Mannlegi þátturinn

Mannlegi þátturinn

Download on the App Store

Mannlegi þátturinn episodes

  • Inflúensa, prótein og veðurspjall
    Við tölum um flensuna í þætti dagsins. Umsjónarmönnum Mannlega þáttarins hafa borist fregnir af fólki sem hefur veikst nokkuð kröftuglega af inflúensu í þessum mánuði, sem okkur þykir nú full snemmt, október er rétt að verða hálfnaður. Guðrún Aspelund sóttvarnalæknir ætlar að spjalla við okkur um inflúensu, hvernig hún hegðar sér - er hún óvenju snemma á ferðinni? Og viðbrögðin - eru bólusetningar t.d. hafnar?
    Prótein virðist vera heilsuorð haustsins og aukin prótein-inntaka er eitthvað sem víða er mælt með. En í frumskógi upplýsinga er oft erfitt að finna rétt svör og þá leitar maður til fagfólksins. Þórhallur Ingi Halldórsson er prófessor við matvæla og næringarfræðideild, við spyrjum hann út í neyslu próteina og hvort hættulegt sé að borða of mikið af því.
    Í veðurspjallinu með Einari Sveinbjörnssyni tölum við meðal annars um kakó en kakóræktun er viðkvæm fyrir veðurfarssveiflum og breytingum. 60-70% af öllu kakói kemur frá tveimur ríkjum í Afríku og ef veður svíkur þar er umtalsverð hætta á að heimsmarkaðsverð á kakói margfaldist. Við ræðum líka um sumarveðráttuna á Íslandi og fleira.
    Umsjón: Guðmundur Pálsson og Guðrún Gunnarsdóttir
    Tónlist í þætti dagsins:
    Haraldur Reynisson - Hámenningin.
    Fjallabræður og Lay Low - Hvíl í ró.
    Hjálmar og Prins Póló - Grillið inn.
    54 min
  • Vínlaus lífsstíll, ofsafengin sjálfsrækt og lesandi vikunnar
    Sífellt fleiri velja sér vínlausan lífsstíl og nú er til dæmis hægt að sækja námskeið í því að tileinka sér þann lífsstíl, Full af lífi-vínlaus lífsstíll. Þau Gunnar Hersveinn heimsspekingur og rithöfundur og Margrét Leifsdóttir arkitekt og heilsumarkþjálfi hafa hannað námskeiðið í samstarfi við SÁÁ og þau segja að það krefjist að sjálfsögðu hugrekkis að breyta líferni sínu og hætta því sem telst eðlilegt í samfélaginu en ferlið sé afar lærdómsríkt og veiti frelsi. Margrét Leifsdóttir er gestur Mannlega þáttarins.
    Við tölum líka við Hafrúnu Kristjánsdóttur, sem er deildarforseti íþróttafræðideildar Háskólans í Reykjavík og sálfræðingur. Hún hefur undanfarið velt mikið fyrir sér því sem hún kallar „ofsafengna sjálfsrækt“ og hvernig nútímakröfur og það að vera sífellt að reyna að toppa sig getur snúist upp í andhverfu sína. Hún flutti í síðustu viku erindi um þetta í opnu streymi sem nú er aðgengilegt á vef HR. Þar leggur hún út af hugmyndum um ofurmanneskjur, sem birtast okkur helst sem afreksfólk í íþróttum og tengir við hugmyndir fólks um að reyna í sífellu að „besta“ sig, hugmyndir sem í mörgum tilfellum eru knúnar áfram af samfélagsmiðlum. Hún leggur áherslu á hvað við getum gert til að ná sem bestu jafnvægi í lífinu með skynsemina í fyrirrúmi.
    Og lesandi vikunnar er Sigrún Eldjárn einn ástsælasti barnabókahöfundur þjóðarinnar en hún var tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunaanna og Fjöruverðlaunanna fyrir bók sína Sigrún á safninu sem kom út í fyrra. Í þeirri bók sagði hún frá æskuheimili sínu á þjóðminjasafninu og nú er komin út ný bók Torf,grjót og burnirót þar sem útskýrt er hvernig torfbær er reistur. En Sigrún segir okkur frá bókum og höfundum sem hafa haft áhrif á hana í gegnum tíðina.
