Lestin

Lestin

Download on the App Store

All Lestin episodes

  • Meira af stolinni styttu, plaköt og Vitjanir
    Á Páskadag verður frumsýnd ný íslensk sjónvarpsþáttaröð í Ríkissjónvarpinu, lækna- og fjölskyldudramað Vitjanir. Eva Sigurðardóttir er leikstjóri, Kolbrún Anna Björnsdóttir og Valgerður Þórsdóttir skrifa handritið og leika í þáttaröðinni. Hugmyndin að þáttunum fæddist fyrir 8 árum og voru þeir að hluta til hugsaðir til að auka fjölbreytileika kvenkyns persóna í sjónvarpi.
    Við kíkjum í Gallerí Port á plaköt eftir pólsku listakonuna og hönnuðinn Nötku Klimowitz, sem gerir list undir nafninu Kosmonatka, en litrík teiknuð verk hennar hafa prýtt fjölda auglýsingaplakata fyrir teknóútgáfuna bbbbbbb, tónlistarsamlagið Post-dreifingu, Smeklkleysu og pólitíska mótmælafundi á vegum Andrýmis svo eitthvað sé nefnt.
    Í gær sögðum við frá því að bronsstytta eftir Ásmund sveinsson hafi horfið af stalli sínum við Laugarbrekku á fimmtudag. Styttan sem er af Guðríði Þorbjarnardóttur og syni hennar Snorra nefnist Fyrst hvíta móðirin í Ameríku. Tveimur dögum síðar kom styttan í leitirnar þegar nýtt útilistaverk var afhjúpað á bílastæði í Reykjavík, þar fannst Guðríður inni í brotajárnsgeimflaug í nýju listaverki eftir Bryndísi Björnsdóttur og Steinunni Gunnlaugsdóttur, sem þær nefndu Fyrstu hvítu móðurina í geimnum. En þær sögðu stytt Ásmundar vera rasíska og best vera geymda með geimrusls á sporðbaug um jörðu.
    Kristinn Jónasson er bæjarstjóri Snæfellsbæjar og meðlimur í Guðríðar og Laugarbrekkuhópnum sem setti styttuna upp árið 2000. Við hringjum í hann og spyrjum hann hvernig honum varð um þegar styttan kom í leitirnar um helgina.
    55 min
  • Má stela rasískum styttum? Sirkús deyr aldrei, Yung Lean
    Á fimmtudag bárust þær fréttir að bronsstyttu eftir einn helsta myndhöggvara íslands Ásmund sveinsson hafi verið stolið af stalli sínum á Snæfellsnesi. Styttan sem er af Guðríði Þorbjarnardóttur og syni hennar Snorra nefnist Fyrst hvíta móðirin í Ameríku. Tveimur dögum síðar kom styttan í leitirnar þegar nýtt útilistaverk var afhjúpað á bílastæði í Reykjavík, þar fannst Guðríður inni í brotajárnsgeimflaug. Við ræðum við listakonurnar Bryndísi Björnsdóttur og Steinunni Gunnlaugsdóttur um Fystu hvítu móðurina í geimnum.
    Skemmtistaðurinn Sirkús var opnaður á nýjan leik í Reykjavík þann 1.apríl á Lækjargötu 6, um 14 árum eftir að hann lokaði á Klapparstíg 30. Við ræðum við fyrrum fastagesti staðarins í von um að skilja betur goðsögnina um þennan stað sem er og var elskaður af fastagestum.
    Sænski rapparinn Yung Lean gaf á dögunum út blandspólu, mixteip sem ber titilinn Stardust. Nanna Kristjánsdóttir rýnir í þetta nýjasta verk Yung Lean.
    55 min
  • Rómafólk og bíódómar: Skjálfti og Uglur
    Gunnar Ragnarsson rýnir í tvær nýjar íslenskar kvikmyndir Skjálfti eftir Tinnu Hrafnsdóttur og Uglur eftir Teit Magnússon.
    Alþjóðlegur dagur rómafólks fer fram 8. apríl. Að því tilefni tileinkum við stóran hluta þáttarins menningu rómafólks. Við ræðum við Sofiu Zahovu, Kristján E. Guðmundsson, heyrum brot úr útvarpsþætti Jóns Halls Stefánssonar um heimsókn til rómahljómsveitar í Rúmeníu og sögur úr bókinni Sunnudagsmatur og fleiri sögur rómafólks.
