Verð á matvælum hefur hækkað í hverjum einasta mánuði frá áramótum samkvæmt verðlagseftirlit ASÍ. Nautakjöt hefur hækkað mest og í einstaka tilfellum um allt að 20 prósent á ársgrundvelli.
Það eru að verða níu ár síðan meirihluti breskra kjósenda samþykkti útgöngu úr Evrópusambandinu - og rúm fimm ár síðan útgangan tók formlega gildi - en á leiðtogafundi sem haldinn var í Lundúnum í morgun var hins vegar samþykkt að taka ákveðin skref til baka - til hagsbóta fyrir breskan almenning segir Keir Starmer forsætisráðherra Bretlands. Innan stjórnarandstöðunnar er hins vegar talað um uppgjöf fyrir Evrópusambandinu.
Sólarorkuverum fjölgar hratt á Íslandi og segja má að sólarorkubylting sé að hefjast. Orkuverð hækkar og búnaður hefur batnað. Plötur sem fanga orkuna þurfa ekki glampandi sól og rafhlöður geta geymt orkuna til næturinnar. Fyrirtækið Alor setur þessa dagana upp sólarorkuver á nokkrum stöðum á landinu.