Mannlegi þátturinn

Mannlegi þátturinn

Download on the App Store

Mannlegi þátturinn episodes

  • 3. Meðvirkni t.d í uppeldi
    Valdimar Þór Svavarsson ráðgjafi var í Mannlega þættinum í dag með það sem við köllum Mannleg samskipti, en þau geta einmitt verið talsvert flókin. Hann hefur fjallað undanfarna fimmtudaga um áföll og afleiðingar þeirra, sem til dæmis hafa áhrif á samskipti. Svo talaði hann um meðvirkni, og í dag ræddi hann meðvirkni til dæmis í uppeldi og þau áhrif sem geta fylgt.
    Fyrst flutt í Mannlega þættinum 18. sept. '25
    14 min
  • 2. Áföll
    Valdimar Þór Svavarsson, ráðgjafi hjá Fyrsta skrefinu og umsjónarmaður Meðvirknipodcastsins, kom í Mannlega þáttinn í dag með það sem við köllum Mannleg samskipti, þar sem við skoðum með honum ýmislegt sem viðkemur mannlegum samskiptum og hvað getur haft áhrif á þau og gert þau flókin. Í dag talaði Valdimar um áföll, sem geta verið gríðarlega margvísleg og fjölbreytt, og áhrif þeirra á okkur, til dæmis í samskiptum okkar við annað fólk, ef við fáum ekki hjálp til að takast á við afleiðingar þeirra.
    Fyrst flutt í Mannlega þættinum 11. sept. '25
    14 min
  • 1. Kynning á Mannlegum samskiptum
    Valdimar Þór Svavarsson ráðgjafi mun vera með okkur í Mannlega þættinum á fimmtudögum í vetur með það sem við köllum Mannleg samskipti. Við kynntumst Valdimari í dag og hvar hans reynsla liggur og fórum með honum yfir það sem hann mun taka fyrir næstu fimmtudaga, til dæmis margar hliðar meðvirkni og í rauninni hvað meðvirkni er. Áföll og afleiðingar áfalla og margt fleira, sem einmitt getur haft áhrif á samskipti okkar við annað fólk, innan fjölskyldna, í ástarsamböndum, á vinnustaðnum og í rauninni út um allt. Mynstur sem við þróum, af ýmsum ástæðum, í æsku fylgja okkur í gegnum lífið og litar öll okkar samskipti við annað fólk.
    Fyrst flutt í Mannlega þættinum 4. sept. '25
    13 min
  • Markaðsstofa höfuðborgarsvæðisins, hvað er sagnfræði og örmögnun og öndun í mannlegu samskiptum
    Í haust unnu Kópavogsbær og Markaðsstofa höfuðborgarsvæðisins greiningu á áfangastaðnum Kópavogi með það að markmiði að vinna hugmyndir um hvernig hægt sé að efla áfangastaðinn. Verkefnið mun nýtast fyrir framtíðarsýn Kópavogsbæjar í tengslum við ferðaþjónustu og einnig í tenglsum við þróun og markaðassetningu á höfuðborgarsvæðinu. Og það er ekki bara Kópavogur sem Markaðsstofa Höfuðborgarsvæðisins er að skoða heldur hefur hún einnig unnið með Hafnarfjarðarbæ og Seltjarnarnesi. Inga Hlín Pálsdóttir, framkvæmdastjóri markaðsstofu Höfuðborgarsvæðisins kom í þáttinn í dag.
    Hvað er sagnfræði? Þessi spurning er heiti málþings sem Sagnfræðingafélag Íslands og Sagnfræðistofnun stendur fyrir á laugardaginn. Þar munu fimm fyrirlesarar leitast við að svara þessari spurningu sem Sagnfræðingafélagið bar upp fyrir um 20 árum í fyrirlestraröð þar sem sagnfræðingar, listafólk, fjölmiðlafólk og stjórnmálafólk spreyttu sig á spurningunni. Ragnhildur Anna Kjartansdóttir, formaður Sagnfræðingafélags Íslands og Súsanna Margrét Gestsdóttir sagnfræðingur komu til okkar í dag og sögðu frá málþinginu og spreyttu sig á að svara spurningunni, hvað er sagnfræði?
