Mannlegi þátturinn

Mannlegi þátturinn

Download on the App Store

Mannlegi þátturinn episodes

  • Kanadískir hermenn í hernáminu, Léttsveitin þrítug og veðurspjall um sólgos og héluísingu
    Við töluðum í dag við Karen Lilju Loftsdóttur, doktorsnema í sagnfræði við Queen's háskólann í Ontario í Kanada. Doktorsverkefni hennar skoðar með menningarsögulegri nálgun kanadíska hermenn sem voru á Íslandi á hernámsárunum. Flestir vita að Bretar hernámu Ísland árið 1940 og svo Bandaríkjamenn frá 1941, en færri vita að um það bil 2500 hermenn frá Kanada hafi verið á Íslandi og sumir þeirra af íslenskum ættum. Við hringdum til Kanada og fengum Karen Lilju til að segja okkur aðeins frá þessu doktorsverkefni sínu.
    Kvennakórinn Léttsveit Reykjavíkur fagnar 30 ára afmæli í ár og á laugardaginn verða tvennir jólatónleikar í Langholtskirkju. Við litum á æfingu hjá sveitinni í gærkvöldi og hittum þar fyrir Guðný Helgadóttur og Steinunni Þórhallsdóttur og kórstjórann Gísla Magna og fengum að heyra eitt lag með kórnum og hljómsveit.
    Svo kom Einar Sveinbjörnsson til okkar í veðurspjallið. Í dag talaði hann aðeins um sérstaka gerð ísingar, héluísingu, en á annan tug umferðaróhappa um helgina voru rakin til slíkrar ísingar. Svo talaði Einar um sólgos, kórónaskvettur og norðurljós og nýja bók Arndísar Þóarinsdóttur sem heitir einmitt Sólgos.
    Tónlist í þættinum í dag:
    Lapis Lazuli / Helgi Björnsson (Helgi Björnsson og Guðmundur Óskar Guðmundsson)
    Baby Driver / Simon & Garfunkel (Paul Simon)
    Er kemur þú til mín - Léttsveit Reykjavíkur (Enya, texti Auður Aðalsteinsdóttir)
    Þá kemur þú / Nýdönsk (Björn Jörundur Friðbjörnsson)
    UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
    52 min
  • Sæunn Kjartansdóttir, greiðsluerfiðleikaráðgjöf og Vala Húnboga lesandi vikunnar
    Í síðustu viku fjallaði fréttaskýringaþátturinn Kveikur um málin sem komið hafa upp í leikskólanum Múlaborg, þar sem starfsmaður skólans hefur verið ákærður fyrir kynferðisbrot gegn barni. Í þættinum kom fram að meira en ári áður en það mál kom upp tilkynnti móðir annars barns á leikskólanum grunsemdir um að dóttir hennar hefði verið misnotuð kynferðislega. Henni finnst kerfið hafa brugðist. Sæunn Kjartansdóttir sálgreinir hefur mikla reynslu af þessum málaflokki og við fengum hana til að fara með okkur yfir áhrif og langtíma afleiðingar kynferðisofbeldis gegn ungum börnum.
    Vandalaust er ráðgjafastofa sem sérhæfir sig í greiðsluerfiðleikamálum með það að markmiði að koma fólki sem átt hefur í þessum vanda á réttan kjöl. Kristín Eir Helgadóttir ráðgjafi Vandalaust er viðskiptafræðingur og er á lokametrunum í markþjálfanámi. Hún hefur unnið í fjármálastofnunum í 15 ár með sérhæfingu í greiðslerfiðleikamálum m.a. síðustu tvö ár sem greiðsluerfiðleikaráðgjafi og verkefnastjóri hjá Hagsmunasamtökum heimilanna.
    Svo var það lesandi vikunnar, í þetta sinn var það Valgerður Húnboga lögfræðingur, en hún heldur utan um tvo bókaklúbba á Akureyri. Við fengum að heyra hvaða bækur hún hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hana í gegnum tíðina. Valgerður talaði um eftirfarandi bækur og höfunda:
    El Descontento e. Beatriz Serrano
