Lestin

Lestin

Download on the App Store

All Lestin episodes

  • Píanóleikari íslensku poppsenunnar: Magnús Jóhann Ragnarsson
    Gestur þáttarins í dag er aðeins einn, píanóleikarinn Magnús Jóhann Ragnarsson, sem er einhver virkasti tónlistarmaður íslenskrar popptónlistar í dag, bæði sem sólólistamður og sem þátttakandi í verkum annarra, sem hljóðfæraleikari, pródúser og lagasmiður. Ef þú ert að hlusta íslenskt popp- eða rapplag og heyrir fallegan píanóundirleik, þá eru einhverjar líkur á því að það sé Magnús Jóhann. En hann hefur unnið fjölbreyttum hópi listafólks á borð við GDRN, Moses Hightower, Skúla Sverrisson, Bríet, Ingibjörgu Turchi, Friðrik Dór, Bjarna Frímann Bjarnason, Flóna, Birni, Hipsumhaps, svo einhverjir séu nefndir. Hann hefur samið, komið að, leikið inn á 400 útgefin lög og kemur fram á aragrúa tónleika á ári hverju.
    55 min
  • Spjallað um pedófílískar bækur, raddir kvennafangelsis, Nicolas Cage#2
    Vinkonur hittast í íbúð í vesturbæ, sitja í hring og ræða bækur af fúlustu alvöru, en það var bókin Vanessa mín myrka eftir Kate Elizabeth Russel sem kallaði á að klúbburinn yrði stofnaður. Bók sem fjallar um ástar og ofbeldissamband unglingsstúlku við fullorðinn kennara sinn.
    Við Kópavogsbraut, við hliðina á leikskóla og sundlaugina, var starfrækt kvennafangelsi í rúm 25 ár. Í Lest dagsins heyrum við um nýtt tónverk sem byggir á frásögnum nokkurra þeirra sem afplánuðu í fangelsinu. Brotabrot - minningar úr kvennafangelsinu verður frumflutt í Salnum í Kópavogi á fimmtudagskvöld, en það verða einnig fjögur önnur hljóðverk sem spretta úr hljóðheimi Kópavogs.
    Í síðustu viku byrjaði Gunnar Ragnarsson að dýfa litlu tánni ofan í feril kvikmyndaleikarans Nicolas Cage, í tilefni nýrrar myndar hans, The Unbearable Weight of
    Massive Talent. Nú sekkur hann dýpra og dýpra og dýpra.
    56 min
  • Tindastóll, venesúelsk poppmenning og Moon knight
    Á morgun, miðvikudaginn 18. Maí munu liðin Valur og Tindastóll keppa til úrslita í körfubolta karla. MIkil spenna hefur skapast fyrir leiknum. Fólk sem áður fylgdist ekki með körfu hefur valið sér lið til að halda með og uppselt er á leikinn. Nýlega fékk Tindastóll nýtt stuðningsmannalag, við ræðum við einn höfund lagsins, Helga Sæmund Guðmundsson, um listina á bak við það að blása fólki byr í brjóst
    Við lítum suður á bóginn og heyrum hvað er að frétta í dægurmenningunni í Venesúela. Þessi 30 milljón manna þjóð nyrst í suður-Ameríku hefur ratað sorglega oft í fréttirnar undanfarin ár vegna pólitískrar spillingar, ólýðræðislegra stjórnarhátta og mótmæla. Helen Cova, rithöfundur sem er búsett hér á landi, ætlar hins vegar að segja okkur hvað venesúelabúar eru að hlusta á, lesa og horfa á.
    Smáserían Moon Knight er nýjasta afurðin sem kemur af ofurhetjufæribandinu frá Marvel. Salvör Bergmann rýnir í þættina.
    57 min
  • Saga Pítunnar, crypto-hrun, sjálfboðaliðar í stríði
    Brauðhleifur beint frá miðjarðarhafi. Þannig var maturinn sem borinn var á borð meðal annars auglýstur þegar veitingastaðurinn Pítan, var opnuð á vetrarmánuðum 1982. Steinunn Sigþrúðar-Jónsdóttir rekur sögu Pítunnar, sem er í seinni tíð kennd við skipholt.