    55 min
  • Afró-dans, breytingar á Twitter og Halldór snýr aftur
    Í gær tilkynnti samfélagsmiðillinn Twitter að hönnun stæði yfir á breytingarmöguleika - edit takka - sem gæfi notendum forritsins færi á að breyta tístum sínum eftir að þau eru komin í loftið. Við tökum púlsinn á íslenskum tístverjum og heyrum hvað þeim finnst um breytingatakkann.
    Í Kramhúsinu fara fram afró-danstímar nokkrum sinnum í viku undir lifandi trommuslætti. Hjónin Sandra og Mamady kenna þar Gíneskan afródans. Afródans kom fyrst til landsins á tíunda áratugnum og margir þeirra sem dansa vikulega í Kramhúsinu eru iðkendur til margra ára, jafnvel áratuga.
    Góðvinur þáttarins, rithöfundurinn og pistlahöfundurinn Halldór Armand Ásgeirsson snýr aftur í Lestina í apríl. Hann er með hugann við endurtekninguna og stríðið í Úkraínu. Hann veltir fyrir sér raunum rússnesks tennisspilara, stöðu frelsisins á vesturlöndum og því hvaða spurninga má spyrja í dag.
    54 min
  • Sýndarveruleikhús, fréttaljósmynd ársins og dauðahvöt
    Leikverkið Hliðstætt fólk eftir leikhópinn Huldufugl verður frumsýnt á Loftinu 7. apríl næstkomandi, og verður það í fyrsta sinn sem leikverk innan sýndarveruleika fer fram í Þjóðleikhúsinu.Við hittum þau Nönnu og Owen sem standa að baki sýningunni og ræddum möguleika þessarar tækni.
    Við kíkjum á bestu fréttaljósmyndir ársins 2021 með Vilhelm Gunnarssyni ljósmyndara á Vísi sem var um helgina verðlaunaður af félagi blaðaljósmyndara fyrir bestu mynd ársins.Við ræðum drónamyndir, íþróttir í vondu veðri og fótósjopp í fréttaljósmyndum
    Sölvi Halldórsson rifjar upp manninn sem stökk út úr brennandi húsi í miðbæ Reykjavíkur, því hann var ekki að fara að láta kveikja í sér í dag. Hann setur atvikið í samhengi við hugmyndir Freud um dauðahvötina.
    55 min
  • Sigurvegari Músíktilrauna 2022, Rosalia og stríðsræða á Grammy,
    Forseti Úkraínu, Vólódímír Selenskí, flutti gestum Grammy-verðlaunahátíðarinnar, innblásna ræðu um stríðið í Úkraínu, þögnina og tónlist, og minnti gestina á að ekki allir tónlistarmenn geti klæðst kjólfötum og spilað á tónleikum.Við veltum fyrir okkur stjórnmálum og verðlaunahátíðum.
    Á laugardag fór úrslitakvöld hinnar rótgrónu hljómsveitakeppni Músíktilrauna fram. Þetta var í fertugasta skipti sem keppnin fer fram og í fyrsta skipti sem það er ekki hljómsveit sem sigrar heldur einstaklingur, sólólistamaður. Kolbrún Óskarsdóttir er 18 ára Verslingur sem semur, pródúserar og syngur sín eigin lög undir nafninu Kusk. Kolbrún mætir í Lestina í dag.
    Við heyrum svo um þriðju plötu spænsku tónlistarkonunnar Rosalia, plötuna Motomami. Nanna Kristjánsdóttir rýnir í tónlistina.
    55 min
  • Uglur, Hyd og stóra Spotify-spilunarlistasvindlið
    Í fréttum undanfarna daga hefur verið fjallað um uppljóstranir sænska dagblaðsins Dagens Nyheter sem hafa varpað ljósi á tengsl fyrrum yfirmanns hjá Spotify og útgáfufufyrirtækisins Firefly Entertainment. Óþekktir (og uppskáldaðir) tónlistarmenn sem tengjast fyrirtækinu virðast hafa furðulega greiða leið inn á vinsæla og ábatasama spilunarlista á Spotify - með einfalda og endurtekningasama tónlist sína. Við hringjum í Linus Larsson, tækniblaðamann Dagens Nyheter, og fræðumst um málið.
    Páll er ungur ekkill sem hefur lokað sig frá samfélaginu. Allt breytist þó þegar ung kona fær hjá honum húsaskjól eftir að hafa flúið úr ofbeldisaðstæðum. Þannig hljómar upplegg nýrrar íslenskrar kvikmyndar Uglur sem verður frumsýnd í næstu viku. Leikstjórinn heitir Teitur Magnússon og vann myndina nánast upp á sitt einsdæmi.
