Mannlegi þátturinn

Mannlegi þátturinn

Download on the App Store

Mannlegi þátturinn episodes

  • Droplaugarstaðir, Hinsegin hátíð fyrir norðan og Hrefna Björg lesandinn
    Við kynntum okkur í dag starfsemi Droplaugastaða hjúkrunarheimilis sem fékk alþjóðlega viðurkenningu síðastliðið haust og hvatningarverðlaun Velferðaráðs Reykjavíkurborgar á dögunum. Jórunn Ósk Frímannsdóttir, forstöðumaður Droplaugarstaða og formaður Öldrunarráðs Íslands kokm í þáttinn og sagði okkur frá starfseminni, hvað Eden heimili felur í sér, verðlaununum og því helsta sem er á döfinni hjá þeim.
    Við heyrðum svo í Elísabetu Ögn Jóhannsdóttur, verkefnastjóra Hinsegin hátíðar á Norðurlandi eystra sem haldin verður 18.-22.júní. Þar verður fjölbreytileikanum fagnað og markmiðið er að auka sýnileika LGBTQ+ samfélagsins og byggja upp samfélag sem er opið og öruggt fyrir alla íbúa og gesti. Elísabet Ögn sagði okkur betur frá hátíðinni sem meðal annara öll sveitarfélögin á Norðurlandi eystra standa fyrir.
    Svo var það lesandi vikunnar sem var í þetta sinn Hrefna Björg Gylfadóttir, stefnustjóri hjá Veitum. Hún sagði okkur frá því hvaða bækur hún hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hana í gegnum tíðina. Hrefna sagði okkur frá eftirfarandi bókum og höfundum:
    Not the end of the world e. Hanna Ritchie
    The Hypocrite e. Jo Hamya
    Patriot e. Alexei Navalny
    Halldór Laxness og Han Kang
    Tónlist í þættinum í dag:
    Á skútunni minni / South River Band (Ólafur Þórðarson, texti Helgi Þór Ingason)
    Brotin loforð / Bubbi Morthens (Bubbi Morthens)
    Constant Craving / K.D. Lang (Mink og K.D. Lang)
    UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
    56 min
  • Ásgeir Jónsson föstudagsgestur og þjóðhátíðarmatarspjall
    Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var Ásgeir Jónsson Seðlabankastjóri. Við ræddum við hann um lífið og tilveruna í dag.
    Svo var matarspjallið með Sigurlaugu Margréti auðvitað á sínum stað, í dag hringdum við í Albert Eiríksson og þjóðhátíðarmaturinn var ræddur, enda 17. júní á þriðjudaginn.
    UMSJÓN: FANNEY BIRNA JÓNSDÓTTIR
    56 min
  • Áfengisvarnir, sorgarleyfi og ráðleggingar um mataræði
    Árni Guðmundsson, formaður Foreldrasamtaka gegn áfengisauglýsingum, segir áfengisvarnarsamtök eiga í vök að verjast þegar markaðsöflin eru annars vegar en líka vegna minna fé renni til forvarnarstarfs en áður. Árni komst í fréttirnar í fyrra þegar hann gagnrýndi viðbragðsleysi og seinagang lögreglu eftir að hafa sjálfur kært sig til lögreglu fyrir ólögleg áfengiskaup á netinu árinu áður. Hann sagði frá starfi samtakanna og málþingi sem þau standa fyrir 16. júní í þættinum.
    Alþingi samþykkti í síðustu viku frumvarp Ingu Sæland félagsmálaráðherra um breytingar á lögum um sorgarleyfi. Lögin fela í sér aukinn rétt foreldra til sorgarleyfis og er ætlað að styrkja stöðu barna og barnafjölskyldna sem verða fyrir áföllum. Hólmfríður Anna Baldursdóttir, stjórnarformaður Gleym mér ei styrktarfélags, og Kolbrún Tómasdóttir, framkvæmdastjóri félagsins, ræddu þessar breytingar og sögðu frá félaginu Gleym mér ei.
