Hitakóf, svefnvandamál, beinþynning, kvíði, þunglyndi, vöðvarýrnun, þurr húð, nætursviti, hárlos, skapbreytingar, sársaukafullt kynlíf og minni kynlífsáhugi eru allt einkenni breytingaskeiðsins.
Þetta eru einkenni sem margar okkar og þar með ég sjálf, upplifum þegar við erum á besta aldri. Breytingaskeiðið er náttúrlegur hluti af lífinu en getur reynst mörgum erfitt tímabil að ganga í gegnum.
Hvað getum við gert til að minnka þessi einkenni og hlúð betur að heilsu okkar? Í þættinum ræði ég um breytingaskeiðið við Ásthildi sem er ljósmóðir og næringarráðgjafi og hvað við getum gert til að líða betur og minnkað einkenni þessa tímabils sem við konur förum í gegnum.
Hún gefur okkur ráð varðandi hvað við getum sjálfar gert til þess að líða betur og hvernig við getum tekist á við, minnkað, eða jafnvel komið í veg fyrir ýmis óþægileg einkenni á breytingaskeiðinu.
Fylgdu Lindu á samfélagsmiðlum.
➡️ INSTAGRAM
➡️ FACEBOOK
➡️ TAKTU SKREFIÐ FB GRÚPPA
➡️ HEIMASÍÐA
✔️LÍFSÞJÁLFASKÓLINN
✔️LMLP PRÓGRAMMIÐ
✔️VIÐSKIPTA MASTERMIND
✔️MASTERCLASS PAKKAR
✔️NÁMSKEIÐ
✔️VÖRUR
✔️MAGASÍNIÐ M/LINDU PÉ (ókeypis)
P.s. Ég yrði afar þakklát ef þú tækir þér mínútu til að gefa podcastinu 5 stjörnu meðmæli á ITunes/Apple Podcast. Með því fá fleiri að hlusta á efnið sem ég set hér fram. Fyrirfram þakkir! Smelltu hér til þess.