    Í upphafi Úkraínustríðsins kallaði Volodimyr Zelensky forseti Úkraínu eftir því að erlendir sjálfboðaliður kæmu og berðust gegn innrás Rússa. Þúsundir evrópubúa hafa svarað kallinu, enda margir sem sjá stríðið í Úkraínu sem klassíska baráttu Davíðs og Golíats, góðs og ills. Þetta er langt því frá fyrsta skipti sem ungir hugsjónarmenn hafa ferðast yfir álfuna til að berjast fyrir hugsjónir sínar. Nokkrir Íslendingar fóru þannig og börðust í spænsku borgarastyrjöldinni í aðdraganda seinni heimsstyrjaldarinnar. Við ræðum við Ara Guðna Hauksson, sagnfræðing, um Íslendingana sem börðust á Spáni. En Ari flytur erindi um efnið á íslenska söguþinginu sem fer fram síðar í vikunni.
    Í síðustu viku hrundu rafmyntir í virði, sumir hafa gengið svo langt að segja að nú sé þetta búið, aðrir trúa enn heitt á þessa nýju peninga internetsins. Kristján Ingi Mikaelsson er einn helsti sérfræðingur í rafmyntum á Íslandi og ætlar að fara yfir það með okkur hvað gerðist sem olli þessu hruni og hvaða áhrif megi ætla að það hafi. Það eru eflaust ekki stór hópur íslendinga sem fann fyrir þessu hruni en þeir sem gerðu það fundu all hressilega fyrir því.
    56 min
  • Nicolas Cage, líkræða iPodsins og goonlenska
    Hvað þýðir að púlla upp? Við köfum ofan í tungutak unglinga, goona og gella og gerum óformlega könnun á þekkingu starfsfólks Ríkissútvarpsins.
    Nú í vikunni var tilkynnt að tæknifyrirtækið Apple ætli að hætta framleiðslu á tónlistarspilaranum iPod. Við rekjum sögu og áhrif tækisins
    Og að gefnu tilefni rýnir Gunnar Ragnarsson í kvikmyndina the unbearable weight of massive talent, óbærileg þyngd mikilla hæfileika, og nýtir tækifærið til að sökkva sér ofan í höfundaverk bandaríska leikarans Nicolas Cage - sem leikur sjálfan sig í kvikmyndinni.
    55 min
  • Daniil gleður goons, fínir drættir leturfræði, djúpfalsaður Kendrick
    Hvað er goon? Ungi rapparinn Daniil er fyrrum goon en hann gaf á dögunum út lag, Ef þeir vilja beef, sem gladdi eflaust marga íslenska goons. Við rýnum í orðaforða ungu kynslóðarinnar í gegnum rapptexta Daniils.
    Þegar við lesum texta er það fyrst og fremst innihaldið sem við einbeitum okkur að. En til að merking orðanna komist hiklaust til skila þarf textinn að vera lesanlegur og læsilegur. Allt þarf að samsama sér: bókstafir, stafabil, orð, orðabil, línur, línubil og dálkar. Eitthvað sem venjulegt fólk veltir sjaldan fyrir sér. En nú getur þetta sama venjulega fólk lesið um þetta í lítilli fallegri bók sem kom út hjá Angústúru á dögunum, Fínir drættir leturfræðinnar eftir Svisslenska hönnuðinn Jost Hochuli. Bók sem var fyrst gefin út árið 1987 en hefur nú verið þýdd á íslensku af Birnu Geirfinnsdóttur, Marteini Sindra Jónssyni og Gunnar Þór Vilhjálmsson. Þau tvö fyrrnefndu segja frá í Lestinni.
    Og við pælum í nýju lagi og myndbandi frá Kendrick Lamar, The Heart part 5, sem kemur í aðdraganda nýrrar breiðskífu frá rapparanum og Pulitzer-verðlaunahafanum, plötu sem kemur út á föstudag og nefnist Mr. Morale & the Big Steppers.
    55 min
  • Nautnaaktivismi, konur í kammertónlist og Ruangrupa
    Af hverju má ekki vera gaman að mótmæla? Salvör Gullbrá Þórarinsdóttir hefur mætt undanfarnar helgar á mótmæli á Austurvelli og er þessi spurning hugleikin. Hún veltir fyrir sér nautnaaktivisma út frá hugmyndum Adrienne Maree Brown.
    Kammerklúbburinn Feima er tónlistarverkefni sem ætlar sér að setja kvenhöfunda og flytjendur í forgrunn. Fyrstu tónleikar þessa hóps sem sprottinn er upp frá hljómsveitinni Elju verða haldnir í Hörpu næsta fimmtudagskvöld. Steinunn Vala Pálsdóttir og Anna Gréta Sigurðardóttir segja okkur af hverju þeim þykir kammertónlist svona skemmtileg.
