Tímafrekri og flókinni rannsókn lögreglunnar á Suðurnesjum á fleiri kynferðisbrotamálum fjölskylduföður á sextugsaldri er lokið. Hann var fyrr í sumar dæmdur í sex ára fangelsi fyrir brot gegn fimm stúlkum á grunnskólaaldri. Freyr Gígja Gunnarsson sagði frá.
Veiðimaður sem brann illa í morgun þegar stöng hans rakst í háspennulínu á bakkanum við Eystri-Rangá er vanur veiðum og þekkir hættuna við ána segir Gunnar Guðjónsson leiðsögumaður. Ingibjörg Sara Guðmundsdóttir talaði við hann.
Liz Truss, nýr forsætisráðherra Bretlands heitir því að skapa öllum landsmönnum þau tækifæri sem þeir verðskulda. Skatta á að lækka og ýta undir vöxt. Brynjólfur Þór Guðmundsson tók saman.
Komum skemmtiferðaskipa hefur fjölgað mjög og stefnir í met í ár. Bókanir fyrir næsta ár hafa aukist um þriðjung. Gunnar Tryggvason starfandi hafnarstjóri segir að breyting hafi orðið á skipulagi ferðanna.
Vanda Sigurgeirsdóttir, formaður KSÍ segir íslensku landsliðskonurnar mjög einbeittar og ákveðnar fyrir leikinn gegn Hollandi. Búið er að skipuleggja hátíðarhöld fyrir Hollendinga á vellinum í Utrecht en Vanda segir þær íslensku ætla að gera sitt allra besta til að skemma það.
Starfsemi endurhæfingarstöðvarinnar Ljóssins hefur farið vaxandi á síðustu árum, og fjölgaði komum þar um 24 prósent í fyrra. Í dag hófst herferð til að fjölga ljósavinum sem styrkja starfið og Erna Magnúsdóttir forstöðukona segir mikilvægt að tryggja krabbameinsgreinum endurhæfingu.
------------
Verðbólga og verðhækkanir í Evrópu gætu haft áhrif á komur erlendra ferðamanna en þau hafa enn ekki komið fram að ráði, að mati Skarphéðins Bergs Steinarssonar, ferðamálastjóra. Helst óttast menn að dragi úr haustferðum Breta. Anna Kristín Jónsdóttir talaði við hann.
Alþjóðakjarnorkumálastofnunin vill að komið verði upp öryggissvæði við Zaporizhzhia (Saporitsja) kjarnorkuverið í Úkraínu. Grípa verði til aðgerða þegar í stað til að koma í veg fyrir kjarnorkuslys. Ásgeir Tómasson sagði frá.
Ungir menn í Osló virðast hafa lagt námsbækurnar frá sér og tekið sér hnífa í hönd. Ef marka má orð borgarstjórans þar í borg setja unglingar hníf í vasann við hliðina á farsímanum. Og fá svo útrás í hnífabardögum við jafnaldra sína. Gísli Kristjánsson, fréttaritari í Osló segir frá.
Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir. Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon. Stjórn útsendingar fréttahluta: Margrét Júlía Ingimarsdóttir.