    Tónlistar- og myndlistarkonan Hayden Dunham vakti athygli árið 2014 þegar hún kom fram sem sýndarstaðgengillinn QT í frægu lagi eftir tónlistarmennina A.G. Cook og Sophie en nú hefur þessi listamaður tekið sér nýjan ham, Hyd, og hefur hún tónleikaferðalag sitt um heiminn í Reykjavík á Húrra á laugardagskvöld. Þórður Ingi Jónsson hitti Hyd í Echo Park í Los Angeles og ræddi við hana um lífið og listina.
    55 min
  • Skrattar sóttir heim, Sviðshöfundar og Stockfish
    VIð förum og hittum hættulegustu rokkhljómsveit Reykjavíkur, Skratta. Hljómsveit sem hefur verið hampað ítrekað í Lestinni og er tilnefnd til íslensku tónlistarverðlaunanna fyrir besta rokklag ársins og bestu rokkplötuna. Það er nóg að gera hjá þeim um þessar mundir en þeir munu spila á Aldrei fór ég suður um páskana og gítarleikarinn og söngvarinn Karl Torsten Ställborn sýnir myndlist sína í Gallerí Núll komandi helgi.
    Gunnar Ragnarsson, kvikmyndagagnrýnandi Lestarinnar rýnir í þrjár myndir sem hann sá á kvikmyndahátíðinni Stockfish. Stockfish kvkimyndahátíðin fer fram um þessar mundir í Bíó Paradís og myndirnar sem Gunnar fjallar um heita Drive My Car, Bacurau og Aquarius. Anna Róshildur Benediktsdóttir Bøving og Magnús Thorlacius eru á sínu þriðja og síðasta ári í Listaháskólanum. Í námi sem gengur út á tilraunir á sviði, Sviðshöfundabraut. Við spjöllum við þau um það hvernig það gekk að gera sviðslist þegar ekki mátti koma saman. Einnig ræðum við útskriftaverkin þeirra, en sýningar á þeim fara fram um helgina.
    55 min
  • Silvurdrongur gerir bíó, andlegur löðrungur Sögu Garðars, Mrs. Maisel
    Saga Garðarsdóttir þekkir það eins margir grínistar að uppistönd ganga ekki alltaf jafn vel, hvort sem það endar í löðrung eða framíkalli, getur verið áhætta að stíga á svið. Saga er með uppistand um helgina og við fengum hana til að rifja upp sín verstu augnablik á sviði.
    Við rýnum líka um leikna períóduþætti um uppistandara. Salvör Bergmann segir frá sjónvarpsþáttununum The Marvelous Mrs. Maisel en fjórða þáttaröðin er komin í loftið.
    Og við ræðum við færeyska rithöfundinn, tónlistarmanninn og kvikmyndagerðarmanninn Trygva Danielsen (sem einnig gengur undir rappnafninu Silvur Drongur), Hann sýnir sína fyrstu kvikmynd í fullri lengd á Stockfish-kvikmyndahátíðinni í vikunni, 111 góður dagur. Þetta er tilraunakennd mynd um það að fullorðnast í Þórshöfn - mynd sem er aðeins fimmta leikna bíómyndin í fullri lengd í kvikmyndasögu Færeyja.
    54 min
  • Óskarsverðlaunalöðrungur, Viktor Weisshappel, mikilvægi andlitsfarða
    Óskarverðlaunahátíðin fór fram í Los Angeles í nótt. Dröfn Ösp Snorradóttir er búsett í borginni og sá um að lýsa verðlaununum á Stöð 2 og varð vitni að því þegar leikarinn Will Smith kýldi grínistann Chris Rock, sem hafði gert ósmekklegt grín að Jada Pinkett Smith eiginkonu hans.
    Nú á dögunum var tilkynnt um tilnefningar í FÍT keppninni. Þar er keppt um það besta í grafískri hönnun og myndlýsingum á Íslandi. Þar er meðal annars veitt verðlaun fyrir plötuumslög, en af fimm tilnefndum umslögum er þrjú hönnuð af sama manninum, Viktori Weisshappel. Við kíkjum í kaffi til Viktors og ræðum plötuumslög á tímum þegar stór hluti tónlistar kemur út hvorki út á plötum né í umslögum.
    Og Sverrir Norland flytur sitt fjórða og síðasta brot úr sögu athyglinnar. Að þessu sinni veltir hann fyrir sér fallegum andlitum og því hvernig andlitsfarðinn öðlaðist pólitískt mikilvægi í fyrstu sjónvörpuðu forsetakappræðunum í Bandaríkjunum árið 1960. Þar sem Richard Nixon gerði þau grundvallarmistök að fúlsa við farðanum.
    55 min