Lestin

Lestin

Download on the App Store

All Lestin episodes

  • Taugaáföll og matreiðslubækur, nakin hús og lyklaverðir internetsins
    Hvað ef sósan klikkar? Hvað ef allt fer úrskeiðis? Hvað ef einhver opnar inn í fataskápinn og sér óreiðuna? Gunnella Hólmarsdóttir rannsakaði tengsl matreiðslubóka við taugaáföll kvenna og vann heimildarverk upp úr viðtölum við ömmu sína, húsmóðurina Gunnellu. Útkoman er matreiðsluþáttur með áhorfendum og allt getur farið úrskeiðis.
    Sólbjört Vera Ómarsdóttir myndlistarkona veltir fyrir sér í ljóðrænum pistli muninum á því að búa í nöktu húsi og klæddu húsi. Hún kallar hús þar sem íbúar þess reykja í baði og lesa og þrífa tómatssósuslettur kvöldmatarins bara á morgun, nakin. Þannig gerir fólk ekki í klæddum húsum.
    Við heyrum í Íslendingi sem geymir einn af fjórtán lyklunum að internetinu. Nokkrum sinnum á ári þarf Ólafur Guðmundsson að mæta með lykilinn sinn í leikræna athöfn í hátæknilegu öryggisrými í Virginíu eða Los Angeles. Viðtalið tók Kristján Guðjónsson í febrúar fyrr á árinu.
    55 min
  • Bókverkagjörningur, streymisveitur og morð á blaðamanni
    Myndlistarmennirnir Salka Rósinkranz og Tóta Kolbeinsdóttir hafa undanfarið mánuð eða svo verið að prenta myndir á hverjum degi, í Gryfjunni í Ásmundasal. Þær settu sér það markmið að prenta eina mynd hvor á dag. Útkoman verður svo gefin út í bókverki sem kemur út á næstu dögum.
    Bylting á HBO Max veldur því að veitan kemur seinna til Íslands og efnisframboð minnkar, þetta kemur fram í grein Arnórs Steins Ívarssonar í Kjarnanum, við ætlum að ræða við hann um streymisveitur og velta fyrir okkur áhrifunum sem samruni tveggja fyrirtækja gæti haft á sjónvarpsþáttaframleiðslu.
    Ásgeir Ingólfsson flytur okkur pistil um heimildarmyndina The Killing of a Journalist, morðið á blaðamanni. Hann veltir fyrir sér hliðstæðu atburðanna sem myndin fjallar um og ákveðinna íslenskra fjölmiðlamála. Morðin sem myndin fjallar um urðu kveikjan að stærstu mótmælum Slóvakíu síðan Kommúnisminn féll.
    55 min
  • Við lifum í martröð Adorno
    Í þessum seinasta Lestarþætti fyrir sumarfrí grandskoðum við nýja tegund auglýsinga. ?Branded entertainment? kallast það þegar fyrirtæki standa fyrir framleiðslu efnis sem er ætlað að auka velvild í garð fyrirtækisins. Fjölmargir íslenskir sjónvarpsþættir, hlaðvörp og tónlistarhátíðir hafa verið framleidd með þessum hætti.
    Berglind Rós Magnúsdóttir heldur áfram að fjalla um stéttaskiptingu í íslensku samfélagi og að þessu sinni beinir hún sjónum sínum að þorpum og hverfum.
    54 min
  • Femínísk sjálfsvörn, Love Death and Robots og ljúfur gítarleikur
    Á föstudag kemur tónskáldið og gítarleikarinn Brynjar Daðason fram á tónleikum í Mengi ásamt hljómsveit. Hann gaf út sína fyrstu plötu í desember, ?Pretty Late? sem kom út á vegum Mengi Records, en upptökum stýrði Skúli Sverrisson. Tónlistin er sveimandi tilraunatónlist þar sem gítarinn er í fyrirrúmi. Við ræðum við gítarleikarann unga.
