Mannlegi þátturinn

Mannlegi þátturinn

Download on the App Store

Mannlegi þátturinn episodes

  • Gunnar Svanbergsson glímir enn við eftirköst Covid og Eydís Blöndal lesandi vikunnar
    Gunnar Svanbergsson sjúkraþjálfari kom í þáttinn í dag, hann fékk Covid um jólin 2020, sem hann lýsti þá eins og bara ansi týpískri skítapest, en eftir hana var hann eiginlega alveg máttlaus og til að gera langa sögu stutta þá er hann ekki enn þann dag í dag búinn að jafna sig. Áður en hann veiktist var hann mikill útvistar- og ævintýramaður í toppformi. Nú, um það bil fjórum og hálfu ári eftir að hann veiktist líkir hann því við að hann þurfi að klífa Everest, eða yfirþyrmandi hindrun, bara til að komast fram úr rúminu og ná sér í kaffi. Við fengum Gunnar til að segja okkur þessa erfiðu reynslusögu, hvernig ferlið hefur verið og hvernig útlitið er framundan.
    Lesandi vikunnar í þetta sinn var Eydís Blöndal, hugmynda- og textasmiður og ljóðskáld. Við fengum að vita hvaða bækur hún hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hana í gegnum tíðina. Eydís talaði um eftirfarandi bækur og höfunda:
    The Vegetarian e. Han Kang
    When Things Fall Apart e. Pema Chödrön
    Límonaði frá Díafani e. Elísabetu Jökulsdóttur
    Piranesi e. Susanna Clarke
    I Who Have Never Known Men e. Jacqueline Harpman
    Hús andanna e. Isabel Allende
    Lovestar e. Andra Snæ Magnason
    Tónlist í þættinum í dag:
    Sól bros þín / Bubbi Morthens (Bubbi Morthens)
    Sólarsamban / Rebekka Blöndal (Ásgeir Jón Ásgeirsson, texti Rebekka Blöndal og Stefán Örn Gunnlaugsson)
    UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
    54 min
  • Jóhannes Haukur föstudagsgestur, matarspjall um skrýtnar samsetningar
    Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var leikarinn Jóhannes Haukur Jóhannesson. Hann hefur mikið látið að sér kveða eftir að hann útskrifaðist úr leiklistarskólanum, bæði í leikhúsi og fyrir framan myndavélina þar sem hann hefur leikið margvísleg hlutverk. En svo fyrir rúmum tíu árum fékk hann fyrsta hlutverk sitt í erlendu kvikmyndaverkefni og þá fór boltinn að rúlla. Í dag flýgur hann heimshornanna á milli og leikur í gríðarstórum kvikmyndum og sjónvarpsþáttaröðum, Game of Thrones, Succession, nýjustu ofurhetjumyndinni um Captain America og nú er hann að leika í kvikmynd um He-Man, eða Garp eins og hann kallaðist á íslensku. Við fórum með Jóhannesi aftur á æskuslóðirnar, en hann ólst að hluta til upp í Færeyjum og brunuðum svo með honum í gegnum lífið til dagsins í dag.
    Í matarspjalli dagsins með Sigurlaugu Margréti tókum við framhaldsumræðu um af makkarónur með hangikjöti og kokteilsósa og pítusósa með pizzum og aðrar skrýtnar, eða að minnsta kosti óvenjulegar samsetningar á mat. Ef þið lumið á sögum af slíku, samsetningu á mat sem er kannski þekkt í einhverjum fjölskyldum, eða í einhverjum landshlutum, en gætu þótt sérkennilegar annars staðar, þá endilega sendið okkur á [email protected].
    Tónlist í þættinum í dag:
    Pabbi vill mambó / Páll Óskar og Milljónamæringarnir (Al Hoffman, Bix Reichner, Dick Manning, textahöfundur ókunnur)
    Hvað er ástin? / GDRN (Friðrik Dór Jónsson og Jón Jónsson)
    Rólegur kúreki / Bríet (Bríet Ísis Elfar og Pálmi Ragnar Ásgeirsson)
    UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
    53 min