    Tónlist í þættinum í dag:
    Handaband - Possibillies
    If paradise is half as nice - Amen Corner
    Vals nr.1 - Magnús Eiríksson
    UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUÐMUNDUR PÁLSSON
    52 min
  • Jóhann og Edda föstudagsgestir og kjötsúpumatarspjall
    Við vorum með tvo föstudagsgesti að þessu sinni, tónlistarfólkið Edda Borg og Jóhann Helgason en þau verða saman á útgáfutónleikum Jóhanns í Bæjarbíói en hann er að gefa út nýja sólóhljómplötu með nýjum lögum en það gerði hann síðast árið 1999. Jóhann og Edda kynntust fyrst þegar þau hittust í því einstaka og sögufræga hljóðveri Hljóðrita fyrir margt löngu síðan. Þau Jóhann og Edda tóku einnig lagið fyrir okkur, já það var lifandi tónlistarflutningur og spjall með þeim í dag.
    Matarspjallið var auðvitað á sínum stað, Sigurlaug Margrét kom í heimsókn með svuntuna bundna um mittið og beindi sjónum sínum að kjötsúpunni, lambakjöti og öðrum súpum.
    Tónlist í þættinum:
    Karen / Bjarni Arason (Jóhann Helgason, texti Björn Björnsson)
    Aðeins lengur - Jóhann Helgason og Edda Borg (Jóhann Helgason, texti Björn Björnsson)
    She’s Done it Again / Jóhann Helgason og Edda Borg (Jóhann Helgason, texti Andre Matza)
    UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
    54 min
  • Klúbburinn Geysir, Roof Tops og hlutverk innan fjölskyldunnar með Valdimari Þór
    Í meira en tuttugu ár hefur Klúbburinn Geysir markað spor sín í geðheilbrigðismálum Íslendinga með því að bjóða einstaklingum með geðrænar áskoranir hlutverk, ábyrgð og tækifæri til þess að hafa stöðugleika í lífi sínu. Klúbburinn starfar eftir gagnreyndri hugmyndafræði Clubhouse International og er tilgangur hans að virkja félaga klúbbsins til þátttöku í samfélaginu.Benedikt Gestsson, aðstoðarframkvæmdastjóri klúbbsins, og Sigurður Guðmundsson, sem nýtir sér starfsemi Geysis, komu í þáttinn í dag í tilefni Alþjóðlega geðheilbrigðisdagsins sem er á morgun.
    Þeir félagar í hljómsveitinni Roof Tops ætla að flytja lög Bítlana í Salnum í Kópavogi eftir viku og allir textarnir verða á íslensku en það er Þorsteinn Eggertsson sem hefur samið þá. Við ræddum í dag við þá Guðmund Hauk Jónsson og Ara Jónsson hljómsveitarmeðlimi Roof Tops.
    Svo voru það Mannlegu samskiptin með Valdimari Þór Svavarssyni ráðgjafa. Samskiptin geta verið flókin og Valdimar var að segja okkur síðasta fimmtudag frá hlutverkum sem fjölskyldumeðlimir gjarnan raðast í, sérstaklega ef einhvers konar vanvirkni er til staðar. En hann náði ekki að klára þá umræðu þannig að hann hélt áfram með hlutverkin innan fjölskyldna í þættinum í dag.
    Tónlist í þættinum í dag:
    (Just like) Starting Over / John Lennon (John Lennon)
    Söknuður / Roof Tops (S. Oldham, D. Penn, texti Stefán G. Stefánsson)
    With You / Roof Tops (Jón Pétur Jónsson, texti Guðmundur Haukur Jónsson)
    Hæ Mambó / Haukur Morthens (Merrill, texti Loftur Guðmundsson)
    UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
    50 min