    Svo kom Valdimar Þór Svavarsson til okkar í mannlegu samskiptin eins og alla fimmtudaga í vetur. Það í dag talaði hann um örmögnun, meðvirkni og öndun.
    Tónlist í þættinum í dag
    Gleðin með þér / Þuríður Sigurðardóttir (lagahöfundur ókunnur, texti Helgi Pétursson)
    Ég gef þér allt mitt líf / Björgvin Halldórsson og Ragnhildur Gísladóttir (Jóhann Helgason, texti Jón Sigurðsson)
    She’s Done it Again / Jóhann Helgason (Jóhann Helgason)
    Rúllukragapeysan mín / Bítlavinafélagið (Jón Ólafsson)
    UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
    53 min
  • Hvenær ertu neyðartilfelli? Leiklistarverkefnið Léttir og vísindaspjallið
    Árið 2024 tóku 48 einstaklingar líf sitt á Íslandi og voru 35 þeirra karlar. Þessi háa tala er ástæða þess að augum er beint að körlum í meistaraprófsrannsókn sem Kristjana Atladóttir geðheilbrigðisfræðingur gerði í geðheilbrigðisfræði við Háskólann á Akureyri og kynnti nýlega niðurstöður úr. Rannsóknin er sú fyrsta hér á landi sem skoðar sérstaklega reynslu ungra karla sem hafa reynt að taka líf sitt en mun færri karlar en konur leita til heilbrigðiskerfisins eftir sjálfsvígstilraun. Sameiginlegur þráður karlana sem rætt var við, var sú upplifun að hafa ekki stjórn á eigin lífi, vera lítils virði og hafa viðvarandi sjálfsásakanir. Þessar upplifanir samræmast kenningum um áhrif áfalla á sjálfsmynd einstaklinga. Kristjana Atladóttir sagði okkur betur frá rannsókninni í þættinum í dag.
    Verkefnið Léttir er leiklistarsmiðjur og námskeið fyrir börn foreldra sem sótt hafa um alþjóðlega vernd hér á landi. Markmiðið er að efla sjálfstraust, félagsfærni og leikgleði barnanna og notast er við áfallamiðaða nálgun því börnin hafa oft upplifað áföll eins og stríð, aðskilnað frá fjölskyldu og fleira. Þetta er samstarfsverkefni Barnaheilla og Borgarleikhússins og Tótla I. Sæmundsdóttir, framkvæmdastjóri Barnaheilla og Eva Halldóra Guðmundsdóttir, yfirkennari í Leiklistarskóla Borgarleikhússins komu til okkar í dag.
    Svo kom Edda Olgudóttir til okkar í vísindaspjallið. Í þetta sinn sagði hún frá rannsókn sem sýnir að það eru ekki tengsl milli covid bólusetningar og taugaþroskaskerðingar, né einhverfu.
    Tónlist í þættinum í dag
    Eitt af blómunum / Páll Óskar (Benni Hemm Hemm og Páll Óskar)
    Heimahöfn / Fjallabræður (Hákon Guðni Hjartarson Halldór Gunnar Pálsson)
    Bolludagur! Sprengidagur! Öskudagur! / Ingibjörg Þorbergs (Ingibjörg Þorbergs)
    Leyndarmál / Bubbi (Bubbi Morthens)
    (Hvert er hægt að leita? Ef þú eða einhver sem þú þekkir glímir við sjálfsvígshugsanir eða sjálfskaðandi hegðun má alltaf hafa samband við Píeta-samtökin, pieta.is og í síma 552-2218. Þá er hjálparsími Rauða krossins opinn allan sólarhringinn í síma 1717 og netspjall á heimasíðunni 1717.is)
    UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
    53 min
  • Svifryksmengun, Mál og vald og veðurspjallið með Einari
    Svifrykið sem mælst hefur á höfuðborgarsvæðinu þessa dagana í froststillunum er mjög skaðlegt fyrir heilsu fólks. Það eykur tíðnina á hjartaáföllum og heilablóðföllum er krabbameinsvaldandi og í svifrykinu eru baneitraðar hárfínar agnir sem eru að berast inn í líkamann og valda heilsutjóni. Þetta er haft eftir Hjalta Má Björnssyni formanni félags lækna gegn umhverfisvá í viðtali á Vísi í gær. Hjalti kom í þáttinn í dag.
