Mannlegi þátturinn

Mannlegi þátturinn

Download on the App Store

Mannlegi þátturinn episodes

  • Meðfæddir ónæmisgallar, Álfastund í Borgarnesi og Veðurspjallið í beinni frá Ísafirði
    Lind, félag fólks með meðfædda ónæmisgalla, vill vekja athygli á því að félagsmenn þess geta þurft á ævilangri lyfjagjöf að halda. Fram að þessu hafa flestir farið inn á sjúkrahús á þriggja til fjögurra vikna fresti í lyfjagjöf og þurfa þá að sækja lyfjagjöfina á Landspítala sama hvar á landinu þau búa. En annar möguleiki er lyfjagjöf undir húð með dælu heima einu sinni í viku og sá möguleiki eykur lífsgæði sjúklinga verulega, tekur t.d. minni tími frá vinnu og skóla, fyrir utan mikinn sparnað fyrir heilbrigðiskerfið. Í þessari viku heldur félagið tvo fræðslufundi, annan fyrir fagfólk í heilbrigðiskerfinu og hinn fyrir almenning. Guðlaug María Bjarnadóttir, leikkona og kennari hefur átt við meðfæddan ónæmisgalla að stríða alla ævi, kom í þáttinn í dag ásamt Sigurveigu Þ. Sigurðardóttur lækni og sérfræðing í barna- og ónæmislækningum.
    Við forvitnuðumst svo um málþingið Álfastund, um álfa og huldufólk, sem verður haldið í Borgarnesi á laugardaginn. Þar verða flutt stutt erindi frá ólíkum sjónarhornum sjáenda, fræðafólks, listafólks og almennings. Bryndís Fjóla Pétursdóttir garðyrkjufræðingur, heilari og starfandi völva, kom í þáttinn ásamt Sigríði Ástu Olgeirsdóttur sviðslistakonu en þær munu báðar tala á málþinginu.
    Svo var það veðurspjallið með Einari Sveinbjörnssyni, hann var í beinu sambandi frá Ísafirði þar sem hann sækir ráðstefnuna SNOW2025, sem haldin er í tilefni þess að nú eru um 30 ár frá snjóflóðunum miklu 1995. Hann sagði okkur aðeins frá því sem þar fer fram og til dæmis nýju skafrennings- og snjósöfnunarlíkani sem hann og sonur hans, Sveinn Gauti, kynntu þar. Svo sagði Einar okkurfrá fellibyljunum Humberto og Imeldu sem að óbreyttu gætu orðið að skaðræðislægð með stefnu á Bretlandseyjar og munu líka hafa áhrif á spánna hér á landi í lok vikunnar.
    Tónlist í þættinum í dag:
    Ég veit þú kemur / GDRN og Magnús Jóhann (Oddgeir Kristjánsson, texti Ási í Bæ)
    Puppet on a String / Sandie Shaw (Bill Martin, texti Phil Coulter)
    Kall sat undir kletti / Þokkabót (Jórunn Viðar, texti Halldór Björnsson)
    You've Lost that Lovin' Feeling / Righteous Brothers (Phil Spector, Cynthia Weil og Barry Mann)
    UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIr
    55 min
  • Leikveturinn í Landnámssetrinu, virkni eldri borgara og Sigrún lesandi vikunnar
    Við héldum áfram yfirferð okkar yfir það sem verður á leiksviðum leikhúsanna í vetur. Í dag var komið að Landnámssetrinu í Borgarnesi. Kjartan Ragnarsson og Sigríður Margrét Guðmundsdóttir ráða ríkjum þar og Kjartan kom til okkar og sagði okkur sögu Landnámssetursins, sem verður 20 ára næsta vor og svo fór hann með okkur yfir það sem verður á döfinni hjá þeim þennan leikveturinn.
    Nú er að ljúka Íþróttaviku Evrópu eða „#BeActive“, sem er alþjóðlegt hvatningarátak um hreyfingu og bætta heilsu. Við ræddum við Lýðheilsufulltrúa Reykjavíkurborgar, Hörpu Þorsteinsdóttur, um félagslega virkni eldra fólks í Reykjavík og bætt lífsgæði þeirra.
