Spegillinn

Nýir tímar í Brasilíu, Suðurnesjalína 2 og laxaskattur í Noregi


Listen Later

Björn Zoëga ráðgjafi heilbrigðisráðherra telur ýmis tækifæri blasa við til að bæta skipulag heilbrigðiskerfisins án þess að auka útgjöld. Álag á Landspítala vegna umgangspesta sé alþjóðlegt vandamál.
Fyrrverandi starfsmenn Atlantshafsbandalagsins telja að öflugri stuðningur bandalagsins við Úkraínu geti komið í veg fyrir að stríðið breiðist út. Bandalagið þurfi að vera beinni og virkari þátttakandi.
Nýliðið ár var það heitasta víða í Evrópu. Talið er að hitinn hafi til að mynda dregið um fimm þúsund Spánverja til dauða.
Forseti Brasilíu sakar fyrirrennara sinn um þjóðarmorð fyrir að hafa ekki gripið til harðra aðgerða í kóvid-faraldrinum. Hann hafi orðið hátt í sjö hundruð þúsundum landsmanna að bana.
Akureyrskir kettir geta enn trítlað um götur bæjarins að næturlagi. Fyrirhugað útgöngubann, sem taka átti gildi um áramót, kom ekki til framkvæmda.
-----
Lengi hafa Suðurnesjamenn kallað eftir aukinni raforku á svæðinu til að byggja upp atvinnu. Skemmst er að minnast örlaga álvers sem aldrei varð í Helguvík vegna þess að ekki var hægt að fá orku. Suðurnesjalína 2 er þrætueplið. Landsnet segir tafir á lagningu línunnar kosta samfélagið marga milljarða á ári en sveitarstjórnarmenn segja málið í eðlilegum farvegi.
Saga Suðurnesjalínu 2 er bæði löng og stormasöm. Fyrst fékkst leyfi til framkvæmda 2013, landeigendur kærðu það því þeir vildu að línan yrði lögð í jörð. Árið 2016 ógilti Hæstiréttur framkvæmdaleyfið á grundvelli gallaðs umhverfismats. En eftir ítarlega rýni kaus Landsnet að halda loftlínukostinum til streitu og óska eftir framkvæmdaleyfi. Þrjú af fjórum sveitarfélögum sem línan liggur um hafa þegar gert það.
"Lifi lýðræðið! Lifi brasilíska þjóðin! Þakka ykkur kærlega fyrir, félagar!" Þannig endaði Luiz Inácio Lula da Silva ræðu sína þegar hann sór embættiseið sem forseti Brasilíu í þinghúsi landsins í gær. Lula, eins og hann er jafnan nefndur, sat í tvö kjörtímabil á forsetastóli snemma á öldinni, frá 1. janúar 2003 til 1. janúar 2011. Hann þótti ná góðum árangri við landstjórnina og varð einn vinsælasti stjórnmálamaðurinn í sögu Brasilíu og raunar heimsins alls, að því er fréttatímaritið Newsweek greindi frá árið 2010. Lula, leiðtogi vinstrimanna í Brasilíu, sigraði sitjandi forseta, hægrimanninn Jair Bolsonaro, með naumindum í forsetakosningum í haust. Það þóttu tíðindi, ekki síst í ljósi þess að hann hafði setið í fangelsi í eitt og hálft ár vegna dóms sem hann hlaut fyrir fjármálaspillingu. Sá dómur var ógiltur árið 2021. Bolsonaro hefur til þessa neitað að viðurkenna úrslitin. Hann var ekki viðstad
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

SpegillinnBy RÚV

  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7

4.7

6 ratings


More shows like Spegillinn

View all
Vikulokin by RÚV

Vikulokin

8 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

469 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

149 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

23 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

27 Listeners

Heimsglugginn by RÚV

Heimsglugginn

12 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

24 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

11 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

70 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

30 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

10 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

7 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

14 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

27 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

5 Listeners