Mannlegi þátturinn

Mannlegi þátturinn

Download on the App Store

Mannlegi þátturinn episodes

  • Kóresk kvikmyndahátíð, Stefán Atli kennir gervigreind og veðurspjallið með Einari
    Við fræddumst um kóreska menningu í þættinum í dag, en fyrsta kóreska kvikmyndahátíðin á Íslandi hefst á fimmtudaginn í Bíó Paradís og stendur yfir fram á sunnudag. Kóreskt kvikmyndaefni hefur vakið verðskuldaða athygli undanfarin ár, kvikmyndin Parasite var valin besta kvikmyndin á óskarsverðlaunahátíðinni 2020, sjónvarpsþættirnir Squid Game slógu í gegn út um allan heim og svo er það auðvitað K-pop tónlistin sem er gríðarlega vinsæl. Mæðgurnar, Milan Chang og Rán Chang Hlésdóttir komu í þáttinn og sögðu okkur betur frá hátíðinni og kóreskri menningu í dag.
    Eitt af aðalorðum þessa árs er svo sannarlega orðið gervigreind. Stefán Atli Rúnarsson viðskiptafræðingur, hefur haldið fjölmörg námskeið um helstu möguleika gervigreindar og t.d. ChatGPT þar sem hann meðal annars fer yfir ýmis atriði sem geta til dæmis hjálpað til við að spara tíma í daglegu lífi. Stefán Atli er viðskiptafræðingur að mennt, sérfræðingur í markaðsmálum og mikill áhugamaður um gervigreind og hefur haldið námskeið í gervigreind fyrir hátt í 1600 manns.
    Svo var það veðurspjallið með Einari Sveinbjörnssyni. Einar sagði okkur frá rannsóknaráðstefnu Vegagerðarinnar, þar kom tvennt fram sem tengist loftslagsbreytingum. Annars vegar áhrif loftslags á Vegakerfið heilt yfir og hins vegar um nokkuð nýjan veruleika sumarblæðinga á vegum. Svo fór Einar með okkur yfir veðurhorfurnar fram undan, en merkileg fyrirstöðuhæð er að byggjast upp. Svo Einar að lokum yfir glænýja desemberspá frá Evrópsku reiknimiðstöðinni.
    Tónlist í þættinum í dag:
    Síðasta sjóferðin / Brimkló (Steve Goodman, texti Þorsteinn Eggertsson)
    Moist / PPCX (Chiwon Lee, Jihan Jeon & Kiik)
    Heima / Haukur Morthens (Oddgeir Kristjánsson, texti Ási í Bæ)
    Angelía / Vilhjálmur Vilhjálmsson (W. Meisel, texti Theódór Einarsson)
    UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
    55 min
  • Síungir karlmenn, Kleinudagurinn og Eiríkur Jónsson lesandi vikunnar
    Út er komin bókin Síungir karlmenn - Innblástur, innsæi og ráð. Bókin hefur að geyma 45 hugleiðingar og hvatningu fyrir fólk af öllum kynjum að fara úr viðjum vanans, og brjóta upp eldri viðmið samfélagsins. kynjum. Með bókinni vilja höfundar ögra vanabundnum viðmiðum, ýta við hugsun og opna dyr að nýjum viðhorfum og möguleikum. Karl G Friðriksson og Sævar Kristinsson höfundar bókarinnar komu í þáttinn í dag.
    Það er ekki víst að allir hafi vitað það en í dag, 10.nóvember, er Kleinudagurinn. Bollurnar eiga sinn dag, saltkjöt og baunir sinn dag, skatan, súkkulaðieggin og svo framvegis. Nú vilja Vinir kleinunnar, eins og þau kalla sig, halda kleinudaginn í fimmta sinn og heiðra kleinuna. Við heyrðum í Nikulási Ágústssyni frá Bakabaka, sem er einn vina kleinunnar, og hann sagði okkur betur frá deginum og kleinum.
    Lesandi vikunnar í þetta sinn var Eiríkur Jónsson lagaprófessor og landsréttardómari. Við fengum hann til að segja okkur hvaða bækur hann hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hann í gegnum tíðina. Eiríkur talaði um eftirfarandi bækur og höfunda:
    Michael J. Klarman: The Framers´ Coup - The Making of the United States Constitution.
    Viðar Már Matthíasson: Endurheimt verðmæta við gjaldþrot.
    Arnaldur Indriðason: Tál.
    Kristín Steinsdóttir: Engill í Vesturbænum.
    Hallgrímur Helgason: Sextíu kíló af kjaftshöggum.
    Iðunn Steinsdóttir og Sigríður Víðis Jónsdóttir.
    Tónlist í þættinum í dag:
    Daglega fer mér fram / Mannakorn (Magnús Eiríksson)
    Across the Universe / The Beatles (Lennon & McCartney)
    Mangó fyrir tíu flær / Salsakommúnan (Baldvin Snær Hlynsson og Símon Karl Sigurðarson)
    UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
    54 min
  • Þorsteinn J. föstudagsgestur og nostalgískt matarpsjall
    Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn er fjölmiðlamaðurinn Þorsteinn J. Vilhjálmsson. Hann hefur unnið við fjölmiðla frá unglingsaldri, hér á RÚV, á Bylgjunni, Stöð 2 og víðar. Hann rekur eigið framleiðslufyrirtæki og hefur framleitt meðal annars fjölda heimildamynda og sjónvarpsþátta. Nú síðast opnaði hann fjölmiðilinn TV1 Magazin, sem hann segir ekki vera eins manns fjölmiðil. Við fengum Þorstein til að segja okkur betur frá þessum nýja fjölmiðli og ferðuðumst í tíma og rúmi með honum.
    Svo kom Sigurlaug Margrét til okkar í matarspjallið. Í dag ræddum við mat sem við mögulega borðum þegar okkur líður illa, og þá líka þegar okkur líður vel. Og svo líka mat sem gefur okkur góðar minningar, notsalgískan mat.
    Tónlist í þættinum í dag:
    Gegnum holt og hæðir / Þursaflokkurinn (Egill Ólafsson, texti Þórarinn Eldjárn)
    Who Knows Where the Time Goes / Fairport Convention (Sandy Denny)
    Hvernig ertu? / Úlfur Úlfur og Barði Jóhannsson (Barði Jóhannsson, Helgi Sæmundur Guðmundsson og Arnar Freyr Frostason)
    UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
    53 min
  • Að nýta Lego kubba til lausna, Sara Rós og ADHD fræðsla og viðvörunarbjöllur í samböndum
    Við fræddumst í dag um Lego Serious Play, sem er aðferð fyrir stjórnendur og fyrirtæki til að finna lausnir við áskorunum með hjálp Lego kubba. Steinunn Ragnarsdóttir stjórnunarráðgjafi lærði þessa aðferð í Danmörku og hún sagði okkur betur frá henni í þættinum.
    Hvatningarverðlaun ADHD samtakanna 2025 hlaut Sara Rós Kristinsdóttir ráðgjafi fyrir ómetanlegt framlag til fræðslu og valdeflingu fólks með ADHD og aðstandendur þeirra. Sara Rós hefur á undanförnum árum verið áberandi í fræðslu ásamt því að vera talskona taugafjölbreytileika. Sjálf greindist hún á fullorðinsárum, sem hefur veitt henni dýpri innsýn og tækifæri til að mæta öðrum af skilningi. Hún nýtir bæði fagþekkingu og eigin reynslu til að brúa bil milli kerfa, fjölskyldna og einstaklinga með valdeflandi nálgun, aðgengi og mannúðlegar lausnir að leiðarljósi. Sara Rós kom í þáttinn í dag.
    Svo voru það mannlegu samskiptin með Valdimari Þór Svavarssyni ráðgjafa. Í síðustu viku var hann að segja okkur frá langlífum samböndum, hvað þarf til að samband verði langlíft og í dag hélt hann áfram að fara yfir viðvörunarbjöllur, þ.e. það sem getur ógnað langlífi sambandsins og hvernig er hægt að leysa úr því.
    Tónlist í þættinum í dag:
    Aftur heim til þín / Eyþór Ingi og Lay Low (Baldur Hjörleifsson og Jónína Guðrún Eysteinsdóttir)
    Ennþá man ég hvar / GÓSS (Kai Normann Andersen, texti Bjarni Guðmundsson)
    Í rauðum loga / Þorgerður Ása Aðalsteinsdóttir (Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson)
    Working in the Coal Mine / Lee Dorsey (Allen Toussaint)
    UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
    53 min
  • Tolli og Batahús, barnabók um alzheimer og gamansýningin Lífið í Japan
    Við kynntum okkur starfsemi Batahúss í þættinum í dag. Batahús var stofnað árið 2021 og veitir húsnæði, jafningjastuðning og einstaklingsmiðaða þjónustu fyrir fólk sem hefur lokið fangelsisvist og er að stíga fyrstu skrefin til baka í samfélagið. Tolli Morthens, formaður stjórnar Bata, kom í viðtal og sagði okkur betur frá tilurð Batahúss, starfseminni og hugmyndafræðinni.
    Svo fræddumst við um bókina Amma nammigrís, en í henni eru skemmtilegar og fyndnar sögur af ömmu, byggðar á sönnum atburðum, sagðar frá sjónarhorni barnabarns. Auk þess útskýrir bókin alzheimer sjúkdóminn á einfaldan hátt og hjálpar börnum að skilja hvað það þýðir þegar ástvinur byrjar að gleyma. Gunnhildur Stella Pálmarsdóttir fjölskyldufræðingur er höfundur bókarinnar og hún sagði okkur betur frá henni í dag.
    Svo var það gamansýningin Lífið í Japan, sem frumsýnd verður í Hannesarholti í næstu viku. Þar fer Stefán Þór Þorgeirsson yfir sína reynslu af því að búa í Japan, en sagan byggir á raunverulegri reynslu Stefáns frá dvöl hans í Japan, í gegnum grín, tónlist og dans. Stefán Þór sagði okkur betur frá sinni reynslu og Japan hér í dag.
    Tónlist í þættinum í dag:
    Inn um gluggann / Moses Hightower (Moses Hightower, texti Andri Ólafsson og Steingrímur Karl Teague)
    Þú átt mig ein / Vilhjálmur Vilhjálmsson (Magnús Þór Sigmundsson, texti Vilhjálmur Vilhjálmsson)
    Sukiyaki (Ue o muite aruko) / Kyu Sakamoto (Nakamura Hachidai & Rokusuke Ei)
    Kæra sána / Faðir Stefán (Stefán Þór Þorgeirsson)
    UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
    50 min
  • Hatursorðæða um hinsegin málefni, pörupiltar með fræðslu í fyrirtækjum og Hrund og Innsæi
    Í lok síðustu viku voru kynntar niðurstöður rannsóknar sem bar nafnið Öruggarin hinsegin borgir, sem unnin er af Nordic Safe Cities fyrir Reykjavíkurborg. Þar kemur fram að ein af hverjum tíu athugasemdum um hinsegin málefni á samfélagsmiðlum inniheldur hatursorðræðu. Þar sést allt frá niðrandi athugasemdum til hótana og neteineltis sem getur valdið fólki vanlíðan, dregið fram skaðlegar staðalímyndir og alið á rangfærslum um hinsegin fólk. Reyn Alpha Magnúsdóttir forseti Trans Ísland kom í þáttinn í dag og sagði okkur betur frá þessari rannsókn og fór með okkur yfir upplifun sína og fólks í félaginu Trans Ísland.
    Við fræddumst svo um nýtt uppistand Pörupilta um EKKO málin; Einelti, kynferðislegt áreiti, kynbundið áreiti og ofbeldi. Pörupiltar eru leikkonurnar Alexía Björg Jóhannesdóttir og Sólveig Guðmundsdóttir. Í uppástandinu fara þær í fyrirtæki og nálgast þessi erfiðu og vandmeðförnu málefni á gamansaman hátt. Uppistandið er hugsað sem tækifæri til að fræða starfsfólk fyrirtækja um EKKO málin í gegnum húmor. Áður hafa Pörupiltar gert Kynfræðslu Pörupilta sem sýnd var fyrir alla 10. bekkinga sjö ár í röð. Sólveig Guðmundsdóttir, leikkona og pörupiltur kom í þáttinn í dag.
