Mannlegi þátturinn

Mannlegi þátturinn

Download on the App Store

Mannlegi þátturinn episodes

  • Magnavita námið, Þórdís Nadia og Tara Sóley og Sigríður á Heilsuvaktin um beinheilsu
    Við fjölluðum um þriðja æviskeiðið í gær, þá var það út frá jákvæðri sálfræði, en í dag fræddumst við um Magnavita námið hjá Háskólanum í Reykjavík, sem er sérstaklega hannað fyrir fólk á þriðja æviskeiðinu, s.s. 55 til 75 ára. Benedikt Olgeirsson, verkfræðingur er einn af stofnendum Magnavita og Kristján Þór Gunnarsson heimilislæknir kennir í náminu, við fengum þá til að lýsa þessu námi betur fyrir okkur, hvernig fólk lærir að kortleggja þriðja æviskeiðið og hvað annað felst í Magnavita náminu.
    Leikritið Þegar ég sé þig, sé ég mig er sýnt á Nýja sviðinu í Borgarleikhúsinu, leikhópurinn samanstendur af leikurum og listafólki sem flest eiga það sameiginlegt að vera af blönduðum uppruna. Þau segja sögur sínar af öðrun, tengingu, fordómum og samstöðu. Verkið er eftir Ernu Kanemu Mashinkila í samstarfi við leikhópinn. Við fengum þær Þórdísi Nadiu Semichat og Töru Sóleyju Mobee, sem báðar eru í leikhópnum, til að segja okkur betur frá sér og leikritinu í þættinum.
    Og svo er að Heilsuvaktin með Helgu Arnardóttur. Beinheilsa er eitthvað sem við hugum ekki að fyrr en á efri árum og oftast þegar beinþynningin er þegar orðin og beinbrotin hafa átt sér stað. Sigríður Björnsdóttir innkirtlasérfræðingur segir mikilvægt að byrja huga að beinheilsu sinni miklu fyrr og stunda forvarnir til að sporna gegn beinþynningu sem byrjar fljótlega eftir fimmtugt hjá konum og körlum. Hún ásamt fleiri fagmönnum hafa opnað heimasíðuna beinheilsa.is í því augnamiði að auka upplýsingaflæði til fólks um beinþynningu og að hvetja til að breytts lífstíls. Það sé hægt að snúa við ógnvænlegri þróun með hollri fæðu, inntöku D- vítamíns ásamt lyftingum og jafnvægisæfingum svo eitthvað sé nefnt. Meira um þetta á Heilsuvaktinni í dag.
    Tónlist í þættinum í dag:
    Úr gulli gerð / Salka Sól (Salka Sól Eyfeld Hjálmarsdóttir)
    Hósen Gósen / Egill Ólafsson (Egill Ólafsson og Sigurður Bjóla)
    Hafmeyja / Tara Sóley (Tara Sóley Mobee og Sonny Bouraima)
    UMSJÓN: HULDA G. GEIRSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
    55 min
  • Jákvæð sálfræði á þriðja æviskeiðinu, handboltalandsliðið 1961 og Guðný lesandi vikunnar
    Þriðja æviskeiðið er tími þar sem margir staldra við og endurmeta stöðuna og forgangsröðun. Við forvitnuðumst í dag um hvernig jákvæð sálfræði getur nýst fólki sem komið er á þetta tímabili. Hrefna Guðmundsdóttir vinnusálfræðingur og sérfræðingur í jákvæðri sálfræði stendur fyrir námskeiðinu Þriðja æviskeiðið með augum jákvæðrar sálfræði, hún kom í þáttinn og sagði okkur betur frá þessu.
    Svo hófst í dag nýr liður hjá okkur í Mannlega þættinum, þar sem Helga Lára Þorsteinsdóttir, safnstjóri RÚV safnsins, mun koma til okkar með gullmola af safni RÚV. Á safninu leynist endalaust af áhugaverðu efni sem gaman er að rifja upp og í dag kom Helga Lára með í farteskinu, í tilefni þess að þjóðin er nýstigin út úr enn einu handboltafárinu, kostulegt innslag frá 1961 þar sem Íslendingar áttu lið á HM í hanknattleik í Þýskalandi og það er ljóst að það hefur mikið vatn runnið til sjávar síðan. Við heyrðum þetta innslag í fylgd Helgu Láru í dag. Í innslaginu heyrðist í fréttamanninum Sigurði Sigurðssyni, Hallsteini Hinrikssyni landsliðsþjálfara, Ásbirni Sigurjónssyni þáverandi formaður HSí og Gylfa Þ. Gíslasyni menntamálaráðherra.
