Mannlegi þátturinn

Mannlegi þátturinn

Download on the App Store

Mannlegi þátturinn episodes

  • Magnús kenndi jóga í Kabúl, maraþonbakstur og Vonarbrú
    Það eru ekki allir sem finna „einu og réttu“ leiðina í því sem þau vilja gera í lífinu. Sumir vita upp á hár hvað þau vilja læra og vinna við, jafnvel frá því þau voru mjög ung, en svo er líka töluvert margir sem hafa ekki hugmynd um hvað þau vilja verða „þegar þau verða stór“. Magnús Árni Skjöld Magnússon, prófessor í stjórnmálafræði við Háskólann á Bifröst, er einn þeirra. Hann fór úr einu í annað, sökkti sér á bólakaf í mismunandi áhugamál, mismunandi nám, vinnur, jafnvel mismunandi trúarbrögð en áttaði sig svo á því að kannski væri það bara allt í lagi, kannski væri það einmitt hans leið. Hann að minnsta kosti skrifaði bókina Hvernig ég varð jógakennarinn í Kabul, þar sem hann fer yfir sína sögu og reynslu og aðferð sem hann bjó til sem hefur nýst honum og gæti jafnvel nýst fleirum. Magnús sagði okkur betur frá bókinni og þessu í þættinum.
    Lilja Katrín Gunnarsdóttir leikkona bakaði í sólarhring árið 2016 og safnaði fé fyrir Kraft og nú, níu árum síðar, ætlar hún að endurtaka leikinn og baka í sólarhring núna um helgina til styrktar Berginu headspace. Þau hjónin Lilja Katrín og Guðmundur Ragnar Einarsson og þeirra börn urðu fyrir áfalli í byrjun árs þegar fóstursonur þeirra, Guðni Alexander Snorrason, lést aðeins tvítugur að aldri. Þau Lilja og Guðmundur komu í þáttinn í dag.
    Svo komu þær Ragnheiður Steindórsdóttir og Guðný Gústafsdóttir. En þær eru tvær af þeim sem standa að almannaheillafélaginu Vonarbrú sem stofnað var í vor. Tilgangur félagsins er meðal annars að safna fjármagni til að styrkja u.þ.b. 70 stríðshrjáðar barnafjölskyldur sem búa við mjög erfiðar aðstæður á Gaza. Markmiðið er að veita þessum fjölskyldum nauðsynlegan stuðning við kaup á mat, hreinlætisvörum og öðrum mikilvægum nauðsynjum. Þær sögðu okkur frá félaginu og starfi þess í dag, en frekari upplýsingar um það má finna á www.vonarbru.is.
    Tónlist í þættinum í dag:
    Leiðin okkar allra / Hjálmar (Þorsteinn Einarsson, texti Einar Georg Einarsson)
    Golden Brown / The Stranglers (Dave Greenfield, Hugh Cornwell, Jean Jacques Burnel, Jet Black)
    Þetta loft / Sigurður Halldór Guðmundsson (Sigurður Halldór Guðmundsson)
    UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
    50 min
  • Heimildarmyndin Einstakt ferðalag, Jóhanna Birna Bjartmarsd. og veðurspjallið með Einari
    Sunnudagurinn næsti verður Duchenne dagurinn, en Duchenne er sjaldgæfur vöðvasjúkdómur sem skerðir hreyfigetu og hrjáir einn af hverjum fjögur þúsund drengjum. Við fræddumst um nýja íslenska heimildarmynd sem heitir Einstakt ferðalag. Hún er um Ægi Þór 9 ára dreng frá Höfn í Hornafirði, sem er með þennan sjaldgæfa sjúkdóm, og ferðalag hans um Ísland þar sem hann hittir önnur börn með sjaldgæfa sjúkdóma. Myndin varpar ljósi á stöðu langveikra barna og aðstandenda þeirra hér á landi. Ágústa Fanney Snorradóttir, leikstjóri myndarinnar, kom í þáttinn og sagði okkur betur frá henni.
    Jóhanna Birna Bjartmarsdóttir hefur á síðustu misserum vakið athygli en hún hélt athyglisverðan fyrirlestur á ráðstefnu BUGL árið 2023 þar sem hún fór yfir reynslu sína af íslenska skólakerfinu og hvernig henni fannst það bregðast sér. Jóhanna Birna er greind með lesblindu, einhverfu og ADHD. Jóhanna Birna hefur nú lokið háskólanámi í Bandaríkjunum og hyggur á áframhaldandi nám. Hún heldur fyrirlestra um hvernig henni finnst að skólakerfið geti betuð komið til móts við börn í svipuðum aðstæðum og hún var í þegar hún gekk í grunnskóla.
