Mannlegi þátturinn

Mannlegi þátturinn

Download on the App Store

Mannlegi þátturinn episodes

  • Alzheimer og listir, öðruvísi jóladagatal og veðurspjallið með Einari Sveinbjörnss
    Í nóvember voru 10 ár síðan fyrsta sérsniðna dagskráin fyrir fólk með alzheimer var búin til fyrir Listasafn Íslands undir merkjum rannsóknarverkefnisins „Listir og menning sem meðferð“. Halldóra Arnardóttir listfræðingur er nýkomin frá heimsókn í MoMA safnið í New York þangað sem hún var boðin í tilefni þess að 20 ár eru liðin frá stofnun dagskrár fyrir fólk með Alzheimer og aðstandendur þeirra. Við ræddum við Halldóru, Jón Snædal öldrunarlækni og Ingibjörgu Jóhannsdóttur forstöðukonu hjá Listasafni Íslands í þættinum í dag.
    Svo fræddumst við um Öðruvísi jóladagatal sem SOS Barnaþorpin bjóða upp á þar sem íslensk börn eru frædd um jafnaldra þeirra í öðrum löndum og hvernig aðstæður þeirra eru frábrugðnar okkar. Við fengum Hjördísi Rós Jónsdóttur, fræðslufulltrúa SOS Barnaþorpa til að segja okkur betur frá dagatalinu í dag.
    Og svo var það veðurspjallið með Einari Sveinbjörnssyni en í dag fjallaði hann um þræsing og bakflæði í veðrinu. Svo var það langtímaspáin og jólaveðrið, er of snemmt að segja eitthvað um það? Og að lokum var það spurningin um endanlegan árshita í Stykkishólmi, þar sem er yfir 180 ára mælingasaga, munu hitamet falla? Einar sagði okkur allt um þetta í dag.
    Tónlist í þættinum í dag:
    Snjókorn falla / Laddi (Bob Heatlie, texti Jónatan Garðarsson)
    Meiri snjó / KK & Ellen (Jule Styne, texti Ólafur Gaukur Þórhallsson)
    Jól / Þú og ég (Gunnar Þórðarson, texti Þorsteinn Eggertsson)
    Sleðaferð / Skapti Ólafsson (Leroy Anderson, texti Jólakettir)
    UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
    51 min
  • Ævisaga Óla Gränz, Glóð kertastjakinn og Sólveig lesandi vikunnar
    Óli Gränz er eyjapeyi og grallari. Hann missti aleigu sína í Heymaeyjargosinu og ástarlíf hans var stundum umtalað í Eyjum. Hjá Óla hefur gleðin alltaf haft yfirhöndina en stundum hefur þó gefið á bátinn. Í ævisögu sinni segir hann á hispurslausan og skemmtilegan hátt frá lífshlaupi sínu sem er engu öðru líkt. Við hittum Óla og rifjuðum upp með honum áhuaverðar sögur.
    Hingað komu svo tveir leikarar, Ólafía Hrönn Jónsdóttir og Erling Jóhannesson, en þau komu ekki til að tala neitt um leiklistina, heldur sögðu þau okkur frá Glóð kertastjakanum, sem seldur er til styrktar Konukoti, en Ólafía Hrönn tilheyrir hópi leikhúslistakvenna sem selja kertastjakana á laugardaginn í Hjartagarðinum. Erling er líka gullsmiður og hann hannaði einmitt kertastjakann. Þau sögðu okkur betur frá þessu í þættinum.
    Svo var það lesandi vikunnar sem í þetta sinn var Sólveig Jónsdóttir stjórnmálafræðingur og rithöfundur, en hún var að senda frá sér bókina Móðurlíf II, framhald af bókinni Móðurlíf, sem var örsagnasafn um allar mögulegar og ómögulegar tilfinningar tengdar móðurhlutverkinu. Við fengum hana til þess að segja okkur um nýju bókina og svo auðvitað frá því hvaða bækur hún hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hana í gegnum tíðina. Sólveig talaði um eftirfarandi bækur og höfunda:
    Hver á mig? e. Hörpu Rún Kristjánsdóttur
    Jórvík e. Þorstein frá Hamri
    Ireland in Iceland e. Manchán Magan
    On Writing e. Stephen King
    Antarctica e. Claire Keegan
    Ferð Eiríks til Ásgarðs og Ferð Eiríks til Jötunheima e. Lars Henrik Olsen
    Tónlist í þættinum í dag:
    Jólasnjór / Vilhjálmur og Ellý Vilhjálms (Livingston & Evans, texti Jóhanna G. Erlingsson)
    Jólin held ég heima / Ellen Kristjánsdóttir (Walter Kent & Kim Gannon, texti Hinrik Bjarnason)
    Jólastafrófið / Helgi Björnsson (Kaye & Loman, texti Kári Waage)
    UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
    53 min
  • Bjartmar Guðlaugsson föstudagsgestur og matarspjall um fisk og smákökur
    Föstudagsgesturinn í þetta sinn var Bjartmar Guðlaugsson tónlistarmaður, skáld og myndlistarmaður. Við rifjuðum upp með honum ferilinn, lögin hans sem allir þekkja, textana og lögin sem hann samdi fyrir aðra. Við fórum með honum aftur í tímann á æskuslóðirnar og svo á handahlaupum í gegnum lífið til dagsins í dag.
    Svo var það matarspjallið með Sigurlaugu Margréti. Við fórum yfir tölvupóst sem okkur barst frá hlustanda og ræddum í framhaldi um fiskrétti og smákökur.
    Tónlist í þættinum í dag:
    Týnda kynslóðin / Bjartmar Guðlaugsson (Bjartmar Guðlaugsson)
    Negril / Bjartmar Guðlaugsson og Bergrisarnir (Bjartmar Guðlaugsson)
    Þannig týnist tíminn / Ragnar Bjarnason og Lay Low (Bjartmar Guðlaugsson)
    UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
    54 min
  • Leikstjórar Skaupsins, Anna Sigga og Soffía og enn um mörk og markaleysi
    Tíminn flýgur, jólin nálgast óðfluga og eftir þau eru áramótin handan hornsins. Upptökur á Skaupinu hafa staðið yfir og klárast fljótlega og við ákváðum að taka aðeins púlsinn á því hvernig gengur. Allan Sigurðsson og Hannes Þór Arason eru leikstjórar Skaupsins í ár. Þeir hafa báðir talsverða reynslu úr leikstjórn og framleiðslu grínefnis fyrir sjónvarp. Við kynntumst þeim aðeins betur í dag og heyrðum hvernig gengur með Skaupið í ár.
    Tvíeykið Soffía og Anna Sigga voru víðfrægar í kringum 1960 og skipuðu sér þá í hóp skemmtikrafta dúetta eins og Baldur og Konni ofl. Þær voru jafnframt meðal allra fyrstu barnastjarna Íslandssögunnar. Þær Soffía Árnadóttir og Sigríður Anna Þorgrímsdóttir voru ungar að árum þegar þær urðu stjörnur í íslenskri dægurlagamenningu. Við fundum viðtal við þær stöllur frá áttunda áratuginum og þá vorru þær orðnar ungar mæður og voru þarna að hittast í fyrsta skipti í 15 ár þar sem þær minntust þessara tíma.
    Valdimar Þór Svavarsson var svo hjá okkur eins og undanfarna fimmtudaga og við héldum áfram að ræða margbreytileika mannlegra samskipta með honum. Við tókum upp þráðinn frá því í síðustu viku þar sem Valdimar fór yfir mörk og markaleysi og það að setja mörk. Það er um nóg að ræða þegar kemur að því og mannlegum samskiptum.
    Tónlist í þættinum í dag:
    Ég hlakka svo til / Lón (Gianni Bella, texti Jónas Friðrik Guðnason)
    Rudolph the Red-nosed Reindeer / Ella Fitzgerald (Johnny Marks)
    Órabelgur / Soffía og Anna Sigga (Árni Ísleifsson, texti Númi Þorbergsson)
    Komdu niður / Soffía og Anna Sigga (Jón Sigurðsson)
    Santa Claus is Coming to Town / Dolly Parton (Fred J. Coots & Haven Gillespie)
    UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
    55 min
  • Hörður Torfa og múrarnir falla, Uppskrift að jólum og La bohéme í Borgarleikhúsinu
    Í bók sinni, Þegar múrar falla, fjallar Hörður Torfason um persónuleg og samfélagsleg mál, reynslu og átök hans við samfélagið síðastliðin 50 ár. Hann segir að hann hafi þurft að brjóta niður þá múra sem voru innra með honum til þess að geta tekist á við ytri múra. Það gerði hann með sýnileika og hugrekki. Hörður kom í þáttinn í dag og sagði okkur betur frá bókinni og innri og ytri múrum.
    Sigurður Þorri Gunnarsson fjölmiðlamaður og Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir fréttakona verða saman með jólaþætti á aðventunni, Uppskrift að jólum. Markmiðið er að hafa það huggulegt á aðventunni, elda mat, kynnast skemmtilegu fólki, og þau velta fyrir sér jólatónlist og kynna sniðugar jólahugmyndir. Fyrsti þátturinn er einmitt á á dagskrá annað kvöld.