    Meirihluti landsmanna fer ekki eftir ráðleggingum í matarræði og breytingar á ráðleggingum sem fela meðal annars í sér minni neyslu á rauðu kjöti og meiri neyslu á grænmeti og ávöxtum hafa fengið blendin viðbrögð. Kolbrún Sveinsdóttir, matvælafræðingur og verkefnastjóri hjá MATÍS, fór yfir hvers vegna fólki er ráðlagt að borða minna af rauðu kjöti og af hverju hafa kjötneytendur átt undir högg að sækja að undanförnu.
    Tónlist í þættinum:
    Good vibrations / Beach Boys
    My Body's A Zombie For You / Dead Man's Bones
    Lifa af / Bríet og Birnir.
    Umsjón: Guðrún Hálfdánardóttir og Helga Arnardóttir.
    50 min
  • Læsi og lesskilningur íslenskra barna og tilfinningar í Íslendingasögunum
    Læsi og lesskilningi íslenskra barna hefur hrakað þrátt fyrir allskonar átaksverkefni í gegnum tíðina. Deilt hefur verið um hver beri ábyrgð á þessari stöðu og sitt sýnist hverjum. En væntanlega eru allir sammála um að eitthvað verður að gera til að bæta stöðuna. Nú eru grunnskólar landsins komnir í sumarleyfi og væntanlega margir foreldrar sem velta fyrir sér hvernig eigi að halda lestri að börnum sínum næstu mánuði. Auður Björgvinsdóttir og Sigríður Ólafsdóttir læsisfræðingar og kennarar ræddu þetta.
    Hvernig birtast tilfinningar á borð við reiði, skömm, ást, girnd, samkennd og fleira í norrænum fornsögum? Þetta verður umfjöllunarefni málþings á vegum Miðaldastofu Íslands á morgun í tilefni af útkomu bókar sem ber heitið SAGA EMOTIONS. Her fræðimanna hefur skrifað um nær allan tilfinningaskalann og rannsakað hvernig hann kemur fram hjá söguhetjum Íslendingasagnanna. Brynja Þorgeirsdóttir lektor í íslenskum bókmenntum við Háskóla Íslands, ein höfunda og ritstjóra bókarinnar kom í þáttinn.
    Tónlist í þættinum í dag:
    Valentine / Richard Hawley
    Build me up Buttercup / The Foundations
    Umsjón: Helga Arnardóttir og Guðrún Hálfdánardóttir.
    52 min
  • Myrkur Games með nýjan tölvuleik í sumar, Veðurspjallið og lesandi vikunnar María Elísabet Bragadóttir
    Fyrsti tölvuleikur íslenska tölvuleikjafyrirtækisins Myrkur Games sem nefnist Echoes of the End eða Bergmál endalokanna í lauslegri þýðingu er að koma út í sumar eftir átta ára þróunarvinnu. Leikurinn er sá fyrsti sem fyrirtækið framleiðir og sameinar spennandi bardagakerfi, fjölbreyttar þrautir, og hjartnæma sögu í fantasíuheimi sem sækir innblástur í íslenskt landslag. Aldís Amah Hamilton leikkona leikur aðalhetju leiksins og sagði frá honum ásamt Magnúsi Guðrúnarsyni, handritshöfundi, sem býr til heiminn.
    Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur kom í Veðurspjallið og talaði um hvernig veðrið getur haft áhrif á tómstundir að sumri, golfið, hlaupa-og hjólreiðafólk og íþróttamót barna og ungmenna. Hann ræddi líka um hvort frostnætur að undanförnu hafi áhrif á gróðurinn og veðurútlit næstu daga þar á meðal 17.júní sem er á næsta leiti.
    Og lesandi vikunnar var María Elísabet Bragadóttir rithöfundur sem deildi með okkur bókunum sem hún hefur verið að lesa og þeim sem hafa haft mest áhrif á hana. Hún sagði einnig frá því hvað er framundan hjá henni og hvernig viðtökurnar hafa verið við smásagnasafni hennar Herbergi í öðrum heimi sem er að koma fyrir augu lesenda erlendis auk þess sem smásagnasafn hennar Sápufuglinn var tilnefnd til Bókmenntaverðlauna Evrópusambandsins í fyrra og hlaut þar sérstaka viðurkenningu.