    Svo kom Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur til okkar í veðurspjallið í dag. Hann var með uppgjör á sumarveðrinu og hverrnig við upplifum það á mismunandihátt. Einar talaði svo um hitamet og metsumur úti í heimi, horfurnar næstu daga og að lokum reyndi Einar að svara spurningunni: Hvenær mun hausta?
    Tónlist í þættinum í dag:
    Heiðlóan / Gísli Magna og Co. (Steingrímur M. Sigfússon)
    Þótt falli snjór / Jóhann Sigurðason (Ágúst Guðmundsson)
    Landleguvalsinn / Haukur Morthens (Jónatan Ólafsson, texti Númi Þorbergsson)
    Lítið og væmið / Valdimar (Valdimar Guðmundsson)
    UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
    53 min
  • Bráðaskólinn, leikveturinn hjá Tjarnarbíói og Kári lesandi vikunnar
    Bráðaskólinn sérhæfir sig annars vegar í skyndihjálparkennslu fyrir almenning og fyrirtæki og hins vegar í ýmsum sérhæfðum námskeiðum fyrir heilbrigðisstarfsfólk. Sérstaða skólans er einna helst sú að allir kennarar eru heilbrigðisstarfsfólk sem vinnur við bráðar aðstæður í daglegum störfum sínum. Skólinn var stofnaður árið 2011 og hefur síðan þá haldið yfir 580 námskeið af ýmsu tagi og nemendurnir eru orðnir ríflega 7300 talsins. Eigendaskipti urðu á Bráðaskólanum sumarið 2024 og núverandi eigendur Bráðaskólans, hjónin Haukur Smári Hlynsson svæfingahjúkrunarfræðingur og Guðrún Ingibjörg Þorgeirsdóttir, læknir á Bráðadeild LSH komu í þáttinn í dag.
    Við ætlum að skoða hvað verður á boðstólnum á leiksviðum leikhúsanna á komandi leikvetri. Við fáum forsvarsfólk leikhúsana til okkar næstu mánudaga og í dag reið á vaðið Snæbjörn Brynjarsson leikhússtjóri Tjarnarbíós. Hann sagði okkur frá því helsta sem verður boðið upp á í Tjarnarbíói í vetur.
    Svo var það fyrsti lesandi vikunnar þetta haustið, það var Kári Valtýsson, lögfræðingu og rithöfundur. Hann var að senda frá sér sína fjórðu bók, Hyldýpi, sem við fengum hann til að segja okkur aðeins frá og svo fengum við auðvitað að vita hvaða bækur hann hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hann í gegnum tíðina. Kári talaði um eftirfarandi bækur og höfunda:
    Karítas án titils og Óreiða á Striga e. Kristínu Marju Baldursdóttur,
    Dolores Claiborne e. Stephen King
    Konuna í búrinu e. Jussi Adler Olsen
    Síðasta freisting Krists e. Niko Kazantszakis,
    Fight Club e. Chuck Palahniuk,
    The Rules of Attraction e. Bret Easton Ellis,
    og Charles Bukowski
    Tónlist í þættinum í dag:
    Einhversstaðar einhverntíma aftur / Ellen Kristjáns og Mannakorn (Magnús Eiríksson)
    SOS ást í neyð / Vilhjálmur Vilhjálmsson (erlent lag, texti Ómar Ragnarsson)
    The last farewell / Roger Whittaker
    UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
    54 min
  • Kristín Jónsdóttir föstudagsgestur og Sigríður Wöhler rabarbarasérfræðingur
    Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var Kristín Jónsdóttir, eldfjalla- og jarðskjálftafræðingur og starfar sem hópstjóri í náttúruváreftirliti hjá Veðurstofu Íslands. Hún er í vísindaráði Almannavarna og hefur starfað sem stundakennari við Háskóla Íslands. Við fengum Kristínu til að fara með okkur aftur í tímann á æskuslóðirnar í Breiðholtinu, í gegnum skólagönguna, MH, HÍ, doktorsnám í Svíþjóð og svo rannsóknir á eldstöðvum og jarðskjálftaóróa. Við forvitnuðumst líka um hennar tónlistarferil þar sem hún söng meðal annars í feikivinsælu lag með Rúnari Júlíussyni og Unun og spilar í dag á trommur.