    Á síðustu árum hefur Óður getið sér gott orð fyrir skemmtilegar sýningar þar sem ungt og hæfileikaríkt tónlistarfólk færir sígilda tónlist í nýjan búning. Óður hefur sýnt 57 sýningar af fjórum óperuuppfærslum frá stofnun árið 2021. La bohéme eftir Puccini er ein vinsælasta ópera allra tíma og birtist í þeirra flutningi fyrsta sinn á íslensku í nýrri þýðingu. Sagan segir frá ungum listamönnum í París á 19.öld þar sem heit ástríða þeirra fyrir lífinu glímir við kaldan raunveruleikann. Ragnar Pétur Jóhannsson og Níela Thibaud Girerd komu í þáttinn í dag.
    Tónlist í þættinum í dag:
    Sleðaferð / Skapti Ólafsson (Leroy Anderson, texti Jólakettir)
    Gjöfin / Hörður Torfason (Hörður Torfason)
    Jólakveðjur / Eyjólfur Kristjánsson (Þorgeir Ástvaldsson, texti Þorsteinn Eggertsson)
    Hvít jól / Vilhjálmur og Ellý Vilhjálms (Irving Berlin, texti Stefán Jónsson)
    UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
    54 min
  • Vellíðan og velsæld á vinnustað, Berklar á Íslandi og Þorsteinn um sykursýki eitt
    Vellíðan og velsæld á vinnustaðnum skiptir miklu máli. Við eyðum flest svo miklum tíma í vinnunni að það ætti að vera þess virði að vinna að því að líða vel í þeim aðstæðum. Þær Guðrún Jóhanna Guðmundsdóttir og Hildur Halldórsdóttir eru báðar sérfræðingar og ráðgjafar í mannauðsmálum og þær kenna einmitt þetta í fyrirtæki sínu Auki og þær eru líka með fjögur mismunandi námskeið á vegum Endurmenntunar HÍ sem tengjast mannauðsmálum þar sem þær meðal annars skoða faglega hegðun og samskipti á vinnustaðnum og erfið starfsmannamál. Við fengum þær til að fræða okkur meira um þetta í dag.
    Berklar eru einn lífshættulegasti smitsjúkdómur sem gengið hefur á land hér. Veikin lagðist einkum á ungt fólk og þá sérstaklega ungar konur. Upp úr 1950 fór að draga úr smitum og dauðsföllum af völdum veikinnar en dánartala berklasjúklinga á Íslandi var ein sú hæsta í Evrópu. Erla Dóris Halldórsdóttir sagnfræðingur og hjúkrunarfræðingur kom til okkar í dag en út er komin bókin Berklar á Íslandi sem hún skrifaði, full af fróðleik og frásögnum.
    Svo var það Heilsuvaktin með Helgu Arnardóttur, hún hélt áfram umfjöllun sinni um sykursýki eitt og þá áskorun sem fylgir því að vera með sjúkdóminn. Þorsteinn Hálfdánarson er einn þeirra sem hefur glímt við sjúkdóminn en hann greindist við fimm ára aldur. Hann er 28 ára í dag og á rúmum tveimur áratugum hefur tækninni fleygt fram og tækjabúnaður verður sífellt handhægari og auðveldari í notkun við daglegar insúlíngjafir og blóðsykursmælingar. Hins vegar getur verið mikil áskorun að lifa með þessum sjúkdómi sem kallar á agaðan lífstíl. Öráreitið er daglegt brauð eins og pípandi tæki og óútskýrt blóðsykurfall í tíma og ótíma. Þorsteinn sagði Helgu frá því hvernig er að lifa með sykursýki eitt sem er ólæknandi, enn sem komið er, en hann bindur vonir við að það breytist í framtíðinni.
    Tónlist í þættinum í dag:
    Það snjóar / Sigurður Guðmundsson og Memfismafían (Iller & Norman, texti Bragi Valdimar Skúlason)
    Er líða fer að jólum / Raggi Bjarna (Gunnar Þórðarson, texti Ómar Ragnarsson)
    Jólaljósin / Borgardætur (erlent lag, texti Andrea Gylfadóttir)
    Jólasólin / Grétar Örvarsson og Páll Rósinkranz (Marks & Marks, texti Kristján Hreinsson)
    UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
    54 min
  • Ásgeir og heimstónlistardjassinn og Þorfinnur lesandi vikunnar
    Ásgeir Ásgeirsson tónlistarmaður gaf nýverið út þrefalda vínilplötu eftir 5 ár í vinnslu. Crossing Borders heitir platan og á hennir er frumsamin jazztónlist með heimstónlistaráhrifum, hljóðrituð af tónlistarmönnum búsettum á Íslandi, Indlandi, Jórdaníu og Íran. Ásgeir hefur farið í ferðir til þessara landa, sótt einkatíma á strengjahljóðfæri, farið á námskeið, spilað með þarlendum tónlistarmönnum og komið þar fram í fjölmiðlum. Ásgeir hefur miðlað áhrifum þessarar tónlistar undanfarin ár og við ræddum við hann í dag um þetta ferli og nýja þrefalda vínylinn, Crossing Borders.