  • Heimildarmynd um heilatengda sjónskerðingu, súrdeigsráðgjafi og rafrænt námskeið um makamissi
    Annað kvöld verður sýnd heimildarmynd á RÚV eftir Bjarney Lúðvíksdóttur um heilatengda sjónskerðingu eða CVI, myndin heitir á íslensku Fyrir allra augum og er eina heimildarmyndin í heiminum í fullri lengd um heilatengda sjónskerðingu. Myndin fjallar um Dagbjörtu Andrésdóttur, metnaðarfullan söngnema sem les ekki nótur heldur lærir þær með eyranu en það dugar ekki til að útskrifast. Í leit að svörum uppgötvar hún, 26 ára, að hún hefur verið blind frá fæðingu með heilatengda sjónskerðingu, eða CVI. Dagbjört kom í þáttinn í dag ásamt Elínu Sigurðardóttur, vinkonu sinni, sem fylgir Dagbjörtu í myndinni.
    Við töluðum svo við Sæunni Öldudóttur, hún ber þann flotta titil að vera súrdeigsráðgjafi. Hún hefur haldið fjölda námskeiða þar sem hún hjálpar fólki að ná tökum á súrdeiginu. Hún stefnir á að opna lítið bakarí, en hún hefur selt brauð lengi og búið til deig fyrir verslanir. Sæunn fræddi okkur um grunnatriðin í súrdeigi og ýmsu súrdeigstengdu hér á eftir.
    Þær Guðfinna Eydal sálfræðingur og Anna Ingólfsdóttir, rithöfundur og jógakennari, gáfu út bókina MAKAMISSIR fyrir nokkrum árum sem fékk góðar viðtökur og sýndi að þörf er fyrir stuðning við fólk sem hefur misst maka. Nú bjóða þær stöllur uppá rafrænt námskeið þar sem þær fara dýpra og ítarlegar í málefnið en námskeiðið veitir fræðslu, samkennd og stuðning sem hjálpar til við úrvinnslu sorgar og að ná sálrænni endurheimt. Anna kom í þáttinn í dag og sagði frá.
    Tónlist í þættinum í dag:
    Og co / Vilhjálmur Vilhjálmsson (Magnús Þór Sigmundsson, texti Vilhjálmur Vilhjálmsson)
    Ítalskur calypso / Erla Þorsteinsdóttir (L. Monte & W. Merrell)
    Dansað á dekki / Fjörefni (P. Nicholas, texti Ellert Borgar Þorvaldsson)
    Við gengum tvö / Ingibjörg Smith (Friðrik Jónsson, texti Valdimar Hólm Hallstað)
    UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
    53 min
  • Sálfræði peninganna, Ragnheiður Gröndal og Friðbjörn og Akureyrarklíníkin á Heilsuvaktinni
    Tvö viðfangsefni hafa áhrif á okkur öll hvort sem við höfum áhuga á þeim eða ekki: heilsa og peningar. Fólk hefur mjög mismunandi viðhorf til peninga og hegðun okkar þegar kemur að fjármálum fer gjarnan frekar eftir tilfinningum okkar til þeirra en því sem við mögulega kunnum og vitum. Hjónin Georg Lúðvíksson og Kristrún Tinna Gunnarsdóttir þýddu saman bókina Sálfræði peninganna eftir Morgan Housel sem er nýkomin út. Þau komu til okkar í dag og sögðu okkur frá bókinni og þeirra sameiginlega áhugamáli, en eins og þau segja sjálf þá er fjármálanördar hugtak sem á ágætlega við um þau.
    Ragnheiður Gröndal tónlistarkona var ein af þeim sem hlaut starfslaun til eins árs, sem tónskáld og tónlistarflytjandi. Hún segir að það hafi verið kærkomið að fá næði og rými til eigin tónsmíða og er með mörg járn í eldinum. Við heyrðum í henni í þættinum og hún leyfði okkur að heyra nýtt lag sem er ekki enn komið út.