    Lesandi vikunnar í Mannlega þættinum í þetta sinn var svo Guðný Ragnarsdóttir bókasafns- og upplýsingafræðingur á Stofnun Árna Magnússonar. Hún sagði okkur frá því hvaða bækur hún hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hana í gegnum tíðina. Guðný talaði eftirfarandi bækur og höfunda:
    Seasonal Quartet – Árstíðakvartettinn (samanstendur af 4 bókum: Autumn, Winter, Spring og Summer) e. Ali Smith
    The Magician (Galdramaðurinn) e. Colm Tóibín.
    Lausaletur e. Þórdísi Helgadóttur
    Salka Valka e. Laxness
    Tónlist í þættinum í dag:
    Traustur vinur / Upplyfting (Jóhann G. Jóhannsson)
    Á æðruleysinu / KK (Kristján Kristjánsson)
    Fyrsti kossinn / Hljómar (Gunnar Þórðarson, texti Ólafur Gaukur Þórhallsson)
    UMSJÓN: HULDA G. GEIRSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
    50 min
  • Benedikt Erlingsson föstudagsgestur og nostalgískt matarspjall
    Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var leikstjórinn og leikarinn Benedikt Erlingsson. Eftir að hafa leikið og leikstýrt á leiksviði við góðan orðstír söðlaði hann um og færði sig yfir í kvikmyndirnar og það er óhætt að segja að kvikmyndirnar hans hafi aukið við orðstírinn, Hross í oss, Kona fer í stríð og svo var sjötti og síðasti þáttur Dönsku konunnar sýndur á sunnudagskvöldið, en Benedikt leikstýrði þáttaröðinni og skrifaði hana ásamt Ólafi Agli Egilssyni. Við fórum með Benedikti yfir þetta allt saman, fengum að vita hvar rætur hans liggja, hver var hans lærifaðir sem spilaði lykilhlutverk í því að hann fór að leikstýra og svo auðvitað Dönsku konuna.
    Svo var það auðvitað matarspjallið með Sigurlaugu Margréti. Í dag töluðum við um matarvenjur úr æsku, bæði sem hafa fylgt okkur til dagsins í dag, en líka þeirra sem við höfum snúið baki við. Sumt af því er sakbitin sæla, sumt er bara nostalgía, að minnsta kosti fylgja þeim öllum minningar.
    Tónlist í þættinum í dag:
    Smuk som et stjerneskud / Trine Dyrholm (Jørgen Olsen)
    Glor på vinduer / Trine Dyrholm (Anne Linnet)
    UMSJÓN: HULDA G. GEIRSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
    54 min
  • Stofnun ársins 2025, þjónandi forysta og vinnustaðasamskiptin
    Á hverju ári er valin stofnun ársins á vegum og byggir valið á mannauðskönnun hjá starfsfólki stofnana ríkisins og vinnustaði Reykjavíkurborgar o.fl. tæplega 35.000 manns. Á sama degi og úrslitin eru kynnt fer fram málþing um mannauðsmál undir yfirskriftinni Virkni og vellíðan á vinnumarkaði og við fengum Kára Sigurðsson formann Sameykis, en Sameyki stendur fyrir báðum þessum viðburðum, og með honum kom Jakobína Þórðardóttir, deildarstjóri félagsdeildar Sameykis og þau sögðu okkur betur frá.
    Hvað einkennir góðan leiðtoga? Hvað er þjónandi forysta? Við tölðum við Skúla Ólafsson sóknarprest í Neskirkju og Sirrý Arnardóttur, stjórnendaþjálfara, fyrirlesara, rithöfund og fjölmiðlakonu, en þau standa saman að námskeiði sem kallast Framsækni og forysta - hámarkaðu árangur þinn í starfi og daglegu lífi. Við fengum þau til að svara þessum spurningum og fleirum í dag.