    Svo var það lesandi vikunnar sem í þetta sinn var Sigrún Alba Sigurðardóttir rithöfundur og doktorsnemi við Hugvísindasvið Háskóla Íslands. Við fræddumst aðeins um nýju bókina hennar, Þegar mamma mín dó og svo fengum við auðvitað að vita hvaða bækur hún hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hana í gegnum tíðina. Sigrún talaði um eftirfarandi bækur og höfunda:
    Rúmmálsreikningur (Om udregning af rumfang) VI e.Solvej Balle
    På Sct. Jørgen e. Amalie Skram
    Vi er fem e. Mathias Faldbakken
    Har døden taget noget fra dig så giv det tilbage - Carls bog
    e. Naja Marie Aidt
    Svo talaði hún um höfundana Astrid Lindgren, Guðrúnu Helgadóttir, Anne-Cath Vestly, Milan Kundera, Dostojevski og Isabel Allende
    Tónlist í þættinum í dag:
    Ljúfa vina / Ragnar Bjarnason og Sigrún Jónsdóttir (Ólafur Gaukur, Jón Sigurðsson og Jón Sigurðsson, texti Ólafur Gaukur og Indriði G. Þorsteinsson)
    Ó ljúfa líf / Flosi Ólafsson (erlend lag, texti Flosi Ólafsson)
    Heim / Magni Ásgeirsson (Magni Ásgeirsson og texti Magni Ásgeirsson og Ásgrímur Ingi Arngrímsson)
    UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIr
    51 min
  • Sigurður Sigurjónsson föstudagsgestur og herragarðsmatarboð
    Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var Sigurður Sigurjónsson leikari og leikstjóri. Hann fór mjög ungur í leiklistarskólann og vakti fljótt athygli eftir útskrift. Auðvitað hefur grínið, Spaugstofan, Skaupin og margt fleira, verið fyrirferðamikið í hans ferli, en hann er einnig frábær í alvarlegri hlutverkum og í seinni tíð hefur hann einnig verið fantagóður í hlutverki skúrka. Það var virkilega gaman að spjalla við Sigurð, einn ástsælasta leikara þjóðarinnar, fara með honum aftur í tímann á æskuslóðirnar í Hafnarfirðinum og svo fengum að vita hvað hann er að bardúsa þessa dagana.
    Svo var það matarspjallið með Sigurlaugu Margréti sem var auðvitað á sínum stað. Veðurspáin var ekki góð því var um að gera að hafa það huggulegt og búa til góðan mat og Sigurlaug var á herragarðsslóðum í matarboðshugleiðingum.
    Tónlist í þættinum í dag:
    Ég lifi í draumi / Björgvin Halldórsson (Eyjólfur Kristjánsson, texti Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson)
    Teach Your Children / Crosby, Stills, Nash & Young (Graham Nash)
    Father and son / Cat Stevens (Cat Stevens)
    UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
    50 min
  • Að gleyma sér, söngvar úr suðri og norðri og innra og ytra virði
    Ólafur Þór Ævarsson geðlæknir var hjá okkur í dag, en hann skrifar mikið af pistlum og hugleiðingum sem hann deilir meðal annars á akureyri.net. Þar hefur hann meðal annars skrifað um geðheilsu aldraðra, orkuveitu heilans, það að vera öðruvísi og það að gleyma sér. Við ræddum við Ólaf í dag um mikilvægi þess að gleyma sér og nokkrar aðferðir til þess.
    Við litum inná æfingu í Salnum í gær, þar hittum við óperusöngvarana Kristinn Sigmundsson Kolbein Ketilsson og píanóleikarann Matthildi Önnu Gísladóttur. Á morgun halda þau tónleika með söngvum úr suðri og norðri, en dagskránni verða íslensk og erlend sönglög úr ýmsum áttum.
    Valdimar Þór Svavarsson ráðgjafi var svo hjá okkur í dag það sem við köllum Mannleg samskipti. Hann hefur fjallað undanfarna fimmtudaga um áföll og afleiðingar þeirra, sem til dæmis hafa áhrif á samskipti. Svo talaði hann um meðvirkni, til dæmis í uppeldi og þau áhrif sem geta fylgt. Í dag talaði hann svo um innra og ytra virði okkar og hvernig getur verið misræmi þar á milli.