    Poor e. Katriona O´Sullivan
    Wedding People e. Alison Enspach
    Hildar-bækurnar e. Sato Rämö
    Anna í Grænuhlíð, Emma í Mánalundi e. L.M. Montgomery
    Ferðabækur George Orwell
    Tónlist í þættinum í dag:
    Gamla húsið / Ellen Kristjánsdóttir (Þorgeir Ástvaldsson, Bjartmar Guðlaugsson)
    Fjaran / Brek (Jóhann Ingi Benediktsson, Harpa Þorvaldsdóttir, Guðmundur Atli Pétursson og Sigmar Þór Matthíasson)
    Þú ert / Sigríður Thorlacius og Sönghópurinn við Tjörnina (Tómas R. Einarsson, texti Sigurður Guðmundsson)
    UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
    52 min
  • Arnór Pálmi föstudagsgestur og vonir og væntingar í matarspjallinu
    Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var Arnór Pálmi Arnarson leikstjóri. Hann byrjaði mjög ungur að leikstýra kvikmyndaefni, sjónvarpsþáttaraðirnar Hæ gosi, Ligeglad, Ráðherrann, áramótaskaupið og fleiri. Og svo nú, ný spennuþáttaröð, Heimaey, sem hóf göngu sína hjá Sjónvarpi Símans í gær. Við ferðuðumst um í tíma og rúmi með Arnóri Pálma og forvitnuðumst auðvitað um þessa nýju þætti sem gerast, eins og nafnið gefur til kynna, í Vestmannaeyjum, en reyndar líka í Portúgal.
    Svo var það matarspjallið með Sigurlaugu Margréti. Í dag ræddum við með henni um matsárni, vonir og væntingar, þegar kemur að því til dæmis að fara út að borða, í samanburði til dæmis við það að elda heima.
    Tónlist í þættinum i dag:
    Bella símamær / Björk Guðmundsdóttir og Tríó Guðmundar Ingólfssonar (Marc Fontenoy, texti Guðmundur Guðmundsson)
    Ég veit þú kemur / Ási í Bæ (Oddgeir Kristjánsson, texti Ási í Bæ)
    Golden Slumbers / Carry that Weight - The Beatles (Lennon & McCartney)
    UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
    52 min
  • Krabbameinsfélagið Framför, kynbundinn tekjumunur lífeyris og narsisísk samskipti
    Það er blár nóvember, þ.e.a.s. í þessum mánuði er vitundarvakning um blöðruhálskirtilskrabbamein hjá körlum. Við kynntum okkur helstu upplýsingar um það og krabbameinsfélagið Framför í þættinum í dag, en Guðmundur Páll Ásgeirsson formaður og Hólmfríður Sigurðardóttir varaformaður komu í þáttinn og sögðu okkur frá starfi félagsins, Makafélaginu Traustir makar og fleiru.
    Hvað tekur við þegar starfsævinni lýkur og eftirlaunaaldri er náð? Tekjumunur milli kvenna og karla helst ævina á enda og konur fá ekki bara lægri laun en karlar á vinnumarkaði heldur einnig lægri lífeyri. Á málstofu fyrr í morgun fóru sérfræðingar yfir tölulegar upplýsingar um stöðu kynjanna, þar var fjallað um lífeyriskerfið út frá jafnréttissjónarmiðum og velt upp möguleikum til að jafna leikinn. Steinunn Bragadóttir, hagfræðingur hjá ASÍ, kom í þáttinn og sagði okkur frá erindi sem hún hélt á málstofunni þar sem teknar voru saman tölur um tekjur kvenna og karla á ellilífeyrisaldri. Hrafn Úlfarsson, sérfræðingur frá Lífeyrissjóði verzlunarmanna, kom með Steinunni í þáttinn og fór yfir mun á lífeyrisgreiðslum til karla og kvenna hjá sjóðnum, hver þróunin hefur verið og framtíðarhorfur.
    Valdimar Þór Svavarsson ráðgjafi var svo hjá okkur í dag eins og undanfarna fimmtudaga og hélt áfram að fræða okkur um mannleg samskipti. Í síðustu viku töluðum við um narsissisma og við héldum því áfram í dag, meðal annars hvað er hægt að gera þegar kemur að samskiptum við narsissíska einstaklinga.
