Spegillinn

Niceair gerir hlé, fleiri koma frá Venesúela og vanlíðan ungmenna


Listen Later

Flugfélagið Niceair hefur gert hlé á starfsemi sinni og aflýst flugi frá og með morgundeginum. Framkvæmdastjóri félagsins segir framhaldið óvíst en það sé ekki gjaldþrota. Amanda Guðrún Bjarnadóttir talaði við Þorvald Lúðvík Sigurjónsson.
Fimmtán hundruð manns frá fjörutíu og þremur löndum hafa sótt um alþjóðlega vernd hér á landi frá áramótum. Fleiri komu frá Venesúela en Úkraínu. Alma Ómarsdóttir tók saman
Verjendur í hoppukastalamálinu svokallaða fóru í dag fram á að nánara mat yrði gert á sönnunargögnum málsins áður en aðalmeðferð þess hefst. Ólöf Rún Erlendsdóttir tók saman.
Þrjú þúsund Íslendingar hafa flogið suður á bóginn og ætla að verja páskunum á eyjunni Tenerife. Elsa María Guðlaugs Drífudóttir talaði við Rökkva Árnason og Óðinn Hrafn Bjarkason.
-------------------------------------------------------------------------------
Lengri umfjallanir:
Geðheilsa ungmenna hefur versnað verulega undanfarin 10 ár. Ný rannsókn vísindamanna við Menntavísindasvið Háskóla íslands sýnir að marktækt samband er á milli netsamskipta og þunglyndis- og kvíðaeinkanna hjá 15 ára stúlkum. Í rannsókninni er rýnt í breytingar á geðheilsu ungs fólks í upphafi 21. aldar. Sagt er frá niðurstöðunum í grein í tímaritinu Scandinavian Journal of Public Health. Óttar Guðbjörn Birgisson, aðjunkt og doktorsnemi í Deild heilsueflingar, íþrótta og tómstunda á Menntavísindasviði, er fyrsti höfundur greinarinnar. Hafdís Helga Helgadóttir talaði við hann.
Mörgum Norðmanninum blöskar þegar þeir heyra að verulega eigi að draga úr neyslu á kjöti. Jafnvel svo að aðeins ein kjötflís verði á boðum í hverri viku - 350 grömm takk. Svo getur farið ef nýjum tillögum sérfræðinga Norrænu ráðherranefndarinnar verður fylgt. En andstaðan er hörð og líka hjá norska landbúnaðarráðherranum. Gísli Kristjánsson talar frá Noregi.
Ísraelskir lögreglumenn réðust inn í al-Aqsa moskuna í Jerúsalem í nóttskömmu fyrir dögun þar sem hópur fólks hafði læst sig þar inni eftir kvöldbænir, að sögn yfirvalda. Þeir voru grýttir og skotið að þeim flugeldum þegar þeir komu inn og svöruðu með höggsprengjum og skutu gúmmíhúðuðum byssukúlum á hópinn. Allt að fimmtíu særðust að sögn talsmanns Rauða hálfmánans í borginni. Sjúkrabílum sem voru sendir á vettvang var ekki hleypt að moskunni. Ásgeir Tómasson tók saman.
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

SpegillinnBy RÚV

  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7

4.7

6 ratings


More shows like Spegillinn

View all
Vikulokin by RÚV

Vikulokin

8 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

469 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

149 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

23 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

26 Listeners

Heimsglugginn by RÚV

Heimsglugginn

12 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

24 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

11 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

70 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

30 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

10 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

7 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

14 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

27 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

5 Listeners