Lestin

Lestin

Download on the App Store

All Lestin episodes

  • Innflytjendur ræða stöðu íslenskunnar
    Í Lest dagsins ætlum við að fjalla um mál málanna, tungumálið sjálft, íslenskuna. Miklar umræður hafa verið um stöðu og framtíð íslenskunnar undanfarnar vikur. Það eru ekki bara slanguryrði unglinga, matseðlar lagaðir að túristum og haframjólkurauglýsingar á ensku sem hafa verið til umræðu, heldur ekki síður aðstaða fólks til að læra málið. Innflytjendur eru tvöfalt hærra hlutfall af íbúum landsins en fyrir áratug, en í byrjun síðasta árs voru þeir rúmlega 57 þúsund, eða 15,5 prósent - og mun þetta hlutfalla að öllum líkindum halda áfram að aukast.
    Þátturinn í dag verður tekinn undir umræður um íslensku á tímum fjölmenningar. Þrír gestir setjast í hljóðver númer 9 í Efstaleiti: Jelena Ciric, tónlistarkona og blaðamaður Iceland Review, Jón Símon Markússon, aðjúnkt við íslensku og menningardeild háskóla íslands, og Aleksandra Kozimala, starfsmaður skóla og frístundasviðs Reykjavíkurborgar þar sem hún vinnur að málefnum fjölmenningar og tungumála.
    55 min
  • Lokaþáttur The Crown, bækur í Buenos Aires, Dórófónn
    Undanfarna tíu daga hafa fjölmiðlar verið mettaðir af umfjöllun um dauðsfall elísabetar bretlandsdrottningu, jarðaförina, Bresku konungsfjölskylduna, Karl, nýja konunginn. Fólkið sem fær vald sitt frá guði. Inn á milli er að finna fréttir sem varpa gagnrýnu ljósi á þetta allt saman, þessa stofnun, fjölskylduna, breska heimsveldið, illa fengnu demantana. Og svo framvegis. Í morgun fylgdist að því er virðist hálf jörðin með útförinni, frá Westminister Abbey, þar sem ungir kórdrengir sungu og fjölskylda og þjóðarleiðtogar syrgðu saman. Syrgðu konu, ömmu, tákmynd, mýþólógíu. Í athöfn sem er eins og vel æft leikrit. Vel æft, stíft, kalt en líka fallegt. Við hin fáum að vera með, í beinni útsendingu, fyllumst lotningu, syrgjum með, almúginn stendur fyrir utan. Lóa fór á fund Ragnheiðar Kristjánsdóttur, prófessors í sagnfræði við Háskóla Íslands - því að það er allt í einu eins og allir séu orðnir royalistar við fráfall þessarar krúttlegu gömlu konu.
    Dórófónn er elektró-akústískt selló hannað af Halldóri Úlfarssyni, upphaflega sem hálfgerður leikmunur í myndlistarverki. En 15 árum síðar hefur hljóðfærið verið notað í óskarsverðlaunatónlist og verður nú sýnt í hinni fornfrægu hljóðfæraborg Cremona á Ítalíu. Við hringjum í Halldór til Aþenu og fræðumst það hvernig maður kemur nýju og óhefðbundnu hljóðfæri í notkun hjá tónlistarfólki.
    Heiða Vigdís Sigfúsdóttir flytur sinn þriðja pistil í Lestinni um sögu og menningu Argentínu. Að þessu sinni beinir hún sjónum sínum að bókum, Jorge Luis Borges og fleiri hetja argentískrar bókmenntasögu.
    55 min
  • Hreinsuð tónlist, FAMU og suðuramerísk matvöruverslun
    Íslendingar elska suður- og miðameríska matargerð. Mexíkóostur, mexíkósk kjúklíngasúpa með dorítos út í, Serranos, tex-mex-takós og hveititortíllur frá sænsk-finnska matvælafyrirtækinu Santa Maria. Æ fleiri eru reyndar að átta sig á því að þetta er allt annað en þú myndir borða í Mexíkó eða annars staðar í Mið- eða Suður-Ameríku. En hvert fer maður þá til að finna mat sem er sannarlega rómansk-amerískur. Jú, í matvörubúðina Blóm í eggi.
    Núna á sunnudag verður í Bíó Paradís sérstök sýning á nokkrum skólaverkefnum íslenskra kvikmyndagerðarmanna frá kvikmyndaskólanum FAMU í Prag í Tékklandi.
    FAMU er einn elsti kvikmyndaskóli heims, stofnaður 1946, og einn sá virtasti. Þar lærðu meðal annars Milos Forman, Emir Kusturica, Agnieska Holland og rithöfundurinn Milan Kundera svo einhverjir séu nefndir. Það er athyglisvert að nokkur fjöldi íslenskra kvikmyndagerðarmanna hefur stundað nám við skólann.
