Mannlegi þátturinn

Mannlegi þátturinn

Download on the App Store

Mannlegi þátturinn episodes

  • Doktorsrannsókn Ingu, samantekt á fjármálaspjalli og Svala lesandi vikunnar
    Þættir sem spá fyrir um flutning á hjúkrunarheimili og umönnunarbyrði aðstandenda, er heiti á doktorsritgerð sem Inga Valgerður Kristinsdóttir sérfræðingur í Heimahjúkrun varði í Hjúkrunarfræði við Hjúkrunar og ljósmóðurfræðideild Háskóla Íslands, fyrir 2 vikum. Doktorsrannsóknin hafði það að markmiði að varpa ljósi á þessa stöðu til að greina hvernig mætti þróa heimaþjónustu til að bregðast betur við þessum þörfum og styðja við eldra fólk til áframhaldandi búsetu á eigin heimili. Einnig er staðan hér á landi borin saman við nokkur lönd í Evrópu og niðurstaðan úr þeim samanburði er áhugaverð. Inga sagði okkur betur frá þessu í þættinum.
    Í dag kom Georg Lúðvíksson til okkar í síðasta sinn í bili í það sem við höfum kallað fjármálin á mannamáli. Því leit hann yfir farinn veg með okkur í dag og fór aðeins aftur yfir það helsta sem hann hefur talað um síðastliðna mánudaga: sparnað, lífeyrissjóðsmálin, lánaumhverfið, vextina og fleira. Sem sagt samantekt á mannamáli með Georgi í dag.
    Svo var það lesandi vikunnar, sem var í þetta sinn Svala Ísfeld Ólafsdóttir, dósent við lagadeild HR. Hún sagði okkur frá því hvað hún hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hana í gegnum tíðina. Svala talaði um eftirfarandi bækur og höfunda:
    Rokið í stofunni e. Guðrúnu Jónínu Magnúsdóttur
    Álfadalur e. Guðrúnu Jónínu Magnúsdóttur
    A Very Private School e. Charles Spencer
    Býr Íslendingu hér? e. Garðar Sverrisson
    Hin hljóðu tár, ævisaga Ástu Sigurbrandsdóttur e. Sigurbjörgu Árnadóttur
    Lífsstríðið, æviferð Margrétar Þórðardóttur e. Eirík Jónsson
    Tónlist í þættinum í dag:
    Velkomin heim / Haraldur Reynisson (Haraldur Reynisson)
    Let It Be Me / The Everly Brothers (Mann Curtis, Pierre Delanoe)
    It’s Only a Paper Moon / Perry Como (Billy Rose, Harlod Arlen & Yip Harburg)
    UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
    52 min
  • Helgi Pétursson föstudagsgestur og matur sem byrjar á emm
    Helgi Pétursson, eða Helgi Pé eins og hann er jafnan kallaður, kemur upprunalega úr Kópavoginum og hefur lengst af verið kenndur við Ríó Tríó, en þeir félagar stofnuðu hljómsveitina kornungir. Undanfarin ár hefur hann starfað fyrir Landsamband eldri borgara og hefur látið að sér kveða á þeim vettvangi, en er nú að hætta störfum sem framkvæmdastjóri sambandsins. Við buðum Helga velkomin sem föstudagsgest og fórum með honum yfir það helsta eftir þessi fjögur ár hjá LEB, svo fórum við aftur í tímann og hann rifjaði upp hvernig hann og Ólafur Þórðarson byrjuðu að spreyta sig á tónlist og söng fyrir 10 ára aldur. Svo fengum við að vita hvað er framundan hjá Helga.
    Í matarspjalli dagsins ákváðum við að tala um mat sem byrjar á M af því nú er maímánuður nýhafinn. Maís, mangó, marhnútur og marengs til dæmis. Við fengum ábendingar frá hlustendum og rifjuðum upp erfiða lífsreynslu tengda keppni í marengstertugerð.
    Tónlist í þættinum í dag:
    Alltaf einn / Ríó tríó (Gunnar Þórðarson, texti Jónas Friðrik Guðnason)
    Þegar hjartað segir frá / Ríó tríó (Gunnar Þórðarson, texti Jónas Friðrik Guðnason)
    Létt / Ríó tríó (Gunnar Þórðarson, texti Jónas Friðrik Guðnason)
    UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
    49 min
  • Hláturjóga, leiðsöguhundar og golfsumarið 2025
    Það eru ekki allir sem treysta sér í jógaæfingar en líklega geta flestir tileinkað sér hláturjóga. Það er talið að hláturjóga dragi úr streitu og hjálpi líkamanum að framleiða endorfín og fleiri jákvæð efni sem hafa ýmis jákvæð áhrif á okkur, bæði líkamlega og andlega. Við fengum í dag tvo hláturjógaleiðbeinendur, Ástu Valdimarsdóttur og Þorstein Gunnar Bjarnason.
