Mannlegi þátturinn

Mannlegi þátturinn

Download on the App Store

Mannlegi þátturinn episodes

  • Ingi köngulóamaður og Harpa um breytingaskeiðið á Heilsuvaktinni
    Ingi Agnarsson kallar sig stundum köngulóamann, en hann er prófessor hjá Líf- og umhverfisvísindadeild við Verkfræði- og náttúruvísindasvið HÍ og doktor í þróunarfræði. Ingi sérhæfir sig í köngulóm og hann hefur ferðast á mjög áhugaverða staði í heiminum og uppgötvað fjölda nýrra köngulóategunda, til dæmis á Madagascar. Og ef þú uppgötvar nýja tegund þá máttu gefa henni nafn. Hvernig endar maður fæddur á eyju í Norður-Atlantshafi sem köngulóafræðingur? Við fengum Inga til að segja okkur frá því hvernig þetta kom til og hann svaraði óteljandi spurningum sem vöknuðu hjá okkur þegar við komumst yfir hrollinn að hugsa um stóran hóp af köngulóm.
    Svo var það Heilsuvaktin með Helgu Arnardóttur. Mikið er rætt um hvers kyns áhrif af völdum breytingaskeiðsins en minna er rætt um sálræna kvilla sem gera oft vart við sig á þessum tíma í líf kvenna. Varnir þeirra falla niður og gömul sár eða áföll vilja oft leita upp á yfirborðið. Harpa Katrín Gísladóttir hefur starfað sem klínískur sálfræðingur í áraraðir, hún segir t.d. kvíða, sjálfsefa, minna sjálfsálit, depurð og jafnvel þunglyndi oft vera fylgifiska breytingaskeiðsins. Hún býður nú upp á námskeið fyrir litla hópa til að gefa konum verkfæri til að takast á við þessa þætti. Helga ræddi við Hörpu á heilsuvaktinni í dag.
    Tónlist í þættinum í dag:
    Kónguló / Hafdís Huld (Hafdís Huld Þrastardóttir)
    Pöddulagið / Todmobile (Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson, texti Andrea Gylfadóttir)
    Hámenningin / Halli Reynis (Haraldur Reynisson)
    UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
    56 min
  • Hilma Hólm um blóðfitu, Hreyfispjöld og Margrét lesandi vikunnar
    Við fjölluðum um blóðfitu, eða kólesteról, í þættinum í dag og til okkar kom hjartalæknirinn Hilma Hólm. Há blóðfita er áhættuþáttur hjarta- og æðasjúkdóma og þeir eru algengasta dánarorsök Íslendinga. Þessir sjúkdómar gera miklar kröfur til heilbrigðiskerfisins enda er meðferð oft flókin og kostnaðarsöm. Í þessu samhengi er oft talað um „vonda kólesterólið“ (LDL) og „góða kólesterólið“ (HDL). Að hluta til er há blóðfita arfgeng, því geta tveir einstaklingar sem lifa á nákvæmlega sama mataræði og hreyfa sig jafnmikið haft gjörólíkar blóðfitur. Mikið hefur verið fjallað um mataræði og blóðfitur á undanförnum árum og hvað er rétt og hvað er rangt. Sumir segja að blóðfitulækkandi lyf séu ofnotuð á meðan aðrir segja að þetta séu lífsnauðsynleg lyf. Hilma fór með okkur yfir þetta í dag.
    Út eru komin hreyfispjöld til heilsueflingar. Þetta eru 50 einfaldar og fjölbreyttar styrktar- og liðleikaæfingar sem auka kraft, þol og jafnvægi. Hverri æfingu fylgja myndir og skýrar leiðbeiningar. Æfingarnar eru framkvæmdar án áhalda og þær er hægt að gera hvar sem er og henta fólki á öllum aldri. Höfundarnir eru Anna Björg Björnsdóttir og Gerður Jónsdóttir, íþrótta- og heilsufræðingar og afrekskonur í íþróttum, þær komu í þáttinn í dag.
    Og lesandi vikunnar í Mannlega þættinum í þetta sinn var Margrét Eggertsdóttir rannsóknarprófessor á menningarsviði hjá Árnastofnun. Hún sagði okkur frá því hvaða bækur hún hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hana í gegnum tíðina. Margrét talaði um eftirfarandi bækur og höfunda:
    Fóstur e. Claire Keegan, þýðandi: Helga Soffía Einarsdóttir.
    Með minnið á heilanum e. Þórhildi Ólafsdóttur
    Jeg vil: en forfatters portræt af Sigrid Undset (1882–1949) e. Idu Jessen
    Hamingjudagar heima í Noregi e. Sigrid Undset, þýðing úr ensku á íslensku Brynjólfur Sveinsson
