Mannlegi þátturinn

Mannlegi þátturinn

Download on the App Store

Mannlegi þátturinn episodes

  • Hækkun fasteignamats, Menningargarðurinn og vinningshafi Verðlaunasjóðs lækna
    Fasteignamat hækkar enn og samkvæmt nýju mati fyrir árið 2026 hefur það hækkað um 9,2% á milli ára. Þetta getur auðvitað haft áhrif á fasteignagjöld en þarf ekkert endilega
    að gera það. Tryggvi Már Ingvarsson framkvæmdastjóri Fasteigna hjá Húsnæðis-og mannvirkjastofnun ræddi þetta og fór einnig yfir hvernig staðið var að
    matinu og hvað hafði raunverulega áhrif á hækkun þess.
    Á mánudaginn snýr Menningargarðurinn aftur í Húsdýragarðinum, en þetta er annað sinn sem hann verður haldinn þar sem fjölbreytileika samfélagsins er fagnað með kynningu á menningu ólíkra þjóða, matreiðslu, handverksmiðju, dans, söng og sýningum. Þessi viðburður er haldinn á vegum menningarsendiherranna sem hittast í Suðurmiðstöð
    Reykjavíkurborgar einu sinni í mánuði. Sóley Thuy Doung, Lina Haidar Hatem og Jóhannes Guðlaugsson verkefnistjóri lýðheilsu og forvarna í Suðurmiðstöð komu í þáttinn og sögðu frá deginum.
    Við kynntumst svo nýjasta verðlaunahafa Verðlaunasjóðs í læknisfræði og skyldum greinum, Martin Inga Sigurðssyni, prófessor í svæfingum og gjörgæslulækningum og yfirlæknir við svæfinga-og gjörgæsludeild Landspítalans. Verðlaunin nema sjö milljónum króna en um er að ræða ein stærstu verðlaun sem veitt eru íslenskum vísindamönnum. Martin hlýtur verðlaunin fyrir rannsóknarferil sinn, meðal annars við að meta einstaklingsbundna áhættu við svæfingar til að koma í veg fyrir alvarlegar aukaverkanir. Martin sagði frá sínum störfum og með honum kom Steinunn Þórðardóttir, formaður Læknafélags Íslands sem sagði frá verðlaunasjóðnum og hver rökstuðningurinn var við valið í ár.
    Tónlist í þættinum í dag:
    Lapis Lazuli / Helgi Björnsson (Helgi Björnsson og Guðmundur Óskar Guðmundsson)
    Lóan er komin / Tendra (James A. Bland, texti Páll Ólafsson)
    Stjörnur stara / Rebekka Blöndal (Ásgeir Jón Ásgeirsson, texti Rebekka Blöndal)
    Brúnaljósin brúnu / Páll Óskar Hjálmtýsson (Jenni Jóns)
    UMSJÓN GUNNAR HANSSON OG HELGA ARNARDÓTTIR
    54 min
  • Sæunn býflugnabóndi, nýútskrifað kvikmyndagerðarfólk og staða sviðslista
    Við heyrðum í dag í Sæunni Vigdísi Sigvaldadóttur, þroskaþjálfa á Egilsstöðum og býflugnabónda í Hallormsstaðaskógi. Sæunn er stödd í Seattle í Bandaríkjunum þar sem hún ætlar að læra tæknifrjóvgun býflugnadrottninga. Áætlunin er að gera Ísland sjálfbært í býflugnarækt til þess að draga úr innflutningi á býflugum, sem reynist sífellt erfiðara sökum býsjúkdóma. Við fengum Sæunni í dag til að segja okkur meðal annars frá því hvernig það kom til að hún fór út í býflugnarækt, hvað þarf til þess að fara út í ræktun og hvernig Ísland hentar fyrir býflugnarækt.
    Hvað tekur við að loknu kvikmyndanámi hérlendis og hvaða tækifæri bíða ungs kvikmyndagerðarfólks? Vigdís Howser Harðardóttir og Alvin Hugi Ragnarsson voru í fyrsta árgangi nýrrar kvikmyndadeildar við Listaháskóla Íslands og útskrifast um miðjan júní, en þau sögðu okkur frá lokaverkefnum sínum ásamt því að ræða kvikmyndasenuna hér á landi og hvernig þau ætla að setja mark sitt á hana.