    Lesandi vikunnar í þetta sinn var Þorfinnur Skúlason íslenskufræðingur og vefstjóri. Hann sagði okkur frá því í dag hvaða bækur hann hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hann í gegnum tíðina. Þetta eru bækurnar sem Þorfinnur hefur lesið undanfarið:
    Eilífðarvetur e. Emil Hjörvar Petersen
    Grænmetisætan e. Han Kang
    Sjá dagar koma e. Einar Kárason
    Innanríkið – Alexíus e. Bragi Ólafsson
    Svo bætti hann við eftirfarandi bókum sem hafa haft sérstaklega mikil áhrif á hann í gegnum tíðina:
    Öræfi e. Ófeig Sigurðsson
    Glæsir e. Ármann Jakobsson
    Skugga-Baldur e. Sjón
    Ævisaga Gylfa Ægissonar e. Sólmund Hólm
    Breytileg Átt e. Ása í bæ
    Sofðu ást mín e. Andra Snæ Magnason
    Tónlist í þættinum í dag:
    Allt í fína / Ragnar Bjarnason og Katrín Halldóra Karl Orgeltríó (Karl Olgeirsson)
    Cairo Vibe / Ásgeir Ásgeirsson (Ásgeir Ásgeirsson)
    Trip to India / Ásgeir Ásgeirsson (Ásgeir Ásgeirsson)
    Torfi á orfi / Snorri Helgason (Snorri Helgason)
    UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
    52 min
  • Gestur Einar föstudagsgestur og matarspjall að norðan
    Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í dag heitir einmitt Gestur, Gestur Einar Jónasson, útvarpsmaður og leikari. Hann vann í um tuttugu ár hjá RÚVAK á Akureyri, stjórnaði nokkrum af vinsælustu útvarpsþáttum Rásar 2 og var í fréttum og íþróttafréttum. Hann er einnig leikari, stóð á sviðinu hjá Leikfélagi Akureyrar í um tvo áratugi og lék í kvikmyndum, flestir muna eftir honum í hlutverki Georgs í Stellu í orlofi. Gestur Einar lærði líka að fljúga og var safnstjóri á Flugsafninu á Akureyri en nú er hann fluttur suður. Við fórum með honum aftur í tímanna, æskuárin á Akureyri, áhættuatriði í kvikmyndum sem enduðu misvel og margt fleira.
    Svo var það matarpsjallið með Sigurlaugu Margréti. Guðrún og Sigurlaug voru báðar fyrir norðan og það hafði talsverð áhrif á matarspjall dagsins. Laufabrauð með kúmeni, gelgjufæði, Akureyringur, kók í bauk og fyrsti í aðventu komu við sögu.
    Tónlist í þættinum í dag:
    Stella í orlofi / Diddú, Sigrún Hjálmtýsdóttir (Valgeir Guðjónsson)
    Án þín / Trúbrot (Holland, Holland & Dozier, texti Þorsteinn Eggertsson)
    Tiny Dancer / Elton John (Elton John, texti Bernie Taupin)
    UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
    50 min
  • Sesselía, Ester og Nína fyrir norðan, íslensk máltækni og mörk og markaleysi
    Við fengum heimsókn frá þremur rithöfundum í hljóðver RÚV á Akureyri, ungar konur sem eiga það sameiginlegt að vera allar að gefa út sínar fyrstu bækur og þær hafa þann háttinn á að vera saman í því að kynna þær. Þær sögðu okkur frá ferlinu að skrifa bækurnar og lásu svo allar stutta kafla úr bókum sínum, þ.e. Sesselía Ólafs úr bók sinni Silfurberg, Ester Hilmarsdóttir úr bók sinni Sjáandi og Nína Ólafsdóttir úr bók sinni Þú sem ert á jörðu.
    Við töluðum svo við Irisi Eddu Nowenstein, lektor í íslenskri málfræði og máltækni við HÍ og talmeinafræðing við Landspítalann. Hún og samstarfsfólk hennar vinna í mörgu áhugaverðu, meðal annars með því að nýta nýjustu tækni sem við ætlum að fengum hana til að segja okkur frá í dag. Hvernig talgreiningarforrit nýtast, hvernig raddupptökur geta nýst til að skima eftir röskunum og sjúkdómum og meta ávinning meðferðar. Auk þess fræddi hún okkur um íslenskar tölvuraddir, risamállíkön og átak sem er framundan í að safna röddum til að nútímatæknin skilji betur íslensku og þar af leiðandi nýtist betur sem greiningartæki.