  • Mýrdalshlaupið, nýr veðurvefur á ruv.is og Baugur Bjólfs
    Mýrdalshlaupið hefur tryggt sér sess meðal bestu og stærstu utanvegahlaupaviðburða á Íslandi síðustu ár og fer nú fram í 12. skipti þann 31. maí að Vík í Mýrdal. Allt skipulag og utanumhald hlaupsins er í höndum einnar fjölskyldu frá Vík og hlaupið er ræst í fjörunni í Vík og hlaupa allir keppendur upp á Reynisfjall vestan við þorpið þar sem leiðir skilja. Hlaupið er eitt mest krefjandi utanvegahlaup á Íslandi vegna mikillar hækkunar og lækkunar, mikils bratta og fjölbreytts undirlags. Guðni Páll Pálsson, einn af skipuleggjendunum og meðlimur fjölskyldunnar sem stendur að hlaupinu, kom til okkar í dag og með honum var Þorsteinn Roy Jóhannesson sem er einn besti utanvegahlaupari landsins.
    Veðrið og margbreytileiki er auðvitað fyrirferðamikið í umræðunni, enda hefur það mikil áhrif á okkar daglega líf hér á eyjunni í Norður-Atlantshafi. Nú hefur opnað nýr veðurvefur á ruv.is og er hann síuppfærður með veðurupplýsingum frá Veðurstofu Íslands. Lögð er áhersla á að greina frá veðurspánni á myndrænan hátt þar sem hægt er að skoða allar veðurstöðvar landsins og nágrenni þeirra og fá langtímaspár og ýmislegt fleira. Við heyrðum í Birgi Þór Harðarsyni vefstjóra ruv.is fengum hann til að segja okkur betur frá þessum nýja vef sem hægt er að finna á www.ruv.is/vedur og á www.vedurspa.is.
    Í Landnámu er sagt frá landnámsmanninum Bjólfi, sem fyrstur nam Seyðisfjörð. Ekki er mikið meira fjallað um ferðir Bjólfs, en sagan segir að hann sé heygður hátt uppi í fjallinu. Baugur Bjólfs er hringlaga útsýnispallur sem mun sitja á Bæjarbrún, fyrir neðan Baugstind, þar sem er einstakt útsýni yfir Seyðisfjörð og í raun til allra átta. Við slógum á þráðinn austur og töluðum við Aðalheiði Borgþórsdóttur, atvinnu- og menningarmálastjóri hjá Múlaþingi og fyrrum sveitarstjóri Seyðisfjarðar, og fengum hana til að segja okkur betur frá þessu verkefni í dag.
    Tónlist í þættinum í dag:
    Dúddi rádd'okkur heilt / Stuðmenn og Eggert Þorleifsson (Sigurður Bjóla Garðarsson, Valgeir Guðjónsson og Egill Ólafsson)
    Stingum af / Mugison (Örn Elías Guðmundsson)
    Perlur og svín / Emilíana Torrini (Ólafur Gaukur Þórhallsson, texti Hallgrímur Helgason)
    Simple pleasures / Blood harmony (Ösp Eldjárn)
    UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
    55 min
  • Vinnuvernd og útvarpsþáttaröðin Kaflaskil um menntamálin
    Samskipti, streita, fjarvistir og félagsleg sjálfbærni á vinnustöðum er nokkuð sem fyrirtækið Auðnast vinnur með og leggur áherslu á gott umhverfi fyrir starfsfólk og vinnustaði. Ragnhildur Bjarkadóttir sálfræðingur og sérfræðingur í vinnuvernd kom í þáttinn í dag og við til dæmis veltum fyrir okkur hvað felst í orðinu vinnuvernd, en hér á árum áður þýddi það aðallega gulur hjálmur en í dag svo miklu meira.
    Svo skoðuðum við menntamálin, nánar tiltekið nýja þáttaröð sem heitir Kaflaskil. Í þeim er farið djúpt ofan í stöðuna í menntamálum, þar sem talað er við kennara, skólastjóra og nemendur. Er A í einum skóla það sama og A í öðrum? Hvernig ná skólarnir að sinna nemendum með fötlun eða nemendum með erlendan bakgrunn? Guðrún Hálfdánardóttir, kollegi okkar hér á Rás 1 og umsjónarmanneskja þáttaraðarinnar, var hjá okkur í dag og fór betur með okkur yfir menntamálin og efni þáttaraðarinnar og við fengum að heyra tvö brot úr þáttunum, úr viðtali Guðrúnar við Sigrúnu Blöndal deildarstjóra í 6.- 10. bekkjar í Egilsstaðaskóla. Hægt er að hlusta á þættina á sunnudögum á Rás 1 og í spilara RÚV á ruv.is