    Allt sem við hefðum getað orðið e. Sif Sigmarsdóttur
    Tónlist í þættinum í dag:
    Meira, meira / Ríó tríó (Gunnar Þórðarson, texti Jónas Friðrik Guðnason)
    Crossroads / Helgi Jónsson & Emilíana Torrini (Emilíana Torrini, Helgi Jónsson og Philipp Steinke)
    High Sierra / Linda Ronstadt (L.Harley Allen)
    UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
    55 min
  • Þórunn Sigurðardóttir föstudagsgestur og þorramatarspjall
    Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var Þórunn Sigurðardóttir leikkona, leikstjóri. Hún var lengi stjórnandi Listahátíðar og hefur stjórnað stórum menningarverkefnum eins og þegar Reykjavík var valin ein af menningarborgum í Evrópu og nú síðast var hún formaður undirbúningsstjórnar þjóðaróperu. Við fórum með henni aftur í tímann skoðum hvar hennar rætur liggja og svo sagði hún okkur frá ferlinum, hvernig það æxlaðist að hún fór að leikstýra og svo stjórna þessum stóru menningarverkefnum.
    Matarspjallið með Sigurlaugu Margréti var auðvitað á sínum stað í dag. Það er bóndadagur sem markar upphaf þorrans, því komumst við ekki hjá því að ræða um þorramatinn, súrmetið, pungana, sviðakjammana, rófustöppuna og allt það.
    Tónlist í þættinum í dag:
    Það er svo ótalmargt / Ellý Vilhjálms (Smith & Lindsay, texti Jóhanna G. Erlingsson)
    Miriam Makeba / Pata Pata (J. Rogovoy, Jerry Ragovoy & Miriam Makeba)
    Unu Torfadóttir / Fyrrverandi (Una Torfadóttir)
    MANNLEGI ÞÁTTURINN FÖSTUDAGUR 23.JANÚAR 2026
    UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
    54 min
  • Dórótea og Tinkallinn, fuglatalning og samskiptin í vinnunni
    Sagan um Galdrakarlinn í OZ byggir á samnefndri bók Frank Baums sem öðlaðist nýtt líf með frægri kvikmynd frá 1939 þar sem Judy Garland fór með hlutverk Dóróteu. Síðan þá hafa óteljandi útgáfur litið dagsins ljós, bæði á sviði og á hvíta tjaldinu og ekkert lát virðist vera á vinsældum söngleiksins. Þar spillir ekki fyrir tónlistin með ógleymanlegum lögum á borð við Somewhere Over the Rainbow. Sýningin Galdrakarlinn í Oz verður frumsýnd í Borgarleikhúsinu á laugardaginn. Hlutverk Dóróteu í þetta sinn er í höndum Þóreyjar Birgisdóttur. Þórey kom í þáttinn ásamt Björgvini Franz Gíslasyni, en hann leikur Tinkarlinn.
    Um helgina fer fram árleg talning á garðfuglum á vegum Fuglaverndar. Tilgangurinn er að safna langtímaupplýsingum til þess að m.a. að fylgjast með hugsanlegum breytingum í fjölda og tegundasamsetningu. Vala Friðriksdóttir líffræðingur og félagi í Fuglavernd kom til okkar í dag og sagði okkur frá því hvernig þetta fer fram og gaf góð ráð fyrir þau sem vilja taka þátt í talningunni og fyrir þau sem vilja fóðra fugla í sínum görðum.
    Svo voru það mannlegu samskiptin með Valdimari Þór Svavarssyni ráðgjafa, í þetta sinn talaði hann um samskipti á vinnustað, en þau geta svo sannarlega verið flókin og ýmislegt sem hafa má í huga.
    Tónlist í þættinum:
    Söknuður / Roof Tops (Oldham & Penn, texti Stefán G. Stefánsson)
    Somewhere Over the Rainbow / Judy Garland (Harold Arlen, texti E.Y. Harburg)
    Þín innsta þrá / B.G. og Ingibjörg (Granata & Verard, texti Jóhanna G. Erlingsson)
    You’ve Lost That Loving Feeling / Righteous Brothers (Barry Mann, Cynthia Weil & Phil Spector)
    UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
    49 min
  • Kristín Sigurðardóttir um áhrif áfengis og Sóley og Auðbjörg fyndnari en nokkru sinni