    Eftir að hafa rekist á bók eftir konu sem hafði kennt femínska sjálfsvörn í 30 ár setti Elínborg Hörpu og Önundardóttir sig í samband við hana og óskaði eftir því að fá að læra af henni. Og nú um helgina standa félagasamtökin Slagtog fyrir námskeiði í femínskri sjálfsvörn fyrir konur og transfólk. Við ætlum að kynna okkur þetta fyrirbæri, sem er samkvæmt Elínborgu, öflug forvörn gegn ofbeldi.
    Þriðja þáttaröðin af teiknimyndaþáttunum Love Death and Robots er komin á streymisveituna Netflix. Hver þáttur er sjálfstæð saga teiknuð í sínum sérstaka stíl. En allir takast þættirnir á við framtíðina, tækni og vísindaskáldskap. Salvör Bergmann rýnir í þættina.
    55 min
  • Nýtt frá Beyoncé, Indversk snilld, Icedocs, Hold, sumarmelankólía
    Gunnar Ragnarsson kvikmyndagagnrýnandi Lestarinnar upplifði þörf á einhvers konar kvikmyndalegu munnskoli eftir að hafa horft á og lofað Top Gun Maverick. Hann fann það sem hann leitaði að á streymisveitunni Netflix, Indversku hasarmyndina RRR, sem hann segir vera einstaka blöndu af hasar, söngleik, drama og gleði. Þetta er síðasti pistill Gunnars í Lestinni í bili, og er honum þakkað fyrir vel unnin störf.
    Ríkasta 1% Jarðarbúa flýja jörðina og nema land á plánetunni Hold eftir að hafa rústað fyrrum heimkynnum sínum. Þar búa saman vélmenni og menn. Söngleikurinn Hold fjallar um ást milli gervigreindar og manneskju og verður fluttur á sviðslistahátíðinni Reykjavík Fringe í Iðnó á föstudaginn næstkomandi. Kristín Mjöll segir frá.
    Í dag 21. júní er lengsti dagur ársins 2022, sumarsólstöður, og að því tilefni veltum við fyrir okkur melankólíu og formgerð íslenska sumarsins.
    Við heyrum um alþjóðlegu heimildamyndahátíðina IceDocs sem fer fram á Akranesi í vikunni. Ingibjörg Halldórsdóttir sest um borð í Lestina.
    Og já, svo hlustum við á nýja Beyoncé lagið, næntís-innblásna dansslagarann Break my Soul.
    56 min
  • Love Island, Overtune og vaxandi óhamingja
    Það krefst skuldbindingar að fylgjast með Love Island, ástareyjunni, það kemur nýr klukkutímalangur þáttur á hverjum degi í þær 6 vikur sem þáttarröðinni er tekin upp. Um þessar mundir er 8 þáttaröð í sýningu. Hvað er það við 20 breta fasta saman í glæsivillu á Mallorca sem gerir þetta að jafn vinsælum þáttum og raun ber vitni?
    Halldór Armand Ásgeirsson rithöfundur flytur sinn annan pistil af þremur í Lestinni í sumar. Þó að við séum stödd á bjartasta tíma ársins er Halldór með hugan við nýlega könnun Gallup sem sýnir vaxandi óhamingju í heiminum. Já, það er víða pottur brotinn. MIsskipting, einmanaleiki og tíminn sem það tekur að laga innsláttarvillur.
    Við ræðum um muninn á tónlist og hljóðefni við Sigurð Ásgeir Árnason framkvæmdastjóra nýsköpunarfyrirtækisins Overtune sem framleiðir samnefnt app sem gerir taktlausum jafnt sem lagvissum kleift að búa til hljóðefni fyrir myndbönd á samfélagsmiðlum á örfáum sekúndum.
    55 min
  • The Wire: besti sjónvarpsþáttur sögunnar er 20 ára
    Fyrir 20 árum, í júní 2002 var fyrsti þátturinn í nýrri sjónvarpsþáttaröð um dópsala og löggur í Baltimore sýndur í Bandaríkjunum. Áhorfstölurnar voru ekki háar en þátturinn hefur smám saman verið samþykktur sem einn af hápunktum sjónvarpssögunnar, mögulega besti þáttur allra tíma.