    Svo var það Heilsuvaktin. Akureyrarklíníkin hefur á einu ári frá stofnun tekið á móti rúmlega fimm hundrað manns sem greinst hafa með langvinnan Covid sjúkdóm. Friðbjörn Sigurðsson einn úr læknateyminu þar segir sjúkdóminn einkennast af mikilli örmögnun og ofsaþreytu og að sjúklingar sem greinist með hann hafi hvað mesta sjúkdómsbyrði af öllum sjúkdómum sem Friðbjörn hefur komist í kynni við sem fyrrverandi krabbameinslæknir. Hann sé enn ólæknanlegur og læknar viti ekki hvaða lyf og meðferðir reynist bestar fyrir sjúklinga. Það sé þó von því mikil vitundarvakning hafi orðið undanfarin misseri um sjúkdóminn. Friðbjörn segist hafa trú á því að lækning eða lyf finnist samhliða auknum rannsóknum í náinni framtíð. Helga talaði við Friðbjörn á Heilsuvaktinni í dag.
    Tónlist í þættinum í dag:
    Verst af öllu / Ríó Tríó (Evert Taube, texti Jónas Friðrik Guðnason)
    Allar mínar götur / Halli Reynis og Vigdís Jónsdóttir (Halli Reynis)
    Ég þakka / Ragnheiður Gröndal (Ragnheiður Gröndal)
    UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
    50 min
  • Skítamix hljómsveitarinnar Evu, Lovísa Ósk og ÍD og Guðrún lesandi vikunnar
    Hljómsveitin Eva var einu sinni efnileg framúrstefnuhljómsveit og sviðslistahópur en þarf nú að horfast í augu við raunveruleikann; andleg veikindi, dauðann, adhd greiningar, snemmbúið breytingaskeið og þá staðreynd að þær hafa ekki samið nýtt lag í fimm ár. Svona hljómar kynning á verkinu Kosmískt skítamix sem þær stöllur Vala Höskuldsdóttir og Sigríður Eir Zophoníasardóttir, sem einmitt skipa Hljómsveitina Evu, munu frumsýna á föstudaginn. Í verkinu munu þær segja fólki frá því sem á daga þeirra hefur drifið í þessum grátbroslega en kosmíska tónleik. Vala og Sigríður komu í þáttinn í dag.
    Við kláruðum svo í dag yfirferð okkar um sviðslistahúsin til að kynna okkur hvað verður á fjölum þeirra í vetur. Nú er komið að Íslenska dansflokknum. Lovísa Ósk Gunnarsdóttir er listdansstjóri þar og hún var með okkur í dag og sagði frá því hvað er á döfinni hjá ÍD þennan veturinn.
    Svo var það lesandi vikunnar, sem í þetta sinn var Guðrún Steinþórsdóttir bókmenntafræðingur og aðjúnkt við Menntavísindasvið HÍ. Guðrún sagði okkur frá því hvaða bækur hún hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hana í gegnum tíðina. Guðrún talaði um eftirafarandi bækur og höfunda:
    Atburðurinn e. Annie Ernaux
    Móðurást: Oddný og Móðurást: Draumþing e. Kristínu Ómarsdóttur
    Gervigul e. Rebecca F. Kuang
    Fyrir vísindin e. Önnu Rós Árnadóttur
    Tove Janson, Astrid Lindgren, Guðrún Helgadóttir, Vigdís Grímsdóttir, Steinunn Sigurðardóttir, Isabel Allende og Toni Morrison.
    Tónlist í þættinum í dag:
    Kiddi Kadilakk / Mannakorn (Magnús Eiríksson)
    Ævilagið / Hljómsveitin Eva (Jóhanna Vala Höskuldsdóttir og Sigríður Eir Zophoníasardóttir)
    Good Vibrations / The Beach Boys (Brian Wilson & Mike Love)
    UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
    52 min
  • Edda Björgvins og Ragnar Bragason föstudagsgestir og morgunmatur í matarspjallinu
    Í dag voru föstudagsgestirnir tveir, annar var með okkur hér í Reykjavík, Ragnar Bragason leikstjóri, og fyrir norðan í hljóðveri RÚVAK var Edda Björgvinsdóttir leikkona, en þau frumsýna nýja sjónvarpsþáttaröð, Felix og Klöru hér á RÚV á sunnudaginn. Edda og Jón Gnarr leika titilhlutverkin, hjónin Felix og Klöru sem standa á tímamótum. Við fengum þau auðvitað til að segja okkur aðeins frá nýju þáttaröðinni, en svo fórum við líka aftur í tímann eing og við gerum gjarnan með föstudagsgestum þáttarins, en í dag rifjuðu Ragnar og Edda upp sambandið við ömmur þeirra og afa og það að eldast.