    Alþjóðlegur dagur leiðsöguhunda er haldinn hátíðlegur um allan heim í dag. Á síðastliðnum árum hefur leiðsöguhundum fjölgað jafnt og þétt og má búast við að enn bætist í þennan fjölbreytta og frábæra hóp á næstu árum. Vonandi vitum við það flest að þegar leiðsöguhundur er í vinnubeislinu sínu þá ættum við að gefa honum vinnufrið, því hann þarf að einbeita sér að verkefninu sem fyrir hann er lagt. Þorkell Steindal og hundurinn hans Gaur komu í þáttinn í dag og fræddu okkur um eiginleika góðra leiðsöguhunda og fleira.
    Lóan er komin, hitastigum fjölgar, sólin hækkar á lofti og grasið grænkar. Þá fara kylfingar um allt land að fá kitling í lófana og löngun til að grípa í golfkylfur sínar og elta litlu kúlurnur ofan í holurnar í sem fæstum höggum. Tugir þúsunda eru meðlimir í golfklúbbum landsins og Brynjar Eldon Geirsson, framkvæmdastjóri Golfsambands Íslands var á línunni í dag og sagði okkur frá golfsumrinu sem er framundan, hvernig vellir koma undan vetri, innanhúsgolfi og fleiru.
    Tónlist í þættinum í dag:
    Léttlynda löggan / Stefán Karl Stefánsson (Charles Penrose, texti Gísli Rúnar Jónsson)
    Hláturpolka / Sigríður Magnúsdóttir og Hljómsveit Ásgeirs Sverrissonar (May Marthall – texti, Númi Þorbergsson)
    Hundurinn / Varsjárbandalagið og Karlakórinn Case (Sigríður Ásta Árnadóttir)
    Sólin er komin / Mugison (Örn Elías Guðmundsson)
    UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
    53 min
  • VÆB á leið til Basel, Léttsveit Reykjavíkur og veðurspjallið með Einari
    VÆB bræður, Matthías og Hálfdán, stíga á svið í Basel fyrir Íslands hönd á fyrra undanúrslitakvöldi Eurovision 13.maí. Hópurinn fer til Sviss síðar í vikunni og það er skiljanlega mikil spenna fyrir því sem koma skal. Rúnar Freyr Gíslason fjölmiðlafulltrúi íslenska hópsins og VÆB var hjá okkur í dag og fór með okkur yfir það sem er framundan og stemninguna í hópnum.
    Léttsveit Reykjavíkur er stærsti kvennakór landsins, en hann samanstendur af 100 konum á öllum aldri með fjölbreyttan bakgrunn. Léttsveitin á þrjátíu ára afmæli í ár og verður því með ýmsa viðburði tengda afmælinu víða um landið. Við fengum þær Ingibjörgu Margréti Gunnlaugsdóttur, formann kórsins og Helgu Björk Jónsdóttur, kórfélaga, til að segja okkur frá kórnum, starfseminni og afmælisárinu.
    Svo var það veðurspjallið með Einari Sveinbjörnssyni. Í dag ræddi hann við okkur um rafmagnsleysið á Spáni og í Portúgal undanfarinn sólarhring og tengsl þess við veður. Hann talaði svo um þessa góðu tíð sem hefur verið undanfarið og bar hana saman við sama tíma í fyrra og svo skoðuðum við aðeins horfurnar framundan. Kemur hret? Einar fór með okkur yfir það í veðurspjallinu í dag.
    Tónlist í þættinum í dag:
    Vorið kemur / Diddú (Valgeir Guðjónsson, texti Jóhannes úr Kötlum)
    Róa / VÆB (Ingi Bauer, Gunnar Björn Gunnarsson, Hálfdán Helgi og Matthías Davíð Matthíassynir, enskur texti Peter Fenner)
    Langferð (Aften) / Léttsveit Reykjavíkur (Matti Borg, texti Eygló Eyjólfsdóttir)
    Þá mun vorið vaxa / Hjálmar (Þorsteinn Einarsson, texti Einar Georg Einarsson)
    UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
    52 min
  • Þóra og Ævintýrajóga, lífeyrismálin á mannamáli og Bergdís lesandi vikunnar
    Þóra Rós Guðbjartsdóttir dansari og jógakennari lærði listdans í Mexíkó og er núna á skjám landsmanna þar sem hún kennir börnum jóga í gegnum þættina Ævintýrajóga. Í Mexíkó ferðaðist hún um með danshópum og sýndi dans en fann sig svo betur í jógafræðunum og er með ýmis plön í farvatninu og ekki bara fyrir börn. Þóra kom til okkar í dag.