    Í framhaldi af því ræddum við stöðu sviðslista á Íslandi og hverjar áskoranir og hlutverk þeirra eru við Friðrik Friðriksson, framkvæmdastjóra Sviðslistamiðstöðvar Íslands, en á föstudaginn fór fram Bransadagur Sviðslistanna í Borgarleikhúsinu þar sem staðan var rædd og þátttakendur deildu hugmyndum og sýn sinni á framtíð sviðslista.
    Tónlist í þættinum í dag:
    Býflugan / Geirfuglarnir (Þorkell Heiðarsson)
    The Birds And The Bees / Jewel Akens (Herbert Newman)
    Sumarvísa / Þorgerður Ása Aðalsteinsdóttir og Vigdís Hafliðadóttir (Mats Paulson, texti Iðunn Steinsdóttir)
    Heitt toddý / Ellen Kristjánsdóttir (H. Hendler & R. Flanagan, texti Friðrik Erlingsson)
    UMSJÓN GUNNAR HANSSON OG HELGA ARNARDÓTTIR
    53 min
  • Arnar Ásgeirsson og skúlptúrarnir og Kristín Hulda lesandinn
    Sex skúltpurverk eftir Arnar Ásgeirsson myndlistarmann voru valin úr fjölda hugmynda í samkeppni um listaverk í nýbyggingu Grensáss- endurhæfingardeildar LSH fyrir skömmu. Skúlptúrarnir mynda form sem gætu líkst framfaraferli. Þeir sýna örvar sem liðast út og suður, taka dýfur, kollsteypast en vísa upp á endanum. Örvarnar sýna að bataleiðin er ekki endilega stöðug eða bein. Arnar þekkir þetta af eigin raun eftir að hafa slasast í fyrra og eru verk hans innblásin af þeim langa tíma sem tók að ná bata og fullri líkamlegri færni. Arnar var gestur þáttarins í dag.
    Lesandi vikunnar í þetta sinn var Kristín Hulda Gísladóttir sálfræðingur hjá Ljósinu, stuðnings- og endurhæfingarmiðstöð fyrir krabbameinsgreinda. Hún sagði frá því hvaða bækur hún hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hana í gegnum tíðina. Kristín talaði um eftirafarandi bækur og höfunda:
    With the end in mind: dying, death, and wisdom in the age of denial e. Katheryn Mannix
    Just kids e. Patti Smith
    Cosmos e. Carl Sagan
    The Bell Jar e. Sylvia Plath
    Tónlist í þættinum í dag:
    Og þess vegna erum við hér í kvöld / Fjallabræður (Magnús Þór Sigmundsson)
    Sama sól / Sigurður Halldór Guðmundsson (Sigurður Halldór Guðmundsson)
    Veldu stjörnu / Ellen Kristjánsdóttir og John Grant (Ellen Kristjánsdóttir, texti Bragi Valdimar Skúlason)
    UMSJÓN GUNNAR HANSSON OG HELGA ARNARDÓTTIR
    50 min
  • Saga Garðarsdóttir föstudagsgestur og matarspjall frá Krít
    Saga Garðarsdóttir leikkona var föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn. Hún leikur eitt aðahlutverkið í nýrri kvikmynd Hlyns Pálmasonar, Ástin sem eftir er sem frumsýnd var í Cannes fyrr í mánuðinum og fékk ljómandi góðar viðtökur. Saga er tiltölulega nýlent eftir viðburðaríka daga í Cannes en hún hefur auðvitað verið á sviðum leikhússanna síðustu ár ásamt því að vera sjálfstætt starfandi gamanleikkona og grínisti um allar trissur. Hún er byrjuð að æfa leikritið ÍBÚÐ 10B eftir Ólaf Jóhann Ólafsson í leikstjórn Baltasars Kormáks sem frumsýnt verður í Þjóðleikhúsinu í haust. Við fórum í ferðalag í gegnum lífið með Sögu Garðarsdóttur í þættinum í dag.
    Svo var auðvitað matarspjallið með Sigurlaugu Margréti á sínum stað, en hún er stödd í þetta sinn á Krít hvaðan hún var í beinu sambandi. Lambakjöt, sósur, fetaostur, safaríkar melónur, hunang og olía úr fjöllunum er meðal þess sem hún sagði okkur frá í dag.