    Tónlist í þættinum í dag:
    Nú liggur vel á mér / Lummurnar, útsetning Gunnar Þórðarson (Óðinn G. Þórarinsson, texti Númi Þorbergsson)
    Nútíminn / Þursaflokkurinn (Egill Ólafsson, texti Sigurður Bjóla Garðarsson)
    Gaggó Vest / Eiríkur Hauksson (Gunnar Þórðarson, texti Ólafur Haukur Símonarson)
    UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
    50 min
  • VÆB bræður á svið í kvöld, diskóball fyrir eldri borgara og veðurspjallið
    VÆB bræðurnir tveir, Hálfdán og Mattías Mattíassynir stíga á Eurovisionsviðið í kvöld ásamt dönsurum og syngja lagið Róa. Þeir voru sérstaklega valdir til að vera fyrstir af því stjórnendur keppninnar vildu að kvöldið myndi byrja með miklu stuði. Fararstjóri íslenska hópsins er sem fyrr Felix Bergsson og við vorum með hann á línunni í dag og fengum nýjustu fréttir frá Basel.
    Miðvikudagsbíó hefur verið vinsælt í vetur í Bíó Paradís, þessar sýningar voru hugsaðar fyrir eldra fólk, fólk sem vinnur á kvöldin og bara hvern sem vildi koma um miðjan dag í bíó. 28.maí verður lokaviðburður miðvikudagsbíósins með frumsýningu á gamanmynd og boðið verður upp á diskóball fyrir eldri borgara strax eftir sýninguna. Hrönn Sveinsdóttir, framkvæmdastjóri Bíó Paradísar, og Katrín Þorsteinsdóttir, dyggur aðdáandi miðvikudagsbíósins og kvikmynda yfir höfuð, komu til okkar og sögðu betur frá þessu í þættinum.
    Svo kom Einar Sveinbjörnsson til okkar í veðurspjallið í dag. Í þetta sinn talaði hann um lýsingar á veðri, orðfæri og tungutak. Þ.e.a.s. hann bar saman hvernig veðrinu var lýst á 19.öld af Erlendi Björnssyni og hvernig það yrði orðað í dag og hvernig mun þetta mögulega þróast áfram inn í framtíðina. Svo rýndi Einar í langtímaútlitið út maí og jafnvel aðeins inn í júní.
    Tónlist í þættinum í dag:
    Never Ever Let You Go / Rollo and King (Sören Poppe, Stefan Nielsen og Thomas Brekling)
    Róa (Jazz útgáfa) / VÆB (Hálfdán Helgi Matthíasson, Matthías Davíð Matthíasson, Gunnar Björn Gunnarsson og Ingi Þór Garðarsson)
    Bara Bada Bastu / Kaj (Anderz Wrethov, Axel Åhman, Jakob Norrgård, Kevin Holmström, Kristoffer Strandberg, Robert Skowronski)
    Calm After the Storm / The Common Linnets (Ilse Delange, JB Meijers, Rob Crosby, Matthew Crosby og Jake Etheridge)
    UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
    52 min
  • LED væðing garðyrkjubænda, syngur Cohen og Védís Eva lesandi vikunnar
    Garðyrkjubændur geta fengið allt að 15 milljóna króna styrk úr loftslags- og orkusjóði vegna fjárfestinga í orkusparandi tækni, LED-ljósum, tölvu- og stýribúnaði og gardínukerfum. Jóhann Páll Jóhannsson umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra hefur undirritað reglugerð um styrkina sem geta numið allt að 40% af heildarkostnaði við fjárfestingu, en þó að hámarki 15 milljónir. Axel Sæland er formaður deildar garðyrkjubænda hjá Bændasamtökum Íslands og hann kom í þáttinn í dag og sagði okkur betur frá stöðunni.