    Það standa yfir læknadagar í Hörpu og ráðstefnan opnaði á mánudeginum með tveimur málþingum um áfengi og lýðheilsu og það hefur vakið athygli í fjölmiðlum og áfram verður fjallað um þetta mikilvæga málefni á opnu málþingi fyrir almenning í kvöld kl.20.00 - Áfengi í alfaraleið. Síðastliðinn mánudag flutti Kristín Sigurðardóttir læknir erindi sem hét Flótti í flöskuna – áhrif álags og áfalla. Kristín starfaði lengi sem bráðalæknir og varð vör við breytingu á afleiðingum áfengisneyslu eftir að hún kom heim úr sérnámi og lenging á opnunartíma öldurhúsa hafði átt sér stað. Kristín fór með okkur yfir þessi mál í þættinum í dag.
    Sóley Kristjáns og Auðbjörg Ólafs eru, eins og þær orða það sjálfar, tvær miðaldra á breytingarskeiðinu sem eru ferskari og fyndnari en nokkru sinni fyrr, enda konur með reynslu. Þær hafa verið saman með uppistandssýningu sem kallast Af hverju fórum við ekki bara á gönguskíði? sem þær ferðuðust með um landið. Þær eru nú með aðra sýningu í Tjarnarbíói sem þær kalla Konur þurfa bara... í henni fjalla þær um lærdóminn og það skemmtilega sem svona brölti miðaldra kvenna fylgir. Þær sögðu okkur aðeins frá þessu svokallaða brölti í dag.
    Tónlist í þættinum:
    Norðurljós / Eyjólfur Kristjánsson (Gunnar Þórðarsson, texti Ólafur Haukur Símonarson)
    GMF / John Grant (John Grant)
    Ferry Cross the Mercy / Gerry and the Pacemakers
    UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
    53 min
  • Perlað fyrir Kraft, Ástvaldur Zen ábóti og glæpahálka í veðurspjallinu
    Kraftur, stuðningsfélag fyrir ungt fólk með krabbamein stendur fyrir vitundarvakningu sem hefst á sunnudaginn í Hörpu þar sem perluarmböndin með áletrunni „lífið er núna“ eru perluð og seld. Sólveig Ása Tryggvadóttir, framkvæmdastjóri Krafts, kom í þáttinn en hún þekkir það af eigin raun að berjast við krabbamein. Með henni kom Eva Sigrún Guðjónsdóttir, markaðs- og kynningarstjóri Krafts, til að segja okkur betur frá málefninu.
    Laugardaginn 31. janúar tekur Ástvaldur Zenki Traustason formlega við stöðu ábóta Zen á Íslandi. Ástvaldur Zenki hefur verið nemandi Jakusho Kwong-roshi í hart nær 30 ár og tekur nú við stöðu hans sem ábóti og aðal kennari Zen á Íslandi. Jakusho-roshi er upphafsmaður Zen á Íslandi og kom árlega til Íslands í um 25 ár.
    Svo var það veðurspjallið með Einari Sveinbjörnssyni. Í dag talaði Einar um veðrið og tíðina hér heima, flughálkuna og af hverju hún myndast þó það sé hiti í lofti. Svo var það veðurspáin framundan, kuldahvirfill Stóri Boli vestan Grænlands sem kemur æðandi yfir N-Ameríku, en virðist síðan ætla hverfa fljótt aftur. Það er kalt í Austur-Evrópu og stríð í Úkraínu. Einar rifjaði upp þrjá óvenjulega kalda vetur 1940-1942 sem höfðu áhrif á gang síðari heimstyrjaldarinnar og Vetrarstíðið í Finnlandi. Þessir þrír vetur voru allir sérlega mildir hér á landi.
    Tónlist í þættinum:
    Austurstræti / Laddi (Þórhallur Sigurðsson)
    Egils appelsín / Spilverk þjóðanna (Egill Ólafsson, Valgeir Guðjónsson, Sigurður Bjóla Garðarsson, Sveinbjörn Egilsson og Kristján Jónsson)
    Röndótta mær / Jakob Frímann Magnússon (Jakob Frímann Magnússon)
    Don’t Try to Fool Me / Jóhann G. Jóhannsson (Jóhann G. Jóhannsson)
    UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
    50 min
  • Sóknaráætlun Vestfjarða, Skjaldbakan og Elín Björk lesandi vikunnar
    Við fræddumst um Sóknaráætlun Vestfjarða í þættinum í dag, en Uppbyggingarsjóður Vestfjarða er samkeppnissjóður sem hefur það hlutverk að styrkja verkefni sem falla að Sóknaráætlun Vestfjarða. Sóknaráætlanir hafa skilað töluverðu til landshlutanna og hafa fjölmörg verkefni komið til framkvæmda fyrir þeirra tilstuðlan. Fjöldi verkefna hefur fært sér Uppbyggingarsjóðinn í nyt sem eflt hafa menningar- og atvinnulíf á svæðinu. Við töluðum í dag við Skúla Gautason menningarfulltrúa Vestfjarða.