    Hvað er málfærni? Hvernig er að vera í viðkvæmri stöðu þegar kemur að málfærni? Og hvernig notar fólk málbeitingu og breytileika tungumálsins í sína þágu? Iris Edda Nowenstein, lektor í íslenskri málfræði og máltækni og talmeinafræðingur við Landspítalann kom til okkar í dag og sagði frá erindi sem hún kallar Mál og vald. Við fengum hana til að segja okkur betur frá því í þættinum.
    Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur kom svo í dag í veðurspjallið. Í framhaldi af viðtali okkar í gær við Andra Snæ Magnason, byrjaði Einar á því að setja stórar og illskiljanlegar tölur, sem Andri nefndi, um jöklaafkomu í samhengi. Svo er það hlýjasti janúar í sögu mælinga í Nuuk á Grænlandi, en á sama tíma kaldasti janúar í Danmörku. Það setti hann svo í samhengi við tíðina hér heima og snjóleysið sunnanlands í vetur. Í lokum sagði Einar frá breytingum framundan í veðrinu, snjókomuspá og sitthvað fleira.
    Tónlist í þættinum í dag:
    Einu sinni var / Vilhjálmur Vilhjálmsson (Svavar Benediktsson, texti Kristján frá Djúpalæk)
    Ekki bíl / Hrekkjusvín (Valgeir Guðjónsson, texti Pétur Gunnarsson)
    Vor við flóann / Ragnar Bjarnason (Leon T. René, texti Jón Sigurðsson)
    Gamla gatan / Kvartett Reynis Sigurðssonar (Oddgeir Kristjánsson)
    UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
    50 min
  • Andri Snær og nýja myndin og Dr. Gunni lesandi vikunnar
    Andri Snær Magnason er nýkominn til landsins eftir að hafa fylgt eftir heimildarmyndinni Time and Water, sem gerð er upp úr bók hans Um tímann og vatnið. Myndin hefur verið sýnd til dæmis á Sundance kvikmyndahátíðinni og vakti mikla athygli. Við fengum Andra til að segja okkur frá myndinni og hvernig hún kom til og hver væri munurinn á henni og bókinni. Svo tókum við aðeins með honum stöðuna í loftslagsmálum, því það er auðvitað það sem Andri skrifaði um í bókinni, sem kom út árið 2019, þar sem hann notaði sögur af forfeðrum sínum og ættingjum til þess að fjalla um loftslagsvísindin og þær breytingar sem eru að verða sem hafa áhrif á allt líf á jörðinni. Við ræddum hvernig umræðan hefur breyst undanfarnið, til dæmis þegar Bandaríkjastjórn hefur afturkallað ákvaraðnir um hættu vegna gróðurhúsalofttegunda.
    Lesandi vikunnar í Mannlega þættinum í þetta sinn var svo Gunnar Lárus Hjálmarsson, betur þekktur sem Dr. Gunni. Við fengum hann til að segja okkur frá því hvaða bækur hann hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hann í gegnum tíðina. Gunnar talaði um eftirfarandi bækur og höfunda:
    Einn, tveir þrír, fjór... Bítlarnir í tímanna rás e. Craig Brown (Þýð. Helgi Ingólfsson)
    Tune in e. Mark Lewisohn
    Ævisögur Charles Mingus, Thelonious Monk og Chet Baker
    Bækur Braga Ólafssonar, Braga Páls Sigurðsson og Ólaf Gunnarsson
    Kokkáll e. Dóra DNA
    Bjarmalönd e. Val Gunnarsson
    Reyndu aftur, ævisaga Magnúsar Eiríkssonar e. Tómas Hermannsson
    Boy on Fire um Nick Cave e. Matt Mordue
    The Big Midwwk, Life inside the Fall e. Steve Hanley
    Tónlist í þættinum í dag:
    Frost / Pálmi Gunnarsson og Ragnheiður Gröndal (Pálmi Gunnarsson, Ragnheiður Gröndal, Stefán Örn Gunnlaugsson)
    Frostrósir / Haukur Morthens (Freymóður Jóhannsson)
    UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
    50 min
  • Ólafur Stefánsson föstudagsgestur og ítalskt matarspjall
    Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var Ólafur Stefánsson handknattleikskappi. Hann er auðvitað búinn að vera talsvert inni í stofum landsmanna í janúar í gegnum sjónvarpstækin sem hluti af handboltastofunni að fjalla um íslenska handboltalandsliðinu á EM karla. Við nutum þess auðvitað að fylgjast með löngum og farsælum ferli Ólafs með landsliðinu og í atvinnumennskunni þar sem hann vann nánast öll verðlaun sem hægt var að vinna og var ítrekað ofarlega á listum yfir bestu handknattleiksmenn í heiminum, ef ekki efstur. Eftir að ferlinum lauk hefur hann brallað ýmislegt, þjálfað og unnið í menntamálum og nú hefur hann stofnað fyrirtæki sem kallast Afreksmanneskjan, en tilgangur þess er að aðstoða ungmenni til að ná árangri í námi og íþróttum. Það er óhætt að segja að það brenni á honum enda fór hann á mikið flug að segja frá.
    Svo var það auðvitað matarspjallið með Sigurlaugu Margréti. Í dag, þar sem Guðrún var nýkomin til landsins frá Ítalíu, forvitnuðumst við um hvað stóð upp úr þegar kom að matarupplifun Ítalíuferðarinnar.
    Tónlist í þættinum í dag:
    Upp á rönd / Hjálmar og GDRN (Guðrún Ýr Eyfjörð Jóhannesdóttir og Sigurður Halldór Guðmundsson)
    Heyr mína bæn / Ellý Vilhjálms (Panzeri & Salerno, texti Ólafur Gaukur Þórhallsson)
    Passíusálmur nr. 51 / Ellen Kristjánsdóttir (Jón Ólafsson, ljóð Steinn Steinarr)
    UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
    57 min
  • Fuglainflúensa, Ísólfur ögrar sér og kulnun í mannlegum samskiptum
    Nýlega voru staðfest smit af skæðri fuglainflúensu í villtum fuglum hér á landi. Dauðir fuglar sem smit greindust í fundust m.a. við Tjörnina í Reykjavík og við tjörn við Ögurhvarf í Kópavogi, en smit af þessari gerð höfðu þá ekki greinst hér á landi frá sumrinu 2023. Andrea Björk Hannesdóttir dýralæknir hjá Dýrheimum kom í þáttinn og fór til dæmis yfir það hvað fólk á að gera finni það dauða fugla og hvað berast að varast, t.d. varðandi gæludýr sem gætu komist í snertingu við smitaða fugla.
    Við höfum töluvert rætt þriðja æviskeiðið í þessari viku og í dag fengum við góðan gest sem hefur einsett sér að njóta þessa tímabils eins og hægt er. Hann heitir Ísólfur Gylfi Pálmason og á að baki farsæla starfsævi sem kennari, stjórnmálamaður og fleira - hann neitar að leggjast í kör á efri árum og leggur sig fram við að ögra sér, fara upp úr hjólförunum og prófa nýja hluti. Ísólfur sagði okkur frá sundferðum, hjóla- og tjaldferðum og tónlist sem hann lumaði á og ákvað að fá konuna sína til að syngja og reynda tónlistarmenn til að spila á upptökum sem hann hefur gefið út.
    Svo voru það mannlegu samskiptin með Valdimari Þór Svavarssyni. Undanfarna fimmtudaga hefur hann einbeitt sér að mannlegum samskiptum á vinnustöðum og í dag talaði hann um kulnun og hvernig hún getur tengst mannlegum samskiptum.
    Tónlist í þættinum í dag:
    Líttu sérhvert sólarlag / Sigríður Thorlacius og Valdimar Guðmundsson (Bragi Valdimar Skúlason)
    Lítill fugl / Ellý Vilhjálms (Sigfús Halldórsson, texti Örn Arnarson (duln.f. Magnús Stefánsson)
    Morgunljóð til Margrétar / Steinunn Ósk Kolbeinsdóttir (Ísólfur Gylfi Pálmason, texti Pálmi Eyjólfsson)
    Þrjú tonn af sandi / Haukar (Winfield & Blackwell, texti Þorsteinn Eggertsson)
    UMSJÓN: HULDA G. GEIRSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
    50 min
  • Samfélagsáhrif skapandi greina, að vinna á fordómum og Epstein-Barr veiran
    Er hægt að mæla samfélagsáhrif skapandi greina? Á viðburði sem haldinn var í síðustu viku af Rannsóknarsetri skapandi greina var leitast við að svara þessari spurningu. Og hvort hægt sé að rýna í hvernig skapandi starfsemi mótar samfélagslegar breytingar og hvort þær séu mælanlegar og hvert er gildi þeirra í samtímanum? Þorbjörg Daphne Hall, prófessor í tónlistarfræðum við LHÍ, og Erla Rún Guðmundsdóttir, forstöðukona Rannsóknaseturs skapandi greina komu í þáttinn og sögðu okkur frá.
    Hvernig vinnum við á fordómum? Það var yfirskriftin á hádegisfundi sem var í gær á vegum Geðhjálpar þar sem fjallað var um fordóma gagnvart andlegum áskorunum og niðurstöður úr nýrri rannsókn voru kynntar. Sigrún Ólafsdóttir, prófessor í félagsfræði við Háskóla Íslands, var með erindi á hádegisfundinum kom í þáttinn og sagði okkur frá því sem þar kom fram.
    Svo var það vísindaspjallið með Eddu Olgudóttur. Í dag sagði hún okkur frá hlutverki Epstein-Barr veirunnar í myndun MS sjúkdómsins. Það var vissulega flókið en hún útskýrði það betur fyrir okkur í þættinum.
    Tónlist í þættinum í dag:
    Vorkvöld í Reykjavík / Ragnar Bjarnason (Evert Taube, texti Sigurður Þórarinsson)
    Bíólagið / Stuðmenn (Valgeir Guðjónsson og Egill Ólafsson)
    Brotin loforð / Bubbi Morthens (Bubbi Morthens)
    Heim í Búðardal / Lónlí blú bojs (Gunnar Þórðarson, texti Þorsteinn Eggertsson)
    UMSJÓN: HULDA G. GEIRSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
    54 min

About Mannlegi þátturinn

From the publisher's feed

Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1. Netfang: [email protected]. Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.

More shows like Mannlegi þátturinn

Segðu mér by RÚV

Segðu mér

19 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

471 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

131 Listeners

Fókus by DV

Fókus

2 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

90 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

22 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

18 Listeners

Menn eins og við / Einmitt hlaðvarp by Einar Bárðar og Baldur Rafn Gylfason

Menn eins og við / Einmitt hlaðvarp

4 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

21 Listeners

Spjallið by Spjallið Podcast

Spjallið

14 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

36 Listeners

Undirmannaðar by Undirmannaðar

Undirmannaðar

5 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

8 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

25 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

11 Listeners