    Margir hafa horft á þáttaröðina um söngvaskáldið Leonard Cohen sem sýnd var nýlega í sjónvarpinu og er enn aðgengileg í spilaranum á ruv.is. Þar er rifjað upp tímabil í lífi söngvarans þegar hann var við það að slá í gegn og sambúð hans með hinni norsku Marianne. Söngvarinn og lagasmiðurinn Daníel Hjálmtýsson hefur sungið lög Leonard Cohen og vakið athygli fyrir góða túlkun. Daniel og hljómsveit hans voru til dæmis þau fyrstu til að flytja síðustu plötu Leonard Cohen, You Want it Darker, í heild sinni í IÐNÓ árið 2019. Nú ætlar Daníel að syngja lög Leonard Cohen í Hvalsneskirkju, Akraneskirkju og í Djúpinu í Reykjavík í lok maímánaðar og hann kom í þáttinn og fræddi okkur um Cohen.
    Lesandi vikunnar í þetta sinn var Védís Eva Guðmundsdóttir, hún er menntaður lögfræðingur og hefur starfað sem slíkur erlendis og hér á landi, en í dag rekur hún frönsku sælkeraverslunina Hyalin á Skólavörðustíg, ásamt eiginmanni sínum og er sest aftur á skólabekk, í þetta sinn í ritlist við Háskóla Íslands. En hún var auðvitað komin í þáttinn til að segja okkur frá því hvaða bækur hún hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hana í gegnum tíðina. Védís Eva talaði um eftirfarandi bækur og höfunda:
    Orbital e. Samantha Harvey
    Matrenescence e. Lucy Jones
    Heyrnalaut lýðveldi e. Ilya Kaminski
    Kafka á ströndinni, 1Q84 og fleiri bækur eftir Haruki Murakami
    Himnaríki og helvíti og Fiskarnir hafa enga fætur e. Jón Kalmann
    Tónlist í þættinum í dag:
    Það er svo ótal margt / Ellý Vilhjálms (Smith & Lindsey, texti Jóhanna G. Erlingsson) All kinds of everything
    Ég vil bara beat músík / Ríó tríó (Dixon & Mason, texti Ómar Ragnarsson)
    So Long Marianne / Leonard Cohen (Leonard Cohen)
    UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
    50 min
  • Inga Eydal föstudagsgestur og hnausþykkar pizzur og ofsoðið pasta í matarspjallinu
    Föstudagsgesturinn okkar að þessu sinni kemur að norðan, söngkonan og hjúkrunarfræðingurinn Inga Eydal. Inga hefur verið að syngja frá blautu barnsbeini, dóttir Ingimars Eydal tónlistarmanns og Ástu Sigurðardóttir, en Ásta samdi fjölmarga dægurlagatexta við lög sem hljómsveit Ingimars flutti hér á árum áður. Inga söng með hljómsveit föður síns, rak sína eigin hljómsveit um tíma auk þess að starfa sem hjúkrunarfræðingur. Árið 2020 gaf hún út bók sem vakti mikla athygli, Konan sem datt upp stigann, saga af kulnun. Inga hefur í kjölfar útgáfu bókarinnar haldið fjölmarga fyrirlestra um þessa reynslu sína af kulnun og hefur einnig veitt ráðgjöf og stuðning við einstaklinga meðal annars vegna kulnunar, langvarandi veikinda og streitu. Við fórum með Ingu aftur í tímann á æskuheimilið og fetuðum okkur í gegnum lífið til dagsins í dag.
    Matarspjallið var svo sent út frá þremur stöðum í dag, Reykjavík, Akureyri, þar sem Guðrún var, og Laxárdal hvar Sigurlaug Margrét var. Við ræddum um ítalskan mat, þ.e. þegar hann kom fyrst til landsins, pasta og pizzur.
    Tónlist í þættinum í dag:
    Hvítur Stormsveipur / Hljómsveit Ingimars Eydal (Finnur Eydal)
    Gömul saga / Atlantic kvartettinn og Helena Eyjólfs (Livingstone, texti Jón Sigurðsson)
    Í fyrsta sinn ég sá þig / Inga Eydal (Birger Sjöberg, Magnús Ásgeirsson)
    UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
    53 min
  • Sánuvagn Mæju, vorverkin í garðinum og Skjálftasögur