    Á Heilsuvaktinni ræddi Helga Arnardóttir við Hrund Gunnsteinsdóttur, sem hefur verið sendiherra innsæis um árabil eða allt frá því heimildamynd hennar INNSÆI var birt á Netflix árið 2016 og var sýnd um allan heim. Fyrir nokkru sagði hún upp fastri vinnu sinni og seldi einbýlishús sitt, flutti til Berlínar og skrifaði bókina Innsæi sem hefur komið út á mörgum tungumálum og fengið góðar viðtökur. Hrund er einnig leiðtogaþjálfi og stendur nú fyrir námskeiðum þar sem hún kennir fólki að þekkja innsæið sitt og fylgja því í leik og starfi.
    Tónlist í þættinum í dag:
    Við viljum lifa / Ríó Tríó (L. Alberto, texti Helgi Pétursson)
    Clair / Gilbert O’ Sullivan (Gilbert O’ Sullivan)
    Way home / Blood Harmony (Örn Eldjárn)
    UMSJÓN: GUNNAR HANSSON
    53 min
  • Katla smörrebrauðsjómfrú, örmagna heilbrigðisstarfsfólk og Þór lesandi vikunnar
    Katla Gunnarsdóttir er það sem kallað er smörrebrauðsjómfrú að mennt. Frá því hún lauk sveinsprófi hefur hún starfað á frokostveitingastaðnum Tívolíhallen í eigu smörrebrauðsjómfrúnnar Helle Vogt, en hún rekur eldhúsið uppá gamla mátann með klassísku smörrebrauði og dönskum réttum. Katla er þessa dagana með annan fótinn á landinu en hún er meðal annars að bíða eftir leyfi frá Reykjavíkurborg í samstarfi við veitingastaðinn Hosiló um að opna klassískan Smörrebrauðsstað í Safnahúsinu á Hverfisgötunni. Katla sinnir líka meistaraverkefni frá DTU í Kaupmannahöfn en þar kemur síld við sögu. Við spjölluðum við Kötlu í þættinum.
    Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum heldur reglulega námskeið fyrir sjúkraliða og annað fagfólk í heilbrigðisgeiranum, en í lok þeirra spyrja þau þáttakendur hvaða námskeið þau myndu vilja að MSS stæði fyrir næstu önn. Óskanámskeið talsvert margra var námskeiðið „Örmagna heilbrigðisstarfsfólk“. Og það er skemmst frá því að segja að námskeiðið hefur verið sett á um miðjan nóvember og Ragnheiður Guðfinna Guðnadóttir, leiðbeinandi á námskeiðinu, var hjá okkur í dag og sagði frá námskeiðinu og örmagna heilbrigðisstarfsfólki.
    Lesandi vikunnar í þetta sinn var Þór Tulinius, leikari, leikstjóri, leikskáld, leiðsögumaður og nú rithöfundur. Við fengum hann til að segja okkur frá nýrri skáldsögu sinni, Sálnasafnarinn, og svo auðvitað því sem hann hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hann í gegnum tíðina. Þór talaði um eftirfarandi bækur og höfunda:
    Ilmurinn eftir Patrick Suskind
    Jötunsteinn e. Andra Snær Magnússon
    Bók vikunnar e. Snæbjörn Arngrímsson
    Í skugga trjánna e. Guðrúnu Evu Mínervudóttur
    Samuel Beckett og Harold Pinter
    Tónlist í þættinum í dag:
    Sjóddu frekar egg / Bogomil Font (Bragi Valdimar Skúlason)
    Begin the Beguin / Ella Fitzgerald (Cole Porter)
    The Sun Ain’t Gonna Shine Anymore / The Walker Brothers (Bob Crewe & Bob Gaudio)
    I'll Come Running Back to You / Sam Cooke (Sam Cooke)
    UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
    50 min
  • Margrét Ákadóttir föstudagsgestur og smákökur og paté í matarspjallinu
    Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var Margrét Ákadóttir leikkona, listmeðferðarfræðingur og kennari. Við fórum með henni aftur í tímann á og í gegnum lífið og ferilinn til dagsins í dag. En Margrét leikur eitt aðalhlutverkið í nýrri íslenskri kvikmynd, Víkin, sem var frumsýnd í kvikmyndahúsum í gær. Spennumynd sem gerist á einum afskekktasta stað á landinu. Margrét sagði okkur betur frá myndinni og sjálfri sér í þættinum í dag.
    Svo var auðvitað matarspjallið með Sigurlaugu Margréti. Það er 1. nóvember á morgun og það er heilmikil vetrarstemmning í loftinu, myrkrið, snjórinn, óveður og ófærð minna okkur á að það er komin vetur og hverri árstíð fylgir ákveðin stemmning og breyting. Matarsmekkur okkar breytist, þyngist aðeins, sumir nota þá meira smjör og meiri rjóma. Smákökur og paté komu við sögu í matarspjalli dagsins.
    Tónlist í þættinum:
    Ég fer í nótt / Helgi Björnsson (erlent lag, texti Ómar Ragnarsson)
    People Have The Power / Patti Smith & Choir! Choir! Choir! (F. Smith & Patti Smith)
    Both Sides Now / Joni Mitchell (Joni Mitchell)
    UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
    54 min
  • Ofbeldi gegn eldri borgurum, rannsóknir á barnamat og mannleg samskipti með Valdimari
    Við fræddumst um ofbeldi gegn eldri borgurum í dag í kjölfar málþings sem Landsamband eldri borgara stóð fyrir um hvernig hægt er að tryggja öryggi eldri borgara og þar sem varpað var ljósi á algengi ofbeldis gegn eldri borgurum á Íslandi. Þeir Björn Snæbjörnsson og Sigurður Ágúst Sigurðsson skrifuðu grein á visir.is þar sem þeir fóru yfir það sem kom fram á þinginu og þeir komu einmitt til okkar í dag og sögðu okkur frá því.
    Í nýjasta tölublaði af Neytendablaðinu er sjónum beint að yngstu neytendunum. Eðli máls samkvæmt njóta börn og unglingar meiri neytendaverndar en þau sem eldri eru en því miður er þó víða pottur brotinn. Systursamtök Neytendasamtakanna í Noregi og Bretlandi birtu nýlega rannsóknir sem sýna að barnamatur í verslunum er ekki alltaf eins hollur og fólk heldur og þetta kemur mörgum foreldrum í opna skjöldu því þeir treysta því að strangar reglur gildi um barnamat. Maukaður matur í skvísum telur nú um þriðjung alls barnamatar í verslunum og fingramatur, sem svo er kallaður, nýtur einnig vaxandi vinsælda. Sérfræðingar í næringu ungbarna, erlendis sem hérlendis, hafa áhyggjur af þróuninni, Brynhildur Pétursdóttir er ritstjóri Neytendablaðsins og hún sagði okkur betur frá þessum rannsóknum á barnamat í þættinum í dag.
    Valdimar Svavarsson ráðgjafi kom til okkar í dag og við héldum áfram að tala um mannlegi samskipti. Valdimar tók upp þráðinn þar sem hann endaði síðasta fimmtudag, með ástarsambönd, mismunandi þarfir og væntingar og hlutverk sem við göngum í í samböndum. Hann fór svo yfir grunn langlífra sambanda, hvað þarf til að samband verði langlíft og hverjar eru viðvörunarbjöllurnar sem geta komið því úr jafnvægi.
    Tónlist í þættinum:
    Það þarf fólk eins og þig / Rúnar Júlíusson (Buck Owens, texti Rúnar Júlíusson)
    Fallegur dagur / Bubbi Morthens (Bubbi Morthens)
    Orðin mín / Sigurður Guðmundsson og Memfismafían (Bragi Valdimar Skúlason)
    It’s a Good Day / Peggy Lee (Peggy Lee & Dave Barbour)
    UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
    54 min
  • Að þýða Shakespeare, Slagdagurinn á laugardaginn og Fadó tónlist á íslensku
    Þórarinn Eldjárn, rithöfundur og ljóðskáld, kom í þáttinn í dag. Hann þarf auðvitað ekki að kynna fyrir hlustendum, hann hefur sent frá sér fjölda ljóðabóka, smásagna og skáldsagna sem eru samofin menningu okkar. Auk þess hefur hann þýtt mikið úr Norðurlandamálum og ensku, en hann lærði í Svíþjóð og bjó þar nánast allan áttunda áratuginn. Þórarinn hefur þýtt fjögur leikrita Shakespeare og við ræddum við hann um það í dag, því það er ekkert smá verkefni, enda eru þau að mestu í bundnu máli. Stakhendur Shakespeare og flókinn orðaforði þeirra er ekki bara hristur fram úr erminni, og í ljósi umræðna um stöðu íslenskunnar var mjög áhugavert að heyra hvernig Þórarinn fer í slíkar glímur.
    Slagdagurinn svokallaði er núna á laugardaginn, þetta er dagur alþjóðlegs átaks gegn slagi eða heilablóðfalli. Slagdagurinn verður í Kringlunni í Reykjavík og á Glerártorgi Akureyri frá kl.13-15. Dr. Anna Bryndís Einarsdóttir taugasérfræðingur og yfirlæknir taugadeildar Landspítalans, og Þórir Steingrímsson formaður Heilaheilla komu í þáttinn og fóru meðal annars yfir þau einkenni sem við þurfum að vera vakandi fyrir og gætu bent til slags.
    Kristjana Arngrímsdóttir söngkona og José Manuel Neto, einn virtasti gítarleikari samtímans á portúgalskan gítar, koma saman á fadotónleikum í Hörpu 1. nóvember. Það er ekki á hverjum degi sem tækifæri gefst á að heyra Fado tónlist á Íslandi á tónleikum en og hér gefst tækifæri til þess að heyra portúgalska örlagatónlist og íslensk ljóð og lög fléttast saman. Kristjana kom í þáttinn í dag.
    Tónlist í þættinum í dag:
    Dagar og nætur / Björgvin Halldórsson (Jóhann G. Jóhannsson)
    Þakka þér fyrir / Stefán Hilmarsson (Gunnar Þórðarsson, texti Stefán Hilmarsson)
    One of These Things First / Nick Drake (Nick Drake)
    Lítið ástarljóð / Kristjana Arngrímsdóttir (Kristjana Arngrímsdóttir, texti Elísabet Geirmundsdóttir)
    UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
    54 min

About Mannlegi þátturinn

From the publisher's feed

Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1. Netfang: [email protected]. Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.

More shows like Mannlegi þátturinn

Segðu mér by RÚV

Segðu mér

19 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

471 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

131 Listeners

Fókus by DV

Fókus

2 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

90 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

22 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

18 Listeners

Menn eins og við / Einmitt hlaðvarp by Einar Bárðar og Baldur Rafn Gylfason

Menn eins og við / Einmitt hlaðvarp

4 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

21 Listeners

Spjallið by Spjallið Podcast

Spjallið

14 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

36 Listeners

Undirmannaðar by Undirmannaðar

Undirmannaðar

5 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

8 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

25 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

11 Listeners