    Tónlist í þættinum í dag:
    Reyndu aftur / Mannakorn (Magnús Eiríksson)
    Í draumalandinu / Space Station (Björgúlfur Jes Einarsson)
    Það sem enginn veit / Eysteinn Pétursson (Þórbergur Þórðarson)
    UMSJÓN GUNNAR HANSSON OG HELGA ARNARDÓTTIR
    52 min
  • Erfið staða fjölmiðla á Íslandi og tíbetskur lama á leiðinni til landsins
    Ísland skipar 17.sætið á heimsvísu þegar kemur að frelsi fjölmiðla á meðan Noregur trónir á toppnum níunda árið í röð samkvæmt nýlegri úttekt samtakanna Blaðamenn án landamæra. Er fækkun og hnignun fjölmiðla undanfarin ár um að kenna eða er versnandi samband milli stjórnmálafólks og fjölmiðla ástæða þessarar niðurstöðu, í samanburði við hin Norðurlöndin? Formaður Blaðamannafélags Íslands, Sigríður Dögg Auðunsdóttir og Freyja Steingrímsdóttir, framkvæmdastjóri félagsins, komu í þáttinn í dag og ræddu þetta ásamt því að greina frá niðurstöðum svokallaðs Lausnamóts sem haldið var á vegum félagsins með fólki úr blaðamannastétt og öðrum stéttum samfélagsins til að leita lausna við þeim vanda sem nú steðjar að íslenskum fjölmiðlum.
    Við fræddumst svo um það hvað þarf að leggja á sig til að verða lama, eða andlegur kennari í Tibet búddisma, en Ringu Tulku er einmitt hátt settur tíbetskur lama og er á leiðinni til Íslands. Gunnar L. Friðriksson kom til okkar í dag en hann er í Félagi tíbetbúddista á Íslandi og sagði frá Ringu Tulku og Hugleiðslu- og friðarmiðstöðinni í þættinum.
    Tónlist í þættinum í dag:
    Tætum og tryllum / Stuðmenn (Jakob Frímann Magnússon)
    Þorparinn / Pálmi Gunnarsson (Magnús Eiríksson)
    Þúsund sinnum segðu já / Grafík (Helgi Björnsson)
    UMSJÓN GUNNAR HANSSON OG HELGA ARNARDÓTTIR
    53 min
  • Ný uppgötvun í sambandi við fósturlát, Discover Grindavík og veðurspjallið
    Við fræddumst í dag um nýja uppgötvun vísindafólks Íslenskrar erfðagreiningar og samstarfsfólks þeirra í Danmörku þar sem þau raðgreindu tæplega fimm hundruð sýni úr fósturlátum meðal danskra fjölskyldna og komust að því að ein af hverjum 136 þungunum endar með fósturláti vegna nýrra stökkbreytinga í fóstrinu. Þetta samsvarar því að slíkar stökkbreytingar valdi um milljón fósturlátum árlega á heimsvísu. Hákon Jónsson og Guðný A. Árnadóttir, vísindafólk hjá Íslenskri erfðagreiningu, komu í þáttinn í dag og útskýrðu fyrir okkur hvernig þessar rannsóknir komu til, hvernig þær voru framkvæmdar, niðurstöðurnar og hvað þær þýða.
    Þrátt fyrir jarðskjálfta, eldgos og viðvarandi óvissu í Grindavík hefur fyrrverandi kennari, og fyrrverandi upplýsinga- og markaðsfulltrúi bæjarins til 17 ára, Kristín María Birgisdóttir, fundið ný tækifæri til að halda sögu Grindavíkur á lofti. Hún hefur stofnað ferðaþjónustufyrirtækið DISCOVER GRINDAVÍK fyrir erlenda og innlenda ferðamenn þar sem hún ætlar að rekja sögu bæjarins og náttúruhamfaranna undanfarin ár. Kristín María sagði okkur frá þessu í þættinum.