    Svo var það matarspjallið með Sigurlaugu Margréti, þar var bara talað um rabarbara við sérlegan gest, Sigríði Wöhler, sérfræðing í rabarbara. Hún kom færandi hendi með köku, sýróp og kryddmauk, allt unnið úr rabarbara og allt dásamlega gott.
    Tónlist í þættinum í dag:
    Hann mun aldrei gleym’enni / Unun og Rúnar Júlíusson (Þór Eldon og Gunnar Hjálmarsson)
    Debaser / Pixies (Black Francis)
    Gigantic / Pixies (Black Francis & Kim Deal)
    UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
    54 min
  • Skeiðakenningin, systkinin í Blood Harmony og Eldblóm í Örlygshöfn
    Við fræddumst í dag um það sem kallast skeiðakenningin. Höfundur kenningarinnar, Christine Miserando, þróaði þessa kenningu til að geta útskýrt fyrir vinkonum sínum hvernig hún verður að skipuleggja hvern einasta dag og að hún gæti ekki gert allt sem hún vildi, en hún glímdi frá 15 ára aldri við skerðingar á daglegu lífi vegna þreytu og verkja. Guðrún Friðriksdóttir iðjuþjálfi hjá Ljósinu, endurhæfingarmiðstöð fyrir krabbameinsgreinda, vinnur talsvert með skeiðakenninguna í sínu starfi og hún kom í þáttinn og sagði okkur betur frá í dag.
    Við fengum svo lifandi tónlist um miðbik þáttarins þegar systkinin í hljómsveitinni Blood Harmony komu í viðtal og spiluðu fyrir okkur og sungu, Ösp, Örn Eldjárn, en Björk systir þeirra var fjarri góðu gamni í þetta sinn. Þau hyggja á plötuútgáfu á næsta ári og spila á nokkrum tónleikum í sumar og taka þátt í Sumartónum í Salnum í dag. Þau fluttu í hljóðverinu hjá okkur lagið Draumsnillingar sem Ösp samdi og gaf Erni í jólagjöf.
    Bergsteinn Sigurðsson, kollegi okkar úr sjónvarpinu, kom við á Minjasafninu á Hnjóti í Örlygshöfn í sunnanverðum Patreksfirði og hitti Sigríði Soffíu Níelsdóttur, danshöfund og listakonu, en hún var þar með uppákomu undir merkjum Eldblóma, sem er hennar vörumerki fyrir hennar list, hvort sem það eru líkjörar, ilmur, flugeldasýning, haustlaukar og blómainnsetning. Bergsteinn var svo góður að leyfa okkur að senda það út í þættinum í dag.
    Tónlist í þættinum í dag:
    Spánardraumur / Hljómsveit Ingimars Eydal (erlent lag, texti Einar Haraldsson)
    Sideways / Sigrún Stella (Sigrún Stella
    Draumsnillingar / Blood Harmony (Ösp Eldjárn)
    Tasko Tostada / Hljómar (Rúnar Júlíusson)
    UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
    55 min
  • Kennsla íslensku sem annars máls og Þjóðlagahátíð á Siglufirði
    Við fræddumst í dag um nám og kennslu íslensku sem annars máls í framhaldsskólum, með sérstakri áherslu á inngildingu og fjölmenningu, en málþing um einmitt það var haldið í byrjun júní á Ísafirði. Þar kom fagfólk saman í málstofum og miðluðu reynslu og þekkingu sín á milli. Jóna Dís Bragadóttir, skólastjóri Tækniskólans og Heiðrún Tryggvadóttir, skólameistari Menntaskólans á Ísafirði, sögðu okkur betur frá málþinginu og mikilvægi þessarar kennslu í þættinum í dag.
    Þjóðlagahátíðin á Siglufirði fagnar um þessar mundir 25 ára afmæli. Fyrsta hátíðin var haldin sumarið 2000 og hefur verið haldin árlega síðan að frátöldu einu ári. Þjóðlagahátíðin verður haldin dagana 2. til 6. júlí og ber yfirskriftina Fljúga hvítu fiðrildin. Listrænn stjórnandi hátíðarinnar frá upphafi er Gunnsteinn Ólafsson tónskáld og hann kom til okkar í dag og sagði betur frá og fræddi okkur um þjóðlagatónlist.
    Tónlist í þættinum í dag:
    Vonarströnd / Íkorni (Stefán Örn Gunnlaugsson)
    Heimþrá / Brek (Guðmundur Atli Pétursson, Sigmar Þór Mattíasson, Harpa Þorvaldsdóttir, Jóhann Ingi Benediktsson. Texti Jóhann Ingi Benediktsson)
    Kveitevisa / Österlide (Þjóðlag)
    UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
    50 min
  • Vernd barna gegn ofbeldi, matarsaga Reykjaness og veðurspjallið
    Dr. Svala Ísfeld Ólafsdóttir dósent, við lagadeild Háskólans í Reykjavík, kom í þáttinn í dag og sagði frá Ráðstefnu um vernd barna gegn ofbeldi á heimilinu sem hún stóð að í HR í byrjun júní. Ein af frumskyldum hvers samfélags er að vernda yngstu þegnana og þessi ráðstefna var liður í því, enda eru afleiðingar ofbeldis gegn börnum margþættar og alvarlegar. Svala sagði frá því sem á ráðstefnunni kom fram og frá hennar erindi um rannsókn hennar um kynferðisbrot gegn börnum framin innan skjólveggja heimilisins.
    Kristinn Guðmundsson sér um matreiðsluþættina Soð sem sýndir eru í sjónvarpinu hér á RÚV, hann sagði okkur í dag frá viðburðum sem hann stendur fyrir og kallar Matarsaga Reykjaness í fimm réttum.
    Einar Sveinbjörnsson kom svo í veðurspjallið á Jónsmessu sem er í dag. Nýtt tungl kviknar á morgun í suðaustri og stórstreymt verður á fimmtudag og Einar sagði okkur meðal annars frá æðarvarpi og góðri dúntekju, hann sagði frá júní sem verið hefur kaldari en maí hingað til. Svo talaði hann um horfurnar framundan hér á landi og mikla hita víða um heim og spár um framhald þeirra.
    Tónlist í þættinum í dag:
    Kóngur einn dag / KK og Magnús Eiríksson (Magnús Eiríksson)
    Barn / Ragnar Bjarnason (Ragnar Bjarnason, texti Steinn Steinarr)
    Við saman / Hljómar (Gunnar Þórðarson, texti Þorsteinn Eggertsson og Gunnar Þórðarson)
    Sólskinsdagur / B.G. og Ingibjörg (lagahöfundur ókunnur, texti Jónas Friðrik Guðnason)
    UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
    54 min
  • Gönguleiðir á höfuðborgarsvæðinu, sumartónleikar í Skálholti og Sigrún lesandinn
    Nú er tími útivista og gönguferða, fólkið í landinu reimar á sig gönguskóna og nýtur fegurðar íslenskrar náttúru. Yfirleitt þarf ekki að leita langt yfir skammt til að finna skemmtilegar gönguleiðir, en það getur þó verið erfitt að vita hvar skal byrja og hvar þær er að finna. Jónas Guðmundsson, gönguleiðsögumaður, landvörður og ferðamálafræðingur hefur varið ótal stundum á fjöllum og á göngu um náttúru landsins og nú hefur hann gefið út nýja bók, Gönguleiðir á höfuðborgarsvæðinu, þar sem hann fjallar um 30 gönguleiðir einmitt á höfuðborgarsvæðinu og nágrenni. Jónas kom í þáttinn í dag og sagði okkur betur frá þessum leiðum og bókinni.
    Sumartónleikar í Skálholti hafa verið starfandi frá árinu 1975 og staðið fyrir tónleikahaldi í Skálholtskirkju á hverju sumri síðan. Hátíðin er sú elsta og jafnframt stærst sinnar tegundar á landinu og einn stærsti menningarviðburður sem fram fer á Suðurlandi yfir sumartímann. Benedikt Kristjánsson söngvari sagði betur frá hátíðinni í þættinum.
    Lesandi vikunnar í Mannlega þættinum í þetta sinn var Sigrún Blöndal, kennari og deildarstjóri. Hún sagði okkur frá því hvaða bækur hún hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hana í gegnum tíðina. Sigrún sagði frá eftirfarandi bókum og höfundum:
    Ann Cleves og Shetland seríu hennar og sögupersónunni Veru Stanhope.
    Lee Child og bækurnar um Jack Reacher
    Stig Larsson og bækurnar um Lisbeth Salander
    Det forsömte forår e. Hans Scherfig
    Fornaldarsögur Norðurlanda
    Hrólfssaga Kraka
    Tónlist í þættinum í dag:
    Sól mín sól / Anna Pálína Árnadóttir (Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson)
    Styttur bæjarins / Spilverk þjóðanna (Egill Ólafsson, Valgeir Guðjónsson og Sigurður Bjóla Garðarsson)
    Don’t Stop Me Now / Philharmonix (Freddie Mercury)
    UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
    52 min
  • Eliza Reid föstudagsgestur og súkkulaðikökur í matarspjallinu
    Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var Eliza Reid, sagnfræðingur, rithöfundur og fyrrverandi forsetafrú. Við fórum með henni aftur á æskuslóðirnar í Ottawa í Ontario fylki Kanada, þar sem hún fæddist og ólst upp. Hún sagði okkur frá, tónlistarnámi, kórsöng, ferðalögum til Afríku og Asíu og þegar hún kom fyrst til Íslands. Svo fórum við með henni á handahlaupum í gegnum lífið til dagsins í dag og ræddum auðvitað líka um nýju bókina hennar Diplómati deyr.
    Í matarspjallinu með Sigurlaugu Margréti í dag töluðum við um súkkulaðikökur, franskar súkkulaðikökur, skúffukökur og fleiri týpur.
    Tónlist í þættinum í dag:
    Allt í fína / Ragnar Bjarnason og Ragnheiður Gröndal (Karl Olgeirsson)
    Hafið þennan dag / Hera (Hera Hjartardóttir)
    What I Wouldn’t Do / Serena Ryder (Serena Ryder & Jerrod Bettis)
    UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
    55 min
  • Staðan á fasteignamarkaðinum og performatífar pílagrímsgöngur
    Fasteignamarkaðurinn er gjarnan í fréttum af ýmsum ástæðum. Fasteignaverðið og þróun þess, framboð á íbúðum,leiguíbúðum og nú síðast nýtt fasteignamat. Við ákváðum því að skoða aðeins hver er staðan á fasteignamarkaðinum í dag. Monika Hjálmtýsdóttir formaður Félags fasteignasala kom í þáttinn í dag og fór með okkur yfir sviðið og skoða stöðuna og hvert fasteignamarkaðurinn er að stefna.
    Við fjöllum gjarnan um útivist og göngur, gönguleiðir og svo framvegis. Í dag forvitnuðums viðt aðeins um göngu og útivist sem eru öðruvísi, eða hvað? Hún kallast Leiðin og er vissulega ganga, en líka sviðslistaverk, þar sem þáttakendum, eða kannski frekar gestum, er boðið í performatífa pílagrímsgöngur á nokkrum stöðum á landinu, þar sem markmiðið er að rannsaka ferðalagið sem form. Steinunn Knúts Önnudóttir sviðslistakona kom í þáttinn í dag, en hún stendur að þessum göngum, og við fengum hana til að útskýra betur fyrir okkur þessar göngur.
    Tónlist í þættinum í dag:
    Veldu stjörnu / Ellen Kristjáns og John Grant (Ellen Kristjáns, texti Bragi Valdimar Skúlason)
    Draumur / Bergþóra Árnadóttir (Bergþóra Árnadóttir, texti Steinn Steinarr)
    Töfrabörn / Ragnheiður Gröndal (Ragnheiður Gröndal)
    UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
    54 min

About Mannlegi þátturinn

From the publisher's feed

Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1. Netfang: [email protected]. Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.

More shows like Mannlegi þátturinn

Segðu mér by RÚV

Segðu mér

17 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

471 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

131 Listeners

Fókus by DV

Fókus

2 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

90 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

22 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

17 Listeners

Menn eins og við / Einmitt hlaðvarp by Einar Bárðar og Baldur Rafn Gylfason

Menn eins og við / Einmitt hlaðvarp

4 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

20 Listeners

Spjallið by Spjallið Podcast

Spjallið

14 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

35 Listeners

Undirmannaðar by Undirmannaðar

Undirmannaðar

5 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

8 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

25 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

11 Listeners