Spegillinn 31. maí 2021
Umsjónarmaður: Bergljót Baldursdóttir
Þórólfur Guðnason, sóttvarnalæknir telur að hættunni sé boðið heim með fjölgun ferðamanna. Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn segir að eftirlitsdeild almannavarnadeildar kanni hvort fólk virði sóttkví. Aðeins hafi þurft að vísa örfáum tilfellum til lögreglu.
Leiðtogar Frakklands og Þýskalands krefjast þess að upplýst verði hvað hæft sé í fréttum um að Bandaríkjamenn hafi njósnað um evrópska samherja þeirra með hjálp Dana.
Alþingi samþykkti í dag fjármálaáætlun stjórnvalda til næstu fimm ára. Forsætisráðherra hefur trú á því að atvinnulífið nái kröftugri viðspyrnu þegar Covid-faraldrinum lýkur. Birgir Þórarinsson þingmaður Miðflokksins og Halldóra Mogensen á Alþingi í dag.
Íslenskir jöklar hafa minnkað um 18 prósent að flatarmáli frá lokum 19. aldar eða um tvö þúsund og tvö hundruð ferkílómetra. Rætt við Odd Sigurðsson, jarðfræðing sem er annar höfunda nýlegrar greinar um breytingar á útbreiðslu íslenskra jökla.
Lengra efni:
Samskipti Svisslendinga og Evrópusambandsins eru nú í uppnámi eftir að Svisslendingar slitu viðræðum við sambandið eftirt sjö ára samningaþóf. Svisslendingar kusu á sínum tíma að fara sínar eigin leiðir í samningum við Brussel en það hefur ekki gengið þrautarlaust fyrir sig. Jón Björgvinsson í Sviss sagði frá
Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, segir að það sé mjög alvarlegt mál að Bandaríkjamenn hafi njósnað með aðstoð frá dönsku leyniþjónustunni um háttsetta stjórnmálamenn, embættismenn, fyrirtæki og stofnanir í nágrannalöndum Danmerkur. Hún hefur áhyggjur af því hvaða áhrif þetta geti haft á traust á milli Norðurlandaþjóðanna. Arnar Páll Hauksson, ræddi við hana
Nokkur fyrirtæki hér á landi taka nú þátt í að þróa hugbúnað sem auðveldar þeim að reikna út og fylgjast með kolefnisspori sínu á hraðari og betri hátt en áður. Ólöf Lovísa Jóhannsdóttir hagfræðingur og Stefán Kári Sveinbjörnsson verkfræðingur fengu hugmyndina að hugbúnaðinum þegar þau voru við störf hjá Landsvirkjun. Þau hafa nú stofna fyrirtækið Greenfo í kringum hana. Bergljót Baldursdóttir ræddi við Stefán og Ólöfu