    Einar Sveinbjörnsson var svo hjá okkur í dag með veðurspjallið, reyndar í beinni sambandi frá Lettlandi. Í þetta sinn talaði hann við okkur um hvaða áhrif loftslagsbreytingar hafa í Eystrasaltsríkjunum. Svo talaði hann um moskítóflugur og vangavelturnar sem koma upp aftur og aftur, þ.e. af hverju þær berast ekki til Íslands? Á meðan þær til dæmis grassera á Grænlandi. Tengist það veðurfarinu? Og að lokum endaði Einar á hugleiðingum um sjávarhitann, sem er nú óvenjulega hár fyrir norðan land, hvað veldur því?
    Tónlist í þættinum í dag:
    Heim í Búðardal / Ðe lónlí blú bojs (Gunnar Þórðarson, texti Þorsteinn Eggertsson)
    Ég veit þú kemur / Ellý Vilhjálms (Oddgeir Kristjánsson, texti Ási í Bæ)
    Gvendur á Eyrinni / Dátar (Rúnar Gunnarsson, texti Þorsteinn Eggertsson)
    Hæ Mambó / Haukur Morthens og Kvintett Jörn Grauengaard (Merril, texti Loftur Guðmundsson)
    UMSJÓN GUNNAR HANSSON OG HELGA ARNARDÓTTIR
    54 min
  • Veislan - ný þáttaröð og Ásta Sigrún lesandi vikunnar
    Sjónvarpsþáttaröðin Veislan með Michelin matreiðslumanninum Gunnari Karli Gíslasyni og Sverri Þór Sverrissyni er að hefja göngu sína á ný á RÚV um miðjan júní. Þetta er þriðja þáttaröðin sem unnin er og að þessu sinni heimsækja þeir eyjar í kringum landið. Þetta eru eyjarnar Flatey í Breiðafirði og á Skjálfanda, Hrísey, Vigur og Heimaey. Þar hitta þeir fyrir heimamenn og elda með þeim kræsingar úr hráefni frá hverjum stað. Þau Lilja Jónsdóttir, leikstjóri og ein meðframleiðenda þáttanna, og Gunnar Karl sögðu okkur í þættinum frá Veislu sumarsins ásamt því að ræða hvað verður um uppskriftirnar allar sem eru spunnar upp á þessum fallegu stöðum og sögurnar sem þau hafa fengið að heyra á ferðalögunum.
    Lesandi vikunnar í þetta sinn var Ásta Sigrún Magnúsdóttir, samskiptastjóri Garðabæjar. Við fengum hana til að segja okkur hvaða bækur hún hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hana í gegnum tíðina. Ásta talaði um eftirfarandi bækur og höfunda:
    Julie Chan is dead e. Liann Zhang
    Kúnstpása e. Sæunni Gísladóttur
    Bréf úr sjálfskipaðri útlegð e. Gunnlaug Magnússon.
    Kvika e. Þóru Hjörleifsdóttur
    Baldintáta e. Enid Blyton,
    Sitjið Guðs Englar serían e. Guðrúnu Helgadóttur
    Elías e. Auði Haralds
    Peð á páhnetunni Jörð e. Olgu Guðrúnu Árnadóttur
    Tónlist í þættinum í dag:
    Ég er á leiðinni / Brunaliðið (Magnús Eiríksson)
    Horfðu til himins / Nýdönsk (Jón Ólafsson, Daníel Ágúst Haraldsson, texti Daníel Ágúst Haraldsson)
    Heimförin / Ásgeir Trausti (Ásgeir Trausti Einarsson, texti Einar Georg Einarsson)
    UMSJÓN GUNNAR HANSSON OG HELGA ARNARDÓTTIR
    50 min
  • Karl Olgeirsson föstudagsgestur og óvenjulegar samsetningar í matarspjallinu
    Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var Karl Olgeirsson tónlistarmaður. Hann hóf nýlega störf sem organisti í Ástjarnarkirkju og þar stofnaði hann kirkjukór. Hann hefur samið tónlist nánast frá því hann fékk hljóðfæri fyrst í hendurnar. Við fórum með honum aftur í tímann á æskuslóðirnar í Hlíðunum, til Svíþjóðar og aftur heim og fórum svo á handahlaupum í gegnum lífið til dagins í dag. En hann er í nýju hlutverki á morgun þegar hann er aðalsöngvarinn í dagskrá þar sem flutt verða bestu lög Steely Dan og Donald Fagen í Hörpu.