    Tónlist í þættinum í dag:
    Ég vil fara upp í sveit / Ellý Vilhjálms (Carasella, texti Jón Sigurðsson)
    Allt í gúddí / Ólöf Arnalds (Ólöf Arnalds)
    Fly me to the Moon / Frank Sinatra og hljómsveit Count Basie (Bart Howard)
    Það er draumur að vera með dáta / Soffía Karlsdóttir (Edward Brink, texti Bjarni Guðmundsson)
    UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
    53 min
  • Gæludýra- og húsapössun, BragðaGarður og Dávur í Dali
    Hunda-, katta- og gæludýraeigendur þekkja það að það getur verið snúið að fá pössun fyrir dýrin ef þau þurfa að fara erlendis eða eitthvað slíkt. Arnrún Bergljótardóttir stofnaði Sporið þar sem hún býður upp á heimapössunarþjónustu fyrir gæludýr og þá í leiðinni heimilin, á meðan eigendurnir eru ekki heima. Þar hugsar hún um allar þarfir dýrsins eða dýranna og nú býður hún líka upp á ummönnun og hreyfingu hesta og fleira. Arnrún kom í þáttinn og sagði okkur aðeins frá Sporinu og hvernig þetta kom til.
    BragðaGarður er tveggja daga hátíð sem fagnar matarmenningu, sjálfbærni og líffræðilegri fjölbreytni og er haldin í Garðskálanum í Grasagarði Reykjavíkur. Hátíðin er haldin af Slow Food hreyfingunni og býður upp á fjölbreytta dagskrá fyrir alla aldurshópa. Dagskráinn á föstudeginum er sérstaklega sniðin að nemendum á framhaldsskólastigi og nemendur úr matvælagreinum við Menntaskólann í Kópavogi leiða jafningjafræðslu um flest það sem snýr að mat. Dóra Svavarsdóttir, matreiðslumeistari, kennari og formaður Slow Food á Íslandi kom í þáttinn ásamt Haraldi Sæmundssyni framkvæmdastjóra Hótel- og veitingaskólans í MK.
    Dávur í Dali er fyndnasti Færeyingurinn á Íslandi, a.m.k. sá eini sem við vitum af sem fæst við uppistand. Hann er núna með uppistand í Tjarnarbíó þar sem hann segir í stuttu máli frá sögu Færeyja á grafalvarlegan hátt. Aðalstarf hans er sálfræðingur hjá Kvíðameðferðarstöðinni, það var því um nóg að ræða við hann í dag.
    Tónlist í þættinum í dag:
    Af litlum neista / Pálmi Gunnarsson (Guðmundur Ingólfsson og Magnús Haraldsson)
    Fólkið í blokkinni / Eggert Þorleifsson (Ólafur Haukur Símonarson)
    Hvað um mig og þig? / Ragnhildur Gísladóttir (Magnús Eiríksson)
    Ljósvíkingur / Egill Ólafsson (Gunnar Þórðarson, texti Ólafur Haukur Símonarson)
    UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
    55 min
  • Draumar, málþing um byggðafestu ungs fólks og Hafdís Inga í Heilsuvaktinni
    Draumar eru sammannleg fyrirbæri og draumatúlkun getur hjálpað fólki við að takast á við ýmis viðfangsefni í sínu lífi, hvort heldur sem þau eru tengd tilfinningum, aðstæðum eða jafnvel flóknum úrlausnarefnum og vandamálum. Á námskeiðinu Draumar – spegill sálarinnar sem Arna Ýrr Sigurðardóttir prestur hefur verið með í nokkur ár, byggir Arna á sinni eigin reynslu af því að nota draumavinnu í sálgæslu.
    Á málþinginu „Hvað ef ég vil vera hér?“ sem fram fer á Höfn í Hornafirði í dag og á morgun er umfjöllunarefnið ungt fólk, byggðafestuna þeirra og framtíð á landsbyggðinni. Á þinginu verður ungt fólk frá Noregi, Svíþjóð, Danmörku og Íslandi og þau munu deila reynslu sinni. Eyrún Fríða Árnadóttir verkefnastjóri HeimaHafnar var á línunni í þættinum og sagði okkur betur frá málþinginu og stöðu ungs fólks á landsbyggðinni.
