Mannlegi þátturinn

Mannlegi þátturinn

Download on the App Store

Mannlegi þátturinn episodes

  • Skyrið, Lífræni dagurinn og veðurathugunarstöðin á Grímsstöðum
    Hvað varð um íslenska hnausþykka og súra skyrið okkar og af hverju er það orðið að aukefnaþeyttri, jafnvel sykraðri þunnri jógúrt sem neytendum býðst nánast eingöngu í matvörubúðum í dag? Neytendur þurfa að leggja sig sérstaklega eftir því og fara á tiltekna staði til þess að nálgast alvöru skyr eins og þekktist í gamla daga. Hallgrímur Helgason rithöfundur hrinti af stað kröftugri umræðu um íslenska skyrið á samfélagsmiðlum um helgina og sagði fjölmarga sakna þess og spurði hvers vegna við gátum glutrað þessu niður? Við ræddum um hvað hefur breyst á framleiðslu skyrs, mjólkurvara og annarra matvæla síðastliðin ár, stöðu lífrænnar framleiðslu á Íslandi og Lífræna daginn sem verður haldinn á laugardaginn næstkomandi eða 20.september víða um land. Þær Dóra Svavarsdóttir, formaður Slow food á Íslandi, og Anna María Björnsdóttir, kvikmyndagerðarkona og verkefnastjóri Lífræna dagsins, voru með okkur í þættinum í dag.
    Einar Sveinbjörnsson kom svo til okkar í dag í Veðurspjallið. Í þetta sinn ræddi hannum veðrabrigðin, en það eru talsvert greinileg haustteikn í kortunum, kannski greinilegri en oft áður. Og sagði hann frá heimsókn sinni á Grímsstaði á Fjöllum í sumar. Þar hefur verið veðurathugunarstöð í yfir hundrað ár og er hún ein síðasta mannaða stöðin á landinu.
    Tónlist í þættinum í dag:
    Lambalæri / Ómar Ragnarsson og Lúdó sextett (Hank Williams, texti Ómar Ragnarsson)
    Græna byltingin / Spilverk þjóðanna (Spilverk þjóðanna)
    Vindar að hausti / Sigríður Thorlacius og Sigurður Guðmundsson (Antonio Carlos Jobim, texti Birkir Blær Ingólfsson)
    UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG HELGA ARNARDÓTTIR
    53 min
  • Leikárið í Þjóðleikhúsinu, Bára og Kvæðamannafélagið og Sváfnir lesandi vikunnar
    Við héldum áfram yfirferð okkar um það sem verður á fjölum leikhúsanna í vetur, í síðustu viku var það Borgarleikhúsið, nú er komið að Þjóðleikhúsinu. Magnús Geir Þórðarson, Þjóðleikhússtjóri, kom í þáttinn og sagði okkur frá því sem er á döfinni á nýhöfnu leikári, en Þjóðleikhúsið á einmitt 75 ára afmæli um þessar mundir.
    Dagur rímnalagsins er í dag og við fengum formann Kvæðamannafélagsins Iðunnar Báru Grímsdóttur til okkar en í dag verður sérstök hátíðardagskrá í Salnum í Kópavogi, þar sem barnahópar kveða og Rímnafögnuður í kvöld þar sem frumfluttir verða tveir nýjir rímnaflokkar og annar sérstaklega saminn við þetta tækifæri, Kópavogsbragur hinn síðari. Bára Grímsdóttir leyfði okkur að heyra brot úr honum í þættinum.
    Svo var það lesandi vikunnar, í þetta sinn er það Sváfnir Sigurðarson, tónskáld, textahöfundur, markaðs- og kynningafulltrúi, en hann er einmitt að gefa út nýja barnabók sem kallast Brandara bíllinn. Við fengum hann til að segja okkur aðeins frá henni og svo auðvitað líka frá því hvaða bækur hann hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hann í gegnum tíðina. Sváfnir sagði frá eftirfarandi bókum og höfundum:
    Guð leitar að Salóme e. Júlía Margrét Einarsdóttir
    Óvæntur ferðafélagi e. Eiríkur Bergmann
    Sextíu kíló af kjaftshöggum e. Hallgrímur Helgason
    Stundarfró e. Orri Harðar
    Hundrað ára einsemd e. Gabriel Garcia Marquez
    Punktur punktur komma strik e. Pétur Gunnarsson
    Bjargvætturinn í grasinu e. J.D Salinger
    Tónlist í þættinum í dag:
    Þjóðsaga / Þrjú á palli (þjóðlag, texti Jónas Árnason)
    Létt / Ríó tríó (Gunnar Þórðarson, texti Jónas Friðrik Guðnason)
    Flóð og fjara / Sváfnir Sigurðarson (Sváfnir Sigurðarson)
    UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
    52 min
  • Vigdís Hrefna föstudagsgestur og matarspjall um kjúlla, crepes og brokkolini
    Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var leikkonan Vigdís Hrefna Pálsdóttir. Hún hefur auðvitað leikið fjölda hlutverka á sviði og fyrir framan myndavélar og nú síðast leikur hún aðalhlutverkið, jarðskjálftafræðinginn Önnu í kvikmyndinni Eldarnir, sem byggð er á bók Sigríðar Hagalín Björnsdóttur. Við spurðum hana út í myndina og hlutverkið og fórum með henni aftur í tímann á æskuslóðirnar og svo á handahlaupum í gegnum lífið til dagsins í dag.
    Svo var matarspjallið með Sigurlaugu Margréti Jónasdóttur á sínum stað. Við ræddum í dag um hvað stendur uppúr hjá okkur matarlega séð eftir sumarið. Sigurlaug talaði um crepe suzette, Gunnar gaf upp dásamlega uppskrift fyrir kjúklingabringur og Guðrún nefndi steikt brokkolini.
    Tónlist í þættinum í dag:
    Litla stúlkan við hliðið / Ellý Vilhjálms (Freymóður Jóhannsson, 12.september)
    Snögglega Baldur / Edda Heiðrún Bachman og Leifur Hauksson (Alan Menken, Howard Ashman, íslenskur texti Megas)
    I Threw It All Away - Take 1 / Bob Dylan (Bob Dylan)
    UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
    50 min
  • Gleði Bjargar, Lalli töframaður og mannleg samskipti með Valdimar
    Listakonan Björg Þórhallsdóttir hefur búið í Noregi nánast allt sitt líf og kom núna til Íslands til þess að kynna nýja bók sem hún skrifaði, Gleði Bjargar - Hamingjan er markmið, gleðin er afstaða. Björg er líka höfundur hinna vinsælu dagbóka Tíminn minn, sem komið hafa út hér á landi í rúman áratug. Hún hefur haslað sér völl í Noregi sem myndlistarmaður og rithöfundur og þessi nýja bók hennar var um tíma í efsta sæti bóksölulista þar í landi. Björg kom í þáttinn í dag, beint af flugvellinum, og með henni kom Hildur Blöndal, þerapisti og ráðgjafi en þær vinna saman sem þerapistar í Noregi.
    Við fengum svo töfrabrögð í beinni í þættinum í dag. En Lalli töframaður, eða Lárus Blöndal Guðjónsson, kemur fram með Sinfóníuhljómsveit Íslands í Eldborgarsal Hörpu 20.sept. og verður með sjónhverfingar og töfrabrögð. Sinfóníuhljómsveitin mun spila vinsæl lög úr söngleikjum á borð við Frozen og Mary Poppins. Að auki er að koma út barnabókin Dagur með Lalla, eftir Lalla og hann kom í þáttinn og sagði okkur betur frá bókinni, tónleikunum og töframennskunni.
    Valdimar Þór Svavarsson, ráðgjafi hjá fyrsta skrefinu og umsjónarmaður Meðvirknipodcastsins, kom svo til okkar í dag með það sem við köllum Mannleg samskipti, þar sem við skoðum með honum ýmislegt sem viðkemur mannlegum samskiptum og hvað getur haft áhrif á þau og gert þau flókin. Í dag talaði Valdimar um áföll, sem geta verið gríðarlega margvísleg og fjölbreytt, og áhrif þeirra á okkur, til dæmis í samskiptum okkar við annað fólk, ef við fáum ekki hjálp til að takast á við afleiðingar þeirra.
    Tónlist í þættinum í dag:
    Allur lurkum laminn / Bjarni Ara (Hilmar Oddsson)
    Okkar eigin Osló / Valdimar Guðmundsson (Helgi Svavar Svavarsson og Bragi Valdimar Skúlason)
    A Woman is a Something Thing / Louis Armstrong (Ira Gershwin and George Gershwin)
    He Ain’t Heavy He’s My Brother / The Hollies (Bobby Scott & Bobby Russel)
    UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
    55 min
  • Dýravernd á Íslandi, Spilakvöld á miðvikudögum og tangóhátíð í Reykjavík
    Við fræddumst í dag um Ingunni Einarsdóttur frumkvöðul í baráttu fyrir velferð dýra á Íslandi. Hún fæddist árið 1850 og hvatti til dæmis til stofnunar dýraverndarfélagsins, sem heitir í dag Dýraverndarsamband Íslands. Hún hafði líka forgang um að félagið gæfi út rit til að fræða almenning um velferð dýra. Linda Karen Gunnarsdóttir, formaður Dýraverndarsambandsins og hestafræðingur, var hjá okkur og sagði okkur betur frá Ingunni og dýravernd á Íslandi.