    Svo var matarspjallið með Sigurlaugu Margréti auðvitað á sínum stað. Í dag töluðum við um mismunandi morgunmat, jafnvel bröns, íslenskar, amerískar og japanskar pönnukökur, og mismunandi aðferðir til að elda egg.
    Tónlist í þættinum í dag:
    Handaband / Possibillies (Jón Ólafsson, texti Sigmundur Ernir Rúnarsson)
    Kossaflóð / Mugison (Örn Elías Guðmundsson)
    Það blanda allir landa upp til stranda / Lónlí blú bojs (Merle Haggard, texti Þorsteinn Eggertsson)
    UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
    52 min
  • Kaffistofa Samhjálpar, Hlæjum fyrir milljón og hlutverk innan fjölskyldna
    Kaffistofa Samhjálpar mun flytja á Grensásveginn og opna þar í desember en á meðan á framkvæmdum þar stendur verður kaffistofan opin í Hvítasunnukirkjunni við Hátún. Samhjálp hefur undanfarin ár leitað logandi ljósi að nýjum stað fyrir kaffistofuna sem hefur verið í Borgartúni í Reykjavík frá 2007. Fyrirkomulagið á nýja staðnum mun breytast þannig að þjónusta við skjólstæðinga verður aðskilin eldhúsinu. Það veitir aukin tækifæri segir framkvæmdastýra samtakanna Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir sem kom í þáttinn í dag.
    Gleðismiðjan hefur starfað í fimm ár við að skapa gleði, eins og nafnið segir. Smiðjan býður upp á hópeflisæfingar, hláturjóga og fleira fyrir fyrirtæki og allar gerðir hópa. Í staðinn fyrir að halda afmælisveislu í tilefni fimm ára afmælisins ætlar Gleðismiðjan að láta gott af sér leiða með því að ýta úr vör verkefninu Hlæjum fyrir milljón þar sem allar tekjur renna óskiptar til Geðhjálpar. Finnbogi Þorkell Jónsson og Þorsteinn Gunnar Bjarnason, eigendur Gleðismiðjunnar, sögðu okkur betur frá þessu í þættinum í dag.
    Svo kom Valdimar Þór Svavarsson til okkar að ræða mannleg samskipti, sem geta verið talsvert snúin eins og hefur komið fram í spjalli okkar við hann undanfarna fimmtudaga. Í dag sagði hann okkur frá hlutverkum sem fjölskyldumeðlimir gjarnan raðast í, sérstaklega ef einhvers konar vanvirkni er til staðar.
    Tónlist í þættinum í dag:
    Landleguvalsinn / Haukur Morthens (Jónatan Ólafsson, texti Númi Þorbergsson)
    Megi dagur hver fegurð þér færa / Ragnar Bjarnason (Green & Wile, texti Jóhanna G. Erlingsson)
    Yummy Yummy Yummy / Ohio Express (Arthur Resnick & Joe Levine)
    Massachusetts / Bee Gees (Barry, Robin, Maurice Gibb)
    UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
    54 min
  • Læknanemi í Moulin Rouge, sjálfboðaliðar á Ryder Cup og hraðstefnumót í Bíó Paradís