    Svo voru það mannlegu samskiptin með Valdimari Þór Svavarssyni. Þrjá undanfarna fimmtudaga hefur hann talað um samskipti á vinnustaðnum. Öll komum við með mismunandi reynslu og bakgrunn í farteskinu inn á vinnustaðinn og það getur verið talsvert flókið að stilla saman strengina svo fólki líði vel og samskipti gangi vel fyrir sig. Í dag tók hann þetta saman og kláraði vinnustaðasamskiptin, að minnsta kosti í bili.
    Tónlist í þættinum í dag:
    Bláir fuglar - Grafík (Helgi Björnsson, Rafn Jónsson og Rúnar Þórisson)
    I Can See Clearly Now - Johnny Nash (lag eftir flytjanda).
    Down Under - Men at work (Colin Hay og R. Strykert)
    Meðan nóttin fellur á - Snæfríður Ingvarsdóttir og Memfismafían (Þorsteinn Einarsson og Bragi Valdimar Skúlason)
    UMSJÓN: HULDA G. GEIRSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
    52 min
  • Klínísk næringafræði, Tónlistarskóli Akureyrar 80 ára og vísindaspjallið
    Við kynntum okkur störf klínískra næringafræðinga í dag, en þeir vinna með fólki á öllum aldri, frá börnum til aldraðra, bæði heima fyrir og á hjúkrunarheimilum og heilbrigðisstofnunum. Rétt og góð næring gegnir lykilhlutverki þegar kemur að heilsunni og í dag er ýmislegt sem getur afvegaleitt á tímum samfélagsmiðla, upplýsingaóreiðu og tískubylgna. Við töluðum við Berglindi Soffíu Ásbjörnsdóttur Blöndal, doktor í næringafræði en hún er nýráðin klínískur næringafræðingur hjá Heilbrigðisstofnun Norðurlands. Það var um nóg að ræða við hana á tímum þar sem margir vita ekki hvar á að finna réttar upplýsingar þegar kemur að næringu.
    Laufey Lín hlaut Grammy verðlaunin í Bandaríkjunum á sunnudagskvöldið, annað árið í röð og í þakkarræðunni talaði hún sérstaklega um tónlistar- og listakennslu, að hún myndi ekki vera á þeim stað sem hún er í dag ef ekki væri fyrir frábæra kennara. Því var ekki úr vegi að heiðra tónlistarskóla í þættinum í dag, en Tónlistarskóli Akureyrar varð 80 ára 20.janúar sl. Af því tilefni verður haldin heilmikil afmælisveisla í Hofi á laugardaginn og við heyrðum í Unu Björgu Hjartardóttur, aðstoðarskólastjóra og Aðalheiði Jónu Kolbeins Liljudóttur, framhaldsnema á fiðlu og básúnu í dag.
    Svo var það vísindaspjallið, þ.e. Edda Olgudóttir var reglulega með það í Samfélaginu eftir hádegi á Rás 1, en nú hefur sá þáttur lokið göngu sinni í bili og við gripum því vísindaspjallið á lofti og hún mun koma til okkar á miðvikudögum og miðla til okkar áhugaverðu efni úr heimi vísindanna. Í fyrsta vísindaspjallinu í Mannlega þættinum talaði Edda um rannsóknir sem benda til þess að þau sem fara seint að sofa séu útsettari fyrir hjarta- og æðasjúkdómum en aðrir.
    Tónlist í þættinum í dag:
    Reykur / Helena Eyjólfs (Karl Olgeirsson og Trausti Örn Einarsson)
    Wichita Lineman / Glenn Campbell (Jimmy Webb)
    Silver Lining / Laufey (Lag og texti: Laufey)
    Svona er ástin / Buff (Gunnar Þórðarson og Jónas Friðrik Guðnason)
    UMSJÓN: HULDA G. GEIRSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
    54 min
  • Sundbíó í Hafnarfirði, kepptu á Ólympíuleikunum fyrir hálfri öld og ofsaveður rifjað upp