    Svo voru það Mannlegu samskiptin, Valdimar Þór Svavarsson ráðgjafi var aftur hjá okkur, eins og undanfarna fimmtudaga. Síðustu tvær vikurnar var það narsissisminn, nú ræddi hann um mörk og markaleysi. Hvað það er að setja sér mörk, innri og ytri mörk og ýmislegt fleira.
    Tónlist í þættinum í dag:
    Á Akureyri / Óðinn Valdimarsson (Óðinn Valdimarsson)
    Út á stoppustöð / Stuðmenn (Jakob Frímann Magnússon)
    Orðin mín / Sigurður Guðmundsson og Memfismafían (Bragi Valdimar Skúlason)
    Handle With Care / Traveling Wilburys (Travelin Wilburys)
    UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
    53 min
  • Þörungasmakk með Eydísi, Átak UN Women og jólahlaðborð á Króknum
    Hvernig má nýta betur matþörunga og aðra ofurfæðu fjörunnar? Flest þekkjum við söl og margir hafa bragðað þau en hvað annað úr fjörunni er hægt að nýta? Á morgun mun Eydís Mary Jónsdóttir, umhverfis- og auðlindafræðingur kynna ofurfæðuna sem finna má í fjöruborðinu og gefur gestum að smakka. Eydís kom í þáttinn í dag.
    UN Women á Íslandi standa fyrir árlegu 16 daga átaki gegn kynbundnu ofbeldi og í ár er athyglinni beint að stafrænu ofbeldi gegn konum og stúlkum. Fyrir milljónir kvenna og stúlkna hefur sítengdur stafrænn heimur orðið vettvangur ofbeldis, netáreitni, ofsóknum á netinu, misnotkun á persónulegum upplýsingum, dreifingu myndefnis án samþykkis, djúpfalsmynda og upplýsingaóreiðu. Stella Samúelsdóttir framkvæmdastýra UN Women á Íslandi kom í þáttinn og sagði frá átakinu.
    Það eru ekki allir sem eiga þess kost að komast á jólahlaðborð, hvað þá með allri fjölskyldunni. Jólahlaðborð Rótarýklúbbs Sauðárkróks verður haldið næsta laugardag og það er ókeypis fyrir þau sem mæta. Rótarýklúbbur Sauðárkróks er með mörg járn í eldinum en þetta er stærsta einstaka verkefni klúbbsins á hverju ári. Rótarýfélagar sjá um allan undirbúning og framkvæmd sem er býsna mikið verkefni. Við heyrðum í Ómari Braga Stefánssyni frá Rotaryklúbbi Sauðárkróks í dag.
    Tónlist í þættinum í dag:
    Í rökkurró / Helena Eyjólfsdóttir (Nevins, Nevins & Dunn, texti Jón Sigurðsson)
    That’s What Friends Are For / Dionne Warwick & Friends (Burt Bacharach, Carole Bayer Sager)
    Lítill drengur / Vilhjálmur Vilhjálmsson (Magnús Kjartansson, texti Vilhjálmur Vilhjálmsson)
    Láttu mig gleyma / Stuðmenn (Egill Ólafsson, Þórður Árnason og Jakob Frímann Magnússon, texti Þórður Árnason)
    UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
    54 min

About Mannlegi þátturinn

From the publisher's feed

Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1. Netfang: [email protected]. Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.

More shows like Mannlegi þátturinn

Segðu mér by RÚV

Segðu mér

19 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

471 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

131 Listeners

Fókus by DV

Fókus

2 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

90 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

22 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

18 Listeners

Menn eins og við / Einmitt hlaðvarp by Einar Bárðar og Baldur Rafn Gylfason

Menn eins og við / Einmitt hlaðvarp

4 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

21 Listeners

Spjallið by Spjallið Podcast

Spjallið

14 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

36 Listeners

Undirmannaðar by Undirmannaðar

Undirmannaðar

5 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

8 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

25 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

11 Listeners