    Tryggvi Björgvinsson, titlaður spilameistari, ætlar að bjóða upp skemmtilega nýjung á Borgarbókasafninu Úlfarsárdal; vikuleg borðspilakvöld fyrir fullorðna (16 ára og eldri) á miðvikudögum milli kl. 19:30-21:30. Tryggvi er einarður borðspilaáhugamaður úr Grafarholtinu og hefur verið viðloðandi spilamennsku frá barnsaldri. Í dag á hann borðspilasafn sem gerir honum kleift að spila mismunandi spil hvern einasta dag almanaksársins.
    Að lokum kynntum við okkur Tangófélagið, sem heldur upp á 25 ára afmælið með þriggja daga tangóhátíð í Kramhúsinu og Iðnó. Þau Bergljót Arnalds og Hlynur Helgason komu í þáttinn og sögðu okkur frá félaginu og tangó á Íslandi.
    Tónlist í þættinum í dag:
    Það styttir alltaf upp / Ragnar Bjarnason og Jón Jónsson (Jón Jónsson)
    Dýravísur / Guitar Islancio
    You Don't Have to Say You Love Me / Dusty Springfield (Pino Donggio, Simon Napier-Bell, V-Pallavicini og Vicky Vickham)
    The Tango of Love and Hate / Bergljót Arnalds (Bergljót Arnalds)
    UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
    50 min
  • Helga og Heilsuvaktin, Sirrý og Lífskraftur og Friðrik og arabískar nætur
    Helga Arnardóttir kom til okkar í dag, en hún verður með Heilsuvaktina annan hvern þriðjudag í þættinum, eins og síðasta vetur. Í dag sagði hún okkur frá því sem hún ætlar að fjalla um í haust, til dæmis langvarandi einkenni Covid, þyngdarstjórnunarlyfjum, breytingar á lífstíl til að ná bata eða tökum á sjúkdómum, heilsusamlegt mataræði og hreyfingu, mýtur þegar kemur að heilsu og fleira.
    Á Íslandi greinast árlega 15-20 konur með leghálskrabbamein og 3-5 deyja árlega vegna þess. Áhrifin eru auðvitað mikil á fjölskyldur, aðstandendur, samfélagið og atvinnulífið og meðferðin kostar gríðarlega mikið. Sirrý Ágústsdóttir er stofnandi Lífskrafts og hefur greinst með leghálskrabbamein tvívegis. Hún kom í þáttinn og sagði okkur frá Lífskrafti, sinni reynslu og markmiðinu að Ísland verði fyrsta þjóðin í heiminum til að útrýma leghálskrabbameini.
    Við forvitnuðumst svo að lokum um arabíska menningu sem er fagnað með tónlist og dansi í Kramhúsinu þessa vikuna. Friðrik Agni Árnason skipuleggur hátíðina Arabískar Nætur í Reykjavík, ásamt Írisi Stefaníu, þar sem þau vilja sýna þennan fjarræna menningarheim í jákvæðu ljósi. Við heyrðum í Friðrik í dag.
    Tónlist í þættinum í dag:
    Don’t Try to Fool Me / Jóhann G. Jóhannsson (Jóhann G. Jóhannsson)
    In My Life / The Beatles (Lennon & McCartney)
    Missisippi / Cactus Blossom
    Men Nazra / Nancy Ajram (Ziad Jamal)
    UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
    54 min
  • Leikárið í Borgarleikhúsinu, íslensk matargerð í Japan og Rósa lesandi vikunnar
    Við héldum áfram yfirferðinni um leikhúsin í dag, að skoða það sem verður á fjölunum í vetur. Í síðustu viku var það Tjarnarbíó, nú var komið að Borgarleikhúsinu. Egill Heiðar Anton Pálsson, leikhússtjóri, kom í þáttinn og sagði okkur allt um leikárið framundan í Borgarleikhúsinu.
    Hinrik Carl Ellertsson, íslenskur matreiðslumaður og kennari við Menntaskólann í Kópavogi, er nýkominn heim úr ferð til Japans. Þar sinnti hann kynningu á norrænni matargerð í Nordic Pavilion á heimssýningunni í Osaka og hélt jafnframt masterclass í hinum virta Tsuji matreiðsluskóla. Á heimssýningunni í Osaka tók Hinrik Carl þátt í að kynna norræna matarmenningu ásamt kokkum frá Færeyjum og vakti þetta mikla athygli, en yfir þrjátíu greinar birtust í japönskum og erlendum fjölmiðlum. Við spjölluðum við Hinrik í dag.