    Karna Sigurðardóttir kvikmyndagerðarkonu er ein þeirra sem hlaut styrk úr Uppbyggingasjóðnum fyrir verkefnið Skjaldbökuna, en það er námskeið í heimildamyndagerð fyrir krakka á miðstigi, 10-12 ára, þar sem þau hafa gert stuttar heimildarmyndir um fjölbreytt umfjöllunarefni í þeirra nágrenni. Karna sagði okkur betur frá í þættinum.
    Lesandi vikunnar í Mannlega þættinu í þetta sinn var Elín Björk Jóhannsdóttir, bókmenntafræðingur en hún starfar sem ritstjóri og verkefnastjóri hjá Háskólaútgáfunni. Hún sagði okkur frá því hvaða bækur hún hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hana í gegnum tíðina. Elín Björk talaði um eftirfarandi bækur og höfunda:
    Wifedom: Mrs Orwell’s Invisible Life e. Anna Funder
    Huldukonan eftir Fríðu Ísberg
    Emily Wilde-serían e. Heather Fawcett
    Jonathan Strange and Mr. Norrell e. Susanna Clarke
    Guðrún Eva Mínervudóttir, Steinunn Sigurðardóttir, Kristín Marja Baldursdóttir,
    og Sarah Waters og höfundarverk hennar
    Tónlist í þættinum:
    Upp í sveit / Hjálmar (Magnús Eiríksson)
    Blue Valley Songbird / Dolly Parton (Dolly Parton)
    Ísland / Spilverk þjóðanna (Valgeir Guðjónsson og Sigurður Bjóla Garðarsson)
    UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
    50 min
  • Einar Örn og föstudagshandboltaspjall í tilefni EM og hrogn í matarspjalli
    Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var Einar Örn Jónsson íþróttafréttamaður og fyrrverandi landsliðmaður í handbolta. Hann er staddur í Kristianstad í Svíþjóð, hvaðan hann mun lýsa í beinni útsendingu fyrsta leik íslenska karlalandsliðsins í handbolta á móti Ítalíu á Evrópumótinu sem fram fer í Svíþjóð, Noregi og Danmörku. Þjóðin fylgist alltaf spennt með þegar íslenska landsliðið keppir á stórmótum og væntingarnar eru yfirleitt meiri í handbolta en í flestum öðrum liðsíþróttum, enda hefur landsliðið náð virkilega góðum árangri aftur og aftur. En því fylgir auðvitað pressa og það var gaman að ræða við Einar Örn um þá reynslu sem hann hefur persónulega af því að taka þátt í svona mótum sem leikmaður og svo að lýsa leikjunum ofan úr stúku. Og svo fengum við hann auðvitað til að spá aðeins í gengi strákanna okkar á þessu móti og hann var bara nokkuð jákvæður.
    Svo var það matarspjallið með Sigurlaugu Margréti. Í þetta sinn voru það hrogn, nætursaltaður fiskur og hvernig á að undirbúa veislu samkvæmt næstum fimmtíu ára gamalli matreiðslubók.
    Tónlist í þættinum:
    Flugvélar / Nýdönsk (Jón Ólafsson, texti Björn Jörundur Friðbjörnsson)
    Gerum okkar besta / Valgeir Guðjónsson og íslenska karlalandsliðið í handbolta 1988 (Valgeir Guðjónsson)
    UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
    53 min
  • Leghálsskimanir, Reiðmaðurinn og mannlegu samskiptin
    Krabbameinsfélag höfuðborgarsvæðisins í samstarfi við Samhæfingarstöð krabbameinsskimana, Ungar athafnakonur, Kraft og Lífskraft stendur fyrir nýrri vitundarvakningarherferð um leghálsskimanir undir slagorðinu „Leghálsskimanir – lítið mál!“ en janúar er alþjóðlegur vitundarvakningarmánuður gegn leghálskrabbameini. Markmiðið með vitundarvakningunni er að efla þekkingu, auka þátttöku og styrkja forvarnir gegn leghálskrabbameini á landsvísu. Vala Smáradóttir, formaður og framkvæmdastjóri Krabbameinsfélags höfuðborgarsvæðisins, kom í þáttinn í dag.
    Við kynntum okkur svo reiðnám sem hefur verið gríðarlega vinsælt undanfarin ár hjá Endurmenntun Landbúnaðarháskóla Íslands. Námið er í fjórum stigum, Reiðmaðurinn I, II, og III og svo er það keppnisnámið. Þarna er reiðfærni knapans þjálfuð alveg frá grunni upp í keppnismennsku. Birna Tryggvadóttir Thorlacius verkefnastjóri námsins kom til okkar í dag og sagði frá þessum námsbrautum og með henni kom Sigurður Ingi Bjarnason gullsmiður, en hann hefur sótt fyrstu þrjú stigin af náminu og er nú í því fjórða, keppnisnáminu.