    The Wire er miklu meira en einfaldur lögguþáttur, hann er gagnrýnin samfélagsstúdía, heimspekileg kenning um vald, mósaíkmynd af molnandi heimsveldi, en svo eru persónurnar, samtölin og senurnar líka bara svo fáránlega nettar.
    Lóa og Kristján halda dauðahaldi í vírinn í Lest dagsins: The Wire special í tilefni 20 ára afmælis þáttanna.
    56 min
  • Mjólkandi maður, Arnar Már Jónsson og stéttaskipting í framhaldsskólum
    Þó að karlar séu með geirvörtur og mjólkurkirtla líkt og konur þá tíðkast það ekki að þeir gefi börnum sínum brjóst. Mjólkandi maður, Milking man, nefnist útskriftarverkefni Jón Sölva Walderhaug frá lIstaháskóla íslands, en þar gerði hann tilraun til að virkja mjólkurframleiðslu í brjóstum sínum.
    Ungur íslenskur fatahönnuður selur hönnun sína í yfir 50 hátískuverslunum, merkið sem áður hét Arnar Már Jónsson, breytti á dögunum um nafn, og kallast nú Ranra. Hönnuðirnir leggja höfuðáherslu á sjálfbærni og lita flíkurnar með íslenskum plöntum, er það er nánast óheyrt í heimi hátískunnar. Fötin eru gerð til að klæðast úti, en eru ekki eiginleg útivistarföt að sögn Arnars, en fatamerkið sló í gegn þegar Covid skall á og útivistarföt urðu að tískuvöru.
    Berglind Rós Magnúsdóttir heldur áfram að fjalla um hlutverk framhaldsskólanna í að viðhalda stéttaskiptingu í íslensku samfélagi, að þessu sinni tekur hún tvær dæmisögur.
    55 min
  • Stopp í danskri sjónvarpsþáttaframleiðslu, Primavera, og spjallmenni
    Á dögunum var forritari Google sendur í leyfi eftir að hann birti samtöl sín við spjallmenni á netinu. Hann telur spjallmennið hafa öðlast sjálfsmeðvitund en talsmenn Google þvertaka fyrir það. Við rekjum sögu forritarans Blake Lemoine og ræðum spjallmenni og sjálfsmeðvitund við lektor við Háskólann í Reykjavík, Stefán Ólafsson.
    Streymisveitur hóta nú hver af annarri að hætta framleiðslu leikins sjónvarpsefnis á dönsku. Ástæðan er nýlegur samningur sem tryggir starfsfólki í dönsjum kvikmyndaiðnaði aukin réttindi. Við hringjum til kaupmannahafnar í Þóri Snæ Sigurjónsson kvikmyndaframleiðanda.
    Davíð Roach Gunnarsson, tónlistargagnrýnandi Lestarinnar var segir frá tónlistarhátíðinni Primavera sem fór fram í Barcelona á dögunum.
    55 min
  • 9 evru lestarmiði, sýndarheimar Egils, Gríma, stærsta safn Skandinavíu
    Í Þýskalandi var á dögunum tekinn í gagnið 9 evru miðinn, miði sem gildir í heilan mánuð um allt þýskaland í júní, júlí eða ágúst. Rithöfundurinn Halldór Armand Ásgeirsson veltir verðbólgu og almenningssamgöngum, friðartíma og aperol spritz fyrir sér í nýjum pistli.
    Við hringjum til Osló og heyrum um nýtt þjóðarsafn Noregs fyrir list, arkitektúr og hönnun. Bergsveinn Þórsson safnafræðingur kíkti á þetta stærsta safn skandinavíu í morgun, en það opnaði um helgina.
    Við setjumst svo í kaffi með Agli Sæbjörnssyni fyrir utan Nýlistasafnið í reykjavík og ræðum saman um intenetlist og sýndarheima.
    Og við ræðum Grímuverðlaunin sem verða afhent á morgun.
    55 min