Lestin

Lestin

Download on the App Store

Lestin episodes

  • 2. Þáttur: Ástin á tímum Tinder + ást fullorðinna
    Ása Ninna Pétursdóttir, fjölmiðlakona, hefur gert ástina að sínu helsta viðfangsefni í sinni vinnu. Hún gerði tvær þáttaraðir af Fyrsta blikinu og eina af Sveitarómantík. Hvernig eigum við að leita að ástinni? Hverjir eru gallarnir við Tinder? Og hvað lærði hún um ástarleit á því að gera stefnumótaþætti í íslensku samfélagi.
    Eiríkur Örn Norðdahl, rithöfundur, er að velta fyrir sér sögu sem hann heyrði. Sagan er af því hvernig eldri kona brást við þegar hún heyrði hvers vegna hjón skildu. Þemað í pistli Eiríks er að þessu sinni ást fullorðinna.
    53 min
  • Píslarsagan, Trump og Pútín dansa bomsa-deisi
    Að venju eru margir að velta fyrir sér píslarsögu Jesú Krists nú á föstunni. Píslarsagan er rakin í guðspjöllum nýja testamentisins þar sem er sagt frá innreið Jesú í Jerúsalem, handtöku hans, dauðadómi, líkamlegum og andlegum pyntingum og krossfestingu. Saga sem flestir þekkja á yfirborðinu - en hefur þó verið frjór vettvangur fyrir trúarlegar, heimspekilegar og bókmenntalegar vangaveltur í um tvö þúsund ár. Sigurvin Lárus Jónsson, prestur og nýja-testamentsfræðingur, pælir með okkur í píslarsögunni.
    Við fáum svo pistil frá Einari Má Jónssyni í París en að þessu sinni veltir hann fyrir sér líkindum nútímans við millistríðsárin, og lýsir hressilegum dansi litla-Hitlers og litla-Stalíns.
    54 min
  • Stríðið í Íran, ljósu blettir internetsins
    Á laugardagsmorgun hófu Bandaríkjamenn og Ísraelar loftárásir í Íran, og myrtu meðal annars æðstaklerk landsins, Ayatollah Ali Khamenei. Íranir hafa svarað með árásum á Ísrael, herstöðvar Bandaríkjanna og vinaþjóðir þeirra á svæðinu. En hvað mun gerast, mun hin óvinsæla klerkastjórn falla? Munu bandarískir hermenn ráðast inn í landið? Hvað þýðir þetta fyrir jafnvægið í alþjóðapólitíkinni? Við förum yfir þetta með Guðmundi Hálfdánarsyni, prófessor í sagnfræði.
    Friða Þorkelsdóttir, bókmenntafræðingur og netblaðamaður Lestarinnar, veltir fyrir sér hnignun internetsins og ljósu punktunum sem enn má þar finna.
    52 min
  • Röskun, rýni í Röskun og Dimmalimm, "Wuthering Heights"
    Röskun í leikstjórn Braga Þórs HInrikssonar er sálfræðitryllir byggður á samnefndri skáldsögu. Lögfræðingurinn Hera flytur inn í nýja íbúð þar sem undarlegir hlutir fara að gerast. Við spjöllum við Braga um klisjur og úrvinnslu úr þeim.
    Kolbeinn Rastrick rýnir í Röskun og Dimmalimm eftir Mikael Torfason.
    Hvernig tekst Emerald Fennel til að gera sína aðlögun aö skáldsögu Emely Brontë? Þrjár konur vega og meta það sem tekst til og það sem misferst, en myndin hefur vakið sterk viðbrögð, þá sérstaklega hjá aðdáendum bókarinnar.
    54 min
  • Ástin á tímum Tinder #1
    Það hlýtur að hafa einhver áhrif á ástarleitina að við séum með 5 mismunandi öpp til að finna þann eina rétta, þá einu réttu. Hvernig er ástin á tímum Tinder, á tímum tæknikapítalisma, Wolt, ChatGPT og Claude? Fyrsti viðmælandinn er piparsveinn og ljóðskáld, Þorvaldur Sigurbjörn Helgason.
    Undir lok þáttar fáum við pistil frá Eirikí Erni Norðdahl, um óhreinindi og slaufun.
    53 min
  • Pólitískt ofbeldi í Frakklandi, Rembihnútur Einakrónu
    Frakkland er á suðupunkti vegna andláts Quentin Deranque sem lést í slagsmálum milli hægri- og vinstrisinnaðra aktívista. Við sökkvum okkur ofan í frönsk stjórnmál með Einari Má Jónssyni sem hefur búið þar í landi og fylgst með pólitíkinni undanfarin 60 ár.
    Við spjöllum svo við forsprakka hljómsveitarinnar Einakrónu, Björk Magnúsdóttur, en á dögunum kom út fyrsta plata sveitarinnar, Rembihnútar. Björk byrjaði að setja tónlist inn á Soundcloud fyrir nokkrum árum til að geta spilað hana auðveldar fyrir sig sjálfa. Þáverandi umsjónarmenn útvarpsþáttarins Ólátagarður rákust á hana á netvafri og byrjuðu að spila hana á Rás 2.
    57 min
  • Er Slappið slappt? Næturvaktin sett á svið, BAFTA-fréttir
    Getur Slapp verið appið sem bjargar okkur? Tveir æskuvinir hafa stofnað nýjan samfélagsmiðil sem er einungis fyrir íslendinga og þarf rafræn skilríki til að skrá sig inn á hann. Þannig ekki er hægt að koma þar fram undir huldu höfði. En hvernig er að nota þennan miðil? Hvað virkar og hvað virkar ekki? Við veltum fyrir okkur kostum og hindrunum með Reyni Ólafssyni, álitsgjafa Lestarinnar.