    Sjö stuttmyndir eftir íslenska kvikmyndagerðarmenn frá FAMU verða sýndar um helgina og viðburðurinn er hluti af Arctic Festival í Reykjavík. Við ræðum við Grím Hákonarson og Eydísi Eiri Brynju Björnsdóttir, sem gengu bæði í FAMU og eiga myndir á Arctic Festival.
    55 min
  • Kvikmyndasjóði slátrað, The Sandman, krufning Þóru Sayaka
    Salvör Bergmann rýnir í sjónvarpsþættina The Sandman á Netflix, sem byggja á samnefndum myndasögum eftir Neil Gaiman. Salvör naut þess að horfa en hefði viljað sjá meiri áhættu tekna í frásögninni, henni fannst stíllinn sem var valinn helst til krúttlegur og fjölskylduvænn, en það veldur því að útkoman fellur snyrtilega í formúlukenndan meginstrauminn.
    Fyrir tveimur vikum fengum við tvo plötusnúða, þá Johnny Blaze og Hakka Brakes til að kryfja til mergjar lag sem var í uppáhaldi hjá þeim. Og núna endurtökum við leikinn með plötusnúðinum Þóru Sayaka. Hún kemur með lagið Clear með Cybotron.
    Og við heyrum um minni framlög ríkisins til Kvikmyndasjóðs Íslands á sama tíma og endurgreiðslur til stórra erlendra kvikmyndaverkefna eru aukin. Íslenskir kvikmyndagerðarmenn eru ósáttir. ?Ráðist að grunnstoðum og Kvikmyndasjóði slátrað,? segir Ragnar Bragason, leikstjóri á Facebook og ?Menningarlegt stórslys,? segir Reynir Lyngdal starfsbróðir hans á sama vettvangi. Við ræðum við þau Hilmar Sigurðsson framkvæmdastjóra Saga Film og Kristínu Andreu Þórðardóttur kvikmyndagerðarkonu og framleiðanda um málið.
    55 min
  • Godard látinn, trúarleg þemu í popptónlist og Vegabréf: Íslenskt
    Jean Luc Godard, fæddur 1930 í París, brautryðjandi í kvikmyndagerð, forsprakki frönsku nýbylgjunnar, áhrifamesti leikstjóri eftirstríðsárana, er látinn, 91 árs að aldri. Eftir hann standa hátt í 50 kvikmyndir, frá á ólíkum tímabilum í lífi listamanns sem var í stöðugri mótun, stöðugri endurskoðun og endurhugsun. Viðar Víkingsson, kvikmyndagerðarmaður, segir frá listamanninum Godard.
    Assa Borg Þórðardóttir flytur okkur sinn fyrsta pistil í Lestinni. Í dag er viðfangsefnið trúarleg þemu í tónlist Kanye West og Sufjan Stevens, tveggja ólíkra bandarískra popptónlistarmanna.
    Í dag kemur út bókin Vegabréf: Íslenskt eftir Sigríði Víðis Jónsdóttur, bókin flakkar milli heimshorna eins og undirtitillinn gefur til kynna: Frá afganistan til Bosníu og Búrkína Fasó. Sigríður starfaði um árabil sem blaðamaður og skrifaði greinar og pistlar í íslenska fjölmiðla. Hún rekur sögu staða og þjóða í gegnum persónulegar sögur fólks sem hún finnur á ferðalögum sínum.
    55 min
  • Aníta Briem skrifar handrit, Unnsteinn snýr aftur, argentínsk mótmæli
    Við komum við á tökustað nýrra íslenskra sjónvarpsþátta sem Anítu Briem skrifar og leikur aðalhlutverkið í. Þættirnir eru sambandsdrama um langtímasamband og nefnist Svo lengi sem við lifum, Við skoðum leikmyndina og spjöllum við Anítu og leikstjórann Katrínu Björgvinsdóttur.
    Við rennum til Argentínu og heyrum um mótmælamenningu landsins en undanfarið hafa farið fram kröfugögnur vegna banatilræðis gegn varaforseta landsins. Heiða Vigdís Sigfúsdóttir fjallar um argentínska mótmælahefð.
    Og við spjöllum við Unnstein Manúel Stefánsson um nýja tónlist frá honum og hlaðvarp sem fylgir með.