    Tónlist í þættinum i dag:
    Eingetið ljóð / Bjartmar Guðlaugsson (Bjartmar Guðlaugsson)
    I Would Run Away With You / Bambaló (Kristjana Stefánsdóttir)
    Landleguvalsinn / Haukur Morthens (Jónatan Ólafsson, texti Númi Þorbergsson)
    UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
    53 min
  • Töfragleraugun í Hrafnistu, Jóðlageitin 2025 og saumað í Textílmiðstöð
    Svavar Jónatansson vinnur við prufuverkefni hjá Hrafnistu þar sem hann hefur nýtt sér tækni sýndarveruleika til þess að færa heimilisfólkinu á Hrafnistu í aðstæður sem þau ættu annars erfitt með að komast í. Hann sem sagt fer með 360° myndavél á kóræfingu og svo getur heimilisfólk sett á sig sérstök sýndarveruleikagleraugu, eða töfragleraugu eins og hann kallar þau, og þá eru þau nánast komin á staðinn og geta jafnvel sungið með í kórnum. Möguleikarnir eru óendanlegir í því hvernig hægt er að nýta þessa tækni og Svavar útskýrði betur fyrir okkur hvernig þetta gengur fyrir sig.
    Að jóðla er ákveðin söngkúnst og ekki á allra færi en nú stendur til að halda jóðlkeppni, nánar tiltekið í desember, Jóðlageitina 2025. Bragi Þór Valsson tónlistarmaður kom í þáttinn og sagði okkur frá jóðli og keppninni í dag.
    Svo fræddumst við um Textílmiðstöð Íslands á Blönduósi, en þar verður viðburður í dag sem kallast Saman við sitjum og saumum inni í stóru húsi. Þar munu fatahönnunarnemendur í Listaháskólanum bjóða til vinnustofu og sýna áhugaverð dæmi og aðstoða þáttakendur við að breyta, bæta og jafnvel skapa nýja flíkur úr gömlum. Elsa Arnardóttir forstöðumaður Textílmiðstöðvar sagði okkur betur frá þessu í þættinum í dag.
    Tónlist í þættinum i dag:
    Lítið og væmið / Valdimar (Valdimar Guðmundsson)
    Hærra minn guð / Kór Lindarkirkju (Lowell Mason, texti Matthías Jochumsson)
    Yodel-blús / Smaladrengirnir (Bragi Þór Valsson)
    Reiðlag / Þuríður Sigurðardóttir (S. Bogus, texti Jónas Friðrik Guðnason)
    UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
    50 min
  • Að seinka klukkunni eða ekki, Barnaþing og sykursýki eitt á Heilsuvaktinni
    Doktor Erla Björnsdóttir er stofnandi og framkvæmdastjóri Betri svefns. Í doktorsnámi sínu rannsakaði Erla svefnleysi, andlega líðan og lífsgæði hjá sjúklingum með kæfisvefn. Erla hefur haldið fjölda fyrlestra og námskeiða um svefn og svefnvenjur og stendur nú fyrir undirskriftum um að leiðrétta klukkuna á Íslandi. Leiðrétting á klukkunni felur í sér að seinka klukkunni um eina klukkustund, og halda þeim tíma allt árið. Erla segir að Ísland fylgi tímabelti sem samræmist illa sólarhæð og náttúrulegum sólargangi að staðarklukka okkar sé ekki rétt stillt miðað við legu landsins, og þetta misræmi hefur verið viðvarandi frá árinu 1968 þegar ákveðið var að festa landið á miðtíma (UTC) allt árið.
    Umboðsmaður barna heldur barnaþing í fjórða sinn á fimmtudag og föstudag. Um 130 börn eru skráð á þingið, þau eru á aldrinum 11-15 ára og voru valin með slembiúrtaki úr Þjóðskrá. Markmið barnaþings er að efla lýðræðislega þátttöku barna og virkja þau í umræðu um málefni sem snerta þau. Agla Björk Kristjánsdóttir og Stef Jón Aðalsteins komu í þáttinn í dag en þau voru á síðasta barnaþingi og eru í ráðgjafahóp fyrir þingið í ár. Með þeim kom Salvör Nordal Umboðsmaður barna.