    Listahátíðin Documenta hefst í Þýskalandi í næsta mánuði, þetta er ein stærsta og mikilvægasta myndlistarhátið heims, en hún fer aðeins fram á fimm ára fresti. Listrænir stjórnendur hátíðarinnar eru í fyrsta skipti frá landi utan Evrópu, en það er indónesíska listakollektífið Ruangrupa. Við spjöllum við tvo meðlimi hópsins í Lestinni í dag um hrísgrjónageymslur, aðferðafræði hangsins og Documenta 15.
    55 min
  • Heiðblá kosningamyndbönd, svartur Doctor og ömurlegar endurmarkanir
    Þegar Bónus grísnum var breytt um daginn og skakka augað sem mörgum þótti vera krúttlegt karaktereinkenni á þjóðþekktum teiknimyndagrís mótmæltu margir. Við ætlum að ræða svipaða breytingu á öðru 50 ára gömlu vörumerki sem hefur þangað til núna fengið að standa óbreytt. Við fáum álit grafíska hönnuðarins Sigurðar Oddssonar á þessu máli sem þurfti að róa taugarnar áður en hann gat tjáð sig um þetta opinberlega.
    Doctor Who eru langlífustu vísindaskáldskaparþættir í sjónvarpssögunni. Þrettán leikarar hafa farið með hlutverk þessa tímaflakkara úr geimnum í 60 ára sögu þáttanna, en allir hafa verið hvítir á hörund. Um helgina var tilkynnt að skosk-rúandski leikarinn Ncuti Gatwa verði sá fjórtándi sem fer með hlutverkið, en sá fyrsti svarti. Við ræðum við einn aðdáanda þáttanna um nýja doktorinn.
    Það styttist í sveitastjórnarkosningar og Oddur Þórðarson, stjórnmálafræðinemi og blaðamaður, fjallar um kosningabaráttuna eins og hún hefur komið honum fyrir sjónir á netinu. Hann veltir fyrir sér frelsisborgurum og bláma í kosningamyndöndum.
    55 min
  • Þrándur í kirkjugarði, pappakjólar, uppruni átaka um fóstureyðingar
    Í vikunni bárust þær fréttir að Hæstiréttur Bandaríkjanna íhugaði nú að draga úr rétti kvenna til þungunarrofs í landinu, þegar vinnuskjal frá einum hæstaréttadómara lak til fjölmiðla. Fóstureyðingar hafa lengi verið átakamál í bandarísku samfélagi og í Lestinni í dag ætlum við að rekja eina mögulega upprunasögu þeirra átaka, kannski var það 19 ára strákur og heimildarmynd um listheimspeki sem eru ástæðan fyrir þessum átökum
    Við kíkjum niður í Hólavallagarð í Vesturbæ reykjavíkur og hittum þar Þránd Þórarinsson listmálara sem hefur undanfarna mánuði málað myndir af kirkjugarðinum og fólkinu sem þar hvílir.
    HönnunarMars er genginn í garð og sýningarrými að opna um allan bæ, en það eru líka ennþá einhverjir á lokametrunum í undirbúningi á sýningunum sínum. Helga Björnsson, fatahönnuður og listakona er ein af þeim. Og hún er að búa til pappakjóla og pappaskartgripi.
    55 min
  • Almodóvar, örverubjór og Jóns Ásgeirs-skyrtan hennar Lóu
    Það er ekki sama hverju maður klæðist. Lóa fann skyrtu á bás í Hringekjunni, búð sem selur notaðar flíkur, sem hafði verið áður í eigu umsvifamikils kaupsýslumanns. Þegar hún klæðist skyrtunni fær hún lánað brot af sjálfsöryggi hans. Í Lestinni í dag söfnum við saman svipuðum sögum fólks af flíkunum sem þau klæðast þegar mikið stendur til.
    Hönnunarhátíðin Hönnunarmars hófst í dag í Reykjavík. Það er margt um að vera og hönnuðir kynna afurðir sínar víða um borgina. Fatnaðar, nytjahlutir, hugmyndir og matur eru meðal þess sem boðið verður upp á. Við kíkjum í Ásmundarsal þar sem hönnunartvíeykið Grugg og Makk var að setja upp í hádeginu, en þeir ætla að kynna nýjan villibjór sem ræktaður er úr örverum úr nýju hrauni.
    Spænski kvikmyndagerðarmaðurinn Pedro Almodovar er einn dáðasti leikstjóri Evrópu. Um þessar mundir má sjá 23. kvikmynd Almodóvars, Madres Paralelas, Samhliða mæður, í Bíó Paradís. Kvikmyndagagnrýnandi Lestarinnar Gunnar Ragnarsson er forfallinn aðdáandi og var því spenntur að kíkja á ræmuna.
    55 min