    Eins og undanfarna mánudaga kom Georg Lúðvíksson til okkar í dag í það sem við köllum fjármálin á mannamáli og í dag fór hann aðeins með okkur yfir lífeyrismálin. Þau eru mikilvæg og ekki því fyrr sem maður hugsar um þau og kynnir sér þau, því betra. Georg fór betur yfir lífeyrismálin í þættinum.
    Lesandi vikunnar í Mannlega þættinum í þetta sinn var svo Bergdís Júlía Jóhannsdóttir, leikkona, leikstjóri og leiklistarkennari, en hún skrifaði, ásamt Arnari Haukssyni, útvarpsleikritið Sorrí hvað ég svara seint, sem var flutt um páskana í útvarpinu og hægt er að hlusta á í spilara RÚV. Við fáum hana aðeins til að segja okkur frá því og svo auðvitað líka frá þeim bókum sem hún hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hana í gegnum tíðina. Bergdís talaði um eftirfarandi bækur og höfunda:
    Systir mín, raðmorðinginn e. Oyinkan Braithwaite
    Hælið e. Emil Hjörvar Petersen
    Uncut Funk e. Bell Hooks og Stuart Hall
    Guðrún Helgadóttir og Astrid Lindgren
    Bell Hooks
    Andri Snær Magnason
    Shaun Tan
    Sólveig Eva Magnúsdóttir
    Tónlist í þættinum í dag:
    Byrjaðu í dag að elska / Geirfuglarnir (Rokkmúsirnar)
    Perfidia / Linda Ronstadt (Milton Leeds)
    Apríkósusalsa / Sniglabandið og Borgardætur (Pálmi J. Sigurhjartarsson og Helga Kvam)
    UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
    51 min
  • Grétar Örvarsson föstudagsgestur og sumarmatarspjall
    Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var tónlistarmaðurinn Grétar Örvarsson. Hann þekkja auðvitað flestir úr hljómsveitinni Stjórninni þar sem hann og Sigga Beinteins hafa sungið sig inn í hjörtu þjóðarinnar, til dæmis í Eurovision og mun víðar. Við fórum með honum aftur í tímann á æskuslóðirnar á Höfn í Hornafirði, þar sem hann ólst upp á heimili ömmu sinnar og afa. Hann sagði til dæmis sögur af því þegar heimilið breyttist í fæðingarheimili, því amma hans var ljósmóðir og svo þegar hann byrjaði að spila fyrir dansi fimmtán ára á hótelinu á Höfn. Við fórum á handahlaupum með honum í gegnum lífið til dagsins í dag en hann stendur fyrir tónleikum eftir viku í Salnum í Kópavogi undir nafninu Sunnanvindur - eftirlætislög Íslendinga.
    Sigurlaug Margrét var svo auðvitað með okkur í matarspjallinu og í dag, í upphafi sumars, töluðum við um kjúklingarétt með sólþurrkuðum tómötum, og hægeldaðan lambabóg úr smiðju Yotam Ottolenghi.
    Tónlist í þættinum í dag:
    Ég er kominn heim / Óðinn Valdimarsson (Imre Kálmán, texti Jón Sigurðsson)
    Eina nótt (láttu mjúkra lokka flóð) / Grétar Örvarsson (Kris Kristofferson, texti Jónas Friðrik Guðnason)
    Sumarlag / Stjórnin (Eyjólfur Kristjánsson, texti Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson)
    UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
    50 min
  • Stóri plokkdagurinn, skólagangan í dægurtextum og póstkort frá Magnúsi
    Á sunnudaginn mun forseti Íslands setja Stóra plokkdaginn og svo verður haldið upp á daginn um allt land með tilheyrandi plokki. Stóri plokkdagurinn hefur verið haldinn frá árinu 2018 og hefur hann vaxið og dafnað síðan. Fólk er hvatt til að skipuleggja plokk í sínu nágrenni, eða bara hvar sem er með því að sameinast í útiveru og plokka rusl. Rótarý hreyfingin, í samstarfi við Landsvirkjun og Umhverfisráðuneytið standa að Stóra plokkdeginum og til okkar komu í dag þau Jón Karl Ólafsson, forseti Rótarý hreyfingarinnar á Íslandi og Elín Birna plokkari á Eyrarbakka, sem verður sérstakur gestur setningarathafnarinnar á sunnudaginn.