    Tónlist í þættinum í dag:
    Everybody´s Talking / Harry Nilsson
    Fragile / Sting
    Don´t stop / Fleetwood Mac
    UMSJÓN HELGA ARNARDÓTTIR OG FANNEY BIRNA JÓNSDÓTTIR
    50 min
  • Hilmar Guðjónsson leikari föstudagsgestur og grískar ólífuolíur í matarspjalli Sigurlaugar
    Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var leikarinn Hilmar Guðjónsson. Hann hefur leikið ótal hlutverk á sviði og fyrir framan myndavélina á þeim 15 árum frá því hann útskrifaðist. Hann er vesturbæingur í húð og hár og KR-ingur, en við fórum með honum aftur í tímann á æskuslóðirnar, ræddum töfra leiklistarinnar og áskoranir hennar.
    Matarspjallið með Sigurlaugu Margréti var auðvitað á sínum stað. Í dag talaði hún við okkur um ólífuolíur og hvernig til dæmis Grikkir nota hana í mat.
    Tónlist í þættinum í dag:
    Það sýnir sig / Hjálmar (Sigurður Halldór Guðmundsson)
    Lucille / Han Young Ae (Han Young Ae)
    Oddaflug / Tómas Jónsson (Tómas Jónsson)
    UMSJÓN GUNNAR HANSSON OG HELGA ARNARDÓTTIR
    53 min
  • Sálræn fyrsta hjálp, Brúðubíllinn með barnabarni Helgu Steffensen og póstkort frá Magnúsi R. Einarssyni
    Allir geta lent í því að koma að fólki sem hefur lent í áfalli, slysi, ofbeldi, náttúruhamförum eða einhverjum öðrum alvarlegum atburðum. Þá geta fyrstu viðbrögð verið mikilvæg og ýmislegt sem ber að varast. Auðvitað ætti fagfólk að veita slíka hjálp en alvarlegir atburðir gera oft ekki boð á undan sér, því getur verið gott að kunna einföld viðbrögð sem geta hjálpað þangað til fagfólk getur komið inn í aðstæðurnar. Belinda Karlsdóttir leiðbeinandi hefur kennt sálræna fyrstu hjálp hjá Rauða krossi Íslands og á næstunni ætlar Rauði krossinn að bjóða almenningi upp á netnámskeið í sálrænni fyrstu hjálp. Belinda ræddi um þetta.
    Barnabarn Helgu Steffensen, Hörður Bent Steffensen hefur tekið við Brúðubílnum af ömmu sinni eftir nokkurra ára hlé og býður upp á fjölda sýninga í sumar ásamt góðu teymi. Hann er leikari að mennt og var mikill aðdáandi Brúðubílsins alla sína æsku og fékk loks að taka þátt í sýningum á unglingsaldri. Hörður sagði frá sýningum sumarsins og hversu vel amma hans hélt upp á brúðurnar, handritin og leikmyndirnar sem fylgja Brúðubílnum sem á um hálfrar aldar sögu.
    Póstkort frá Magnúsi R. Einarssyni. Magnús er nýkominn til Eyja eftir ferðalag erlendis og lentur í norðanbrælu og kulda. Hann rifjaði upp þegar hann kom fyrst til Eyja fyrir fjórum árum þá var honum sagt að það væri þrennt sem ekki mætti krítisera í Eyjum og hann fer yfir það í póstkortinu. Í seinni hlutanum sagði hann aðeins frá brosinu sem er nánast einstakt í dýraríkinu hér á jörð.
    Tónlist í þættinum í dag:
    Aftur heim til þín / Eyþór Ingi og Lay Low (Baldur Hjörleifsson og Jónína Guðrún Eysteinsdóttir)
    Sveitin mín / Haukur Morthens (Jóhann Helgason)
    Dýrin úti í Afríku / Brúðubíllinn (Helga Steffensen)
    Sveitastúlkan og sveitapilturinn / Marína og Mikael (Charlie Parker, texti Marína Ósk Þórólfsdóttir)
    Hafið / Egill Ólafsson (Matti Lauri Kallio, texti Egill Ólafsson)
    UMSJÓN GUNNAR HANSSON OG HELGA ARNARDÓTTIR
    53 min