    Svo var það heilsuvaktin með Helgu Arnardóttur. Í dag fræddumst við um sjúkdóminn sykursýki eitt sem minna er talað um í samanburði við sykursýki tvö sem er áunnin og hefur færst í aukana vegna heilsu- og lífsstílsbreytinga fólks undanfarin ár. Sykursýki eitt er hins vegar mjög íþyngjandi ólæknanlegur sjálfsofnæmissjúkdómur. Helga ræddi við Arndísi Finnu Ólafsdóttur sykursýkishjúkrunarfræðing á göngudeild innkirtla og gigtarsjúkdóma á Landspítalanum um byltingingarkennda tækni úr sprautum í sjálfvirkar insúlíndælur, blóðsykursnema og annan búnað sem hafa aukið lífsgæði fólks með sykursýki eitt en hún ræðir einnig um svokallaða sykursýkiskulnun sem er þekkt orð í sykursýkisheiminum. Arndís á líka tvö börn sem bæði greindust með sykursýki eitt við fjögurra ára aldur en hún hefur alltaf hvatt börnin sín að láta sjúkdóminn ekki stoppa sig.
    Tónlist í þættinum i dag:
    Draumaprinsinn / GÓSS (Magnús Eiríksson)
    Svefninn laðar / Nýdönsk (Jón Ólafsson, texti Daníel Ágúst Haraldsson og Björn Jörundur Friðbjörnsson)
    All I Have To Do Is Dream / Everly Brothers (Boudleaux Bryant)
    Óli lokbrá / Björgvin Halldórsson og Sigrún Hjálmtýsdóttir (Carl Billich, texti Jakob V. Hafstein)
    UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
    56 min
  • Þóra, Eyrún, Lubbi og málbeinið, Karl Ágúst og minningar og Guðrún lesandi vikunnar
    Lubbi finnur málbein er bók eftir Eyrúnu Ísfold Gísladóttur og Þóru Másdóttur og kom út árið 2009 og var valin besta fræðibókin fyrir börn árið 2010. Vinsældir Lubba hafa vaxið jafnt og þétt síðan og efnið verið mikið notað við kennslu á fyrstu stigum grunnskólans. Bókin er hugsuð til málörvunar og hljóðanáms fyrir börn á aldrinum tveggja til sjö ára, höfundar hennar Þóra og Eyrún Ísfold eru talmeinafræðingar og hafa áralanga reynslu af talþjálfun barna. Þær komu í spjall í þáttinn í dag.
    Karl Ágúst Úlfsson leikari, leikstjóri og rithöfundur er nýbúin að senda frá sér bókina Fífl sem ég var, sem fjallar um baráttu hans við heilann og taugakerfið, en eins og hann segir aðallega samt um minningar sem hann segist hafa dregið til sín til að lappa uppá stórskert minnið. Karl Ágúst kom í þáttinn í dag.
    Lesandi vikunnar í þetta sinn var svo Guðrún Ingólfsdóttir bókmenntafræðingur. Hún sagði okkur frá því hvaða bækur hún hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hana í gegnum tíðina. Guðrún talaði um eftirafarndi bækur og höfunda:
    Tímaskjól e. Georgi Gospodinov
    Móðurást e. Kristínu Ómarsdóttur
    Tónlist í þættinum i dag:
    Þú ert / Helgi Pétursson (Þórarinn Guðmundsson, texti Guðmundur Björnsson)
    Megi dagur hver fegurð þér færa / Ragnar Bjarnason (Wile & Green, texti Jóhanna G. Erlingsson)
    Ást og yndi / Erla Stefánsdóttir (Ingvi Þór Kormáksson, texti Ingvi Þór og JJ Soul)
    UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
    53 min
  • Emilíana Torrini föstudagsgestur og jólasalöt og marineringar í mataraspjallinu
    Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var söngkonan Emilíana Torrini. Hún vakt ung mikla athygli þegar hún kom syngjandi fram á sjónvarsviðið. Svo flutti hún til Englands og bjó þar í nærri tvo áratugi en er nú aftur flutt heim til Íslands. Hún hefur gert það mjög gott í tónlistinni og nú það nýjasta er plata og kvikmynd sem komu upp úr innblæstri sem hún varð fyrir eftir að hafa lesið fulla ferðatösku af sendibréfum sem móðir vinkonu hennar hafði átt. Platan heitir Miss Flower og bíómyndin heitir The Extraordinary Miss Flower. Í myndinni flytur Emilíana tónlistina af plötunni ásamt hópi tónlistarmanna, þar á meðal Lovísu Sigrúnardóttur eða Lay Low, á meðan þekktir leikarar og tónlistarfólk lesa upp úr bréfunum. Emilíana sagði okkur þessa áhugaverðu sögu frú Flower í þættinum í dag og við fórum með henni út og suður í tíma og rúmi.
    Í matarspjallinu með Sigurlaugu Margréti töluðum við meðal annars um marineringar fyrir fisk og kjöt og jólasalat.
    Tónlist í þættinum i dag:
    Patience / Ólöf Arnalds (Ólöf Arnalds)
    Miss Flower / Emilíana Torrini (Emilíana Torrini og Simon Byrt)
    Vertu Úlfur / Emilían Torrini (Emilíana Torrini og Marketa Irglova)
    UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
    50 min
  • Nýtt meðferðarúrræði fyrir kvíðaraskanir, Brauðtertudagurinn og narsissismi í mannlegum samskiptum
    FLIKK er nýtt meðferðarúrræði fyrir börn með kvíðaraskanir og foreldra þeirra. Úrræðinu er ætlað að veita börnum aðstoð mun fyrr en ella, stytta biðtíma og sömuleiðis minnka kostnað fyrir heilbrigðiskerfið. Um er að ræða internetmeðferð fyrir foreldra barna með kvíðaraskanir. Meðferðin byggir á hugrænni atferlismeðferð (HAM) þar sem foreldrar fá aðstoð frá sálfræðingi í gegnum meðferðina með það að markmiði að þeir læri aðferðir HAM til að hjálpa börnum sínum að ná tökum á kvíðavanda. Brynjar Halldórsson, dósent við sálfræðideild HR og Anna Sigríður Islind, prófessor við tölvunarfræðideild HR, komu í þáttinn og sögðu frá.
    Við erum nýbúin að fagna degi kleinunnar en í dag er komið að degi brauðtertunnar. Brauðtertan heldur velli og hefur eiginlega verið á uppleið síðasta áratuginn. Friðrik V Hraunfjörð, eða Friðrik fimmti, eins og hann er oft kallaður, kom í þáttinn í dag og með honum kom Erla Hlynsdóttir frá Brauðtertufélaginu Erlu og Erlu, sem er félag áhugafólks um brauðtertur á Facebook.
    Valdimar Þór Svavarsson hélt í dag áfram að fara með okkur yfir mannleg samskipti sem geta verið svo flókin. Undanfarna fimmtudaga hefur hann til dæmis frætt okkur um hlutverkin sem fjölskyldumeðlimir falla gjarnan í, samskiptin í ástarsamböndum, af hverju eru sum sambönd langlíf en önnur ekki og margt margt fleira. Í dag fór hann með okkur yfir í narsissisma og níu leiðir til að greina narsissisma.
    Tónlist í þættinum í dag:
    Staldraðu við / Stuðmenn (Egill Ólafsson og Valgeir Guðjónsson)
    Hann gat ekki setið kyrr / Rakel Sif Sigurðardóttir(Karl Olgeirsson og Karl Frid, texti Olgeir Kristjónsson)
    Sykur rjómi / Baggalútur(Bragi Valdimar Skúlason, texti Káinn)
    UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
    52 min
  • Jafningjastarf í geðheilbrigðismálum, styrktarsjóður geðheilbrigðis og Gló stuðningsfélag