    Karl Hallgrímsson kom svo til okkar, en hann vann útvarpsþætti sem verða fluttir á Rás 2 á næstunni og bera heitið Röfl um mengi og magann á beljum og eru hluti af meistarrannsókn þar sem úrtakið er um sextíu dægurlagatextar íslenskra höfunda og gerði Karl eigindlega rannsókn á innihaldi þeirra, dró fram svipmyndir og viðhorf sem þar birtast til skólans, námsins og tilheyrandi þátta.
    Við fengum að lokum póstkort í dag frá Magnúsi R. Einarssyni. Kort dagsins segir af páskahaldinu á Spáni, en Magnús hefur dvalið alla dymbilvikuna í Alicante. Páskahaldið einkennist af íburðarmiklum skrúðgöngum, háværri tónlisti og skrautlegum búningum. Risastór og þung líkneski eru borin um stræti og torg alla dagana og gríðarlegur fjöldi manna tekur þátt í hátíðarhöldunum.
    Tónlist í þættinum í dag:
    Berum út dívanana/Stuðmenn(Jakob Frímann-Þórður Árnason)
    Öll þín tár / KK, Ólöf Arnalds og Önnu Jónu Son (Kristján Kristjánsson, Haraldur Ingi Þorleifsson og Ólöf Helga Arnalds)
    Fallinn / Tívolí (Stefán S. Stefánsson)
    Nú liggur vel á mér / Ingibjörg Smith og Hljómsveit Magnúsar Ingimarssonar (Óðinn G. Þórarinsson, texti Númi Þorbergsson)
    UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
    52 min
  • Íslenskubrú Breiðholts, Tekla Hrund á Heilsuvaktinni og Urður lesandi vikunnar
    Grunnskólar í Breiðholti hlutu veglegan nýsköpunar- og starfsþróunarstyrk frá mennta og barnamálaráðuneytinu á síðasta ári fyrir verkefnið Íslenskubrú Breiðholts. ÍSAT stendur fyrir námsgreinina íslenska sem annað tungumál og markmið þess var að útbúa verkefni, leiðbeiningar, áætlanir, námsmat og ýmislegt fleira til að kennarar hefðu fleiri verkfæri og tól til þess að kenna íslensku sem annað mál. Þær Erla Guðrún Gísladóttir verkefnisstjóri verkefnisins og Heiðrún Ólöf Jónsdóttir kennari komu í þáttinn í dag.
    Hvað er næringarleg streita og hvernig er gott að bregðast við henni? Lítið er fjallað um þetta í öllu tali um streitu og Tekla Hrund Karlsdóttir læknir er að skoða sérstaklega hvernig streitan hefur áhrif á konur. Hún segir líkamskerfi kvenna svara umhverfisáreiti miklu meira og þær séu hreinlega viðkvæmari fyrir flóknari veikindum á borð við langvinnum covid einkennu,, potts, ME, vefjagigt, umhverfisóþoli og kulnun. Konur séu oft undir það miklu álagi að það bitnar á réttri næringarinntöku og vatnsneyslu. Tekla stofnaði sína eigin stofu, sem kallast SoundHealth, ásamt eiginmanni sínum, Kjartani Hrafni Loftssyni lækni, til að verja meiri tíma með sjúklingum sínum og leita lausna við einkennum sem oft fá ekki mikla meðhöndlun og greiningu í heilbrigðiskerfinu. Helga Arnardóttir talaði við Teklu Hrund á Heilsuvaktinni í dag.
    Lesandi vikunnar í Mannlega þættinum í dag var svo Urður Gunnarsdóttir, verkefnastjóri, en hún vinnur að atvinnu- og byggðaþróun, markaðsmálum og öðru tilfallandi og býr austur í Fljótsdal. Við fengum að vita hvaða bækur hún hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hana í gegnum tíðina. Urður talaði um eftirfarandi bækur og höfunda:
    Strá fyrir Straumi – Sigríður Pálsdóttir e. Erlu Huldu Halldórsdóttur
    Hnífur e. Salman Rushdie
    Í skugga trjánna e. Guðrún Eva Mínervudóttir
    Æviminningar Sigfúsar á Austfjarðarútunni e. Vilhjálm Einarsson
    Vefarinn mikli frá Kasmír e. Halldór Laxness
    Bone Clocks e. David Mitchell
    Eyland e. Sigríði Hagalín
    Tónlist í þættinum í dag:
    Indæl er æskutíð / Adda Örnólfs og tríó Ólafs Gauks (Erlent lag, texti Eiríkur Karl Eiríksson)
    Sólbrúnir vangar / Berti Möller (Oddgeir Kristjánsson og Ási í Bæ)
    UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
    49 min
  • Logi Bergmann páskagestur og páskalambið með Úlfari Finnbjörnss.