    María Pálsdóttir leikkona hefur svo sannarlega látið að sér kveða hér á Akureyri síðan hún flutti aftur þangað fyrir nokkrum árum. Hún opnaði Hælið, setur um sögu berklanna á Íslandi sem hefur hlotið mikla athygli enda fróðleg og áhrifarík sýning. Hún kom á fót Fiðringi, hæfileikakeppni grunnskólanna á Akureyri í ætt við Skrekk fyrir sunnan og í gærkvöldi kepptu níu grunnskólar til úrslita í Hofi. Nú síðast hefur hún sett á stofn fargufu á Akureyri sem hún kalla Sánuvagn Mæju. María sagði okkur frá þessu öllu í þættinum í dag.
    Garðeigendur eru byrjaðir að huga að garðinum og víða er fólk að hreinsa til eftir veturinn. Guðríður Helgadóttir garðyrkjufræðingur kom til okkar í dag og fór yfir vorverkin og sagði okkur líka frá 140 ára afmæli Garðyrkjufélags Íslands, en hún er einmitt formaður félagsins.
    Fyrir aldarfjórðungi, í júnímánuði árið 2000, riðu yfir Suðurland öflugir jarðfskjálftar sem skildu eftir sig djúp spor í minni þeirra sem upplifðu þá. Sveitarfélagið Rangárþing ytra stendur að verkefninu „Skjálftasögur“ með það að markmiði að safna saman persónulegum sögum af þessum stóra atburði og hvetja fólk sem upplifði skjálftana til að deila reynslu sinni, en sveitarfélagið vill nú tryggja að þessar mikilvægu frásagnir verði skrásettar. Ösp Viðarsdóttir, markaðs- og kynningafulltrúi Rangárþings ytra sagði okkur betur frá þessu verkefni, en hægt er að senda inn sögur á heimasíðu sveitarfélagsins: www.ry.is
    Tónlist í þættinum í dag:
    Ævilagið / Hljómsveitin Eva (Jóhanna Vala Höskuldsdóttir og Sigríður Eir Zophoníasardóttir)
    Hvað um mig og þig? / Ragnhildur Gísladóttir (Magnús Eiríkisson)
    Tíu dropar / Moses Hightower (Moses Hightower, texti Steingrímur Karl Teague og Andri Ólafsson)
    Tíu dropar af sól / Baggalútur (Bragi Valdimar Skúlasons)
    UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
    54 min
  • Hollar skólamáltíðir, breytt nálgun í geðheilbrigðismálum og póstkort frá Magnúsi
    Hollar skólamáltíðir fyrir loftslagið og líðan barna er yfirskrift málþings sem verður haldið þann 13. maí í samstarfi Menntavísindasviðs HÍ og Aldins, samtaka eldri borgara gegn loftslagsvá. Meginmarkmiðið er að varpa ljósi á tengsl hollra skólamáltíða, umhverfis og líðan barna í námi og starfi. Málþingið er öllum opið og séstakir gestir koma frá Finnlandi og Svíþjóð og lýsa reynslu sinni af fyrirkomulagi skólamáltíða . Laufey Steingrímsdóttir næringarfræðingur kom í þáttinn og sagði frá.
    Þörf fyrir samfélagsbreytingar 2025 er yfirskriftin á ráðstefnu og vinnustofum sem Geðhjálp stendur fyrir. Þar munu koma fram fyrirlesarar sem hafa beitt sér á alþjóðavettvangi fyrir breyttri nálgun í geðheilbrigðismálum, nálgun sem hefur skilað árangri. Grímur Atlason framkvæmdastjóri Geðhjálpar kom til okkar í dag og sagði okkur meðal annars frá áfallameðvituðu fangelsiskerfi og fleiru sem rætt verður um á ráðstefnunni. Upplýsingar um ráðstefnuna má finna hér: https://socialchange.is/
    Við fengum svo póstkort frá Magnúsi R. Einarssyni í dag og í korti dagsins talaði Magnús um Lundahlaupið, The Puffin Run eins og það heitir opinberlega, en það er nú að baki í Vestmannaeyjum og þótti takast einstaklega vel. Magnús segir frá því að hann missti gersamlega af öllu því tilstandi því hann var að fylgjast með úrslitaleiknum í snóker sem fór fram á sama tíma. Hann segir aðeins frá sögu þessa vinsæla leiks og ennfremur af helstu snókerstjörnu samtímans, Ronnie O'Sullivan sem Magnús segir að sé gallaður snillingur.
