum öðrum kvikmyndum í Hollywood. Við kynnum okkur söguna af samkrulli hernaðar og skemmtanaiðnaðar með Sveini Mána Jóhannessyni sagnfræðingi.
    Útskriftarsýning nemenda í myndlist, arkitektúr og hönnun úr Listahaskóla Íslands ber yfirskriftina Verandi Vera, við kíkjum á Kjarvalsstaði og kynnum okkur það sem framtíð íslensku listasenunnar er að velta fyrir sér.
    1986 voru erlendir fréttamenn staddir á Íslandi til þess að flytja fréttir af leiðtogafundinum í Höfða, fundi Gorbachev og Reagan. Steinunn Sigþrúðar Jónsdóttir skoðar hvernig íslenskur matur var framreiddur fyrir blaðamennina, sem hafði verið komið fyrir í Hagaskóla.
    55 min
  • Kendrick Lamar, Volaða land og Skjaldborg
    Í dag opnar sýning á Listasafni ASÍ ?Það er gaman að lifa ? en það eru komin 61 ári síðan safnið var opnað og er sýningin haldin í tilefni þess. Á sýningunni munu 9 ungir listamenn sýna veggspjöld sem fjalla um helstu baráttumál samtímans. Við förum í heimsókn á verkstæði Grafíkfélagsins þar sem listamenn voru í óða önn að undirbúa sýningu á Listasafni ASÍ. Við ræðum við þær Elísabetu Gunnarsdóttur, safnstjóra og Megan Auði, myndlistarmann sem er ein þeirra sem taka þátt í sýningunni,
    Steindór Grétar Jónsson er staddur á kvikmyndahátíðinni Cannes, hann mælti sér mót við leikstjórann Hlyn Pálmason, sem frumsýnir þar myndina sína Volaða land, mynd sem fjallar um ungan danskan prest sem ferðast til Íslands undir lok 19. aldar með það að markmiði að reisa kirkju og ljósmynda íbúa eyjunnar. Titill myndarinnar er fenginn úr ljóði eftir Matthías Jochumson
    Ný plata frá Kendrick Lamar kom út á dögunum, Mr. Morale & the Big Steppers. Plötunnar, sem er fimmta plata bandaríska rapparans, hefur verið beðið eftir af mikilli eftirvæntingu. Davíð Roach, tónlistargagnrýnandi Lestarinnar hlustaði á Mr. Morale og rýndi.
    Tveir af skipuleggjendum Skjaldborgarhátíðarinnar, Karna Sigurðardóttir og Kristín Andrea Þórðardóttir fara yfir dagskrá hátíðarinnar sem hefst í næstu viku á Patreksfirði.
    56 min
  • Margrét í Hússtjórnarskólanum og ungur íslendingur frumsýnir á Cannes
    Steindór Grétar Jónsson er flytur pistil frá Cannes-kvikmyndahátíðinni þetta árið. Kvikmyndahátíðin hófst þann 17. maí og stendur yfir til 28. maí. Steindór hitti unga leikarann Magnús Maríuson sem fer með hlutverk í kvikmyndinni The Vagabonds eftir Doroteyu Dromevu, sem er frumsýnd á hátíðinni,
    Hin 75 ára gamla Margrét Sigfúsdóttir á aðeins örfáa daga eftir í starfi sínu sem skólameistari Hússtjórnarskólans í Reykjavík. Því hlutverki hefur hún gegnt í 24 ár. Það hefur margt breyst síðan Margrét fór sjálf í sitt nám, þegar hússtjórnarskólar voru starfræktir víðast hvar á landinu og konur skikkaðar af fjölskyldum sínum í slíka skóla. Með breyttum tímum og viðhorfum í samfélaginu hafa nánast allir slíkir skólar lokað dyrum sínum, fyrir utan þá tvo sem eru eftir, í Reykjavík og á Hallormsstað. Við ákváðum að setjast niður með Margréti og ræða við hana á þessum tímamótum, um skólann, kennsluna og lífshlaup hennar
    55 min
  • Doja Cat veipar um of, bjórsalar fyrri alda og húsið hans Harry Styles
    Margir kannast við svokallaða bjórsala, bílstjóra sem skutla bjór og áfengi til kaupenda eftir að ríkið lokar. Launsala á áfengi hefur verið stunduð hér á landi lengi og þeir sem stunda slíka iðju tilheyra í raun afar gamalli starfsstétt. Steinunn Sigþrúðar Jónsdóttir fjallar um þessa bjórsala fyrri alda.
    Skæð sýking í hálsi tónlistarkonunnar Doja Cat kemur í veg fyrir að hún geti haldið tónleika í sumar, en hún er með vinsælustu tónlistarkonum heims um þessar mundir. Sýkingin á sér nokkuð óheppilega skýringu, svo virðist sem söngkonan hafi veipað of mikið. Við skoðum stöðu veipsins í dag, en hún er nokkuð breytt frá því veipið náði fyrst vinsældum.
    Harry Styles gaf á dögunum út nýja plötu, Harry?s house. Þetta er önnur sólóplata fyrrum One Direction meðlimsins en sú fyrsta kom út árið 2017. Strákahljómsveitin One Direction á sér gríðarlega marga aðdáendur, aðallega í ungum konum og stelpum. Karitas M. Bjarkadóttir er ein þeirra, hún rýnir í nýútkomna plötu Styles.
    53 min