    Vetrarhátíð hefst í Hafnarfirði á fimmtudaginn og meðal viðburða er sundbíó þar sem hægt er að horfa á bíómyndina When Harry Met Sally í Sundhöll Hafnarfjarðar og þetta er ekki bara bíó því ungir og upprennandi leikarar fara á kreik í hlutverkum Harry og Sally, og djassband sér um að setja gesti í réttu stemninguna fyrir sýningu með því að leika djasslögin úr myndinni. Jón Agnar Ólason hjá RIFF og Iðunn Gígja Kristjánsdóttir, listrænn stjórnandi sundbíósins, komu í þáttinn í dag.
    Um þessar mundir eru liðin 50 ár frá því nokkrir íslenskir skíðakappar fóru á Ólympíuleikana í Innsbruch og kepptu í svigi og stórsvigi fyrir Íslands hönd. Þrír frá Akureyri og einn frá Ísafirði. Fjórmenningarnir urði miklir vinir og héldu sambandi alla tíð og í dag eru þeir tveir eftir, Árni Óðinsson og Tómas Leifsson og þeir félagar ætla að halda uppá tímamótin með því að fara á Ólympíuleikana á Ítalíu. Við spjölluðum við Árna og Tómas í þættinum í dag.
    Svo var að það veðurspjallið með Einari Sveinbjörnssyni, en í dag ræddi Einar fyrst aðeins um óvenjulegu tíðina undanfarið og einkum snjóleysið sunnan og vestanlands. En svo rifjaði Einar upp með okkur svakalegt óveður sem gekk yfir landið fyrir réttum 35 árum, s.s. 3.febrúar 1991. Það hefur til dæmis ekki orðið svona hvasst á höfuðborgarsvæðinu síðan og vantar bara talsvert upp á það. Við heyrðum brot af fréttaauka sem var í útvarpinu vegna óveðursins og Einar fór betur yfir þetta ofsaveður og afleiðingar þess. Í fréttaaukanum frá 1991 heyrðum við í Atla Rúnari Halldórssyni fréttamanni, Guðmundi Hafsteinssyni veðurfræðingi og fréttamönnunum Jóni Guðna Kristjánssyniog Karli Eskil Pálssyni.
    Tónlist í þættinum:
    Bíldudals grænar baunir / Jolli og Kóla (Valgeir Guðjónsson)
    Hoppsa bomm (á skíðum skemmti ég mér) / Helena Eyjólfs og Hljómsveit Ingimars Eydal (H. Meyer, texti Ásta Sigurðardóttir)
    It Had To Be You / Harry Connick Jr. ( I. Jones & Gus Kahn)
    Veðurglöggur / Spilverk þjóðanna (Spilverk þjóðanna)
    UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
    52 min
  • Grásleppan, Gefum íslensku séns og Svanhildur Óskarsd. lesandi vikunnar
    Grásleppan hefur verið veidd og nýtt gegnum tíðina einkum og sér í lagi vegna gómsætra hrognanna sem eru eftirsótt víða um heim. Áður fyrr var aflanum að stærstum hluta hent eftir að hrognin höfðu verið hirt. Í seinni tíð hefur grásleppan til dæmis verið seld heilfryst til Kína þar sem hún þykir mikið lostæti. Spegill fortíðar - Silfur framtíðar er heiti á viðburði sem verður í Breiðfirðingarbúð á fimmtudaginn. Katrín Rut Bessadóttir, verkefnastjóri í HR er kynningastýra Grásleppunnar, og Eva María Hilmarsdóttir framkvæmdastýra Grásleppunnar komu í þáttinn í dag, en þær fara fyrir hópi kvenna sem hefur það að markmiði að sýna fram á vannýtta möguleika á grásleppu.
    Stofnfundur félags um Gefum íslensku séns var haldinn á Ísafirði í síðustu viku. Samnefndu verkefni, Gefum íslensku séns, var hleypt af stokkunum árið 2023 og hefur það markmið að auka vitund fólks í nærumhverfinu um hvað máltileinkun innflytjenda á íslensku felur í sér. Leitast er við að virkja fólk til að sinna hlutverki almannakennara, sem sagt snýr það ekki aðallega að þeims sem eru að læra íslensku, heldur frekar þeim sem kunna íslensku. Ólafur Guðsteinn Kristjánsson, aðjúnkt við HÍ og nýkjörinn stjórnarmaður í félaginu, var á línunni og sagði okkur frekar frá stofnfundinum, félaginu og verkefninu.