    Tónlist í þættinum í dag:
    Sjáumst aftur / Páll Óskar (Orlande de Lassus, texti Páll Óskar Hjálmtýsson)
    Vegbúi / Una Torfa og Elín Hall (KK)
    Stella í orlofi / Diddú (Valgeir Guðjónsson)
    Froðan / Jón Jónsson og Ragnar Bjarnason (Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson, texti Ásgeir Sæmundsson)
    UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
    51 min
  • Umhirða legstaða, appið Lifetrack og umhverfisveikindi á Heilsuvaktinni
    Kirkjugarðar Reykjavíkur bjóða aðstandendum og umsjónarfólki legstaða upp á fræðsludag á morgun í Fossvogskirkjugarði. Þar munu starfsmenn veita ráðgjöf um umhirðu legstaða og jafnvel einnig ráðleggingar sem gætu nýst í heimagörðum eða við sumarbústaðinn. Heimir Janusarson, garðyrkjufræðingur og starfsmaður Kirkjugarða Reykjavíkur, kom í þáttinn í dag og sagði okkur betur frá þessu og göngu sem hann mun leiða um Fossvogsgarð.
    Fjölmargir Íslendingar hafa notað ýmis öpp til að bæta lífstíl sinn með því til dæmis að auðvelda sér að ná jafnvægi næringarefna, efla hreyfingu og jákvætt hugarfar. Hjónin Ingi Torfi Sverrisson og Linda Rakel Jónsdóttir heilsu og markþjálfar standa á bak við nýtt íslenskt app á þessum nótum, Lifetrack, og við heyrðum í Inga Torfa í þættinum og fræddumst um það hvernig þetta virkar.
    Töluverður fjöldi fólks upplifir svokölluð umhverfisveikindi sem koma oft til af myglu í húsnæði. Umhverfisveikindi geta orðið svo alvarleg að fólk getur ekki búið eða unnið í húsnæðinu og verður fárveikt, orkulaust, þjakað af hausverkjum og mikilli vanlíðan. Linda Gunnarsdóttir sjúkraþjálfari og framkvæmdastjóri Heilsumiðstöðvarinnar Endurheimt er ein þeirra sem varð að umbylta sínum lífstíl til að ná heilsu á ný eftir erfið veikindi. Helga Arnardóttir ræddi við Lindu á Heilsuvaktinni í dag.
    Tónlist í þættinum í dag:
    Ég leitaði blárra blóma / Hörður Torfason (Hörður Torfason, texti Tómas Guðmundsson)
    Átján rauðar rósir / Berti Möller og Lúdó og Stefán (Bobby Darrin, íslenskur texti Iðunn Steinsdóttir)
    Garðurinn minn / Baggabandið (Magnús Þór Sigmundsson)
    Matthew and Son / Cat Stevens (Yusuf/Cat Stevens)
    UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
    54 min

About Mannlegi þátturinn

From the publisher's feed

Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1. Netfang: [email protected]. Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.

More shows like Mannlegi þátturinn

Segðu mér by RÚV

Segðu mér

19 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

471 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

131 Listeners

Fókus by DV

Fókus

2 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

90 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

22 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

18 Listeners

Menn eins og við / Einmitt hlaðvarp by Einar Bárðar og Baldur Rafn Gylfason

Menn eins og við / Einmitt hlaðvarp

4 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

21 Listeners

Spjallið by Spjallið Podcast

Spjallið

14 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

36 Listeners

Undirmannaðar by Undirmannaðar

Undirmannaðar

5 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

8 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

25 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

11 Listeners