    Jafningjastuðningur innan geðheilbrigðiskerfisins hefur færst í aukana og nú starfa jafningjar á mörgum stofnunum og deildum fyrir fólk í geðrænni krísu. Í september útskrifuðust 15 nemendur búsettir á Íslandi úr námi við Yale, alþjóðlegu leiðtogaþjálfunarnámi sem boðið er upp á af Bata- og lýðheilsudeild háskólans. Þessir nemendur luku gagnvirku og þverfaglegu fjarnámi sem Yale prófessorar og leiðbeinendur á Íslandi stóðu að. Námið var upphaflega hannað af einstaklingum með reynslu af geðheilbrigðisþjónustunni og erfiðleikum í daglegu lífi. Fyrir þremur árum hóf Traustur kjarni, sem eru félagasamtök, námskeið hér á landi sem undirbúning til að verða jafningjastarfsmaður. Námskeiðin eru byggð á sömu forsendum og Yale námið. Elín Ebba Ásmundsdóttir hjá Hlutverkasetri kom í þáttinn í dag og sagði okkur frá mikilvægi jafningastarfs.
    Styrktarsjóður geðheilbrigðis úthlutaði í vikunni í fimmta sinn samtals tuttugu og fimm og hálfri milljón til nítján verkefna. Tilgangur sjóðsins er að stuðla að framförum í geðheilbrigðismálum með því að veita styrki til verkefna sem geta bætt geðheilbrigði íbúa landsins og/eða skilning þar á. Sérstök áhersla var lögð á geðheilbrigði barna og ungmenna þetta árið. Grímur Atlason framkvæmdastjóri Geðhjálpar kom til okkar í dag og sagði okkur frá því hvaða verkefni fengu styrki og hvað þau standa fyrir.
    Í apríl síðastliðnum kom Bergljót Borg framkvæmdastjóri Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra til okkar því félagið var að kalla eftir hugmyndum um nýtt nafn og merki, sem næðu betur utan um núverandi starfsemi og gildi félagsins. Nafnið er fundið, Gló stuðningsfélag, og Bergljót sagði okkur í dag frá nýja nafninu, nýja merkinu og starfseminni.
    Tónlist í þættinum í dag:
    Brúnaljósin brúnu / Páll Óskar Hjálmtýsson (Jenni Jóns)
    Stjörnur stara / Rebekka Blöndal (Ásgeir Jón Ásgeirsson, texti Rebekka Blöndal)
    Streets of Philadelphia / Bruce Springsteen (Bruce Springsteen)
    Bopp og bí / Tómas R. Einarsson (Tómas R. Einarsson)
    UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
    54 min

About Mannlegi þátturinn

From the publisher's feed

Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1. Netfang: [email protected]. Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.

More shows like Mannlegi þátturinn

Segðu mér by RÚV

Segðu mér

19 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

471 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

131 Listeners

Fókus by DV

Fókus

2 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

90 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

22 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

18 Listeners

Menn eins og við / Einmitt hlaðvarp by Einar Bárðar og Baldur Rafn Gylfason

Menn eins og við / Einmitt hlaðvarp

4 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

21 Listeners

Spjallið by Spjallið Podcast

Spjallið

14 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

36 Listeners

Undirmannaðar by Undirmannaðar

Undirmannaðar

5 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

8 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

25 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

11 Listeners