    Lesandi vikunnar í Mannlega þættinum í þetta sinn var Svanhildur Óskarsdóttir rannsóknarprófessor á menningarsviði hjá Árnastofnun. Hún sagði okkur frá því hvað hún hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hana í gegnum tíðina. Svanhildur talaði um eftirfarandi bækur og höfunda:
    Night Train to Lisbon e. Pascal Mercier
    Blái pardusinn – hljóðbók e. Sigrún Pálsdóttir
    Barnæska e. Jona Oberski (þýð. Gyrðir Elíasson)
    Hjálparsagnir hjartans e. Péter Esterházy (þýð. Jóna Dóra Óskarsdóttir)
    Nafn rósarinnar e. (þýð. Thor Vilhjálmsson)
    Ástin fiskanna, Tímaþjófurinn og fyrstu ljóðabækur Steinunnar Sigurðardóttur
    Tónlist í þættinum:
    Á sjó / Hljómsveit Ingimars Eydal (Don Wayne, texti Ólafur Ragnarsson)
    Mamma gefðu mér grásleppu / Jóhann Helgason (Jóhann Helgason)
    Farmaður hugsar heim / Elly Vilhjálms og Raggi Bjarna (Þórunn Franz, texti Árelíus Níelsson)
    UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
    53 min
  • Þorkell Gunnar föstudagsgestur og danskt matarspjall í tilefni leiksins
    Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson íþróttafréttamaður. Handboltinn er okkur ofarlega í huga í dag, enda ekki á hverjum degi sem íslenskt landslið kemst í undanúrslit á stórmóti, leikur við Dani í kvöld. En við spjölluðum líka við Þorkel um hvar hans rætur liggja, hans ferðalag í gegnum lífið, hvar hans vegferð hófst og hvernig hann endaði í starfi íþróttafréttamanns ungur að árum. Og auðvitað var talsvert talað um handboltann og leik kvöldsins, nema hvað?
    Í matarspjallinu með Sigurlaugu Margréti töluðum við, í tilefni leiksins við Dani, um danskann mat. Danskur matur og danskar matarhefðir hafa auðvitað haft talsverð áhrif á okkur hér á landi en ættum við jafnvel að forðast hann í dag, eða einmitt að borða hann og í framhaldinu að sporðrenna danska landsliðinu í eftirrétt? Det er spørgsmålet.
    Tónlist í þættinum:
    Bræðralag / Björgvin Halldórsson og Sigrún Hjálmtýsdóttir (Gunnar Þórðarson, texti Davíð Oddsson)
    Skref fyrir skref / Eyjólfur Kristjánsson (Eyjólfur Kristjánsson, texti Stefán Hilmarsson)
    UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
    54 min
  • Vinir með söngleikjastæla, samskipti á vinnustaðnum og Eyjólfur og langspilið
    Leikararnir Bjarni Snæbjörnsson og Vala Kristín Eiríksdóttir kynntust á spunanámskeiði fyrir 10 árum og þau tengdu svo vel að Bjarni spurði hana formlega hvort hún vildi vera vinkona hans. Síðan þá hafa þau ferðast saman, unnið saman og verið til staðar ef eitthvað bjátar á. Við ræddum við þau í þættinum í dag um þennan góða vinskap og ást þeirra á tónlist úr söngleikjum og teiknimyndum, en þau, ásamt Karli Olgeirssyni eru með það sem þau kalla söngleikjastæla í Salnum á næstunni.
    Svo voru það mannlegu samskiptin með Valdimari Þór Svavarssyni. Hann tók upp þráðinn frá því í síðustu viku, þegar hann var að tala um samskipti á vinnustaðnum, að vera helgaður, eða óhelgaður í vinnunni og svo hvernig meðvirkni getur litað samskiptin þar eins og annars staðar.
    Eyjólfur Eyjólfsson tenórsöngvari fjallaði um Langspilið og notagildi þess í námi í grunnskóla, í meistaraverkefni sínu í þjóðfræði við Háskóla Íslands. Í dag hefur Langspilið nánast yfirtekið líf hans með ýmsum hætti, hann rekur tónlistarsmiðju þar sem hann kennir á Langspilið, bæði á grunnskólastigi og háskólastigi. Smiðjunni er einnig ætlað að vekja börnin tilumhugsunar um menningararf og alþýðumenningu fyrri tíðar. Eyjólfur kom með langspilið, spilaði fyrir okkur og leyfði okkur meira að segja að prófa.