    Moulin Rouge, söngleikurinn sem gerist á samnefndum skemmtistað í París í lok 19. aldarinnar og er gerður upp úr gríðarlega vinsælli kvikmynd frá árinu 2001, var frumsýndur um helgina í Borgarleikhúsinu. Þetta er mikið sjónarspil, söngur, dans, eldheit ást í meinum, veisla fyrir augu og eyru. Þetta var frumraun Péturs Ernis Svavarssonar á Stóra sviðinu, en hann fer með hlutverk Babydoll sem er ein af söngdívum staðarins. Pétur er með BA í klassískum píanóleik og söng, hann hefur einnig klárað meistaranám í söngleikjum frá Royal Academy of Music í London og eins og það sé ekki nú, núna er hann í læknisfræði í HÍ og þurfti til dæmis að fá frí á æfingum til að fara í próf í læknisfræðinni. Það er greinilega nóg um að vera hjá Pétri Erni og við fengum hann til að segja okkur betur frá í dag.
    Annað hvert ár fer fram einn stærsti viðburður í heimi kylfinga, Ryder Cup, þar sem lið samansett af 12 bestu kylfingum Evrópu keppa á móti 12 bestu kylfingum Bandaríkjanna. Gríðarlegur fjöldi mætir á staðinn til að horfa hvetja sitt lið og eðlilega flestir sem halda með heimaliðinu, en keppnin er haldin til skiptis vestan hafs og í Evrópu. Meðal rúmlega fjögur þúsund sjálfboðaliða á Ryder bikarnum í ár, sem fór fram um síðustu helgi í New York, voru hjónin Kjartan Drafnarson og Guðrún Jóhanna Hallgrímsdóttir. Við slógum á þráðinn til þeirra og fengum að vita hvernig það kom til, hvað felst í því að vera sjálfboðaliði á svona móti og svo komumst við ekki hjá því að ræða framkomu áhorfenda, sem talsvert var fjallað um í fréttum, en þau segja að sjónvarpsáhorfendur hafi bara séð smá brot af því sem þar gerðist.
    Klukkan sjö í kvöld hefjast svo aftur hraðstefnumót í Bíó Paradís og nú er fólk á aldrinum 45-60 ára hvatt til að koma en sárlega vantar þó fleiri karlmenn á stefnumótin sem þó hafa verið afar vinsæl og mæting góð. Við heyrðum meira af þessum stefnumótum frá Hrönn Sveinsdóttur og Ásu Baldursdóttur sem halda um stjórnartaumana í Bíó Paradís.
    Tónlist í þættinum í dag:
    Lífsbókin / Bergþóra Árnadóttir (Bergþóra Árnadóttir, ljóð Laufey Jakobsdóttir)
    Ég skal bíða þín / Helgi Björns og reiðmenn vindanna (Michel Legrand, texti Hjördís Morthens)
    Rikki Don’t Lose that Number / Steely Dan (W. Becker & Donald Fagan)
    Everybody´s Talking / Harry Nilsson (Fred Neil)
    UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
    53 min

About Mannlegi þátturinn

From the publisher's feed

Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1. Netfang: [email protected]. Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.

More shows like Mannlegi þátturinn

Segðu mér by RÚV

Segðu mér

19 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

471 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

131 Listeners

Fókus by DV

Fókus

2 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

90 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

22 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

18 Listeners

Menn eins og við / Einmitt hlaðvarp by Einar Bárðar og Baldur Rafn Gylfason

Menn eins og við / Einmitt hlaðvarp

4 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

21 Listeners

Spjallið by Spjallið Podcast

Spjallið

14 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

36 Listeners

Undirmannaðar by Undirmannaðar

Undirmannaðar

5 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

8 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

25 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

11 Listeners