    Svo var það Heilsuvaktin með Helgu Arnardóttur. Hafdís Inga Helgudóttir Hinriksdóttir hefur glímt við langvinn veikindi eftir að hún fékk Covid fyrir þremur árum. Hún upplifði algjöra örmögnun, minnisleysi, mæði, heilaþoku, sjón og heyrnartruflanir, meltingartruflanir og fékk einnig sjúkdóminn Potts. Hafdís þakkar vökvagjöfum, háþrýstimeðferðum og lyfjum að hún sé á betri stað en fyrir ári en hún óttast afleiðingar niðurskurðar hins opinbera. Helga talaði við Hafdísi Ingu í Heilsuvaktinni í dag.
    Tónlist í þættinum í dag:
    Heitt toddý / Ellen Kristjánsdóttir (erlent lag, texti Friðrik Erlingsson)
    Draumalandið / Karlakór Reykjavíkur (Sigfús Einarsson, texti Jón Trausti (duln.f. Guðmund Magnússon))
    Tico tico / Les Baxter (Les Baxter)
    UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
    50 min
  • Leikárið hjá LA, innanhúshönnun og Silja Ingólfsd. lesandi vikunnar
    Við héldum áfram yfirferð okkar um leiksvið landsins þar sem skoðum hvað verður á fjölunum í leikhúsunum í vetur. Nú er komið að Leikfélagi Akureyrar, sem er hluti af Menningarfélagi Akureyrar, þar er leikhússtjóri Bergur Þór Ingólfsson, sem var í beinu sambandi frá hljóðveri RÚV á Akureyri. Bergur fór með okkur yfir hvað verður á döfinni hjá þeim í vetur.
    Í dag verður Katrín Ísfeld Guðmundsdóttir innanhússarkitekt með áhugavert spjall um innanhússhönnun á Borgarbókasafninu Árbæ þar sem hún gefur gestum og gangandi góð ráð. Í erindi sínu fer Katrín yfir það helsta sem þarf að hafa í huga varðandi hönnun heimilisins, svo sem grunnmynd rýmisins, flæði, litaval, stíl og fleira. Við skipulagningu heimila þurfi innanhússarkitektinn í meira mæli að lesa í hvaða fólk býr þar, hvernig það umgengst rýmið og hvaða stíll og litir höfða til þess. Katrín sagði betur frá þessu í þættinum.
    Lesandi vikunnar var í þetta sinn Silja Ingólfsdóttir, friðar- og átakafræðingur og upplýsingafulltrúi Veitna. Hún sagði okkur frá því hvaða bækur hún hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hana í gegnum tíðina. Silja sagði frá eftirfarandi bókum og höfundum:
    Franska Sveitarbýlið e. Jo Thomas
    Trílógían His Dark Materials e. Philip Pullman
    We Wish to Inform You That Tomorrow We Will Be Killed with Our Families: Stories from Rwanda e. Philip Gourevitch
    Guð kemur bara til Afghanistan til að gráta (Nach Afghanistan kommt Gott nur noch zum Weinen) e. Siba Shakib.
    Krossferð á gallabuxum e. Theu Beckman
    Kristín Steinsdóttir og Astrid Lindgren
    Tónlist í þættinum í dag:
    Komdu í kvöld / Ragnar Bjarnason (Jón Sigurðsson)
    Draumur fangans / Erla Þorsteinsdóttir (Freysteinn Jóhannsson eða 12.september)
    Sveitapiltsins draumur / Hljómar (Gunnar Þórðarson, texti Þorsteinn Eggertsson)
    UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
    52 min
  • Haraldur Þorleifsson föstudagsgestur og matarspjall um hvítlauk og skonsur
    Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var Haraldur Ingi Þorleifsson. Hann stofnaði hönnunarfyrirtækið Ueno árið 2014 í Bandaríkjunum, rekstur þess gekk gríðarlega vel, þau unnu fyrir mörg af stærstu fyrirtækjum í heiminum og það vakti mikla athygli þegar hann seldi fyrirtækið árið 2021 til Twitter og fjölskyldan flutti aftur til Íslands. Eftir það hefur Haraldur brallað ýmislegt, hann kom af stað og stjórnaði verkefninu Römpum upp Reykjavík, til að auðvelda aðgengi fyrir hjólastóla. Upprunanlega markmiðið var að byggja 100 rampa við fyrirtæki og verslanir í Reykjavík, en að lokum voru þeir orðnir yfir 1750 um allt land og nú hefur hann ýtt úr vör rampaverkefnum í Úkraínu og Panama. Hann minntist móður sinnar, Önnu Jónu, sem lést þegar hann var tíu ára og opnaði veitingastað í hennar nafni, samdi og gaf út eigin tónlist sem Önnu Jónuson. Haraldur er svo að auki með hlaðvarpsþætti, bæði á íslensku og ensku, þar sem hann spjallar við áhugavert fólk og í síðustu viku kom í ljós að hann er búinn að endurvekja Ueno, fyrirtækið sem hann seldi fyrir fjórum árum. Það var um nóg að tala við Harald í dag, við ferðuðumst með honum afturbak og áfram í tíma og rúmi, frá Vesturbænum til New York, Buenos Aires og Tokyo.
    Svo var auðvitað matarspjallið með Sigurlaugu Margréti á sínum stað. Í dag spjölluðum við um hvítlauk og skonsur.
    Tónlist í þættinum í dag:
    Ferrari / Ragnheiður Gröndal (Páll Torfi Önundarson)
    Take Me to Church / Sinéad O’Connor (Kearns & Reynolds)
    Delirious Love / Neil Diamond (Neil Diamond)
    UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
    54 min
  • Kvikmyndatónlist Herdísar, Dagbjört og Sigrún um Sæmund Hólm og mannleg (og meðvirk) samskipti
    Herdís Stefánsdóttir kvikmyndatónskáld hefur komið víða við í heimi kvikmyndanna og gert tónlist við bæði erlendar og íslenskar myndir, nú síðast Eldana sem nýlega var frumsýnd en þar áður við þættina um Vigdísi sem sýndir voru hér á RÚV við góðar undirtektar. Svo hefur hún samið tónlist við tvær kvikmyndir M. Night Shyamalan, leikstjórann heimsfræga. Herdís er búsett hér á landi og eignaðist sitt annað barn fyrir skömmu og er í raun í sínu fyrsta fríi í langan tíma þar sem hún hefur verið uppbókuð í verkefni langt fram í tímann. Á meðan hefur hún einbeitt sér að því að semja sína eigin tónlist og fyrirhugað er að gefa út tvær plötur á næstu misserum. Herdís ræddi við okkur um kvikmyndatónsmíðar og fleira í dag.
    Við fræddumst svo aðeins um Sæmund Hólm Magnússon, sem fæddist árið 1749 og var fyrsti háskólamenntaði listamaður íslensku þjóðarinnar. Hann átti mjög merkilega og viðburðarríka ævi og þær Dagbjört Höskuldsdóttir, fyrrverandi banka-útibússtjóri, kaupfélagsstjóri og bóksali í Stykkishólmi og Sigrún Magnúsdóttir, fyrrverandi kaupmaður, safnstjóri, borgarfulltrúi, alþingismaður og ráðherra, hafa kynnt sér líf Sæmundar komu í þáttinn og sögðu okkur frá honum, en þær ætla einmitt að halda fyrirlestur um hann í næstu viku í húsakynnum Færeyska Sjómannafélagsins í Skipholti.
    Valdimar Þór Svavarsson ráðgjafi var svo hjá okkur með það sem við köllum Mannleg samskipti, en þau geta einmitt verið talsvert flókin. Hann hefur fjallað undanfarna fimmtudaga um áföll og afleiðingar þeirra, sem til dæmis hafa áhrif á samskipti. Svo talaði hann um meðvirkni, og í dag ræddi hann meðvirkni til dæmis í uppeldi og þau áhrif sem geta fylgt.
    Tónlist í þættinum í dag:
    Eldarnir / Herdís Stefánsdóttir (Herdís Stefánsdóttir)
    Sveitin milli sanda / Ellý Vilhjálms (Magnús Blöndal Jóhannsson)