    Svo voru það mannlegu samskiptin með Valdimari Þór Svavarssyni. Hann tók upp þráðinn frá síðasta fimmtudegi og hélt áfram að tala um það að leyfa sér að upplifa gleði, sem var eitt af því sem fólk sá mest eftir í lok ævinnar, þ.e. að hafa ekki leyft sér nógu mikið að upplifa gleði.
    Tónlist í þættinum:
    Janúar / Karl Olgeirsson (Karl Olgeirsson) -
    Close to you / Carpenters (Burt Bacharach & Hald David)
    Ég skal bíða þín / Reiðmenn vindanna (Michel Legrand, texti Hjördís Morthens)
    Uppboð / Valgeir Guðjónsson (Valgeir Guðjónsson, texti Jóhannes úr Kötlum)
    UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
    50 min
  • Anna Hulda um Veganúar og Ásdís og Edda um Bríeti, blómin og Hannes
    Samtök grænkera á Íslandi standa fyrir Veganúar sem er hafinn. Samtökin leggja áherslu á að búa til sem minnstan núning í daglegu lífi fólks og hvetja því til þess að fólk byrji á að prófa að skipta út kunnuglegum hráefnum í sínu mataræði, frekar en að umturna því alveg yfir nótt. Anna Hulda Ólafsdóttir, verkfræðingur og yfirmaður loftslagsþjónustu og aðlögunar hjá Veðurstofu Íslands, er í stjórn samtakanna en hún hefur verið vegan frá 2015. Hún kom í þáttinn og sagði okkur frá sinni vegferð og hún hefur til dæmis velt mikið fyrir sér hvernig veganismi virkar fyrir fólk sem er í íþróttum eða í mikilli þjálfun, enda hefur hún verið keppnismanneskja í CrossFit lengi.
    „Bríet, blómin og Hannes“ er yfirskrift dagskrár sem verður flutt í Hannesarholti laugardaginn 24. jan. í tilefni þess að í ár eru 170 ár frá því að Bríet Bjarnhéðinsdóttir fæddist. Dagskráin fjallar um vináttu Bríetar, kvenréttindakonu, blaðamanns og ritstjóra Kvennablaðsins og Hannesar Hafstein, fyrsta ráðherra Íslands. Æska þeirra og kjör voru ólík og því magnað hvernig lífsþræðir þeirra spunnust saman, meðan bæði lifðu, en vinátta þeirra og samstarf hafði mikil áhrif á þróun kvenréttinda á Íslandi. Ásdís Skúladóttir, leikstjóri og handritshöfundur kom í þáttinn ásamt Eddu Þórarinsdóttur leikkonu.
    Tónlist í þættinum:
    Vonarströnd / Íkorni (Stefán Örn Gunnlaugsson)
    I have a dream / Abba (Benny Anderson og Björn Ulvaeus)
    It was you / Norah Jones (Norah Jones)
    UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
    51 min

About Mannlegi þátturinn

From the publisher's feed

Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1. Netfang: [email protected]. Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.

More shows like Mannlegi þátturinn

Segðu mér by RÚV

Segðu mér

19 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

471 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

131 Listeners

Fókus by DV

Fókus

2 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

90 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

22 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

18 Listeners

Menn eins og við / Einmitt hlaðvarp by Einar Bárðar og Baldur Rafn Gylfason

Menn eins og við / Einmitt hlaðvarp

4 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

21 Listeners

Spjallið by Spjallið Podcast

Spjallið

14 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

36 Listeners

Undirmannaðar by Undirmannaðar

Undirmannaðar

5 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

8 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

25 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

11 Listeners