    Svo var það lesandi vikunnar, í þetta sinn var það Rósa Ólöf Ólafíudóttir, hjúkrunarfræðingur, djákni og uppeldisfræðingur. Hún er að skrifa bók um bróður sinn Lalla Johns, en hann tók af henni loforð áður en hann dó að hún myndi skrifa bók um hann. Við fengum hana til að segja okkur aðeins frá bókinni, Lalla og söfnuninni fyrir útgáfu bókarinnar á Karolinafund. En svo sagði hún okkur auðvitað líka frá því hvaða bækur hún hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hana í gegnum tíðina. Rósa talaði um eftirfarandi bækur og höfunda:
    Biblían
    Ástkær e. Tony Morrison
    Hind's feet on high places e. Hannah Hurnard
    barnabækurnar Litla ljót og Láki Jarðálfur
    Litbrigði jarðarinnar e. Ólafur Jóhann Sigurðsson
    Ljóð Steins Steinarrs
    Tónlist í þættinum í dag:
    Haust / Elly Vilhjálms og Hljómsveit Svavars Gests (Baldur Geirmundsson)
    Do it / Hera Hjartardóttir (Hera Hjartardóttir)
    Haust / Stefán Hilmarsson (Heimir Sindrason og Ari Harðarson)
    UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
    52 min
  • Þórhildur Sunna föstudagsgestur og Albert gestur í matarspjallinu
    Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, mannréttindalögfræðingur, fyrrverandi þingmaður og þingflokksformaður Pírata var föstudagsgestur Mannlega þáttarins að þessu sinni. Þórhildur er nýtekin við stöðu framkvæmdastjóra alþjóðlegu samtakanna Courage International, samtök sem helga sig baráttunni fyrir frjálsu flæði upplýsinga, tjáningarfrelsi, fjölmiðlafrelsi og friðhelgi einkalífsins. Við fórum með Þórhildi Sunnu aftur í tímann í gegnum erfiða reynslu í æsku, þar sem réttlætiskenndin kviknaði og fórum svo með henni á handahlaupum í gegnum lífið til dagsins í dag, með viðkomu í Þýskalandi, Hollandi og Belgíu.
    Matarspjallið hófst svo að nýju í dag þegar Sigurlaug Margrét kom með gest með sér í hljóðstofu, gest sem hún minnist oft á í matarspjallinu, Albert Eiríksson. Albert hefur nýlokið við að skrifa matreiðslubók um einfalda og holla rétti og hann kom ekki tómhentur.
    Tónlist í þættinum í dag:
    Farfuglarnir / Ragnheiður Gröndal (Jóhann Helgason, texti Þórarinn Eldjárn)
    It’s a Fire / Portishead (Adrian Utley, Beth Gibbons & Geoff Barrow)
    Lady K / Emilíana Torrini (Emilíana Torrini og Simon Byrt, texti Emilíana Torrini)
    UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
    54 min
  • Þjóðræknisþing, Valdimar og mannleg samskipti og Uppskriftabókin á RÚV
    Næsta sunnudag stendur Þjóðræknisfélag Íslendinga fyrir Þjóðræknisþingi í Reykjavík, en markmið félagsins er að efla tengsl, samhyggð og samstarf milli Íslendinga heima og erlendis, fólk af íslenskum ættum í Norður-Ameríku. Guðrún Ágústsdóttir, formaður félagsins og Pála Hallgrímsdóttir sem er í stjórn félagsins komu í þáttinn og sögðu okkur betur frá þinginu og félaginu.
    Valdimar Þór Svavarsson ráðgjafi mun vera með okkur á fimmtudögum í haust með það sem við köllum Mannleg samskipti. Við kynntumst Valdimari í dag og hvar hans reynsla liggur og fórum með honum yfir það sem hann mun taka fyrir næstu fimmtudaga, til dæmis margar hliðar meðvirkni og í rauninni hvað meðvirkni er. Áföll og afleiðingar áfalla og margt fleira, sem einmitt getur haft áhrif á samskipti okkar við annað fólk, innan fjölskyldna, í ástarsamböndum, á vinnustaðnum og í rauninni út um allt. Mynstur sem við þróum, af ýmsum ástæðum, í æsku fylgja okkur í gegnum lífið og litar öll okkar samskipti við annað fólk. Hlustendur geta svo jafnvel sent spurningar á [email protected] sem Valdimar Þór mun gera sitt besta við að svara næstu fimmtudaga.
    Uppskriftabókin er nýr matreiðsluþáttur þar sem Solla Eiríks heimsækir konur sem hafa áratuga reynslu af matargerð og fær að kíkja í uppskriftarbækur þeirra. Uppskriftabókin eru þættir sem flétta saman matarhefðum okkar við nýsköpun og náttúruauð, með það að markmiði að miðla þekkingu á milli kynslóða. Sunneva Ása Weisshappel leikstýrir þáttunum og hún kom ásamt Sollu í þáttinn í dag, en í fyrsta þættinum koma við sögu kindakæfa og sápa.