    Tónlist í þættinum:
    Í kjallaranum / Óðinn Valdimarsson og KK sextettinn (Jón Sigurðsson)
    Þú ert ungur enn / Erling Ágústson (Price og Logan, texti Erling Ágústsson)
    Limbó Rokk / Ragnar Bjarnason (erlent lag, texti Valgeir Sigurðsson)
    UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
    50 min
  • Fyrsti svefnvottaði skólinn, öndunartækni og söfnun listamanna í Árnessýslu
    Betri Svefn og Víkurskóli hafa lokið samstarfsverkefni sem markar tímamót í skólaumhverfi hérlendis. Víkurskóli er nú fyrsti svefnvottaði skóli landsins, en svefnvottun felur í sér markvissa nálgun að bættri svefnheilsu starfsfólks. Í verkefninu fékk starfsfólk skólans fræðslu um mikilvægi svefns fyrir líkamlega og andlega heilsu. Jafnframt var starfsfólk skimað fyrir svefnvanda og fékk aðgang að gagnreyndum úrræðum til að bæta svefn og draga úr svefnvanda. Við ræddum í dag við Erlu Björnsdóttur og Ingu Rún Björnsdóttur sálfræðinga hjá Betri Svefn.
    Svo kom Lilja Sigríður Steingrímsdóttir húkrunarfræðingur og öndunarkennari í þáttinn, en hún sagði okkur frá öndunartækni sem hún kynntist í Sviss og hefur nú kynnt og kennt hér á landi í nærri 19 ár.
    Listamenn úr Myndlistafélagi Árnessýslu standa þessa dagana að styrktarviðburði til stuðnings 10 ára dreng frá Selfossi sem nýlega greindist með blóðkrabbamein og er alvarlega veikur. Berglind Björgvinsdóttir, formaður Myndlistarfélags Árnessýslu kom til okkar og sagði okkur betur frá þessari söfnun og félaginu.
    Tónlist í þættinum í dag:
    Litlir kassar / Þokkabót (Pete Seeger, texti Þórarinn Guðnason)(tekið upp 1974)
    Ertu viss / Eyjólfur Kristjánsson (Eyjólfur Kristjánsson, texti Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson)
    Kramið hjarta / Valgeir Guðjónsson (Valgeir Guðjónsson)
    Begin the beguine / Ella Fitzgerald (Cole Porter)
    UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
    53 min

About Mannlegi þátturinn

From the publisher's feed

Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1. Netfang: [email protected]. Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.

More shows like Mannlegi þátturinn

Segðu mér by RÚV

Segðu mér

19 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

471 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

131 Listeners

Fókus by DV

Fókus

2 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

90 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

22 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

18 Listeners

Menn eins og við / Einmitt hlaðvarp by Einar Bárðar og Baldur Rafn Gylfason

Menn eins og við / Einmitt hlaðvarp

4 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

21 Listeners

Spjallið by Spjallið Podcast

Spjallið

14 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

36 Listeners

Undirmannaðar by Undirmannaðar

Undirmannaðar

5 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

8 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

25 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

11 Listeners