    Í dag er síðasti virki dagurinn fyrir páska, því ákváðum við að fá ekki föstudagsgest, heldur miðvikudags-föstudags-páskagest. Logi Bergmann Eiðsson hefur nú búið í Washington í um það bil 8 mánuði, en eiginkona hans, Svanhildur Hólm Valsdóttir, er sendiherra Íslands þar. Við spurðum hann út í dvölina í Washington, fórum með honum aftur í tímann og í gegnum ferilinn og lífið á handahlaupum til dagsins í dag.
    Það eru margir sem ætla að matreiða lambakjöt um páskana og oft verða lærin fyrir valinu. Úlfar Finnbjörnsson matreiðslumeistari kom svo til okkar og fór með okkur yfir það hvernig á að elda hið fullkomna páskalamb.
    Tónlist í þættinum í dag:
    Sjóddu frekar egg / Bogomil Font og Greiningardeildin (Bragi Valdimar Skúlason)
    Þá kemur þú / Nýdönsk (Björn Jörundur Friðbjörnsson)
    I Don’t Wanna Hear About It / Maggie Antone (Maggie Antone & Carol Karpinen)
    UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
    53 min
  • SLF leitar að nýju nafni, jazzsöngkonur og páskaveðrið
    Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra kallar eftir hugmyndum um nýtt nafn fyrir félagið. Þegar félagasamtökin voru stofnuð, um miðja síðustu öld, geysaði skæð farsótt, lömunarveikin, sem lagðist af þunga á fjölmörg börn og ungt fólk. Tímarnir hafa breyst og margt hefur breyst til hins betra í samfélaginu og enn er ýmsir þröskuldar á vegi fólks með fötlun, áþreifanlegir og óáþreifanlegir. Bergljót Borg, framkvæmdastjóri Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra, kom í þáttinn og sagði okkur sögu samtakanna og leitinni að nýja nafninu, sem þau vilji að verði einkennandi fyrir gildi, starfsemi og framtíðarsýn félagsins.
    Jazzsöngkonur koma saman síðasta vetrardag og syngja lög þekktra söngkvenna eins og Peggy Lee, Judy Garland, Julie London og fleiri. Rebekka Blöndal, Kristjana Stefáns og Silva Þórðar, þrjár af fimm söngkonum sem koma fram á tónleikunum, komu til okkar í dag og spjölluðu um líf jazzsöngkonunnar og þau verkefni sem þær eru að fást við.
    Svo kom Einar Sveinbjörnsson til okkar í veðurspjallið, en í dag ræddi við okkur um borgarskóga og áhrif þeirra á til dæmis veðurfar. Hann talaði um umskiptin í veðrinu framundan og hugtakið páskahret og svo auðvitað að skoðaði hann aðeins páskaveðrið sem lítur bara nokkuð vel út víðast hvar um landið.
    Tónlist í þættinum í dag:
    Ég hef heyrt / BG og Ingibjörg (Lois Armstrong, texti BG og Ingibjörg)
    Fever / Peggy Lee (John Davenport og Eddie Cooley)
    Tenderly / Rosemary Clooney (Walter Cross og J.Lawrence)
    Sukiyaki / Kyu Sakamoto (Hachidai Nakamura & Rokusuke Ei)
    UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
    52 min

About Mannlegi þátturinn

From the publisher's feed

Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1. Netfang: [email protected]. Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.

More shows like Mannlegi þátturinn

Segðu mér by RÚV

Segðu mér

19 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

471 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

131 Listeners

Fókus by DV

Fókus

2 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

90 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

22 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

18 Listeners

Menn eins og við / Einmitt hlaðvarp by Einar Bárðar og Baldur Rafn Gylfason

Menn eins og við / Einmitt hlaðvarp

4 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

21 Listeners

Spjallið by Spjallið Podcast

Spjallið

14 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

36 Listeners

Undirmannaðar by Undirmannaðar

Undirmannaðar

5 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

8 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

25 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

11 Listeners