
Sign up to save your podcasts
Or


Based on Podcast App listening data
Björgvin Pál þarf vart að kynna. Hann er afreksmaður af bestu gerð, silfurverðlaunahafi frá Ólympíuleikunum í handbolta árið 2008 og handhafi Fálkaorðunnar. En eins og Björgvin segir sjálfur þá var hann aldrei meira en einni ákvörðun frá allt öðrum örlögum. Hann steig fram fyrir rúmlega þremur árum og lýsti ofsakvíðakasti sem hann upplifði eftir tap landsliðsins í handbolta í leik á móti Frökkum á HM árið 2019. Uppgefinn og grátandi einn úti í nóttinni á torginu fyrir framan dómkirkjuna í Köln um hánótt spyr hann sig: „Hvernig komst ég hingað?” Björgvin hafði á þessum tíma nýlega fengið í hendurnar skýrslur barnaverndarnefndar um hann og baráttu þeirra við hann, ef það má lýsa því þannig. Hann var í raun á barmi taugaáfalls en steig fram og opinberaði reynslu sína. Hann gaf út bók fyrir jólin 2019 og nú er í raun að koma út barnvæn útgáfa af sömu skilaboðum í bókinni „Barn verður forseti.” Björgvin stendur í ströngu á handboltavellinum með Val bæði hérna heima og í Evrópukeppninni. Þess á milli flakkar hann um landið og talar við börn á spítölum, börn í skólum, fullorðna í leik og starfi og fanga á Litla Hrauni um sjálfsmyndir, fyrirmyndir og hvað lífið getur verið ferlega flókið. Björgvin Páll Gústavsson er gestur minn í þessum þætti af Einmitt.
Víðir Reynisson hefur staðið í ströngu og gerði það löngu fyrir Covid. Hann hefur fylgt bæði kvenna- og karlalandsliðunum okkar á Evrópu- og heimsmeistaramót í knattspyrnu síðustu ár sem öryggisstjóri. Hann er í dag yfirlögregluþjónn hjá Ríkislögreglustjóra á almannavarnasviði. Við ræddum ekkert um Covid en fórum um víðan völl í öryggismálum á stórviðburðum, aðstöðu og umgjörð karla- og kvennalandsliðanna, formann KSÍ, áskoranirnar sem henni hafa mætt og fótboltann sem Víði þykir vænt um.
Tinna Hallgrímsdóttir er forseti félags Ungra Umhverfissinna. Hún er með meistaragráðu í umhverfis- og auðlindafræði, hún situr í Loftslagsráði og nýkomin heim frá Egyptalandi þar sem hún sat COP27 loftslagsráðstefnu sameinuðu þjóðanna. Ég ræddi við Tinnu um starf hennar og Ungra umhverfissinna og fékk hana til útskýra fyrir mér umgjörð COP ráðstefnanna, tilurð þeirra og hvernig aðildarþjóðirnar eru að mæta þessari stærstu áskorun mannkynsins í dag, loftslagsbreytingum.
Davíð Lúther Sigurðsson er framkvæmdastjóri og meðeigandi auglýsingastofunnar Sahara. Þar starfa um fjörtíu manns og stofan hefur skapað sér nafn sem ein sú fremsta í starfrænni miðlun. Davíð gefur okkur innsýn í sitt daglega starf, áskoranirnar í og eftir Covid faraldur og hvað er það sem helst er eftirtektar vert í þróun samfélagsmiðlanna í dag og auðvitað reyna þeir Einar að átta sig á því hvert allt neikvæða fólkið á Twitter ætlar að fara núna eftir að Elon Musk hefur tekið Twitter í fangið.
Það kom mörgum í opna skjöldu þegar Vilborg Arna Gissurardóttir steig fram í ár og bætti sínu nafni á langan lista kvenna í MeToo baráttunni. Vilborg sem hefur birst okkur í erfiðustu andlegu og líkamlegu aðstæðum heims á miðju Suðurpólsins og á toppum allra hæðstu fjalla í heimi bognaði við álagið sem kom ofan í erfið ár í fjöllunum og meiðsl sem komu óvænt að henni. Hún opnaði sig við Einar um hvernig það er að missa sjálfstraustið og finna það aftur.
Freyr Eyjólfsson og samstarfsfólk hans unnu til Eddu verðlauna í ár fyrir þættina Missi sem vöktu mikla athygli í fyrra og voru sýndir á Sjónvarpi Símans. Freyr er reynslubolti í dagskrágerð, tónlist og í því að lifa lífinu lifandi. Hann starfar nú sem sérfræðingur hjá Sorpu en þar eru ærin verkefni en um leið spennandi. Gaja, umdeild verkefni Sorpu er nú loksins að komast á fullt skrið og Freyr segir Einari frá bjartri framtíð ruslsins, húsfylli á Flateyri og viðbrögðum Dóra Gylfa við öllum blokkunum í New York.
Heimsmeistarakeppni karla í knattspyrnu byrjar í dag, Margrét Lára Viðarsdóttir verður í eldlínunni í sérfræðiteymi Sjónvarpsins. Staðsetning og aðdragandi keppninnar hefur ekki verið óumdeildur. Aðstöðumal kvenna í fótbolta gagnvart körlum hafa mikið verið í umræðunni og Margét ræðir þessa þætti við Einar ásamt því að tala um nýjasta stóra verkefnið sitt sem er heilsumiðstöðin Heil. Fyrirtækið stofnaði hún ásamt eiginmanni sínum fyrr á árinu. Þetta, Ironman, Þjóðhátíð og sjálfstraust komu líka við sögu.
Magnús Árnason er einn áhrifamesti og farsælasti markaðsmaður landsins. Í dag er Magnús framkvæmdastjóri stafrænnar þróunar hjá Nova og eins og hann segir sjálfur frá hafa skapandi greinar og þá ekki síst tónlist alltaf verið rauður þráður í allri hans vinnu. Einar og Maggi ræða tónlist í auglýsingum allt frá hughrifum til notkunar réttar í skemmtilegu kaffi spjalli
From the publisher's feed
Ranked by our users in the last 21 days

466 Listeners

140 Listeners

131 Listeners

2 Listeners

26 Listeners

90 Listeners

72 Listeners

31 Listeners

20 Listeners

28 Listeners

19 Listeners

36 Listeners

6 Listeners

5 Listeners

14 Listeners