    Í matarspjalli dagsins með Sigurlaugu Margréti héldum við svo áfram að skoða skrýtnar og óvenjulegar samsetningar á mat og fórum í gegnum nokkra tölvupósta frá hlustendum þess efnis. Og svo skoðuðum við hvort þessar breytingar í veðrinu hafi áhrif á matarval okkar.
    Tónlist í þættinum í dag:
    Smells Like Teen Spirit / Raggi Bjarna og Milljónamæringarnir (Kurt Cobain, Dave Grohl og Krist Novoselic)
    Gríptu draum / Sigríður Eyrún Friðriksdóttir og Karl Olgeirsson (Karl Olgeirsson)
    I.G.Y. / Karl Olgeirsson og Reykjvik Tribute Orchestra (Donald Fagen)
    UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
    53 min
  • Drengir á jaðrinum, Crazy Puffin ferðaskrifstofa og Ólína um heilaheilsu
    Í gærkvöldi var á dagskrá sjónvarpsins norska heimildarmyndin Drengir á jaðrinum, sem fjallar um reynslu 36 drengja í 10.bekk sem höfðu fundið sig illa í skólakerfinu og lífinu og voru flestir búnir að taka þá ákvörðun að fara ekki í framhaldsskóla. Þeir fengu tilboð um að fara í tveggja vikna skólabúðir, þétt skipulagðar. Símarnir voru teknir af þeim og þeir voru saman allan sólarhringinn í námi, leikjum, samtölum og fleiru. Kennararnir voru með þeim allan tímann líka. Það gekk á ýmsu, upp og niður en til að gera langa sögu stutta gjörbreyttu þessar tvær vikur þeirra viðhorfi til skólans og ekki síst til þeirra sjálfra og þeir allir enduðu með að fara í framhaldsskóla. Margrét Kristín Sigurðardóttir, tónlistarkona og kennari, hefur unnið talsvert með nemendum sem finna sig ekki í skólakerfinu sá myndina áður en hún var sýnd hér í sjónvarpi og hreifst svo mikið af henni að hún fór beint á fund í Menntamálaráðuneytinu og hjá Reykjavíkurborg til þess að kynna þetta úrræði fyrir þeim sem málið varða. Margrét kom í þáttinn í dag.
    Við heyrðum svo í Birni Pálssyni, en hann rekur ferðaskrifstofu sem sérhæfir sig í ferðum til landa sem eru ekki kannski þessi hefðbundnu sumarleyfisstaðir, en vissulega gríðarlega áhugaverð. Sýrland, Afghanistan, Yemen, Túrkmenistan, Máritanía, Írak, Alsír og fleiri staðir. Björn býr sjálfur á Sri Lanka, en er staddur á Akureyri, hvaðan hann spjallaði við okkur í dag.
    Ólína Guðbjörg Viðarsdóttir sérfræðingur í klínískri sálfræði og eigandi Heilaheilsu, sem er þjónusta fyrir fólk með hugrænan vanda og heilaáverka. Ólína lenti í því sjálf sem fótboltakona að fá ítrekaðan heilahristing og fann ekki miklar upplýsingar um hvernig hún gæti náð bata eftir að hafa fundið fyrir sjóntruflunum, heilaþoku, langvarandi úthaldsleysi og þreytu. Hún segir mikilvægasta skrefið að gera allt til að róa taugakerfið og hvíla heilann vel gagnvart öllu áreiti en byrja þó fljótlega að hreyfa sig skynsamlega aftur til að fá blóðið af stað og mælir með stuttum göngutúrum til að byrja með. Huga þurfi að mataræði og forðast þekkta bólguvalda á borð við sykur, unnar matvörur, stýra streituvöldum og passa upp á svefn. Helga Arnardóttir ræddi við Ólínu Guðbjörgu á Heilsuvaktinni í dag.
    Tónlist í þættinum í dag:
    Sumarlag / Stjórnin ( Eyjólfur Kristjánsson, texti Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson)
    Söngur um lífið / Rúnar Júlíusson (Höfundur óþekktur, texti Þorsteinn Eggertsson)
    Ég fer á Land Rover frá Mývatni á Kópasker / Helgi Björnsson (Helgi Björnsson, Guðmundur Óskar Guðmundsson og Atli Bollason)
    UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
    55 min
  • Viljum við að færri fái krabbamein? Ívar rekur 20 osteopatastofur í Danmörku og póstkort frá Magnúsi
    Viljum við að færri fái krabbamein? Það ætti að vera auðvelt að svara þessari spurningu, en hún er einmitt yfirskriftin á málþingi sem Krabbameinsfélagið stendur fyrir næsta laugardag. Þar verður rætt um hvort það séu vannýtt tækifæri til þess að fækka þeim sem fá krabbamein í íslensku samfélagi og sóknarfæri í forvörnum. Sigrún Elva Einarsdóttir, sérfræðingur og teymisstjóri fræðslu og forvarna hjá Krabbameinsfélaginu, og Vigdís Eva Guðmundsdóttir, sérfræðingur í fræðslu og forvörnum hjá Krabbameinsfélaginu, komu í þáttinn í dag, en þær halda báðar erindi á málþinginu.
    Við heyrðum svo í Ívari Dagssyni, en hann rekur 20 osteopatastofur í Danmörku og 140 osteopatar starfa fyrir fyrirtækið. Hann stofnaði fyrirtækið fyrir 11 árum, eftir að hann lauk námi. Hann áformar nú að opna stofur í fleiri löndum og sína fyrstu osteopata stofu á Íslandi í júní. En það er ekki víst að allir viti hvað osteopatar gera, því fengum við Ívar til að segja okkur allt um það og frá velgengninni í Danmörku og víðar.
    Að lokum fengum við póstkort frá Magnúsi R. Einarssyni. Í korti dagsins fjallar Magnús fyrst um fyrrum forseta Urugays, sem lést fyrir nokkrum dögum. Hann varð frægur um allan heim fyrir látlausan lífstíl og róttækar umbætur sem hann gerði í heimalandi sínu. Í seinni hlutanum segir frá vaxandi sniðgöngu á bandarískum vörum og framleiðslu vegna tollapólitíkur bandaríkjaforseta.
    Tónlist í þættinum í dag:
    Hinn elskulegi garðyrkjumaður / Kristjana Stefánsdóttir (Páll Torfi Önundarson)
    Í sól og sumaryl / Stebbi og Eyfi (Gylfi Ægisson)
    Sumarlandið / Jón Jónsson og KK (Jón Jónsson, texti Jóns Jónsson og Martina Vigdís Nardini)
    Sumargestur / Ásgeir Trausti (Ásgeir Trausti Einarsson, texti Einar Georg Einarsson)
    UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
    54 min

About Mannlegi þátturinn

From the publisher's feed

Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1. Netfang: [email protected]. Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.

More shows like Mannlegi þátturinn

Segðu mér by RÚV

Segðu mér

17 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

471 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

131 Listeners

Fókus by DV

Fókus

2 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

90 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

22 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

17 Listeners

Menn eins og við / Einmitt hlaðvarp by Einar Bárðar og Baldur Rafn Gylfason

Menn eins og við / Einmitt hlaðvarp

4 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

20 Listeners

Spjallið by Spjallið Podcast

Spjallið

14 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

35 Listeners

Undirmannaðar by Undirmannaðar

Undirmannaðar

5 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

8 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

25 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

11 Listeners