    57 min
  • Í skóm drekans
    Liðin eru 20 ár frá frumsýningu heimildarmyndarinnar Í skóm drekans. Sett var lögbann á myndina nokkrum dögum áður en til stóð að frumsýna hana. Aðstandendur myndarinnar, systkinin Hrönn og Árni Sveinsbörn, rekja söguna í þætti dagsins. Myndin er fyrsta karakterdrifna heimildarmyndin á Íslandi, unninn í anda svokallaðra Dogma-mynda. Í henni fylgjumst við með Hrönn taka þátt og reyna að sigra fegurðarsamkeppnina Ungfrú Ísland.is, hugmynd sem kviknaði á Kaffibarnum um miðja nótt.
    55 min
  • Svarbréfið til Helgu gagnrýnt, It Hatched, menningarátök í Skerjafirði
    Kvikmyndin Svar við bréfi Helgu í leikstjórn Ásu Helgu Hjörleifsdóttur var frumsýnd síðastliðin föstudag. Nýr kvikmyndagagnrýnandi Lestarinnar Guðrún Elsa Bragadóttir rýnir í Svarið. Hún fór í bíó, örlítið efins um að hægt væri að gera kvikmynd um bændur í dag, án þess að útkoman yrði klisjukennd.
    Framtíð tónleika og viðburðahalds í post-húsinu og tóma rýminu, gróskumiklum listarýmum í Skerjafirðinum, er í hættu. Tónleikum hefur verið frestað ótímabundið. Undanfarna daga hafa verið sagðar fréttir af því að kvartanir nágranna yfir hávaða séu ástæðan. Við hringjum í einn aðstandenda póst-hússins, Bjarna Daníel Þorvaldsson.
    Ný íslensk hrollvekja verður frumsýnd á föstudag. Myndin nefnist Mara á íslensku en á ensku ber hún titilinn It hatched. Við ræðum við leikstjóra myndarinnar Elvar Gunnarsson, um b-myndir, um áhrifin sem skilnaður hefur á eftirvinnslu bíómyndar og af hverju svona margar hrollvekjur fjalla um barnsburð.
    55 min
  • Nope, nýtt frá Björk, hljóðserían Skerið
    Nope, nýjasta mynd bandaríska leikstjórans Jordan Peele kom út í sumar. Geimverumynd sem gerist á hestabúgarði í Kaliforníu. Hingað í Lestina kemur Hrafn Jónsson, kvikmyndagerðarmaður og spekúlant til að ræða Nope og þemu myndarinnar, sem varð til í miðjum heimsfaraldri.
    Hljóðbókaveitan Storytel er í auknum mæli að snúa sér að framleiðslu hlaðvarpa og útvarpsleikrita - það sem þau kalla reyndar hljóðseríur. Fyrsta íslenska hljóðserían frá Storytel fór í loftið í sumar: Skerið, sem fjallar um íslenskan sjomla sem vaknar upp í óþekktu hótelberbergi eftir djamm á Tenerife. Hann kemst ekki af eyjunni, símasamband er stopult og dularfullir atburðir byrja að eiga sér stað. Við ræðum við höfunda Skersins, parið Áslaugu Torfadóttur og Ragnar Egilsson.
    Og við ætlum að heyra nýja lagið frá Björk Guðmundsdóttur, Atopos, fyrsta lagið af væntanlegri plötu hennar Fossora, og ræða myndbandið sem inniheldur sveppi og sex bassaklarinett.
    55 min
  • Svar við bréfi Helgu, Blár markaður í Buenos Aires, Brendan Fraser
    Ástarþríhyrningur meðal bænda á Ströndum á stríðsárunum. Þannig væri hægt að lýsa efni nýrrar íslenskrar kvikmyndar sem var frumsýnd á föstudag, Svar við bréfi Helgu, í leikstjórn Ásu Helgu Hjörleifsdóttur. Myndin er byggð á vinsælli skáldsögu Bergsveins Birgissonar sem kom út árið 2010. Við settumst niður með Bergsveini og Ásu Helgu til að ræða það hvernig bók verður að kvikmynd, um hvort kotbændur hafi verið jafn snoppufríðir og hollywood-leikarar, og af hverju ákveðið var að klippa út úr sögunni alræmt atriði þar sem aðalpersónan leggst með kind
    Heiða Vigdís Sigfúsdóttir er stödd í Argentínu, á bláa markaðnum , þar sem hún þarf að kaupa sér peninga, gjaldeyrismarkaðir eru lokaðir um helgar. Næstu fjórar vikur flytur Heiða pistla um suður-ameríska menningu og ómenningu hér í Lestinni.
    Og við kynnum okkur það helsta sem er í boði á kvikmyndahátíðinni í Feneyjum. Standandi lófaklapp og endurkoma leikarans Brendans Fraiser er með þess sem hæst bar á opnunarhelgi hátíðarinnar.
    55 min