    Bíldudals grænar baunir / Jolli & Kóla (Valgeir Guðjónsson)
    Heima / Haukur Morthens og hljómsveit Jörn Grauengaard (Oddgeir Kristjánsson, texti Ási í Bæ)
    UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG HELGA ARNARDÓTTIR
    55 min
  • Húsnæðismál Konukots og ilmheimur Fischersunds
    Hvar eiga heimilislausar konur að vera ef þær eru óvelkomnar alls staðar? Við ræddum stöðu þeirra hér í dag í tilefni af grein sem birt var fyrir skömmu á Vísi um yfirstandandi ósætti um að Konukot, neyðarskýli fyrir heimilislausar konur, flytji tímabundið í nýtt húsnæði í Ármúla 34. Húsnæðið þar sem Konukot er rekið í Eskihlíð er nánast ónýtt og komið að þolmörkum í viðhaldi. 84 konur gistu í Konukoti í fyrra, að meðaltali 9 á dag. Leit hefur staðið lengi að hentugu húsnæði en nú hafa eigendur annarrar starfsemi í Ármúla sett fyrirvara við því að þessi hópur komi þangað. Halldóra R. Guðmundsdóttir forstöðukona Konukots og Bjartey Ingibergsdóttir hjúkrunarfræðingur á göngudeild smitsjúkdóma hjá Landspítalanum komu í þáttinn í dag og við ræddum starfsemi Konukots, hvort raunverulega stafi hætta af heimilislausum konum eða hvort þetta séu fordómar og vanþekking á þessum viðkvæma jaðarsetta hópi.
    Í sögufrægu húsi að Fischerundi 3 rekur fjölskylda hönnunarverslun þar sem boðið er upp á upplifun fyrir skilningarvitin. Fischersund var kjörin besta hönnunarbúðin í ár af The Reykjavik Grapevine og þau eru nýkomin frá hönnunarvikunni í Helsinki þar sem þau vöktu mikla athygli, en þau sögðu frá ilmgerð fjölskyldunnar og töfrandi ilmheimi Íslands, þau hafa verið með viðlíka viðburði með ilmviðburði víða erlendis. Lilja Birgisdóttir er ein af stofnendum Fischersunds og hún kom í þáttinn og sagði okkur meira frá ilmum, útilykt og fleiru.
    Tónlist í þættinum í dag:
    Veldu stjörnu / Ellen Kristjánsdóttir og John Grant (Ellen Kristjánsdóttir, texti Bragi Valdimar Skúlason)
    Michelle / The Beatles (Lennon & McCartney)
    Gathering Stories / Jónsi (Jón Þór Birgisson, texti Jón Þór Birgisson
    og Cameron Crowe)
    UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG HELGA ARNARDÓTTIR
    51 min

About Mannlegi þátturinn

From the publisher's feed

Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1. Netfang: [email protected]. Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.

More shows like Mannlegi þátturinn

Segðu mér by RÚV

Segðu mér

19 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

471 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

131 Listeners

Fókus by DV

Fókus

2 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

90 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

22 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

18 Listeners

Menn eins og við / Einmitt hlaðvarp by Einar Bárðar og Baldur Rafn Gylfason

Menn eins og við / Einmitt hlaðvarp

4 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

21 Listeners

Spjallið by Spjallið Podcast

Spjallið

14 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

36 Listeners

Undirmannaðar by Undirmannaðar

Undirmannaðar

5 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

8 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

25 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

11 Listeners