  • Hækkun fasteignamats, Menningargarðurinn og vinningshafi Verðlaunasjóðs lækna
    Fasteignamat hækkar enn og samkvæmt nýju mati fyrir árið 2026 hefur það hækkað um 9,2% á milli ára. Þetta getur auðvitað haft áhrif á fasteignagjöld en þarf ekkert endilega
    að gera það. Tryggvi Már Ingvarsson framkvæmdastjóri Fasteigna hjá Húsnæðis-og mannvirkjastofnun ræddi þetta og fór einnig yfir hvernig staðið var að
    matinu og hvað hafði raunverulega áhrif á hækkun þess.
    Á mánudaginn snýr Menningargarðurinn aftur í Húsdýragarðinum, en þetta er annað sinn sem hann verður haldinn þar sem fjölbreytileika samfélagsins er fagnað með kynningu á menningu ólíkra þjóða, matreiðslu, handverksmiðju, dans, söng og sýningum. Þessi viðburður er haldinn á vegum menningarsendiherranna sem hittast í Suðurmiðstöð
    Reykjavíkurborgar einu sinni í mánuði. Sóley Thuy Doung, Lina Haidar Hatem og Jóhannes Guðlaugsson verkefnistjóri lýðheilsu og forvarna í Suðurmiðstöð komu í þáttinn og sögðu frá deginum.
    Við kynntumst svo nýjasta verðlaunahafa Verðlaunasjóðs í læknisfræði og skyldum greinum, Martin Inga Sigurðssyni, prófessor í svæfingum og gjörgæslulækningum og yfirlæknir við svæfinga-og gjörgæsludeild Landspítalans. Verðlaunin nema sjö milljónum króna en um er að ræða ein stærstu verðlaun sem veitt eru íslenskum vísindamönnum. Martin hlýtur verðlaunin fyrir rannsóknarferil sinn, meðal annars við að meta einstaklingsbundna áhættu við svæfingar til að koma í veg fyrir alvarlegar aukaverkanir. Martin sagði frá sínum störfum og með honum kom Steinunn Þórðardóttir, formaður Læknafélags Íslands sem sagði frá verðlaunasjóðnum og hver rökstuðningurinn var við valið í ár.
    Tónlist í þættinum í dag:
    Lapis Lazuli / Helgi Björnsson (Helgi Björnsson og Guðmundur Óskar Guðmundsson)
    Lóan er komin / Tendra (James A. Bland, texti Páll Ólafsson)
    Stjörnur stara / Rebekka Blöndal (Ásgeir Jón Ásgeirsson, texti Rebekka Blöndal)
    Brúnaljósin brúnu / Páll Óskar Hjálmtýsson (Jenni Jóns)
    UMSJÓN GUNNAR HANSSON OG HELGA ARNARDÓTTIR
    54 min

About Mannlegi þátturinn

From the publisher's feed

Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1. Netfang: [email protected]. Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.

More shows like Mannlegi þátturinn

Segðu mér by RÚV

Segðu mér

19 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

471 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

131 Listeners

Fókus by DV

Fókus

2 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

90 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

22 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

18 Listeners

Menn eins og við / Einmitt hlaðvarp by Einar Bárðar og Baldur Rafn Gylfason

Menn eins og við / Einmitt hlaðvarp

4 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

21 Listeners

Spjallið by Spjallið Podcast

Spjallið

14 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

36 Listeners

Undirmannaðar by Undirmannaðar

Undirmannaðar

5 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

8 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

25 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

11 Listeners