
Sign up to save your podcasts
Or


Based on Podcast App listening data
Nína Dögg Filippusdóttir er gestur Einars í 16. þætti Einmitt. Nína er ein þekktasta leikkona landsins og atkvæðamikill framleiðandi í gegnum framleiðslufyrirtækið sitt Vesturport sem hún á með manni sínum og félögum. Hún talar um bransann, biðina og framtíðina um leið og hún ræðir um bróður sinn, Sigurjón Brink, sem lést langt fyrir aldur fram. Nína deilir því einnig hvernig leikarinn reynir að nýta reynsluna sem lífið færir inn í listformið.
Arnar Sveinn Geirsson er gestur Einars í 15. þætti af Einmitt. Arnar er forseti leikmannasamtakanna á Íslandi, mannauðsstjóri hjá SaltPay og varaformaður stjórnar Krafts, stuðningsfélags ungs fólks með krabbamein og aðstandenda. Við ræðum um tilfinningar, en ekki hvað. Við ræðum einnig um afreksíþróttir, meðal annars mál Söru Bjarkar, gang íslenska karlalandsliðsins á HM i Svíþjóð og margt margt fleira.
Guðrún Herborg Hergeirsdóttir er handboltakona af líkama og sál. Hún er systir Þóris Hergeirssonar landsliðsþjálfara í Noregi og móðir Janusar Daða Smárasonar lykilsmanns í íslenska karlalandsliðinu sem nú keppir á HM í Svíþjóð. Hún er sjálf fyrrum leikmaður meistaraflokks og er og hefur verið einn af máttarstólpum handboltans á Selfossi og þaðan er stór hluti íslenska landsliðsins bæði í kvenna- og karlaflokki sóttur. Einar ræðir við Guðrúnu um hennar sýn á árangur í liðsíþróttum, fórnirnar, alla lakkríspokana sem þarf að selja til að búa til einn landsliðskeppanda og margt margt fleira.
Vala Kristín Eiríksdóttir útskrifaðist úr leikaranámi frá Listaháskóla Íslands vorið 2015 og var fastráðin sama ár við Borgarleikhúsið hún hlaut Grímuverðlaun sem leikkona í aukahlutverki fyrir Matthildi á þeim bæ. Vala er einn af handritshöfundum og leikurum í sjónvarpsþáttunum "Venjulegt fólk" sem er hugarfóstur hennar og Júlíönu Söru Gunnarsdóttur samstarfskonu hennar. Í þeirri vegferð hafa þær brotið blað og náð árangri sem engum öðrum hefur tekist því sjötta þáttaröð seríunnar er á leiðinni í framleiðslu og það er verið að tala um bíómynd. Þetta allt og svo miklu fleira í samtali þeirra Einars.
Svali, Sigvaldi Kaldalóns og konan hans Jóhanna seldu allt sem þau áttu á Íslandi haustið 2017 og fluttu til Tenerife. Frábært að freysta gæfunar sögðu margir, þetta er bilun sögðu aðrir. Svali fór í ferðaþjónustu þar niður frá og Jóhanna fór að vinna sem hárgreiðslumeistari. Núna eru liðin fimm ár og einn margfaldur Covid faraldur sem einmitt lagðist mjög illa á ferðaþjónustuna og hágreiðslustofur. Svali er gestur Einars Bárðar í nýjasta þætti Einmitt þar sem Svali ræðir á mjög opin og einlægan hátt hvernig nýja lífið á Tene hefur reynst þeim.
Kristrún Frostadóttir kom inn í íslensk stjórnmál með hvelli fyrir um það bil einu og hálfu ári. Í haust var hún kosin formaður Samfylkingarinnar og á örfáum vikum var hún einn vinsælasti stjórnamálamaður landsins og Samfylkingin á sama hraða orðin annar stærsti stjórnmálaflokkur landsins, sé horft til nýrra viðhorfsmælinga. Einar og Kristrún ræða vorið í Samfylkingunni og hvernig vinstri sinnaður hagfræðingur ætlar að reisa við íslenskt innviðakerfi á þremur kjörtímabilum fái hún umboð til þess.
Aðalsteinn Leifsson Ríkissáttasemjari er gestur Einar Bárðarsonar í nýjasta hlaðvarpsþætti þess síðarnefnda, Einmitt. Þar fara þeir yfir dagleg störf hjá embættinu og bakgrunn Aðalsteins sem hefur kennt samningatækni um árabil. Síðustu ár hefur Aðalsteinn beitt sér fyrir eflingu sáttamiðlunar í íslensku samfélagi með aðstoð og aðkomu írsku sáttamiðlunarstofnunarinnar sem hefur staðið fyrir námskeiðum hér á landi.
Stefán Jón Hafstein er starfsmaður Þróunarsamvinnustofnunar Íslands og hefur verið frá 2007. Hann á að baki feril sem stjórnmálamaður, fjölmiðlamaður og rithöfundur. Hann kom meðal annars að stofnun Dægurmálaútvarps Rásar 2, var borgarfulltrúi R listans og kom að stofnun Samfylkingarinnar. Hann sat sem fulltrúi flokksins í borgarstjórn þangað til að hann vatt sínu kvæði í kross árið 2007. Hann sendi nýlega frá sér bókina Heimurinn eins og hann er þar sem hann reifar stöðu vistkerfanna í heiminum með skírskotun í samtímann og söguna. Einar og Stefán ræða innihaldið og áskoranirnar sem blasa við í umhverfismálum út frá stöðu vistkerfanna í níunda þætti af Einmitt.
Kristján Þ. Davíðsson er stjórnarformaður Brims, eins stærsta útgerðarfyrirtækis landsins og þó víða væri leitað og einn okkar reyndasti stjórnandi í greininni. En hann er einnig stjórnarformaður SOS barnaþorpa sem veita 68.000 munaðarlausum börnum skjól. Kristján er ræðismaður Brasilíu á Íslandi og tekur málin í sínar eigin hendur ef allt annað þrýtur. Árið 2014 var hann sakaður um vopnað mannrán í Mexíkó. Kristján Þ. Davíðsson er gestur Einars Bárðarsonar í Einmitt þessa vikuna.
From the publisher's feed
Ranked by our users in the last 21 days

466 Listeners

140 Listeners

131 Listeners

2 Listeners

26 Listeners

90 Listeners

72 Listeners

31 Listeners

20 Listeners

28 Listeners

19 Listeners

36 Listeners

6 Listeners

5 Listeners

14 Listeners