    Komin eru 20 ár síðan Næturvaktin, einn ástælasti íslenski sjónvarpsþátturinn, var sýndur í sjónvarpi. Nú sjá MR-ingar fyrir sér að setja hann upp í leikriti Herranætur í vor, en mörg í leikhópnum voru ekki fædd þegar þættirnir voru sýndir.
    Og við förum yfir fréttir af BAFTA-verðlaununum. Hverjir voru sigurvegarar kvöldsins og hvað var ritskoðað og hvað ekki.
    53 min
  • Wuthering Heights, Sérstæðan, fjörbaugsgarður
    Í þættinum í dag verður rýnt í Wuthering Heights, Fýkur yfir hæðir, nýja kvikmyndaaðlögun þessarar klassísku skáldsögu Emily Brontë. Það er Emerald Fennel sem skrifar handritið og leikstýrir og hefur myndin vakið mikið umtal, og sitt sýnist hverjum: kynþokkafull eða bara kjánaleg, um það er deilt. Það er hjartaknúsarinn Jacob Elordi sem fer með hlutverk Heathcliffs og Margot Robbie leikur Cathy. Kolbeinn Rastrick fellir dóm sinn í Lestinni í dag.
    Við fræðumst svo um Sérstæðuna, dansverk um framtíð án líkama. Rósa Ómarsdóttir danshöfundur hefur í rúman áratug reynt að færa manneskjuna úr miðja dansverka sinna, og núna já, er mannslíkaminn algjörlega fjarverandi - því þannig er auðvitað framtíðin sem blasir við okkur, heilanum verður bara hlaðið upp í skýið og við getum losnað við allan líkamlegan sársauka, þrár og langanir.
    Svo er það pistill frá rithöfundinum Eiríki Erni Norðdahl. Hann er að velta fyrir sér fjörbaugsgarði og nýjum útlendingalögum.
    52 min
  • Við þurfum að tala meira um Kína
    Þú hittir okkur á mjög kínverskum tíma í lífi okkar, kæri hlustandi. Kína er út um allt þessa dagana, Barnið þitt leikur sér með Labubu, vinsælasta teiknimynda allra tíma er hin kínverska Ne Zha 2, æ fleiri Íslendingar keyra rafbíla frá Kína, og hvað er málið með þessi dansandi vélmenni í nýárssýningu kínverska kommúnistaflokksins?
    Lestin í dag er tileinkuð Kína, við ræðum við Geir Sigurðsson, prófessor í kínverskum fræðum og þvermenningarlegri heimspeki við Háskóla Íslands.
    53 min
  • Góðu nýlenduherrarnir, orðaforði incela, forritarar óþarfir?
    Hvað eiga íslendingar mörg orð yfir vont veður og úrkomu? Og hvað eiga incelar mörg orð yfir konur sem ekki vilja sofa hjá þeim? Fríða Þorkelsdóttir, bókmenntafræðingur og netblaðamaður Lestarinnar, fer yfir orðaforðan sem verður til í myrkari kimum internetsins, þar sem bölsýni og kvenfyrirlitning ráða ríkjum.
    Eru danir of góðir til að við hugsum um þá sem nýlenduherra? Sólveig Ásta Sigurðardóttir, nýdoktor á Hugvísindasviði veltir fyrir sér af hverju það gæti verið að Danir hafi þá ímynd að þeir séu einfaldlega of 'næs' til að vera nokkurntíman kallaðir nýlenduherrar, þó þeir eigi grimmilega sögu á Jómfrúaeyjum.
    Undanfarna daga hefur löng samfélagsmiðlafærsla farið eins og eldur í sinu um netið. “Þetta er upphafið á einhverju stóru” nefnist færslan - Something big is happening. Í færslunni fjallar höfundurinn Matt Shumer um starf sitt sem forritari og hvernig það hefur gjörbreyst á undanförnum árum með tilkomu gervigreindar. Við veltum fyrir okkur hvort forritarar séu hættir að kóða, hvað er vibe-coding og verða til einhverjar forritarar í framtíðinni. Viðmælandi Lestarinnar er Jón Eðvald Vignisson, forritari og reynslubolti úr sprotabransanum.
    54 min

About Lestin

From the publisher's feed

Popp og pólitík. Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.

More shows like Lestin

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

468 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

139 Listeners

Þarf alltaf að vera grín? by Þarf alltaf að vera grín?

Þarf alltaf að vera grín?

214 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

21 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

91 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

22 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

18 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

67 Listeners

Teboðið by Birta Líf og Sunneva Einars

Teboðið

30 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

16 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

15 Listeners

LANGA - hlaðvarp by Snorri Björns

LANGA - hlaðvarp

3 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

25 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

13 Listeners