Spegillinn 23. mars 2021
Umsjónarmaður: Bergljót Baldursdóttir
Lögreglan á Suðurnesjum reynir nú að fá fólk til að yfirgefa gossvæðið á Reykjanesi vegna gasmengunar. Veðurstofan spáir því að hún verði lífshættuleg í kvöld. Múgur og margmenni hefur verið við eldstöðvarnar í dag. Rætt við Sigurð Bergman aðalvarðstjóra í lögreglunni á Suðurnesjum.
Gosið í Geldingadölum gæti varað í mánuði eða ár segir prófessor í jarðefnafræði. Margt sé að varast því sprungur geti opnast hratt og gastegundir streymt af krafti úr þeim. Hólfmríður Dagný Friðjónsdóttir, fréttamaður ræddi við Andra Stefánsson prófessor í jarðefnafræði við gosstöðvarnar í dag.
Leitað verður allra leiða til að flýta bólusetningu segir forsætisráðherra. Heilbrigðisráðuneytið skoðar nú bóluefnið spútnik fimm sem framleitt er í Rússlandi. Heyrist í Katrínu Jakobsdóttur, forsætisráðherra og Sigmund Davíð Gunnlaugsson í umræðum á Alþingi í dag
Nicola Sturgeon, fyrsti ráðherra Skotlands, stóð af sér vantrauststillögu á þinginu í Edinborg í dag. Íhaldsmenn lögðu hana fram, þar sem hún hefði verið staðin að því að brjóta siðareglur þingsins
Breyta þarf lögum eigi að skylda þá sem koma til landsins í sóttvarnahús. Þetta segir formaður Velferðarnefndar. Hertar sóttvarnaráðstafanir á landamærunum eiga að taka gildi 1. apríl. Rætt við Helgu Völu Helgadóttur, þingmann Samfylkingarinnar og formann Velferðarnefndar Alþingis.
Lengri umfjöllun:
Tilkynnt hefur verið um mjög gróft líkamlegt ofbeldi á öldruðum til þjónustumiðstöðvar borgarinnar og einnig um fjárhagslega misnotkun. Deildarstjóri á þjónustumiðstöð segir að ofbeldi á öldruðum sé mjög falið. Bergljót Baldursdóttir ræðir við Sigrúnu Ingvarsdóttur, félagsráðgjafa og deildarstjóra á þjónustumiðstöð Laugardals- og Háaleitis.
Svo virðist sem talsverður áhugi sé meðal fyrirtækja á að nýta ráðningarstyrki til að ráða atvinnulaust fólk. Forstjóri Vinnumálastofnunar segir að fyirtæki sýni ákveðna samfélagslega ábyrgð ef þau nýta ráðningarstyrki til að ráða fólk á atvinnuleysisskrá. Arnar Páll Hauksson ræðir við Unni Sverrisdóttur, forstjóra Vinnumálastofnunar og Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóra Samtaka Atvinnulífsins
Ár er síðan Covid-19 faraldurinn lokaði Bretlandi og Bretar horfa nú yfir farinn veg. Bólusetning gengur vel en ennþá er óljóst hvenær lífið kemst í eðlilegt horf. Minnst var á það sorglega met Breta í dauðsföllum með klukknahljómi á hádegi í dag. Sigrún Davíðsdóttir í Lundúnum segir frá