    Tónlist í þættinum í dag:
    Garden party / Mezzoforte (Eyþór Gunnarsson)
    Peaceful Easy Feeling / Eagles (Jack Tempchin)
    Slide on by / Hera Hjartardóttir (Hera Hjartardóttir)
    Út hjá Haga / Bubbi Morthens (Carl Michael Bellman, íslenskur texti Hjörtur Pálsson)
    UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
    53 min
  • Magnús kenndi jóga í Kabúl, maraþonbakstur og Vonarbrú
    Það eru ekki allir sem finna „einu og réttu“ leiðina í því sem þau vilja gera í lífinu. Sumir vita upp á hár hvað þau vilja læra og vinna við, jafnvel frá því þau voru mjög ung, en svo er líka töluvert margir sem hafa ekki hugmynd um hvað þau vilja verða „þegar þau verða stór“. Magnús Árni Skjöld Magnússon, prófessor í stjórnmálafræði við Háskólann á Bifröst, er einn þeirra. Hann fór úr einu í annað, sökkti sér á bólakaf í mismunandi áhugamál, mismunandi nám, vinnur, jafnvel mismunandi trúarbrögð en áttaði sig svo á því að kannski væri það bara allt í lagi, kannski væri það einmitt hans leið. Hann að minnsta kosti skrifaði bókina Hvernig ég varð jógakennarinn í Kabul, þar sem hann fer yfir sína sögu og reynslu og aðferð sem hann bjó til sem hefur nýst honum og gæti jafnvel nýst fleirum. Magnús sagði okkur betur frá bókinni og þessu í þættinum.
    Lilja Katrín Gunnarsdóttir leikkona bakaði í sólarhring árið 2016 og safnaði fé fyrir Kraft og nú, níu árum síðar, ætlar hún að endurtaka leikinn og baka í sólarhring núna um helgina til styrktar Berginu headspace. Þau hjónin Lilja Katrín og Guðmundur Ragnar Einarsson og þeirra börn urðu fyrir áfalli í byrjun árs þegar fóstursonur þeirra, Guðni Alexander Snorrason, lést aðeins tvítugur að aldri. Þau Lilja og Guðmundur komu í þáttinn í dag.
    Svo komu þær Ragnheiður Steindórsdóttir og Guðný Gústafsdóttir. En þær eru tvær af þeim sem standa að almannaheillafélaginu Vonarbrú sem stofnað var í vor. Tilgangur félagsins er meðal annars að safna fjármagni til að styrkja u.þ.b. 70 stríðshrjáðar barnafjölskyldur sem búa við mjög erfiðar aðstæður á Gaza. Markmiðið er að veita þessum fjölskyldum nauðsynlegan stuðning við kaup á mat, hreinlætisvörum og öðrum mikilvægum nauðsynjum. Þær sögðu okkur frá félaginu og starfi þess í dag, en frekari upplýsingar um það má finna á www.vonarbru.is.
    Tónlist í þættinum í dag:
    Leiðin okkar allra / Hjálmar (Þorsteinn Einarsson, texti Einar Georg Einarsson)
    Golden Brown / The Stranglers (Dave Greenfield, Hugh Cornwell, Jean Jacques Burnel, Jet Black)
    Þetta loft / Sigurður Halldór Guðmundsson (Sigurður Halldór Guðmundsson)
    UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
    50 min

About Mannlegi þátturinn

From the publisher's feed

Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1. Netfang: [email protected]. Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.

More shows like Mannlegi þátturinn

Segðu mér by RÚV

Segðu mér

19 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

471 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

131 Listeners

Fókus by DV

Fókus

2 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

90 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

22 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

18 Listeners

Menn eins og við / Einmitt hlaðvarp by Einar Bárðar og Baldur Rafn Gylfason

Menn eins og við / Einmitt hlaðvarp

4 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

21 Listeners

Spjallið by Spjallið Podcast

Spjallið

14 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

36 Listeners

Undirmannaðar by Undirmannaðar

Undirmannaðar

5 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

8 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

25 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

11 Listeners